Njörður


Njörður - 10.12.1916, Side 2

Njörður - 10.12.1916, Side 2
162 NJÖRÐUB. Til eru ýuas merki um hugar- þel vinstrimanna, til oddvita, sem hingað til ekki hafa verið gjörð að umtalsefni í Nirði. Er Yestra óhætt, að sœma hann með lasti sinu, hér eftir sem hing- að til. Þeir gjörast sífelt fleiri, sem ekkert óttast meir, en lof og hylli blaðsins. Hlutkestið. Vestri vill enn þá halda á þvætt- ingi sínum um hlutkestið. I 47. blaði leyfir hann sér að koma með þau ósannindi, að seðl- arnir með nöfnum vinstrimanna hafi verið efst í ílátinu. Hver hefur frætt hanu á því? Hið sanna er, að seðlarnir voru ekki látnir niður eftir flokkum, heldur sinn úr hvorum á víxl. Þegar allir seðlarnir voru komn- ir í baukinn, innti einn vinstri- manna til þess, að þeir mundu ekki vera nema 8. Oddviti hvolfdi þá öllum seðl- unum á borðið og lét aftur upp í af handa hófi. Reyndust þeir 9 eins og vera átti. Þetta sáu margir, svo ekki er unt að mótmæla því með rökum. Seðlarnir hafa því vissulega ruglast úr þeirri röð, er þeir voru lagðir í; veit engi hvernig, enda á svo að vera. Hér af sést, að illgetur og ó- sannindi vinstrimanna um hlut- kestið, eru mælt gegn betri vitund. Þegar svo er komið, telsf óþarft að eyða fleiri orðum við þá um þetta mál. Hálfur sannleikur — heil lýgi. Rétt er það hjá Vestra, að með lögum frá 80. júlí 1909 var hjú- um veittur kosningarréttur í bæj- armálum, ekki samt öllum, því mið- ur, eins og ráða mætti af orðum blaðsins, heldur þeim einurn, sem guldu til bæjarsjóðs. Með breytingu þeirri á bæjar- stjórnarlögum Isafjarðar, er samþ. var í fyrra, misstu þessi hjú hann aftur hér. En það er heil lýgi að bæjar- stjórnin eða oddviti hennar væri sök í því. Þetta hefur líklega slæðst af vangá inn í frv. hjá flutningsm. þess, nema svo sé, að Stígandi heitinn, áður belgur var dreginn á höfuð honum, hafi komið þess- um öfugmælum inn í það. Hann var að dorga á bak við bæjarstjórnina í þvi máli, eftir að hún hafði afgreitt það. Yerður eigi með vissu sagt, hvort þetta hefur þar af leitt. En ekki eru merkin ólík því, sem vinstrimenn hefðu* lagt þar sínar happahendur að. Hvað sem um það má segja, verður jafn ámælisvert að kenna oddvita um þessa breytingu, án allra sannana og röksemda. En þetta er lagið hans Yestra. HÆGRIMENN hafa lagt fram lista sinn við bæjarstjórakosninguna í vetur. Eru á honum: síra Magnús Jónsson, Sig. Sigurðsson lögfr. frá Yigur, Magnús Örnólfsson skipstjóri. f STEFÁN JÓNSSON húsmaður hér í bænum andað- ist 8. þ. m. Jarðarför lians fer fram næsta fimmtudag (14. þ. m.) Yerslunia í Hafnarstræti 3 hefur nú fengið afar-miklar birgð- ir af ágætum vindlum, sem seljast með mjög sanngjörnu verði fyrir jólin. Einnig hefi ég fengið fjölda margar tegundir af Reg-nkápum úr ágætasta efni fyrir dömur og herra og einnig fyrir unglinga. Og siðast en ekki síst minnst 16 sortir af flunnelum i morgun- kjóla og líf o. m. m. fl. Komið og litið á vöruna, það borgar sig. Halldór Ólafsson. Tii Skftla úrsmiðs er nýkomið virval af IPlottzrÖX^ fallegri og endingargóðri. =r Skoöið hana! H/itlsi biáðin Steypuliúsgötu -> hefur mikið úrval af sillíi og tilbúnum slifsum. Uið sem þurfið að fá ykkur í sillcisvointvir fyrir jólin, koimð til mín. Afar margir óendanlega fallegir litir og verðið sanngjarnt. Ilallílóv Ólaísson. Ritföng «s tækifærisgjair er bezt að kaupa í Bókaverzlun Guðm. Bergssonar á ísafirði. IPliF' Þeir, sem pöntuðu lijá mér saumamaskínur síðastl.sumargjöri svo vel og vitji þeirra sem fyrst. Halhlúr Óiafsson. 3 y2 pd. línur, 1 pd. línur, Taumar og önglar, Tréskóstígvél með skinnfóðri, Grænsápa og Demantsvartur litur fæst í V. S. G. FJÖLDA margar tegundir af póstkortum, jólakortum, fermiugar-* og giftingar-kortum. Halldór Ólafsson. Lööa-önglar nr. 7,8og9 hvergi ódýrari en í verslun Guðjóns Jönssonar. ÞAKKARORÐ. Jeg undirritaður þakka hér með kvenfélögunum „Hlífa og „Ósk“ ú Isafirði fyrir hjálp þá, er þau veittu mér nú nýskeð, eftir sjúkleik minn. Sömuleiðis þakka ég þeim syst- kinum, Helga Sveinssyni bankastj. og Margréti Sveinsdóttur fyrir um- önnun þoirra á mór og viðtökur, er óg kom af sjúkrahúsinu. ísaflrði. 8.—12.—1916. Jónatan Jónadabsson. JC»ar sem sá orðrómur hefur kvikn- að hór í bænum, að ég hafiásíð- astliðnu hausti tapað peningum hér á gistihúsinu „Noidpolen“, þá lýsi ég því hérmeð yfir, að þetta er með öllu tilefnislaust, enda er sá orðrómur ekki til orðinn af minni tilstuðlan. Sá grunur, sem af þessum kvik- sögum kynni að hafa fallið á gisti- húsið eða einstaka menn, sem þar voru nætursakir, er því með öllu éstæðulaus. Isafiiði. 28. nóv. 1016. Bjnrni Bjarnason.

x

Njörður

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Njörður
https://timarit.is/publication/200

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.