Njörður - 26.03.1917, Blaðsíða 1

Njörður - 26.03.1917, Blaðsíða 1
■WiiintMliiliitHiiwiMliitiiiiitiiiiiiiiliiltiiniittniiiliiliitiiiiiinininiiiiii* I Verð hvers ílrsfjórð- j I ungs (15 blöðj kr. 0,75 % 1 er greiðist fyrirfram. : j Erlendis 4 kr. árg. ; %iiluiHintu|iiiiiiii|iiii!iniuiiliilii|i:|>iliiliiliil:iiniiilHI<*liiliiln|íi|i;iufi 2iKiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiniiiii(ii)tniiiiiititriint:!ini|ii!iii:ii!iiiiiit!iiiii,iiii j Kemur vanalega út : | einu sinni í viku og j | aukablöð við og við. 8 j Alls 60 blöð 4 ári. j ftitiili!inlHiiiiiii>ii!i|iiiiiiiiiiiiiii!iiiiiiiiiit;:ii:tii|iitiiiii|iiiiiiiiwiHlHIUN Ritstjóri: síra Cruðm. G uðmundsson. 5+- II. ÁRG. ísafjörður, 26. mars 1917. Saman en ekki sundur. Að uxidanförnu hefir hér í blað- inu (tölubl. 9—10) nokkuð verið rætt um þá hagsmuni, er samein- ing Eyrarhrepps og Isafjarðar hefði i för með sér. Þó hefir þar fleira verið til tínt, sem litur að hagsmunum Eyrar- hrepps, hðldur en ísafjarðar. Nú. skal þar á móti drepa stutt- lega á það allra helsta, sem frá ísafjarðar hálfu mælir með sam- einingunni. I. Starjsemi Isfirðmga í Eyrarlireppi. Nokkrir af borgurum bæjarins •eru ráðnir í að hefja síldarverkun ■og fleira sem henni fylgir, innan vebanda Eyrarhrepps. Ef síldveiðar hepnast hér sæmi- lega, munu fleiri fara að þeirra dæmi. Yerði ekkert af sameiningu munu bærinn og hreppurinn togast á um gjaldþol þessara manna og bærinn fara á mis við allmiklar tekjur. Það stímabrak, sem þessu yrði samfara, gjörði bæjarbúa ófúsa að starfa í lireppnum og hefti fram- takssemi þeirra, eða benti hug þeirra á aðrar stöðvar lengra frá. Hvorugt yrði bænum lítill skaði. En ef sameinað verður fellur arður af þessum störfum kvorum- tveggja sameiginlega í skaut. Þeir sem þau reka eru eins og heiina hjá sér, og bæði bærinn og bændur hafa sömu ástæðu til að unna þeim gæfu og gengis. Hugur ötulla manna festist því meir til starfa hér, sem þeirþykj- ast betur í sveit komnir og þá taka dugandi menn í öðrum sveit- um að líta hingað hýru *auga. H. Vatnsskortarinn. Allir bæjarmenn vita, að ísa- fjörður hefur tæpast nóg vatn til uð kæla tungu sína, hvað þá held- ur til meiri nytja. Nú er sú ætlun fróðra manna, að ár og fossar verði með tírnan- um fésjóðir þessa lands.- Yona vísindamenn, að áhöld til að nota afl vatnsins verði með tið og tima svo ódýr, að næstum hver foss nærri mannabygðum, verði að einhverju gagni fyrir þá, sem hafa sæmileg peningaráð. I Eryarhreppi eru 5 ár, Hnífs- dalsá, Tunguá, Úifsá, Langá, Fossá og auk þess nokkrar smásprænur t. d. Buná, Arnardalsá o. fl. Mér þykir liklegt að sá tími komi, að margt megi gjöra með þetta vatn og bærinn þurfi þess als með, er stundir líða. Nú er augljóst að það er mikl- um annmörkum bundið að seilast til þess í annað sveitarfélag hvort sem væri til kaups eða leigu, eins og raun hefur á orðið. Því hvað sem kaupverði eða leigu kynni að líða, mætti búast við að gjöld yrðu lögð á þær stofn- anir og störf, sem sæktu afl sitt i hreppinn. Gæti þá vol, svo farið, að bær- inn neyddist til að nota olíu eða kol sem aflgjafa í stað vatns. Yæri þá illa farið í hvívetna; vatnsaflið lægi ónotað, hver veit hve lengi, en seilst væri til ann- ara landa eftir aflgjafa, sem reynst gæti bæði dýrari og i öllu falli brigðulli, hvað lítið sem út af bæri í siglingum og verslun. I þessum efnum gildir gamla reglan: „Holt er heima hvað“. in. MjóUmrleysið. ísafjörð brestur ekkert jafn sár- lega sem mjólk. Ár og síð er skortur á henni, stundum háskalegur. Það er fuli ilt, að eigi er kost- ur á henni til drýginda og mat- bóta fyrir almenning. Hitt er hálfu verra, að börn og hrumir og sjúkir missa við það þeirrar fæðu, sem þeim kemur að bestum notum. Næstum daglega segja læknar um sjúklingana: | M 13- IVý komið í verslun Gruðrúnar Jónasson margar teg. af þvottasápu svo sem: Sólskinssápu og Kreolínsápu. Einnig mikið úrval af handsápum. KjÖtsala, og afhending á því sem geymt er í Jökli, fer fram á þriðjud. og laug- ard. frá kl. 4—6 e. m. ísafirði, 10. mars 1917. Sk. Einarsson. „Verður að hafa mjólk“. Síðan er gengið hús úr húsi og spurt um mjólk og svarið verður oftast: „Ekki til“, og ef eitthvað fæst, er það miklu minna en þarf. Svona gengur ár eftir ár. Þetta mjólkurleysi hefur eflaust stórskaðleg áhrif á heilsu og þroska barnanna og veldur tjóni frá kyni til kyns. Hvað heilsu og krafta snertir er útlenda orðtækið satt: „Maðurinn er það sem hann etur“. Hentug fæða og holl erbörnum og æskulið ómissandi, eigi þau að ná fullum manndómi. Þegar bæjarbúum fjölgar verður mjólkurleysið enn meira, nema mjólkurmagn bæjarins fari um leið vaxandi; og þar mun koma að bæjarstjórnin getur ekkilátið mjólk- urleysið afskiftalaust. Eina ráðið gegn mjólkurleysinu er ræktun jarðanna hér í kring. Henni getur ekki farið skjótt fram nema með miklum tilkostnaði. Engir aðrir en bæjarbúar geta lagt fram það fé, sem þarf til þessa. Má það verða með tvennu móti: 1. Með því að borga mjólkina svo vel, að ekkert sé fýsilegra fyrir bændur, en að rækta töðu og ala kýr á henni. 2. Með því að verja sjálfir fé til grasræktar í sama skyni. Hið fyrra gjöra þeir ógjarna

x

Njörður

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Njörður
https://timarit.is/publication/200

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.