Lögrétta - 29.08.1928, Page 3
4
LÖGRJETTA
ætti þá í vændum og hver laun
hann fengi hjá mönnunum, og bað
hann að segja til, hvort hann tæki
þann kost, en val hans hefði gildi
um alla eilífð.
Og er Pjetur hafði valið, bað
Jesús hann að koma með sjer. En
Jóhannes gekk álengdar á eftir
þeim. „Á hann líka að koma?“
spurði Pjetur. „Láttu það af-
skiftalaust, en fylgdu mjer“, svar-
aði Jesús.
Pjetri var ætluð forustan og
krossinn, Jóhannesi ódauðleikinn
og eftirvæntingin. Hann, sem ber
sama nafnið og fyrirrennarinn,
sem boðaði fyrstu komu Jesú, á
að verða sá, sem boðar næstu
komu hans. Hann á að sjá stein
losna frá steini á hæð Jerúsalems-
borgar. Við himinbláma eyðimerk-
urinnar á hann að gleðjast og
þjást, og í dýrðarljósi dagsins og
í hafdjúpu helmyrkri næturinnar
á hann að lesa sögu leyndardóm-
onna. Pjetur hefur fylgt Kristi
og látið eftir sig veldisstól handa
jörium hans á jörðinni; en Jó-
hannes hefur ekki fengið dauðans
hvíld. Hann bíður með okkur, lifir
með öllum kynslóðum jarðarinnar,
þögull sem kærleikurinn og eilíf-
ur eins og vonin.
----o-----
Jón Eiríksson konferenseráð,
einhver helsti og besti brautryðj-
andi íslenskrar endurreisnar á 18.
öldinni, á tveggja alda afmæli 31.
þ. m. og ætti þá að verða vel
minst og víða. Um hann hefur
aldrei verið skrifað ítarlega eða í
heild um öll störf hans.En Sv.Páls-
son skrifaði fyrir löngu æfisögu
hans, sem er fróðleg og góð, það
sem hún nær, en hún er fyrir
löngu ófáanleg. En nú hefur Vil-
hjálmur Þ. Gíslason haft í smíð-
um bók um hann, en óvíst er,
hvenær hún getur komið út. Af-
mælis Jóns verður nánar minst í
næsta blaði.
Jón Leifs og frú hans eru ný-
komin hingað.
Hassel. Enn hefur ekki spurst
neitt til hans með sannindum.
Arfwedson, sem um langt skeið
var ræðismaður Islendinga og
Dana í Genúa, er nýlega dáinn.
Honum kvað það hafa verið mikið
að þakka, að íslenskur saltfiskur
náði útbreiðslu á Norður-ítalíu.
Islandssundið var þreytt hjer
26. þ. m. og vann það Jón I. Guð-
mundsson frá Hafnarfirði og setti
nýtt met. Hann synti 500 metr-
ana á 9 mín. 1 sek., en áður hafði
Erlingur Pálsson synt það hrað-
ast, fyrir 14 árum, á 9 m. 6 sek.
Næstur honum varð Gísli Þorleifs-
son (9 mín. 27,7 sek.) og þriðji
I>órður Guðmundsson (9 mín. 30
sek.).
Síldveiðin var 25. þ. m. orðin
77,273 tunnur saltaðar, 22)4 Þús.
tn. kryddaðar og c. 419)4 þús.
hektólítrar fóru í -bræðslu. Lang-
mest af veiðinni hefur komið á
land í Eyjafirði. Um sama leyti
í fyrra var síldarsöltunin miklu
meiri, 152)4 þús. tunnur og
kryddsíldin einnig meiri, ca. 58
þús. tn. og í bræðslu voru þá
komnar ca. 519 þús. hl. I norðan-
blöðum eru sífeldar deilur um
síldveiðamar og einkasöluna.
# Drepandi kossar
Bókin um svipu mannkynsins.
Hjónabandsbókin
Eina bókin, sem gefur fullkomnar
upplýsingar um takmörkun barna-
fæöinga, eftir dr. Malachowski, dr.
Harris og d. Lesser. Báðar bækurnar
meö mörgum myndum. Sendast án
burðargjalds fyrir kr 1,25 (isl.) hvor
i frimerkjum eða gegn póstkröfu að
viðbættu burðargjaldi.
Nyhedsmaflaslnet, Afd. 20 Kbhv. ö.
Ó K E Y P I S
og án burðargjalds sendist okkar nyt-
sama og myndarika vöruskrá yfir gúmmi-
heilbrigðis- og leikfangavörur, einnig ur,
bækur og póstkort.
Samariten, Afd, 67, Kobenhavn K.
Skákþing Norðurlanda hefur
farið fram í Oslo undanfarið. Úr-
slitin eru nú kunn orðin í 1.
flokki, sem Eggert Gilfer kepti í.
Þar urðu hlutskarpastir Svíamir
Olav Kvinmark og Gösta Jo-
hannsson, fengu 6)4 vinning hvor.
Næstur varð Norðmaðurinn
Christiansen með 6 vinninga og
þá Eggert og Svíinn Karlsson
með 5)4 vinning hvor og svo
Myhre með 5 vinninga og fengu
allir verðlaun. Er það sagt sjald-
gæft að svo lítill munur sje á
þeim, sem verðlaunin hljóta. 1
stjóm skáksambands Norður-
landa var m. a. kosinn Pjetur
Zóphoníasson.
Dómstjóri hæstarjettar til á-
gústloka næsta ár hefur Páll
Einarsson verið kosinn.
Áfengisreglugerð hefur dóms-
málaráðherra gefið út vegna
einkasölunnar. Vínútsölur verða í
Reykjavík, Hafnarfirði, Vest-
mannaeyjutn, Seyðisfirði, Akur-
eyri, Siglufirði og Isafirði. Á-
lagning má vera 25—75%. Vín
má ekki selja mönnum yngri en
21 árs og ekki ölvuðum mönnum.
Hæfilegur skipsforði, sem hafa
má óinnsiglaðan, er talinn 1 liter
á dag fyrir 3 skipverja.
Dómur er fallinn í gestarjetti
Rvíkur í máli ríkisstjómarinnar
gegn Einari M. Jónassyni sýslum.
Ríkið hafði krafist af honum
rúml. 183 þús. kr. en hann var
dæmdur til að borga því 65 þús.
kr. og er mest af því, eða 43 þús.
kr. út af þrotabúi Hannesar B.
Stephensen & Co. En vísað var
frá dómi m. a. ca. 54 þús. kr.
kröfu frá ríkissjóði vegna
ógreiddra ríkissjóðstekna í Barða-
strandarsýslu 1927 og fyr. Taldi
dómarinn að sýslumaður bæri
ekki persónulega ábyrgð á öllu
því sem í gjalddaga f jelli, ef það
væri ekki vangoldið fyrir víta-
verðan trassaskap eða ókomið í
ríkissjóð af sviksemi frá hans
hendi, en það væri ósannað. Dóm-
arinn taldi einnig, að aðferð rík-
isstjómarinnar og málaflutnings-
manns hennar væri óheppileg og
óvenjuleg, þar sem lagt hefði
verið venjulegt löghald (Civil ar-
rest) á eigur sýslumanns, í stað
þess að láta hefja sakamál gegn
honum fyrir sjóðþurð og kyrsetja
eigur hans til tryggingar því er
honum bar að greiða. Málinu mun
verða áfrýjað.
400 refi hefur Refaræktarfje-
lagið nú í girðingu í Svignaskarði.
Bílferðir eru orðnar ákveðnar
úr Borgamesi norður í Húna-
vatnssýslu um hverja bátsferð.
Farið til Blönduóss kostar 35 kr.
Kaupbætír Lögrjettu
Lögrjetta hefur við og við gefið kaupendum sínum kaupbæti
og þá jafnan valið til þess góðar bækur.
Allir, sem borga yfirstandandi árgang blaðsins fyrir lok þessa
árs og verða skuldlausir við blaðið, fá einhverja af eftirtöldum
bókum í kaupbæti, eftir eigin vali:
1. Einsöngslög, eftir Áma Thorsteinsson.
2. Sálin vaknar, innb., skáldsögu eftir Einar H. Kvaran.
3. Trú og sannanir, eftir Einar H. Kvaran.
4. Ljóðmæli, eftir Þorstein Gíslason.
5. Kvæðabók, eftir Jón Trausta.
6. Ströndina, skáldsögu eftir Gunnar Gunnarsson.
7. Hinn bersynduga, skáldsögu eftir Jón Bjömsson.
Allar þessar bækur kosta, hver um sig, nál. 5 kr., Einsöngs-
lögin 6 kr. Ef útgefandi Lögrjettu finnur, að kaupendumir meti
þetta svo sem honum þykir vertvera, þá mun hann halda þvf
áfram og gefa þeim árlega framvegis val á góðum bókum í kaup-
bæti.
Nýir kaupendur, sem senda borgun fyrir einn árgang blaðs-
ins (10 kr.), fá einnig kaupbætinn, og hafa þeir þá borgað næsta
árgang fyrir fram, en fá það, sem óútkomið er af yfirstandandi
árgangi, þegar pöntun þeirra berst blaðinu, ókeypis.
Þeir, sem borga með póstávísunum, sem er hægasta greiðsl-
an, skrifi nafn kaupbætisbókarinnar aftan á afklippinginn.
Kaupendur í bænum og grendinni eru beðnir að vitja kavrp-
bætisins, er þeir hafa borgað blaðið, í Bókabúð minni á Lækjar-
götu 2.
Kaupendum úti um land verða sendar bækumar eða vísað á
þær, þar sem auðvelt er fyrir þá að ná til þeirra.
Reykjavík, 1. ág. 1928.
Þorsteinn Gfstason.
Tilkjmning
nm kenslubækur í enskn.
Jeg undirritaður heíi selt alt upplag bókarinnar Kenslnbók í nuk«
eftir W. A. Craigie og hefur hr. Snæbjöm Jónsson það að ðllu leyti
með höndum hjer eftir. Bið jeg menr, því að snúa sjer til hans viðvíkj-
andi bók þessari framvegis. Ársæll Ámason.
F.ins og sjA má á ofanrituðu hefi jeg tekið við Kenslnbók í ensku
eftir Sir William A. Craigie, LL.D., D. Litt. .Tafnframt hefi jeg lækkað
verð hennar svo að nú kostar 1. hefti 1 kr. 50 au., en 2. og 3. hefti 2
kr. hvort. Enski parturinn kostar aðeins 3 kr. Verð framhaldsbókanna er
sem hjer segir: First Reader eftir Craigie og Faucett 3 kr., Everyday Eng-
lish for Foreign Stndents eftir Potter og Advanced Reader eftir Craigie 4
kr. 20 hvor, Exercises in English Sonnds and Spelling eftir Craigie 3 kr.
þessi bók er lykill að öllum stílunum i Kenslubókinni og er aðeins seld
kennurum og þeim, sem færa sönnur á, að þeir sjeu að nema tilsagnar-
laust.
Pantanir á þessum bókum og bókum frá Pitman eru kennarar og
bóksalar beðnir að senda mjer sem fyrst; einnig Oxford-orðabókunum og
öðrum enskum orðabókum, er þeir þurfa til vetrarins. Concise Oxford
Dictionary kostar 9 kr., með opnu stafrófi (thumb index) 10 kr. 20 au.,
Pocket Oxford Dictionary 4 kr. 20 au., Waverley Dictionary 36 kr.
Beykjavík, Austurstræti 4.
Snæbjörn Jónsson.
Jóannes Patursson hefur verið
kjörinn fulltrúi Færeyinga á
Landsþingið í Kaupmannahöfn.
Eignir bæjarsjóðs og hafnar-
sjóðs Reykjavíkur, skuldlausar,
eru í reikningum bæjarins sagðar
8 miljónir 609 þús. kr. um síðustu
áramót.
Tófa hefur gert vart við sig
hjer í nærsveitum nýverið. Hafa
þrjú lömb fundist dýrbitin á
skömmum tíma við Tröllafoss og
þar í kring.
Prestvígðir voru 19. þ. m. þeir
Knútur Amgrímsson Húsavíkur-
prestur og Þormóður Sigurðsson
frá Ystafelli, settur prestur 1 Þór-
oddsstaðakalli.
Á vjelhjóli var nýlega farið úr
Borgamesi til Akureyrar á 19)4
klst. og komið við á Sauðárkróki,
og talinn 6 stunda krókur. Þessi
leið hefur ekki verið farin áður
á svona hjóli.
Gróðrarbruni allmikill varð ný-
lega í Arnarfirði af völdum
tveggja drengja, sem kveyktu af
rælni í þurru kjarri.
Lestrarf jelagið í Stykkishólmi
er að láta reisa bókasafnshús.
íshús, einkum til beitugeymslu,
er verið að reisa í Stykkishólmi.
248 kirkjur hefir biskupinn, dr.
Jón Helgason, nú visiterað og
teiknað myndir af þeim öllum.
Hann hefur nú farið um alt land
nema Hvalfjörð og Dýrafjörð.
252 þilskip stærri en 12 smál.
gerðu Islendingar út til fiskveiða
árið 1926 segir Hagstofan, þar af
40 togara (og auk þess 6 enska
úr Hafnarfirði) og 27 línu- og
síldveiðiskip og 184 vjelskip, en
aðeins 1 seglskip. Vjelbátar minni
en 12 smál. vora 402 og 674 róðr-
arbátar, er róið var til fiskjar.
Prentsm. Acta.