Norðri - 27.07.1906, Page 3
NR. 32
NORÐRI.
129
ísland undir Noreg!
Skrifað er frá K.höfn til ritstj. Norðra
nú með síðustu ferð svo látandi kafli:
«Flogið hefir sú saga hér, að marga
Norðmenn langi nú til að eignast ísland
og að þeir hafi leynileg samtök um það,
að ná því sem fyrst frá Baunverjanum
og síðan undir sig. Útvegsme.m þeirra
kváðu vilja gera það að fiskiveri líkt og
Lófót, og í politísku tilliti láta það vera
lirepp af Noregi («Kommune af Norge!»).
Lítt legg eg trúnað á þetta, og því
síður að mér detti í hug, að íslending-
ar verði svo vitlausir að neitt slíkt geti
komið til mála».
Brjóstmynd
af Kristjáni skáldi Jónssyni er nýkom-
in til Reykjavíkur og á að verða sett á
stall í garðinum fyrirframan «safnahúsið»
þegar það er fullgert. Myndin er úr eir,
og er gerð að tilhlutun Kristjáns sál.
Jónassonar verzlunarumboðsmanns fyrir
samskot er gerð voru í því skyni, Hafði
hann fyrir andlát sitt falið sra. Eiríki
Briem prestaskólakennara að annast um
myndina þangað til húu væri koirin á
sinn stað.
Verðlaunaglíma
verður háð hér í bænum þriðjudag-
inn 21. ágúst næstk. og byrjar kl. 1 e.
h. Er það íþrótta og glímufélagið
«Grettir» sem er frumkvöðull hennar
°g leggur til verðlaunagripinn, en það
er leðurbelti mikið, silfurbúið mjög,
að öllu fallegt og hinn eigulegasti hlut-
ur. Er á því meðal annars skjöldur
mikill og í hann grafin brjóstmynd
Grettis Asmundssonar eins og menn
hugsa sér hann hafa verið. Er það alt
úr hreinu silfri eins og annar búningur
beltisins.
Ollum er velkomið að keppa um
verðlaunin og reglugerð um verðlauna-
gripinn ertilsýnis hjá formanni «Grett-
is», hóteleiganda Vigfúsi Sigfússyni á
Akureyri,
Tíðarfar
hefir verið slæmt stöðugt nú að undan
förnu, ákaflegir kuldar og úrfelli. Qanga
margar sögur um það úr næstu héruð-
um en ekki vitum vér hvort þær eru
sannar. Rannig er fullyrt að Keldhverf-
ingar hafi verið á leið til Húsavíkur
með ull sína snemnia í þessum mánuði,
ensnúið aftur á Reykjaheiði vegna snjó-
þyngsla og ófærðar. Fé úr Reykjadal
er sagt að liafi fent á Þeistareykja-afrétt,
°g daginn þann sem margir Skagfirðingar
byrjuðu túnaslátt, er mælt að hafi kom-
ið þar svo mikið hríðarél að hvítt hafi
verið að sjá yfir alt láglendi.
í gær brá til landáttar og þótt úr-
koma haldist, enn er útlit fyrir gagn-
gerða veðurbreytingu.
Vél
sem kverkar síld, hefir hr. H. Hansen
■ Krossanesi fundið upp, ásamt öðrum
uorskum manni, í Noregi í vetur, Rarf
3 drengi til að láta síld í vélina og
kverkar hún ca. 80 síldar á mfnutunni,
eða ca. 48,000 síldar á 10 stunda vinnu-
tíma sem er nálægt 150 tunnum af haf-
síld. Mun sumu kvennfólki þykja þetta
miður góð tíðindi. Mynd af vél þess-
ar> er f 5. hefti af «Norsk Fiskeritid-
ende» þ. á.
Ný fiskimið.
Skautan «Havsulen» (með gufuvél)
hefirá mánaðartima aflað á annað hundr-
að skippund af fiski, norðvesturaf Horni
mitt á milli Grænlands og íslands.
Tfúlofanir.
Sigurður skáld Sigurðsson kand. pharm.
1 Keykjavík og ungfrú Anna Pálsdóttir
Arnarholti.
^igurður Eggerz kand. jui.is og ung-
f'ú Solveig Kristjánsdóttir (assessors).
Bindindissameining
Norðurlands
hélt aðalfund siin á Sval'jarðjeyri 16. júni
s. 1. og gerðist þar þetta markvert: Lesin
upp fundargerð síðasta aðalfundar. í sam-
bandi við hana skýrði nefnd sú, er kosin
hafði verið á síðasta aðalfundi til að semja
um samviunu við bindindisfél. »lsland- frá
því, að ekkert hefði af því orðið, þar sem
félagið hefði aðrar reglur og aðferð þess
að ýmsu ólík »Sameiningarinnarí.
Ennfremur skýrði nefndin frá því, að ekki
hefði verið safnað undirskriftum undir áskor-
anir til kaupmanna á Akureyri unl að hætta
áfengissölu og skoraði fundurinn á stjórn
»Sameiningarinnar < að halda því máli áfram
á þessu ári.
Bjarni Arason skýrði frá ferðum sínum
um Þingeyjarsýslu. Og í sambandi við það
voru lesin upp bréf frá lndriða bónda Þor-
kelssyni á Syðra-Fjalli, Helga presti Hjálm-
arssyi á Helgastöðum og Jónasi kennara
Jónssyni á Hriflu. Báru bréfin þess ljósan
vott að ferðir stjórnarnefndarmannsins hefðu
vakið og glætt bindindishreifinguna á þessu
svæði.
Fundarstjóri skýrði frá ferðum sínum um
Öxnad.og Kræklingahlíð oghafði honum orð-
iðvtl ágengt. En ýmsir fulltrúar lýstu ánægju
sinni yúr útbreiðslustarfi og áhritum »Sam-
einingarinnar» á síðasta ári.
Lesín upp, endurskoðaður og samþ. aðal-
reikningar «Sameiningariunar« fyrir árin
1905—1906.
Kosnir í stjórn: Kristján Jónsson á Glæsi-
bæ (11 atkv.) Guðm. Þétursson Svalbarðs-
eyri (9 atkv.) og Stefán Stefánsson Varðgjá
(6 atkv.) Rætt um aðflutningsbann.
Ertir nokkrar umræður var samþ. svolát-
andi yfirlýsing: Það er eindregin ósk fund-
arins, að aðflutningsbann komist á í náinni
framtíð. Og brýnir fundurinn fyrir bindiud-
isbræðrum »Sam.« að flyitja það með áhuga
á næsta ári.
Kosnir endurskoðendur reikninga »Sam,«
til næsta árs. Kosningn lilutu þeir Jóhanu-
es Bjarnason á Þverá og Kristján Jónsson
í Veisu.
Stjórnarnefndinni falið að semjaogsenda
Stjórnarráði Islands skýrslu um starfsemi
«Sam.« á árinu.
Rætt um bindindisútbreiðslu á þessu ári.
Réði fundurinn Karl Finnbogason til að
ferðast um Skagafjörð, Húnavatnssýslu og
víðar ef við yrði komið og vinna að bind-
indisútbreiðslunni.
Rætt um minningarsjóð Magnúsar sál.
Jónssonar í Laufási. Brýndi fundurinn fyrir
fulltrúum að halda því máli vakandi í fé-
lögum sínum.
Hólmgeir Þorsteinsson lagði fram kr, 5,00
frá bindindisfél. Grundarsóknar til sjóðs
þessa og Bjarni Arason gaf til hans kr.
6,00
Húsabyggingar
cru nú nokkrar hér í bænum eins ogvana-
lega. Mest þeirra húsa sem nú er verið að
vinna að, er Templarahúsið og verður nán-
ar um það getið þegar smíði þess er lok-
ið. Metúsalein kaupm. Jóhannsson hefir reist
stórt hús og skrautlegt í Strandgötu í stað
þess er brann í vetur. Jón J. Dalmann
myndasmiður á hús í smíðum út með Brekku-
götu og verður það þrílyft. Alþm. M. J.
Kristjánsson hefirstækkað sölubúð sína mik-
ið og prýtt. Auk þessa eru ýmsar smærri
húsabyggingar á prjónunum
Landlæknir
dr. Jónassen hefir að sögn beðið um lausn
frá embætti Nýlega varð hann dannebrogs-
maður.
Mislingar og skarlatsótt
er haft eftir lækninum að komið hafi upp
hér í bænum í þ. m. en sé nú í rénun.
Mannalát.
Ldtin eru heiðurshjónin Jón Jónatansson
og Marin Sigurðardóttir frá Árhúsum í
Skagafirði. Hann dó 18 maí en hún 8júní.
Mestan sinn búskap bjuggu þau á Árhúsum
fyrirmyndarbúi altaf og voru orðlógð fyrir
skörungsskap og gestrisni. Þau voru jafn-
götnul, fædd 1840, samhent í öllu og var
hjúskaparlíf þeirra fyrirmynd. Fyrir 12 ár-
um hættu þau búskap og fluttu þa lil tengda-
sonar síns Ásgr. Þéturssonar bókhaldara
í Hofsós. Þau höfðu verið 40 ár í hjóna-
bandi.
Hreppstjóri í Hofshrepp eða hreppsnefnd-
aroddviti var Jón sál. lengst af búskapar-
1 C'nr Auíustinus |
* munntóbak, neftóbak, reyktóbak
J fæst alstaðar hjá kaupmönnum. ^
DEN NORSKE FISKEGARNSFABRIK
CHRISTIANIA
leiðir athygli manna að sínum nafnfrægu netum, síldarnótum og hringnótum (Snurpenoter.
Umboðsmaður fyrir island og Færeyjar:
LAURITZ JENSEN* Enghaveplads 11. Köbenhavn V.
árum sinum og sveitarstoð og stytta í mörg-
um efnvni. Kunnugur.
Jörgen Sígurðsson á Hafursá í Skógum
andaðist nýlega 28 ára gamall. Dugnaðar-
maður og greindur vel«.
Jónas Jónsson bóndi á Bessastöðum í
Fljótsdal varð bráðkvaddur á Egilsstöðum
1. júlí. »Sóma og dugnaðar bóndi«
Anna ívarsdóttir, kona Valdemars Sig-
urðssonar á ísafirði andaðist í f. m. eftir
nýafstaðin barnsburð.
Elín Guðmundsdóttir í Rvík kona Þorv.
Björnsson frá Þorvaldseyri andaðist 3. þ. m.
Kristin Björnsdóttir móðir Sigurbjarnar Á.
Gíslasonar kand. theol. í Rvík andaðist þar
6. þ. m. Hafði lengi búið góðu búiá Neðra-
Ási i Hjaltadal.
Einar Pétursson frá Ástbrandarstöðum í
Vopnafirði, roskin maður að aldri, einhleyp-
ur ogbarnlauser sagt að hafi horfjð snemina
í júní s. 1. og ætla menn að hann hafi fyr-
irfarið sér.
Oðalsbændur.
(Framh.)
«Það er og drengurminn, þá getum
við matast með góðri lyst. Að því
búnu getum við talað saman, «hann
hringdi klukkun ú: «Tvo diska ungfrú
góð og svo eitthvað að drekka.»
Gunnar hefði helzt kosið að þurfa
ekki að setjast til borðs. Hin grátnu
augu Mögðu, gamli dauðþreytti sýslu-
maðurinn og óg’æfan sem vofði yfir
höfði heimilisins, alt þetta dró hugann
heim. En hann þekti gamla hersirinn og
venjur hans of vel til þess, að honum
ditti í hug að ræða við hann fyr en
úlfshungrið væri slökt.
«Komið þér hérna með diskinn, því
annars kroppið þér bara beinin eins og
vant er. Nú byrjum við orustuna,* sagði
hersirinn og hóf atlöguna.
Þeir höfðu lokið snæðingi, kaffi og
franskt brennivín sjóð á borðinu, vindl-
arnir voru góðir og brunnu vel, Hers-
irinn rendi í staupin og rétti sig í sæt-
inu.
«Nú hefir dýrið í okkurfengið saðn-
ingu og við erum aftur orðnir að mönn-
um. Þér skuluð ekki halda að eg sé
einvörðungu eigingjarn — en eg er gadd-
hraustur enn þá þrátt fyrir aldur minn
og hefi ágætlega hraustann maga og þá
eðlilega beztu matarlyst. Hvað er það
sem gengur nú helzt að hjá sýslumann-
inum«?
Gunnar sagði honum undan af og
ofan af, en hersirinn var ekki ánægður
með það.
«Annaðhvort segið þér mér ofmikið
eða of lítið. Segið mér eins og er, eg
fer ekki að fleipra með það.»
«Þegar maður veit ekkert með vissu.
þá þarf að hafa gát á orðum sínum,»
sagði Gunnar: Egverð að hætta á að
segja yður það sem eg held en veit
ekki ineð vissu. En hér þarf eitthvað
að gera og það tafarlaust.
Þegar Gunnar hafði lokið frásögn
sinni horfði hersirinn um stund beint
fram fyrir sig, lét síga brýrnar og stundi
við, síðan tók hann til máls:
«Skömm og vanvirða — — það var
viðbúið að til þess drægi; eg hefi þó
oft sagt Láru, aðeins oghún sáði mundi
einnig uppskeran verða. Og hann let-
ingiivi cg munaðarseggurinn setur nú
kórónuna á alt saman. Hvað mikið
haldið þér að þurfi?»
«Það get eg ekki sagt með vissu;það
þarf eflaust talsvert mikið. í bankan-
um á Hamri heyrði eg í dag getið um
nokkra grunsama víxla hvað áritun við-
vék.»
«Fjandinn hafi hann, strákinn og þorp-
arann þann arna, eg hefi ekki handbært
nema tvö eða þrjú hundruð dali. Aðrar
eigur mínar eru í hlutabréfum og ekki
hlaupið að því að koma þeim í hand-
bært fé. þrjúhundruð dalir eru líklega
sama og einn dropi í hafið. Hvað er
hægt að gera til þess, að forða iöðurn-
um og dætrunum frá tjóni og vanvirðu?
Henni og uppstrokna hvolpinum gæti eg
vei unt að fá dembuna og dýfuna, þau
eiga það skilið fyrir allan hrokan.
»Af hendingu heyrði eg í kveld, að
frúin mundi snúa sér til yðar.. Hún
kemur líkast til á morgun.»
«Þá er henni líka bore[ið!»
«Og samt sem áður verður það þó
hersirinn, sem bjargar sóma ættarinnar.«
«En eg hefi sagt yður . . »
Skip.
Eimsk. <■ Esbjerg , aukaskip frá því
»sameinaða» kom 20. júlí. Farþ.: frá
Rvík Pálmi Pálsson kennari með frú og
syni, ungfr. Sigr. Möller af Hjalteyri, Jón
Jónsson verzlunarerindreki og frá út-
löndum Guðbj. Björnsson timburmeist-
ari. Fór aftur 23. júlí með nál. 300
hesta fyrir Carl Höepfners verzlun. Far-
þegar til útlanda: Björn Líndal exam.
juris og kaupm. Sigtr. Jónsson.
Eimsk. »Reidar» «Rjukan» og Ask-
ur» koniu 21. júlí með 500, 180 og
600 tunnur af síld, er þau höföu aflað
samdægurs hér úti fyrir í hringnætur.
Sama dag komu «Ornulf», « Arvild*
og «Snapop > fiskigufuskip Friis útgerð-
armanns í Hafnarfirði.
Eimsk. »Stettin» kom frá Siglufirði
sama dag.
Eimsk. «Mjölnir» kom frá útlöndum
23. júlí. Farþ. frú Kristín Guðjohnsen
frá Húsavík. Fór sama dag áleiðis til
Sauðárkróks.
Eimsk. Elin kom 24. júlí með 300
tn. af síld veiddar í hringnót.
Eimsk. «Reidar» kom aftur 25. júlí
með 300 tunnur af síld.
Kutter „Marianna« kom sama dag
með 140 tn. af síld.
Eimsk. «Prospero» (A. Stendhal)
kom 25. júlí vestan af Blönduós. Farþ.
Páll Stefánsson verzlunarerindreki. Fór
aftur 27. júlí. Farþ. til Austfjarða: irú R.
Möller, Gr. Laxdal kaupm. og Hallgr.
Einarsson myndasmiður.
Gjalddagi
„Norára“
var 1. júlí.
Hvað sannar að
„Dan“-motorirm
er beztur?
Sv; Reynslan.
Umboðsmenn á Aknreyri
r
Otto Tuliniusog Ragnar Olafsson.