Lögrétta - 10.10.1928, Síða 3
4
LÖGRJETTA
Veðdeildarbrjef
Bankavaxtabrjef (vaðdeildar-
brjef) 7. flokka veðdeildar
Landabankana Mat keypt I
og útbúum
VaxBr af bonkavaxtabrjafum
jMM floklia mru w graið
aat I Imiwii lo«i, 2 janúar og
1. jrn ár kvart.
Sahnrart brjetemta «r «6
krtnur fýHr 100 krtaa brjaf
að naftwrM.
Brjefln Mjóða 4 100 kr.,
500 kr., 1000 hr. og 8000 kr.
Lanb
Ibunm
Kaupbætir
Athugið auglýsingamar, sem
áður hafa komið hjer í blaðinu,
um kaupbætisbækumar, sem Lög-
rjetta gefur skilvísum kaupend-
um og verðlaunabækurnar, sem
hún veitir J>eim, sem útvega nýja
kaupendur.
-o-
Móðir!
Gakktu úr skugga um að þú
fáir þér Pepsodent á tenn«
ur barns þins og tannhold.
ER þér ant um að barn þitt fái fallegri
tennur nú og betri vörn við tannkvillum
síðar á æflnni? Reyndu þá Pepsodent.
Gáðu að, hvað helztu tannlæknar hvetja
mæður til að nota.
Þú finnur húð á tönnum barns þíns. Þá
vofir hættan tíðast yfir. Sömu þrálátu húð-
ina og þú verður vör við, ef þú rennir
tungunni um tennurnar í þér sjáifri. Við
hana áttu að berjast. Húðin er versti óvinur
heilbrigðra tanna. Hún loðir við tennurnar,
smýgur í sprungur og festist. Gömlum að-
ferðum tókst ekki að vinna á henní.
Nú hefur Pepsodent tvö ný efni að
geyma, sem eyða henni. Helztu tannlæknar
fallast á þetta. Það heldur tönnunum hvít-
ari. Það er vísindaráð nútímans til betri
varðveizlu tannanna. Reyndu það. Sendu
mióann og þú færð ókeypis sýnishorn til
10 daga.
dráttur úr skýrslum læknanna og
útdrætti og sýnishomi af aðal-
skýrslum þeirra, þá eru langar
ritgjörðir eftir haxm sjálfan full-
ar af athugunum og athugasemd-
um hans sjálfs í sambandi við
skýrslumar, svo lipurlega ritaðar,
að hver maður getur lesið þær
sjer til gagns og er yfirsjón að
þær hafa ekki verið sjerprentað-
ar og hafðar til sölu í bókabúðum
landsins, því þær eru vissulega
þarfari og hollari en margt af þvf
sem gefið er út á opinberan
kostnað, að skýrslum sjera
Bjöms Þorlákssonar ekki undan-
teknum.
Skal nú nokkuð gjör skýrt frá
inngangsritgjörðinni í skýrslunni
1921—1925.
1 skýrslunum er fyrst sagt
frá árferði og þá frá fólksfjölda,
bamkomu og manndauða. Hjóna-
bönd eru færri en hjá nágranna-
þjóðunum en böm fæðast fleiri.
Manndauði heldur meiri en hjá
þeim, en samt tiltölulega lítill.
Ungbamadauði minni en í nokkru
öðru landi nema Nýja Sjálandi og
ef til vill í Noregi. Hin mikla
mannfjölgun sem hófst 1880—90
hefur haldið áfram. Meðaltal
fjölgunar 1000 manns árlega en
1915 nálega 1400 og eykst hrað-
fara eftir því sem mannfjöldinn
vex. Frh.
. Jón Jónsson
læknir.
mmmmma^mmmmmm^mmmmamt
ÓKEYPIS
10 daga túpa.
A. H. RIISE, Bredgade 25 E
Kaurmannahötn K
Sendið Pe-'sodent sýnishoin til 10 daga til
241OA
MARK -
''•íns tópa handa fplskyldu. IC.40.
Hvað er dmkkið? Kaffi var
flutt inn árið 1927 ámóta mikið
og næstu ár á undan, eða um
602 þúsund kíló, eða um 6 kíló
fyrir hvem landsbúa, svo að Is-
lendingar eru með mestu kaffi-
þjóðum. Te er drukkið samjafn-
aðarlaust miklu minna. Af því
vora notuð á síðasta ári um 4000
kíló. En af súkkulaði og kakó er
notað mun meira, eða um 112
þúsund kíló af súkkulaði og 17
þúsund kíló af kakó. I þessa
drykki og með þeim, og á annan
Drepandi kossar 1
Bókin um svipu mannkynsins.
Hjónabandsbókin
Eina bókin, sem gefur fullkomnar
upplýsingar um t.akmörkun barna-
fæöinga, eftir dr. Malachowski, dr.
Harris og d. Lesser. Báöar bæknmar
meö mörgum myndum. Sendast án
buröargjalds fyrir kr 1,25 (isl.) hvor
i frlmerkjum eða gegn póstkröfu að
viöbættu buröargjaldi.
^JJjjhed^ma(pa8Ínet^Afd^2(^Kbhv^ö^
hátt, voru á sama tíma notuð
hjer 3 miljónir 974 þúsund kíló
af sykri og fer sykumautn vax-
andi. Kaffi má heita íslenskur
þjóðardrykkur öðrum fremur.
Nokkuð af hinni miklu notkun
þess og súkkulaðis stafar af því,
að í samkvæmum og heimboðum
eru oftast bomir fram báðir
drykkirnir, en slíkt er ósiður og
óþarfi og mun hvergi tíðkast
nema hjer og mættu húsmæður
hætta þessu.
I Bolungarvík er nýreist frysti-
hús með vjelum.
Helgi Guðmundsson fiskifulltrúi
á Spáni er nýfarinn hjeðan til
starfs síns og setst að í Barcelona.
Jarðarför Gísla gerlafræðings
fór fram 4. þ. m. að viðstöddu
fjölmenni.
1 rektorsræðu próf. Ág. H.
Bjarnason í síðasta blaði átti að
standa, að 20 stúdentar hefðu
fengið 200 kr. námsstyrk og 20
400 kr. og einn 350 kr. húsaleigu-
styrk (hinir fengu frá 53 kr. uppí
200 og 46 fengu engan).
Útflutningsvara er nú orðin úr
mörgu því, sem engan grunaði
fyrir nokkrum árum. Hausar og
fiskbein hafa t. d. verið flutt út
fyrstu 8 mánuði þessa árs fyrir
rúmlega 118 þús. kr., síldarhreist-
ur fyrir 2000 kr. í ágúst, ís fyrir
200 kr. og sódavatn fyrir 740 kr.
og 6 nautgripir.
160 refir lifandi voru fluttir
hjeðan frá ársbyrjun til ágúst-
loka og söluverð talið 40 þús. kr.
I
i
I
Buldog
Aðalverðlistinn
fyrir veturinn 1928-1929
er nú kominn út
OG VERÐUR SENDUR ÞEIM ER ÞESS ÓSKA ÓKEYPIS OG
BURÐARGJALDSFRÍTT
Verðlistinn er hinn snotrasti í öllu og skrautlega litprent-
aður; myndirnar mjög góðar og lýsingamar svo skýrar og ná-
kvæmar, að menn geta af þeim gert sjer eins glögga grein fyr-
ir vörunum og þær væru fyrir sjónum manns. Verðið er 10—
50% ódýrara, en það sem ódýrast er annarsstaðar.
Verði viðskiftamenn ekki ánægðir fá þeir vörurnar end-
urgreiddar.
Umbúðir eru ókeypis. Burðargjald reiknast aðeins ein
króna af hverjum (póst)bögli, án tiUits til stærðar hans.
Af þeim meira en 1000 vörutegundum, sem fram eru boðn-
ar í verðlistanum, skal sjerstaklega nefna :Vefnaðarvörur af öllu
tæi, Prjónavörur (Tricotage), Álnavörur, svo sem ljereft, kjóla-
tau, o. s. frv. Fatnaður karla, kvenna og bama, og skófatnað-
ur. Okkar heimsfrægu gúmmístígvjel, extra prima Goodrihs
sjóstígvjel, við lágu verði, úr, klukkur, hnífar, lampar, skrif-
pappír o. s. frv.
Buldog er, sem kunnugt er, eitt af stærstu verslunarhús-
um í Danmörku, og engin verslun önnur býður viðskiftamönn-
um sínum jafngóð kjör.
Vöruverð vort er venjulegast 10—50% lægra en þar sem
ódýrast er, og er það á allra vitorði, að Buldog selur aðeins
vörur, sem reglulega fullkomin ábyrgð verður tekin á.
Þúsundir viðskiftavina víðsvegar í Danmörku kaupa nauð-
synjar sínar hjá Buldog, og þúsundir manna spara þannig stór-
fje á hinu lága vöruverði okkar.
Þakkarerindi, þúsundum saman, berast oss daglega frá
ánægðum viðskiftamönnum, og er það ein sönnun fyrir vöru-
gæðum Buldog’s verslunarinnar.
Ástæðan til þess að Buldogsverslunin getur selt vörur sín-
ar við jafn vægu verði, er hið nýtísku fyrirkomulag, sem er á
verslunarrekstri vorum; vjer höfum út um allan heim, fast-
búsetta menn, sem annast innkaup fyrir oss, svo að oss er ávalt
innan handar að sæta lægstu verðtilboðum, hvort heldur það er
austur í Kína eða í einhverju landi öðru. Þetta, — ásamt hin-
um stórkostlegu innkaupum vorum gegn greiðslu út í hönd, —
gerir oss kleift, bæði að kaupa inn ódýrar en aðrir og einnig að
selja aftur langódýrast og kemur það viðskiftavinum vorum í
hag, og yður einnig, ef þjer gerist viðskiftavinur vor.
Skrifið því undir eins í dag og biðjið um verðlista vom.
Undertegnede udbeder sig
tilsendt gratis og franko
Buldog’s Hovedkatalog 1928
—1929.
Navn ........................
Adresse .....................
1, ...........................
Buldog
Nerrebrogade 9
Kjobenhavn N
Danmark
Þjóðleikhúsið. Nú er verið að
byrja að grafa fyrir grunni þess
vfð Hverfisgötu, fyrir ofan Lands-
bókasafnið.
í Hnífsdalsmálinu, sem nú mun
eiga að fara að ljúka, eru skip-
aðir verjendur Páll Jónsson fyrir
Eggert Halldórsson og Hannes
Halldórsson, en Lárus Jóhannes-
son fyrir Hálfdán Hálfdánarson.
Afli var 1. þ. m. orðinn á öllu
landinu c. 364 þús. skp, eða c. 74
þús. skp. meiri en á sama tíma
í fyrra.
íslensk giíma. Bretski sendiherr-
ann í Kaupmannahöfn, Sir Thom-
as Ilohler, sem hjer var í sumar
á herskipinu Adventure, hefur nú,
ásamt yfirmönnum skipsins, sent
íþróttasambandinu fagran grip.
Það er silfurstytta af enskum sjó-
liðsmanni, á svörtum trjestalli og
eru silfurskildir á hverri hlið.
Gripnum á I. S. I. að ráðstafa til
verðlauna fyrir íslenska glímu. En
Sir Thomas og sjóliðsforingjamir
horfðu á Islandsglímuna hjer í
sumai' og þólti mikið til hennar
koma.
Þverármálið (kindadrápsmálið)
nyrðra var nýlega tekið til nýrr-
ar rannsóknar af Sig. Sigurðssyni
sýslumanni, vegna þess að eldri
drengurinn bar það, að fullorðnir
hefðu verið í vitorði með sjer,
einkum ráðsmaður móður sinnar.
Þetta sannaðist ekki og lýsti
strákurinn því yfir seinna, að
þetta hefði verið lýgi ein og
prettur úr sjer.
Stúdentablaðið er nýkomið, 1.
hefti haustsins, smekklegt og
fj^jlbreytt.
Tóbak var flutt inn á síðast-
liðnu ári álíka mikið og næstu 5
árin áður, en mun minna en
árið 1926, en þá var innflutning-
ur óvenju mikill. 1927 voru flutt
inn 71 þús. kíló af tóbaki og 32
þús. kíló af vindlum og vindling-
um, eða um 1 kíló fyrir hvem
landsbúa. Samkvæmt hagskýrsl-
um virðast því pípureykingar
standa nokkuð í stað, en vindla
og einkum vindlingareykingar
aukast, aðallega í kaupstöðum.
* útsm. Acta.