Njörður - 02.09.1916, Qupperneq 4
104
NJÖRÐUR.
Þrekvirki.
(Lauslega þýtt úr dönsku.)
(B'ramh.)
Jú, þeim skyldi gefa á að líta
í dag, hugsaði Ólafur og rótti úr
sér.
Svo gekk hann heim og ók stundu
síðar, upp á búinn, úr hlaði. —
Þegar inn i kaupstaðinn kom
litaðist Ólafur um; þar var vana-
snið á öllu.
Andrés skóari, kryplingurinn,
söng við vinnu sína; Hjálmar stór-
kaupmaður, sá með ístrumagan,
sat út í garði sínum og sleikti
sólskinið; Einar lögmaður veiddi
flugur í glugganum, .— en eng-
inn tók fremur venju eftir Ólafi,
engan grunaði, að þetta var merk-
isdagur fyrir hann.
Brandur braskari kom hlaupandi
þvert yfir götuna, með stórt blað
í hendinni.
„Aksía í fundarhúsinu“ hrópaði
hann og veifaði blaði til Ólafs.
„Láttu mig sjá hvað það er,u
sagði Ólafur, en í sama bili slóst
aktaumurinn undir halan á uxanurn
þeim til vinstri, og er það var
lagfært sást Brandur hvergi. Hann
var kominn inn til Jens bakara.
„Aksía í fundarhúsinu“, tautaði
Ólafur, „upp á flestu firma þeiru.
Síðan fór hann að versla. Fyr-
ir framan búðarborðið var fjöldi
manna; sumir skröfuðu um veðrið,
aðrir bollalögðu hvar best væri að
reisa fundarhúsið oghvað „aksíanu
Vnundi gefa af sór, en enginn yrti
á Ólaf.
Þegar hann var búinn að taka
út, dró hann upp pyngju sina, valdi
ófögrustu krónurnar til að borga
með, stakk upp í sig vænni tó-
bakstölu, kvaddi kaupmanninn og
hélt heimleiðis.
Óiafur ók hægt og gætilega, þvi
hvorki var vegurinn góður né hon-
um létt í skapi. Þessum þráða
degi var þegar tekið að halla, án
þess hann hefði fært nokkra nýja
gleði eða hamingjuauka. Sigur-
fögnuðurinn, sem hann hafði hlakk-
að til og huggað sig við í tutt-
ugu og fimtn ára striti og stríði,
gjörði ekkert vart við sig.
Þar á móti kendi hann einhvers
óvenjulegs þunga í skapi, fanst sig
vanta eitthvað, hafa glatað ein-
hverju, vera snauðari en fyrir 25
árum, þegar hann byrjaði með
tvær hendur tómar og alt í skuld.
„Best að hraða sér heim til
Maríu“, sagði hann við sjálfan sig
200 alklæðnaöir
fyrir karlmenn
komu nú með „Gullfoss11 í verslun AXELS KETILSSONAR
Karlmannaföt 20 til 55 kr.
Unglingaföt 12 til 40 kr.
Drengjaföt.
Yatteruð teppi. Ullarteppi.
Riimteppi. # Borðdúkar.
Sruntutau. Mislitur LastingMr.
Alt nýkomið í
Axels-buð.
I verslun S. Guðmundssonar
er mikið úrval af
iLll'Slseðnacði
fyrir karlmenn.
Einnig mikið úrval af
Enskum húfum,
Flibbum, Siaufum, Brjústum,
Manchettum o. fl.
Þór ættuð að líta á klæðnaðinn sem ég býð yður fyrir afarlágt
verð, áður en þór festið kaup annarstaðar.
Notið tækifærið! Sparið peninga yðar og kaupið klæðnað þar,
sem hann er fallegastur og haldbestur, sem er aðeins í
Verslun S. GuOmundssonar.
— „og nú man ég nokkuð, sú
sægráa á að bera í dag, því hef ég
alveg gleymt.
„Afram, áfram, hott, hou.
Uxarnir greiddu smátt og smátt
úr spori, eftir því sem nær dró
heimilinu. —
A næsta leyti stansaði Ólafur
snöggvast og litaðist um; „þarna
var starf hans og þeirra hjóna und-
anfarin árin; oft höfðu þau lagst
uppgefinn til hvíldar, en framan
af æfinni leið fljótt úr þeim, þá
var kappið og áhuginn, æskufjörið.
Nú var þessu öllu aftur far-
ið. — — — — (Framh.)
S!kizzzza.Trara..
SELSKINN söltuð, stór og
smá, fást ef pöntuð innan loka
næsta september mánaðar.
Pöntunum veitir undirritaður
móttöku og gefur nánari upp-
lýsingar.
ísaf. 21. ág. 1916.
Guðm. Gudm.
Vegna ófriðarins mikla eru marg-
háttaðir örðugleikar á að út-
vega ýmislegt það, er með þarf
til mótorsmíða.
Þeir, sém ætla að fá hjá mér
Álpha-mótora
eru því vinsamlega beðnir að panta
þá í tíma (helst með 7 mánaða
fyrirvara.
ísafirði, í febr. 1916.
Helgi Sveinsson.
Ó. Steinbach
tannlæknir.
Heima 10—2 og 4—6.
Öll tannlæknastörf og tannsmíði
af hendi leyst.
Tangagötu 10, Isafirði.
N.IÖIMH IÍ hefir þegar
fengið meiri útbreiðslu hér í sýsl-
unni en nokkurt annað blað. Það
er því hagur að auglýsa í Nirði.
Prentsmiðja Njarðar.