19. júní - 01.01.1920, Side 4
52
19. JÚNÍ
Svía. Á þann veg hafa þær heiðrað
Margrétu drotningu Valdemarsdóttur,
Birgittu hina helgu og Fredrikku
Bremer. Að þessu sinni var það lif-
andi kona er þær mintust. Það var
Ellen Key. Svo breyttir eru hugirnir
orðnir.
Heimilisiðnaður.
Fyrsta allsherjar heimilisiðnaðar-
félagið hér á landi, var myndað árið
1913. Var það stofnað í Reykjavík af
nokkrum málsmetandi körlum og
konum og nefnt »Heimilisiðnaðarfélag
íslands«. Var tilgangur þess, »að auka
og efla þjóðlegan heimilisiðnað á Is-
landi, stuðla að vöndun hans og feg-
urð og vekja áhuga manna á því, að
framleiða nytsama hluti . . «. Tveim
árum síðar var Heimilisiðnaðarfélag
Norðurlands stofnað á Akureyri, og
eru nú á Norðurlandi nokkur félög
með líku markmiði, svo sem á Húsa-
vík, Sauðárkróki, í Viðvíkarlireppi í
Skagafirði og víðar.
í 2. gr. laga Heimilisiðnaðarfélags
íslands, er tekið fram á hvern veg
félagið skuli leitast við að ná tilgangi
sínum, sem sé með því, »að gefa
mönnum kost á að afla sér verulegr-
ar þekkingar bæði á þjóðlegum og
erlendum heimilisiðnaði, eftir því sem
efni þess fremsl leyfa. Skulu störf fé-
lagsins aðallega fólgin i þessu fernu:
I. Félagið á að hafa árleg náms-
skeið, þar sem karlar og konur
geti fengið munnlega og verklega
kenslu í ýmsuin greinum heim-
ilisiðnaðar, svo sem saumum,
vefnaði og annari tóvinnu, tré-
smiði, málmsmíði, steinsmíði og
múrvinnu, bursta og körfugerð,
bókbandi, leður- og pappírsiðn-
aði og jafnframt teikningu sam-
fara þessum greinum. Skulu
námsskeið félagsins vera í Reykja-
vík og helzt 6 vikur á ári hverju,
frá miðjum maimánuði til loka
júnímánaðar; jafnframt skal fé-
lagið leitast við eftir efnum og
ástæðum að halda lík námsskeið
í öðrum kaupstöðum landsins og
ennfremur að fá til kennara að
ferðast um sveitir og kenna.
II. Félagið á að leitast við að leiða
í Ijós bækur, prentaðar fyrir-
myndir og ritgerðir um ýmsar
greinar heimilisiðnaðar og þau
málefni, er að honum Iúta.
III. Félagið á að koma á fót safni
af ýmsum iðnaðaráhöldum, upp-
dráttum og öðrum myndum,
verklegum sýnishornum og til-
búnum munum, er geti verið til
fyrirmyndar í ýmsum greinum
heimilisiðnaðar. Skal félagið gefa
mönnum kost á að kynnast safni
þessu og nota það eftir því sem
ástæður leyfa.
IV. Félagið á að útvega og benda
mönnum á hina beztu sölustaði
fyrir íslenzkan iðnað, bæði inn-
lenda og erlenda. Jafnframt sér
félagið um sölu á íslenzkum
heimilisiðnaði og þjóðlegum list-
iðnaði íslenzkum, bæði einstök-
um hlutum og algengum íslenzk-
um iðnaðarafurðum, fyrir þá er
lcunna að æskja þess«.