19. júní - 01.01.1920, Qupperneq 5

19. júní - 01.01.1920, Qupperneq 5
i 9. JÚNÍ 53 Hér er tekið fram, hver vera skuli aðalstörf þessa félagsskapar, og skal farið nokkrnm orðum um það, hvern- ig þau hafa verið rækt til þessa. I. Námsskeið, barnavinmistofnr o. fl. Fyrstu þrjú árin, 1914, ’15 og ’ 16, voru námsskeið haldin í Reykjavík að vorinu til (15. maí til 30. júní). Var þar kendur vefnaður, trésmíðar, burstagerð og bókband. Voru náms- skeiðin allvel sótt, en helzt af utan- bæjarfólki. Þó hafði félagið barna- vinnustofu veturna 1915—’16 og ’16 —’17. Fékk það 200 króna styrk úr bæjarsjóði og nutu nokkur börn úr barnaskóla Reykjavíkur kenslunnar. Lærðu drengir burstagerð og útsög- un, stúlkur körfugerð og sauma. En sumarið 1916 tilkyntu viðskifta- menn félagsins í útlöndum stjórninni það, að pantanir á vinnuefni yrðu ekki afgreiddar fyr en að stríðinu loknu. Sá þá félagið sér ekki fært, að að halda áfram þessari kenslu að svo stöddu. Félagið hafði ætlað sér að styrkja mann til iðnaðarnáms í Nor- egi, er gæti að loknu námi kent fyrir félagið. Kom þá í Ijós að engin kenn- aranámsskeið yrðu haldin þar fyrst um sinn. En þó að kenslan í Reykjavík Iegð- ist niður, var samt heimilisiðnaðar- kenslu haldið áfram úti um sveitir með styrk frá félaginu. Rannig kendi ungfrú Sigrún Pálsdóttir, nú frú Blön- dal, vefnað austur í sýslum og síðar austur á Fljótsdalshéraði. Þá var og ungmennafélögum ísafjarðar, Önund- arfjarðar og Mýrahrepps í Dýrafirði veiltur nokkur styrkur til að halda námsskeið í trésmíðum (skornir og sagaðir munir; svo og teikning). Loks fékk Kvenfélag Þingeyjarsýslu og Heimilisiðnaðarféag Húsavíkur lítils- háttar styrk lil þess að hafa náms- skeið hjá sér. II. Bækur, fyrirmyndir og rilgerðir um ýmsar greinir lieimilis- iðnaðarins. Pað er að nokkru leyti dýrtíðinni að kenna, að lítið hefir verið unnið að því, að gefa út bækur, safna fyr- irmyndum og öðru, er heyrir þessum lið til. Þó er það að tilhlutun Heim- ilisiðnaðarfélags íslands, að frú Pór- dís Stefánsdóttir ritaði ágælt kver um jurtaliti og að það var prentað og geíið út síðastliðið vor af kvenna- blaðinu »19. júní«. Þá hét og Heim- ilisiðnaðarfélag íslands 100 króna verðlaunum fyrir bezt samda ritgerð um íslenzkan heimilisiðnað. Skyldi greinin sérstaklega vera um það, hvaða innlend vinnuefni mætti nota. Félaginu bárust tvær ritgerðir og hefir önnur þeirra, eftir ungfrú Hall- dóru Bjarnadóttur á Akureyri, verið prenluð að tilhlutun félagsins. (Frh.). Frá Yesturheimi. Pað er nú orðin sameiginleg spurn- ing meðal allra þjóða: hvernig getum við sparað föt og fæði. Einkum eru það konurnar, sem brjóta heilann um þessa spurningu. Urlausnirnar eru margvíslegar. Ein þeirra er að koma upp ódýrum matsölustöðum, þar sem

x

19. júní

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 19. júní
https://timarit.is/publication/199

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.