Lögrétta

Ataaseq assigiiaat ilaat

Lögrétta - 06.06.1928, Qupperneq 2

Lögrétta - 06.06.1928, Qupperneq 2
2 LÖGRJETTA LÖGRJETTA 8 I --------------- LÖ ÖRJBTTA ÓtgefaBdi og ritstjóri torgteinn Qftlasen Þúig’holtaistnetí 17. 8íœi 178. Innheimta og afgreiótla i Miðttrsetí S. tí-...... <■! I flestir lána fje hjá, taka að jafn- aði 33% í vexti af lánum sínum, o. s. frv. Besant, sem haldið hafa fram Indlandi og indverskri menningu sem fyrirmynd Norðurálfunnar. Frú Besant sagði t. d. (í blaðinu The Indian), að ef Indverjar væru ekki undirokuð þjóð, hefði slík bók verið fordæmd og gerð upp- tæk, eins og hvert annað sorprit. Indverjinn Ranga Iyer reit einnig heila bók til andsvara og beindist mest í þá átt, að Miss Mayo fær- ist ekki um að tala, því ástandið væri ekkert betra heima hjá henni sjálfri, í vestrænu menn- ingunni. Merkir Indverjar hafa samt tekið í annan streng og telja lýsingar bókarinnar rjettar og þjóðþarfa hugvekju (t. d. ein af kunnustu konum Indlands, frú Saroljini Naidu). í svipaða átt fóru ummæli Gandhi’s í blaða- grein (í The Indian). Hann seg- ist álíta bókina óhæfan og óþarf- an lestur fyrir Evrópu- og Ame- ríkumenn, því þeim geti bókin ekkert gagn gert, en hinsvegar geti allir Indverjar haft mikið gagn af henni. Þeir geti að vísu hnekt ádeilu hennar í því formi, sem hún sje sett fram í, en þeir i geti ekki hnekt þeim staðreynd- j um, sem liggi til grundvallar fyr- j ; ir ádeilunni. Síðustu frjettir. Suðurherinn kínverski hefur [ tekið Peking og ræður nú yfir | j mestöllu Kínaveldi, norður að j Mansjúríu. Chang Tso Lin hjelt ! undan til Mukden. Þar skamt frá var varpað sprengikúlu fyrir vagn j þann, sem hann var í. Særðist hann lítið eitt, en 30 menn biðu bana og margir særðust alvarlega. Kínverjar í Múkden kenna Jap- um árásina, en Japanar kenna hana kínvei'skum mótstöðu- flokksmönnum Lins og eru út af þessu miklar viðsjár. Japanska j hverfið í Múkden hefur verið víg- girt, en nokkrir kínverskir þjóð- emissinnar hafa verið skotnir. — Ráðsfundur þjóðabandalagsins hófst 4. þ. m., en Stresemann og Briand eru báðir veikir og geta því ekki komið þar. — Fregn frá : Gautaborg segir, að prófessor Otto Nordenskjold landkönnuður j sje látinn. Hvanneyrar-hjðn Svava skal sól hafa sífelt og gæfulíf. Hún er um hróðurtún hrósi fáð prýðirós. — HaDdór minn höld jeg finn hugsannan dugarmann, hreggdjarfan hetjusegg, hraustan með þjóðartraust. Þonsteinn úr Bæ. Sumir hafa tekið bók þessari afarilla, einkum prestastjettin, j brahmanamir í Indlandi og önum nokkrir Evrópumenn, t. d. Annie Thor Jensen framkvæmdastjóri. Hann hefur nú starfað hjer á landi í 50 ár, kom hingað 14 ára gamall 5. júní 1878 og var þá ráðinn að Brydesverslun á Borð- eyri. Þar var hann 6 ár, en varð þá verslunarstjóri við Langes- verslun í Borgamesi fram til 1894. Rak hann þá jafnframt bú- skap á tveimur jörðum þar í grendinni, Ánabrekku og Einars- nesi, og hafði þar um 800 fjár. Síðan rak hann í nokkur ár versl- un og útgerð á Akranesi, en sett- ist að hjer i Reykjavík árið 1900. Væri það merkileg og fróðleg saga, ef Thor Jensen skýrði ítar- lega frá æfiferli sínum og hugs- anaferli við stofnun og rekstur hinna mörgu og miklu fyrirtækja og framkvæmda, sem hann hefur verið fmmkvöðull að hjer á landi. Hann var fremstur í f lokki þeirra manna, sem hófu togaraútgerðina til vegs og gengis og er nú, ásamt sonum sínum, stjómandi stærsta útgerðarfjelagsins hjer. Hann var manna ötulastur við stofnun Eim- skipafjelags íslands. Landbúskap hefur hann á síðari árum rekið í miklu stærri stýl en nokkur ann- ar hjerlendur maður, og á stórbú á þremur stöðum: sauðfjárbú í Bjamarhöfn á Snæfellsnesi, kúa- bú í Melshúsum á Seltjamamesi og á Korpúlfsstöðum í Mosfells- sveit. Em tilþrif hans á Korpúlfs- stöðum svo stórkostleg bæði í jarðrækt og byggingum, að eng- in dæmi era til annars eins hjer á landi. Thor Jensen hefur verið hinn þarfasti maður og verður án efa um langan aldur bent á hann sem fyrirmynd. Laxinn kemur aftur. Sönn reynsla er fengin fyrir því, að laxinn kemur aftur í þær ár eða vötn, sem hann elst upp í. Árið 1924 flutti jeg 10 þús. laxa- síli frá Alviðm í Grafningi austur í Eystri-Rangá og slepti þeim þar í lækjarlænu, stutt neðan við Efrahvol, og rennur sá lækur ofan í ána. Svo slepti jeg einnig sýli í lækinn rjett ofan við Stórahof, sem líka rennur í Rangá. Nú á næstliðnu hausti veiddust nokkr- ir unglaxar á þessum bæjum: á Stokkalæk 2, á Árgilsstöðum 2 eða 4, á Velli 6, á Stórahofi 2 og 4 eða 6 á Kirkjulæk í Fljótshh'ð og 10 á Háamúla í Fljótshlíð. Á þessum stöðum hefur aldrei veiðst lax fyrri, og bendir alt til þess, að þessi ungi lax sje af þeim laxa- seiðum, sem jeg flutti og slepti í Rangá um árið. Því eftir því, sem mjer hefur verið sagt, þá var hann á því þroskastigi, 5—7 pund, sem er mjög eðlileg þyngd eftir aldri. — En nú í vor beiddi sýslumaðurinn á Efrahvoli mig að koma til sín og byggja fyrir sig laxaklakshús við vatnslind, sem er rjett ofanundan Árgilsstöðum, og hafði jeg skoðað þá lind áður. Svo nú í maí 1928 bygði jeg þar klakhús, og er sýslumaður einn umsjónarmaður þar, bæði með allan kostnað, og starfrækslu, og framkvæmd, og jeg vona að það gangi vel. — Jeg hefi áður farið um Rangárvallasýslu 4 sinnum og hafa bændur þar æfinlega tekið mætavel undir þetta klakstarf mitt, en þó með vantrausti, þang- að til nú í vor, er þeir fóru að veiða laxnin, og vissan var fengin um, að hann kæmi aftur. Þ. FL ) Mínningarorð Þann 29. apríl síðastl. ljetst — eftir stutta legu — að hedmili sínu Von hjer í bæ Gunnar Jóns- son, áður bóndi á Ysta-Gili í Austur-Húnavatnssýslu og síðar á Blöndubakka í somu sýslú. Gunnar Jónsson var fæddur 16. nóvember 1860 á Syðstu-Gmnd í Skagafjarðarsýslu og var faðir hans, Jón, andaður er sveinninn fæddist. Móðir Gunnars var Guð- björg Klemensdóttir. Albróðir Gunnars er Jón bóndi Jónsson, sem um fjöldamörg ár bjó á Kirkjubæ í Austur-Húnavatns- sýslu, og er ætt þeirra bræðra merk og mannmörg bændaætt um Skagafjörð. Þannig var Þrúður Jónsdóttir í Miðhúsum í Skaga- fjarðarsýslu, föðursystir Gunnars. alkunn merkiskona í Skagafirði og viðurkend fyrir skörungsskap og mannkosti. — Varð háöldmð manneskja. Árið 1867 fluttist Gunnar og þeir bræður báðir með móður sinni vestur í Húnavatnssýslu, hvar hún dvaldi síðan á ýmsum stöðum með sonu sína, ýmist sem ráðskona hjá öðrum, eða í sjálfs- mensku. Gunnar og þeir bræður vora greindarmenn og bókhneigðir, en, eins og í þá tíð var títt, hlutu þeir litla bóklega mentun í æsku, en byrjuðu að vinna líkamlega 1 erfiðisvinnu strax og kraftar : leyfðu. Árið 1892, — þá rúml. þrítugur j að aldri, — gekk Gunnar að eiga j eftirlifandi konu sína, Guðríði j Einarsdóttur, sem nú dvelur hjer í bæ, hjá dóttur sinni Margrjeti og tengdasyni, Gunnari kaup- manni Sigurðssyni í Von. Guð- j ríður er dóttir Einars Andrjesson- ar, sem kendur hefur verið við Bólu, jörð í Skagafirði, óvenju- mikill greindar- og lærdómsmað- ur sinnar tíðar og skáldmæltur vel, þó sjálfmentaður. Talinn í þá ; tíð fjölfróður með afbrigðum og j jafnvel fjölkunnugur á þjóðtrúar vísu. Áttu bræðumir, Gunnar og Jón, sína systurina hvor, Jón ! Halldóru. Móðir þeirra systra hjet Margrjet og var Gísladóttir bónda j í Skagafirði, og er sá ættleggur mannmargur mjög, enda systkin- in 19, samfeðra. Gunnar og kona hans reistu bú á Ysta-Gili í Langadal, hvar þau bjuggu full 20 ár, en síðar bjuggu þau á Blöndubakka í 9 ár. Böm eignuðust þau 5 á Ysta-Gili, sem öll em á lífi, talin hjer eftir aldri: Margrjet, sem áður getur, gift Gunnari Sigurðssyni kaupmanni í Von; Guðbjörg, gift í Vestur- heimi; Hóhnfríður, gift í Vestur- heimi; Jón, stundar verkfræði og hvo-orÍTítrnrfrspði við háskóla í Minneapolis í Bandaríkjunum. — Gekk fyrst á Samvinnuskólann hjer í Reykjavík og síðar á verk- fræðaskóla í Noregi um 3 ár; og Þrúður hárgreiðslkona í Vestur- heimi, ógefin. Böm Gunnars em öll mætavel gefin, enda snemma innrætt framsækni til sjálfsbjargar og manndóms, ráðvendni, trúrækni og grandvarleiki í hvívetna. Ekki er og heldur óeðlilegt, að þau hafi fengið góðan skerf framtaks og j annara góðra eiginleika að erfð- um frá báðum kynjum. Jörðina Ysta-Gil, hvar Gunnar bjó lengst og á meðan að bömin voru að komast á legg, verður að telja frekar rýra að nytjum og á harðveðra stað, enda lítt umbætta er Gunnar kom að henni. Þurfti því kjark, fyrirhyggju og dugn- að,'til þess að bjargast svo áfram með bamahópinn, en lítil efni, að 1 ekki yrði þurð í búi. En hjónin voru samhent og ósjerhlífin, gædd glöðum huga, björtum lífsvonum, fómfýsi fyrir ástvinina og stál- ; vilja. Þau vom sköpuð til að vinna saman, sköpuð hvort fyrir annað, sköpuð til að stríða og sigra örðugleikana og koma góð- um og göfugum áformum í fram- kvæmd. Sambúðin var sönn fyrir- mynd, þar sem hvort um sig lað- aðist eftir vilja hins og beggja var sami vilji. Þau vora einn mað- ur. Og þau skyldu það sameigin- lega og ljóst bæði, að þau í æsku höfðu farið á mis við holla og góða mentun, og ásettu sjer því strax að miðla bömum sínum því meira af þeim gæðum er þau töldu sig hafa skort svo tilfinnan- lega. Veittu því með gleði við- töku hinum nýju straumum bók- bárust.Þannig tóku þau sjer heim- iliskennara fyrir bömin strax í æsku þeirra og ljetu þau svo verða frekari skólamentunar að- njótandi, er þroski og aldur leyfði. Hingað til bæjarins fluttu þau hjón 1923. Veitti Gunnar versl- uninni á Brekkustíg 1 hjer í bæ forstöðu síðan, og alt þar til að hann lagðist banaleguna. Leysti hann það starf sem öll önnur störf sín vel og samvitskusamlega af hendi, og naut trausts og vin- áttu, þar sem annarsstaðar. Gunn- ar Jónsson var maður glaðlyndur, prúður og yfirlætislaus í allri framkomu, ástríkur og umhyggju- samur eiginmaður, faðir og JKús- bóndi, maður,sem ekki vildi vamm sitt vita í neinu. Eignaðist því ástríki ástvinanna, virðingu sam- verkamannanna og marga vini, enda hjálpfús í hvívetna og val- menni hið besta. Ljet þó ekki hlut sinn fyrir ásælnum ágengnismönn- um og hjelt því óskiftri virðingu alla tíð. Gunnar rann skeiðið með sóma. Hann skilaði miklu og góðu dags- verki, en gróf ekki þund sitt í jörð. Og uppsker trúrra þjóna verðlaun. Það fer að sköpuðu, þó að vjer sem aldri náum verðum að slíta hjervistum við marga mæta með- borgara og samferðamenn. Og er jafnan gott að minnast minning- anna hlýju, björtu og hugþekku, minninganna um manndóm, ósjer- plægni og prúðmensku. Þeirra minninganna sem einasta skilja eftir virðingu og vináttu. Og þannig, en öðmvísi ekki, verður það fyrir þeim sem kyntust Gunn- ari Jónssyni og þektu hann nokk- uð. Rvík í júní 1928. 17 Ti1 M»<rnú$MOTi. V. Hugo: VESALINGARNIR. í raun og veru var það ekki eins víst og Jean Val- jean gerði ráð fyrir, að þeim yrði undankomu auðið. Nýj- ar hættur biðu þeirra, öðruvísi en hinar fyrri, en máske alveg eins hættulegar. Á eftir bardagagnýnum komu nú eiturgufur gryfjunnar og allskonar leynivakir skólpræs- isins. Jean Valjean hafði lent úr einu helvítinu í annað. Þegar hann hafði gengið svo sem fimmtíu skref varð hann að nema staðar, því erfið spuming krafðist úrlausn- ar. Göngin greindust í tvent, og hvora leiðina átti hann að fara? En í öllum völundarhúsum er einhver þráður. í þessu var það hallinn í göngunum. Ef farið er svo, að halli undan fæti, þá verður komið niður að fljótinu. Það sá Jean Valjean undir eins. Hann sagði við sjálfan sig, að líklega væri hann í skólpræsunum undir torgunum og mundi eftir svo sem stundarfjórðung lenda í einhverju opinu á Signubökkum, eða með öðmm orðum koma fram í dagsljósið á einhverju mesta umferðasvæði Parísar. Þeir sem fram hjá fara mundu fyllast undmnar yfir því að sjá tvo blóði drifna menn stíga upp úr jörðinni fyrir fótum þeirra, lögreglan mundi koma og hervörðurinn og þeir Maríus yrðu handteknir. Nei, þá var skárra að stefna inn í völundarhúsið, reiða sig á myrkrið og treysta því að forsjónin benti á einhverjar útgöngudyr. Hann gekk því upp í móti hægra megin. Ljósglætan hvarf bráðlega alveg og myrkrið vafðist aftur um hann eins og voð, svo hann varð enn blindaður. En hann hjelt samt á- fram eins hratt og hann gat. Handleggir Maríusar lágu um háls hans og fætumir hjehgu niður bak hans. Jean Valjean hjelt um handleggi hans með annari hendinni en þreifaði fyrir sjer með hinni. Blóðugur Vangi Maríusar lá fast við vanga hans og hann fann hálfvolgan straum seitla frá Maríusi gegnum föt sín. En særður munnur Maríusar snerti eyra hans og fann hann þar raka hlýju og fann því að Maríus andaði og var lífsmark með hon- um. Göngin sem Jean Valjean fór nú eftir, voru víðari en hin, en erfiðari umferðar, því regnvatnið frá deginum áður rann enn um þau. Samt fór hann smámsaman að grilla í umhverfið og greina veggi og hvelfingu, hvort sem það var af því að einhver glæta barst ofan að, eða af því, að augu hans vöndust myrkrinu. Augasteinarnir stækka í myrkri og finna að lokum ljós í því, eins og sálin stækkar í neyðinni og finnur að lokum guð. Það var erfitt að ákveða í hvaða átt skyldi halda. Skólpræsin fylgdu götunum fyrir ofan og um þessar mundir vom tvö þúsund og tvö hundmð götur í París, allar saman fimm eða sex mílna langar. Nú eru þær kringum sex sinnum fleiri. Jean Valjean vissi ekki hvar hann var. Smámsaman settist að honum mesti geigur og myrkrið umhverfis hann seytlaði inn í sálina. Ganga hans var gáta. Skolpræsin em ógurleg, þau em svo víðtæk og flókin. Jean Valjean neyddist til þess að halda áfram, án þess að sjá hvert hann færi og hvert fótmál hans gat orðið hinsta sporið. Mundu þeir báðir farast að lokum og liggja eins og blásnar beinagrindur í einhverjum af- kimanum? Jean Valjean var eins og Jónas í kviði hvals- ins. Alt í einu varð óvænt atvik fyrir honum. Hann tók eftir því, að þótt hann hefði ávalt gengið beint áfram, fór hann ekki lengur upp í móti. Vatnið í rennusteininum rann nú á hæla honum í stað þess að áður hafði það bullað um tær hans. Hversvegna hallaði nú skólpræsinu undan fæti ? Mundi hann nú alt í einu koma á árbakkann ? Það gæti orðið hættulegt. En samt var hættulegra að snúa við. En Jean Valjean var ekki á leið að árbökkun- um. Hann var staddur þar sem skolpræsin lágu beint við Montmartre og hallaði niður að torgunum. Hann var á leiðinni að hringveitunni, eða á rjettri leið. En hann vissi það ekki. Hann þreifaði fyrir sjer í hvert sinn þegar hann kom að nýrri álmu og ef hún var þrengri en sú, sem hann kom úr, þá fór hann ekki inn í hana, því þá hefði hann fjarlægst takmarkið. Hann fjekk alt í einu þá tilfinningu, að hann væri kominn út fyrir þann hluta borgarinnar, þar sem uppreisnin var. Hann heyrði yfir sjer einhvem óm, eins og dyn af sífeldri þrumu. Það var vagnaskröltið. Honum taldist svo til, að hann hefði gengið í hálfa stund. Hann hvíldi sig aldrei, aðeins um hönd til þess að geta borið Maríus. AÍT? íerði hann nú rólegan. En alt í einu sá hann fyrif^^ sig sinn eigin skugga, rauðleitan, næstum ósýJ^V1, Hann sneri sjer undrandi við. Að biki hans, óral^J burtu, að honum sjálfum fanst, logaði einskonar stjama og varpaði geisi- um sínum út í geigvse^L^yrkrið og virtist stara á hann. Það var stjama rP'Hönar, en að baki hennar hrærðust átta eða tíu d>Iyllí> flöktandi verur. Sjötta júní hafði út skipun um það, að leita vandlega um skolp^ Henn voru hræddir um, að uppreisnarmennirnir leita þar hælis og lögregl- an átti því að leita dynkjum um París neðan- jarðar meðan Bugeand ^V^gi gerði göturnar hreinar. Það var lögregluflokkufirsnnsaka átti hægri Signu- bakka, sem beindi nú ljós’ ” Að Jean Valjean. Einhverj- um úr flokknum hafði ** v* hljóð koma úr þeirri átt, þar sem hringveitan v^' var í raun og veru fóta- tak Jeans Valjean. FloK'cS°1Síinn lyfti ljóskeri sínu og allir störðu inn í myrfcj.**^ var ógurlegt augnablik fyrir Jean Valjean. En $ . ^ hamingju náði ljósið hon- um ekki. Hann var ' burtu og rann saman við myrkrið í göngunum. ^&nsaði og þrýsti sjer fast upp að veggnum. Annari hann ekki gera sjer þess grein,' hvað að baki haHs ^ Vegna hungurs, þorsta og svefnleysis var hann, eiPs ® ^aríus, kominn í það ástand þegar menn sjá sýnir. Wn stansaði, hætti hljóðið. Lögreglumennirnir hluSttíN*k þess að heyra neitt, skim- uðu án þess að sjá rjeðu ráðum sínum. Þeir komust að þeirxi niðufst^ þeim hefði skjátlast og það væri ekki nema tífl^x s'a ein, að leita í hringveit- unni, og betra að flýta Saint-Merry, því þar væri þess helst von um að gría °^8t uppreisnarmenn. Foring- inn gaf því flokknum 11 Um að fara niður á við til vinstri. Ef flokkurinn he^iS^tt sjer og farið sinn í hvora átt, hefði Jean Valjeafl 11 st- Svo nærri skall hurð hæl- um. En áður en flokkUJ^11 ^r, gerði foringinn það til þess að hreinsa lögreglusamvitsku sína, að hann skaut skammbyssu sinni í þá átt, þar sem Jean Yaljean var og þangað sem þeir hættu að leita. Hvellurinn dundi og berg- málaði hvað eftir annað í göngunum og kalkmoli, sem datt niður í vatnið rjett hjá Jean Valjean, sýndi, að kúlan hafði lent rjett fyrir ofan höfuð hans. Enn um stund heyrðist fótatak hermannanna í fjarska, en Jean Valjean þorði ekki að hreyfa sig, en starði á vofumar, sem hurfu langt í fjarska. Síðari hluta dags 6. júní gengu tveir menn eftir hægri bakka Signu og gáfu augsýnilega hvor öðmm nán- ar gætur og reyndi samt annar að forðast hinn. Sá, sem fór fyrir, reyndi, að komast undan, en hinn, sem á eftir fór, reyndi að nálgast hann. Þetta var eins og skák, sem tefld var þegjandi. Á hvomgum virtist vera neinn asi, þeir gengu báðir hægt, eins og þeir óttuðust það, að ann- ars mundu þeir herða á hinum. Sá þeirra, sem reyndi að sleppa, var lítill vexti og vesældarlegur.-en hinn var hár og þróttmikill og hressilegur á að sjá og virtist ekki vera lamb að leika sjer við. Sá fyrri fann að hann var veik- ari og forðaðist því hinn; hann var grunsamlegur á að sjá, tötralegur og stríhærður, en á þeim seinni var em- bættissvipur og einkennisfrakki hans hneptur upp í háls. Hann gaf merki ökumanni, sem ók framhjá uppi á ár- bakkanum, og ökumaðurinn skildi það, því hann sneri við og fylgdist í hægðum sínum með mönnunum. En tötra- karlinn sem á undan fór, tók ekki eftir þessu. Eltinga- leikurinn barst nú að slakka niður að ánni, sem gerður var til þess að ökumenn gætu brynt hestum sínum. Það var sennilegt, að maðurinn, sem eltur var færi upp þessa brakku og reyndi að forða sjer í trjágöngin þar fyrir ofan. En þótt undarlegt megi virðast gerði hann það ekki, en hjelt í þess stað áfram eftir árbakkanum. Hann var kom- inn í klípu. Ætlaði hann að kasta sjer í ána? Það var ekki hægt að komast upp fyrir bakkann og innan skams yrði hann króaður milli árinnar og bakkans með lögregluna á hælum sjer. Að vísu var staðurinn þar sem hleðslan á bakkanum hætti og vatnið tók við, falinn af sjö eða átta feta háum ruslhaug, en maðurinn gat ekki ætlast til þess að geta falið sig á bak við hann, því það var hægðar- leikur að komast í kring um hann og finna hann. Þegar flóttamaðurinn kom að haugnum fór hann bak við hann og hvarf sjónum hins. En hinn fór þá að greikka sporið og kom fljótlega að haugnum og gekk umhverfis hann. Hann stansaði undrandi. Maðurinn, sem hann var að elta var horfinn, sporlaust horfinn. Hann gat hvorki hafa kast- að sjer í ána nje klifrað upp bakkann. Hvað var þá orð- ið af honum ? Maðurinn í einkennisbúningnum stóð þög- ull um stund, krepti hnefana og horfði 1 kringum sig. Alt í einu sló hann á ennið. Rjett við vatnsflötinn kom hann auga á breiðan, boginn hlemm, sem læst var með þrem- ur sterkum bröndum. Fyrir neðan hann rann úr skólpræsi út í ána. Maðurinn reyndi árangurslaust að opna hlemm- inn. Sennilega hafði nýlega verið gengið um hann, þótt ekkert hljóð hefði heyrst og var það undarlegt, þegar þess var gætt, að hlemmurinn var mjög ryðgaður. Sá, sem um hann gekk hafði því sennilega haft lykil. Lögreglu- maðurinn settist því bak við mslhauginn í þeirri von að einhver gengi aftur um hlemminn, en ökumaðurinn batt heypoka við hausinn á hesti sínum og beið. Jean Valjean hjelt eii-ðarlaust áfrarn, en gangan varð honum æ erfiðari. Hvelfingarnar voru misháar og oftast svo lágar, að hann varð að beygja sig til þess að Maríus rækist ekki uppundir og svo varð hann að þreifa fvrir sjer á veggjunum. Hann riðaði og hnaut. Hann var bæði svangur og þyrstur, einkum þyrstur. En sorpræsin eru eins og sjórinn. Vatnið er nóg, en ódrekkandi. Þótt hann - væri mjög sterkur, og afl hans hafði haldið sjer vel, vegna hins hófsama og hreina lifernis hans, fór það nu að gefa sig. Hann þreyttist, og eftir því sem aflið þvarr, þyngdist byrðin. Jean Valjean hjelt þannig á honum, að sem rúmast væri um brjóst hans, svo að hann gæti dreg-

x

Lögrétta

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögrétta
https://timarit.is/publication/196

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.