Lögrétta - 29.08.1928, Blaðsíða 1
LOGRJETTA
XXffl. ár.
Um víða veröld.
Haldane lávaröur.
Símfregn segir að Haldane lá-
v-arður sje látinn. Með honum er
fallinn frá einhver merkasti mað-
ur Bretaveldis. Hann vari kominn
yfir sjötugt (fæddur 1856) og
hafði tekið mikinn þátt í bretsk-
um þjóðmálum frá því hann var
um þrítugs aldur, komist í ein-
hverjar mestu virðingarstöður
landsins, en jafnframt fengið
meira en flestir aðrir að kenna á
fallvelti lýðhyllinnar, því um all-
langt skeið var hann meira lagður
í einelti en festir aðrir, og ómak-
lega.
Haldane nam í æsku lögfræði
og heimspeki, bæði heima fyrir og
í Þýskalandi. Síðan hafði hann
ávalt mætur á þýskri menningu
og Hegel sagði hann að komist
hefði nær sannleikanum í heim-
speki sinni en nokkur annar.
Vegna kunnugleika síns á þýskum
málum og vinsælda sinna í Þýska-
landi fór hann af hendi stjómar
sinnar til Berlín 1912 til þess að
kynna sjer ástandið og bera
sættarorð milli þjóðanna. Honum
þótti ekki friðvænlega horfa á
ýmsa lund, en þóttist hinsvegar
eiga úr vöndu að ráða um það
hvemig haga skyldi skýrslugerð-
inni er heim kæmi, því það gæti
orðið til þess að æsa upp Eng-
lendinga að segja hispurslaust, að
Þjóðverjar væm í vígahug. Hann
talaði því fátt um sendiför sína
opinberlega. Þegar heimsstyrjöld-
in var skollin á skömmu seinna,
var honum legið mjög á hálsi fyr-
ir þetta, kallaður „vinur keisar-
ans“ og landráðamaður. Var þá
hafin svo hatröm og illkvitnisleg
blaðaárás á hann, að hann varð
að fara úr stjóminni og í sam-
steypustjórniftni 1915 átti hann
ekki sæti. Haldane tók öllum þess-
um gauragangi með annálaðri
stillingu. Hann gat einnig gert það
þess vegna að hann vissi það,
sem nú er viðurkent af öllum, að
hann var saklaus af ákærunum og
hafði þvert á móti, sem hermála-
ráðherra (1905—11) unnið manna
mest að því að gera bretska her-
inn svo úr garði, að hann stóðst
raunir heimsstyrjaldarinnar. All-
ir helstu herforingjar Englands,
svo sem Haig og French, keptust
síðan um að lofa verk hans og
ýmsir telja hann snjallasta her-
málaráðherra sem Englendingar
hafa átt. Hann umskapaði og end-
urfæddi enska herinn og það varð
einnig hans hlutskifti, þegar
heimsstyrjöldin var að hefjast, að
hleypa þessum her af stokkunum,
þótt skömmu síðar yrði hann að
sleppa af honum hendinni, eins og
fyr segir.
Reykjavík, miðvikudaginn 29. ágúst 1928.
'r^ ■mm-i-" ú ■ ■ ■■ a.w i^n.., ti racu
í styrjaldargný undanfarinna
ára hefur mest borið á her-
málastörfum Haldane’s, en þau
voru enganveginn einu eða merk-
ustu störf hans. Hann starfaði
einnig sem lögfræðingur, uppeldis-
fræðingur og heimspekingur.
Hann hlaut tvívegis helstu virð-
ingarstöðu, sem bretskur lögfræð-
ingur getur hlotið, að verða Lord
Chancellor, eða forseti lávarða-
deildarinnar og dómstjóri hæsta-
rjettar þar. Hann varð fyrst
kanslari 1912, á eftir Lorebum
lávarði, í frjálslynda ráðuneytinu,
og síðan 1924 í jafnaðarmanna-
ráðuneyti McDonalds. Á síðari ár-
um hallaðist hann að verkamanna-
flokknum, án þess þó að vera gall-
harður jafnaðarmaður á hverja
grein. Hann átti sæti í ýmsum
nefndum, sem við mentamál feng-
ust, og gerði m. a. (1910) ítarleg-
ar till. um skipulag háskólafræðsl-
umar í London. Þær hafa ekki
verið framkvæmdar enn, en sjálf-
sagt er talið, að í þá átt, sem
hann benti á muni þau mál stefna.
Hann hefur flutt urmul af fyrir-
lestrum um fræðslumál. Seinna
átti hann einnig sæti í nefnd,
sem athuga átti ýmislegt í stjóm-
arfarinu, og var formaður hennar
(The machinery of Govemment
Committee). Þar gerðist hann
talsmaður ýmsra endurbóta á
þingræðisskipulaginu til þess að
tryggja það betur en nú að þekk-
ing og sjerfræðilegar rannsóknir á
hverju þjóðmáli yrðu undirstaða
stjórnmálastefnanna og meðferð-
ar þingsins á málunum. Hann átti
einnig sæti í nefnd, sem Baldwin
forsætisráðherra stofnaði í svip-
uðum tilgangi 1925.
Milli stjómarstarfa sinna var
Haldane altaf með hugann við
heimspekina, eða rjettara sagt,
heimspeki hans og stjómarstörf
voru eitt og hið sama. Hann var í
samtíð sinni alt að því einstakt
dæmi um kyrlátan lærdómsmann,
sem jafnframt gat látið mjög
ákveðið að sjer kveða í erfiðasta
veraldarvastri og verið öndvegis-
maður á báðum sviðum. Heim-
spekirit Haldane’s em reyndar
ekki sjerlega skemtileg aflestrar
— hann var hvorki stílsnillingur
nje kröftugur ræðumaður — en
Bretar telja hann meðal sinna
helstu heimspekinga og í ritum
hans er margt merkiiegt og spak-
legt. Skömmu eftir aldamótih
skrifaði hann bók, sem hann kall-
aði Veginn til veruleikans, en
kunnustu heimspekirit hans em
frá síðustu ámm (1921 og 1922)
og eru um „humanisma“ og „rela-
tivity“. Haldane var einn af
brautryðjendum afstæðiskenning-
arinnar og þegar Einstein kom til
London að stríðinu loknu vár
hann gestur hans.
Haldane var enginn hávaða-
maður, en starf hans var merki-
legt dæmi um fjölhæfa og affara-
sæla þáttöku hámentaðs heiðurs-
manns í opinbem lífi.
Maxim Gorki.
Maxim Gorki hefur á síðustu
árum verið að skrifa ítarlega
æfisögu sína. Hún er senni-
lega besta verk hans, ofið saman
endurminningum úr hinu fjöl-
breytta og æfintýraléga lífi hans
og bestu einkennum frásagnar-
listarinnar í sögum hans. Þessi
minningabók er mikið verk og
segir í nokkrum sjerstökum þátt-
um frá æsku hans, flækingi meðal
vandalausra, lærdómsárum og
fíökkuámm, uns honum tókst að
verða hinn heimskunni rithöfund-
ur, sem hann er nú. Æfi hans
hefur verið full af allskonar eymd
og skorti og niðurlægingu frá
upphafi og fram á hin síðustu ár
ófriðarins og byltingarinnar. En
þá var hann um skeið starfandi
heima í Rússlandi í þjónustu
sovjet-stjómarinnar, sem einn af
leiðtogum hins nýja skipulags og
Ijet einkum til sín taka mentamál.
En það var hvorutveggja, að hann
var ekki allskostar ánægður og
svo var hann heilsuveill og fór
því utan og hefur uppá síðkastið
dvalið lengstum í Italíu og haldið
' áfram ritstörfum sínum. Ný
! skáldsaga er t. d. komin út eftir
j hann ekki alls fyrir löngu. Auk
j þess sem Gorki segir í minninga-
bók sinni frá sjálfum sjer og ýms-
: um ókunnum vinum sínum og
| samverkamönnum, sjerkennilegum
I rússneskum alþýðumönnum af
! ýmsum stjettum, sem hann lýsir
j oft snildarlega, lýsir hann allná-
j kvæmlega ýmsum hinum kunn-
ustu öndvegismönnum rússneskr-
j ar menningar, sem hann hefur
komist í kynni við, t. d. Koro-
lenko og Tolstoy. Á Korolenko
! (sem dó í eymd 1921) hafði hann
: miklar mætur og segir að menn-
I ingarstarf hans hafi haft mjög
j mikil áhrif í þá átt að vekja
j varanlega rjettarvitund mikils
hluta rússnesku þjóðarinnar. Um
Tolstoy skrifar hann einnig af
samúð og skilningi, þótt ekki sje
hann honum einlægt sammála.
öll er minningabók Gorki’s ein-
i hver merkasta og læsilegasta
39. tbl.
þessháttar bók, sem lesngi hefur
verið skrifuð.
Kelloggs-sáttmálinn.
Kelloggs-sáttmálinn um ófriðar-
bannið eða takmörkunina var
undirskrifaður í París 27. þ. m.
af fulltrúum 15 ríkja og verður
varðveittur í Washington. öllum
öðrum ríkjum, sem eru í stjóm-
málasambandi við Bandaríkin er
einnig boðið að skrifa undir, einn-
ig Rússum og Kínverjum. 1 París
fóru fram mikil hátíðahöld vegna
þessa og í tilefni af komu Strese-
manns var þýski fáninn dreginn
þar á stöng í fyrsta sirwi síðan
1870. Allmikið er samt deilt um
þennan sáttmála og gildi hans og
búist við að hann mæti mót-
spymu ekki síst í Bandaríkjunum.
Látalætin í sambandi við friðar-
málin eru að vísu allmikil, en alt
um það er einlægur vilji margra
hinna bestu manna á því að hamla
ófriðaræðinu.
Síðustu fregnir.
Zogu forseti hefur verið kjör-
inn konungur í Albaníu. Hoover
forsetaefni hefur fengið lausn frá
ráðherraembætti sínu, til þess að
stjóma kosningabaráttunni, en
Whifing pappírssmiðjustjóri verið
skipaður eftirmaður hans. Sænski
ríkisbankinn hefur hækkað for-
vexti úr 4% í 41/^%. Átján ára
stúlka, Laddie Sharp, hefur synt
yfir Ermarsund á 15 klst. Land-
ráðamál er hafið gegn Króatar
foringjanum Matchek. Við grísku
kosningamar fjekk Venizelos-
flokkurinn 228 þingsæti, en and-
stæðingar hans 22. Forsetakosn-
ingar fara fram 1 Grikklandi í
j febrúar og búist er við því, að
j Venizelos verði þá kosinn. 17
j manns fómst nýlega af jámbraut-
arslysi í New York og 150 særð
, ust. Smith forsetaefni talaði 22.
i þ. m. fyrir utan ráðhúsið í Al-
i bany í New York og tilkvnti
J framboð sitt. 100 þús. utanbæjar-
; menn komu til borgarinnar til
j þess að hlusta á ræðuna og 90 út-
varpssstöðvar vörpuðu henni út
um alt. Smith vill draga úr bann-
j lögunum, leyfa Ijett vín, og
I brevta stefnunni í utanríkismál-
j um. Skuludis fyrrum forsætisráð-
1 herra í Grikklandi er dáinn. Mikil
flóð eru í Shantunghjeraði í Kína
I og hafa gert mikinn usla í 200
i sveitaþorpum, en um 40 þús,
; manns kváðu vera heimilislausir.
Ólafur Helgason læknir er ný-
kominn hingað frá Ameríku, en
þar hefur hann dvalið á annað ár
| eftir að hafa lokið embættisprófi
i hjer. Hann hefur starfað þar við
i ýmsa stóra spítala í Bandaríkjun-
j um og Kanada og einkum fengist
við skurðlækningar og setst nú að
hjer í bænum.