Norðri


Norðri - 03.08.1906, Qupperneq 1

Norðri - 03.08.1906, Qupperneq 1
1906. I., 33. Akureyri, föstudaginn 3. ágúst. Hið nýja skáldakyn. Eg las nýlega í Óðni nokkur mjög lagleg kvæði, eftir Sig. Kristófer Péturs- son, og sjaldan hefir mér runnið jafn sárt til rifja og þegar eg komst að því, að höf. er aðeins 23 ára gamall, en sjúklingur á spítalanum í Laugarnesi. Eg set hér eitt erindi úr kvæði, sem hann kveður um hlíðina sína, er hann býst ekki við að sjá framar, handa þeim, sem ekki hafa Óðinn í höndum: «Eg hugsa um þig, er sól á öldum situr, eg sé í anda töfrafegurð þína; þá bærir heimþrá hörpustrengi mína, mitt hjartans ljóð þér aftangolan flytur.» — — Það er einkennilegt, hve þess gætir Iítið um þessi kvæði, að þau eru ort af sjúkum mantú. Voreðli skáidsins, ef svo mætti kveða að orði — virðist vera svo ríkt, að hinn lfkamlegi sjúkdómur Eiafi enn ekki megnað að buga það. — Annað efnilegt skáld og þessu skylt í anda er nýlega látið í Reykjavík: Jóh. Q. Sigurðsson. Má um þetta segja með Grími Thomsen: «hann af enda ei valdi verra, vandi’ er að skilja lífsins herra». — Hér á landi eru nú sýnileg straum- hvörf í ljóðagerð. Aðaleinkenni hins «nýja skáldakyns* eru fínn skáldlistar- stnekkur og rík tilhneiging til vandaðr- ar efnisnteðferðar; en efnið er sjaldan að sarna skapi stórt, og þess sér fá merki að djúpt sé kafað í öldum lífsins. — »Rómantikin«, sem lærðu mennirn- ir héldu að væri dauð úr öllunt æðunt, er að rísa á legg að nýju og þó í öðru gerfi. Eftir þessu hefir verið tekið af einstaka manni. Pannig kallar E. B.(?) »Huldu« (Unni Benediktsdóttur) »fyrsta gróður vors nýjasta skóla», í Ingólfi í fyrra eða hitt eð fyrra. Petta er rétt að því leyti að hér er, að vissu leyti, um nýjan «skóla» (þ. e. stefnu) að ræða en rangt að því leyti, að >Hulda» sé hinn »fyrsti gróður» þeirrar stefnu. í líkan streng og Einar Benediktsson tek- ur Þorsteinn Erlingsson, í ritdómi um kvæði »Huldu» í Þjóðviljanum síðastl. sumar; en hjá honum verður áherzlan nieiri á sambandi eða skyldleika hinnar «nýju stefnu» við hið gamla og þjóð- tegct; og svo sem vænta mátti eftir eðl- 'sfari hans (sem er »rómantikst«), og skoðunum (sem eru »realiskar«), stend- ur hann undrandi gagnvart hinum nýju «rómantísku» fyrirbrigðum. Fyrir hon- um virðist vaka eins og fleirum, að »rómantik« og vísindi nútímans þrífist ekki saman. En þessi skoðun, sem gerðist rótgróin á síðari hluta næstlið- mnar aldar, er í rauninni ósönnuð »kredda«, er stafa mun af því, að sam- an hafi verið blandað innri og ytri hlið (eðli og afrakstri) hins »rómantiska» tímabils aldarinnar. »Rómantikin», sem í sínu insta eðli er stórhuga framsókn- arþrá, ætla eg að ætíð verði til og æ komi fram í ýmsum myndum, á með- an nokkur veruleg framsóknardáð er í mannkyninu. Pó hún fari í gönur eða brenni sig til skaða í svip, þá rís hún úr ösku — eins og fuglinn Försix — æ á ný, stöðugt leitandi og stöðugt finn- andi eitthvað sem til framsóknar horfir. — Eg hefi áður tekið það fram, að rangt væri að kalla Huldu »fyrstagróð- ur» hinnar nýju stefnu. Par er ekki hægt að benda á neitt ákveðið skáld tú orustu, heldur má kveða svo að orði, að þjóðarandinn og sérstaklega vorhug- ur þjóðarinnar brjóti sér þannig veg, ósjálfrátt á fleiri stöðum í senn — og þó eínna fyrst hér í Þingeyjarsýslu. Má vera að þetta bendi til þess, að vér íslendingar stöndum nú á líku þroska- stigi, sem þjóð og aðalmentaþjóðir álf- unnar á fyrri hluta næstliðinnar aldar, þegar «rómantíkin» hófst þar til blóma. Til hins nýja »rómantiska» skóla hér á landi má, auk Huldu og þeirra manna tveggja, sem getið er í uppliafi þessar- ar ritgerðar, telja Quðm. Gúðmunds- son og hann kemur einna fyrst fram opinberlega. Aðaltónninn í hörpu hans er »rómantísk« þrá, en hann vantar hina rómantísku trú á lífið, og fyrir þá sök (o. fl.) fá kvæði hans haustlegan hnignunarblæ, Sig. Sigurðsson er nokk- uð skyldur Quðm., en lífsþrótturinn og vandvirknin meiri. Jónas Guðlaugsson virðist og ætla að hneigjast í þá átt. Hann á enn langt í land með að læra þá megin reglu listarinnar að segja þau orð ein, sem hitta rétt, en í honum er mikið efni og líklega mest þessara skálda. Til þessa flokks má enn telja að minsta kosti tvö skáid auk Huldu hér í Ping- eyjarsýslu. Pingeysku skáldin eru að því leyti frábrugðin hinum, að þau eru trú meiri á Iífið, og ef til vill er það laað, sem Þorsteini Erlingssyni kemur á óvart, og það, er E. B. kallar hinn «fyrsta gróður vors nýjasta skóla«. En flestöll eiga þessu rómantísku skáld sammerkt í því, að þau elska heitt land sitt og þjóðerni, og kveða til þess í einni eða annari mynd sín «dýrustu» »hjartans ljóð«. — — Sigurjón Friðjónsson. Ráðherra H. Hafstein ætlar að öllu foríallalausu að koma landveg hingað frá Seyðisfirði þegar hann kemur úr konungs-heimsókninni. Björn Jónsson prentsmiðjueigandi verður fylgdarmaður hans og fór hann austur nú í vikunni sem leið. Sæsímann er nú verið að leggja milli Seyðis- fjarðar og útlanda og er ætlast til að hann verði fullger um lok þ. m. eða því sem næst, Formaður símastoðvar- innar á Seyðisfirði heitir J. P. Trap-Holm og er kominn þangað. Ritsímastöðin á Akureyri á að verða í Hafnarstræti 3 þar sem nú er afgreiðslustofa Norðra. Stöðvarstjórinn heitir Smith, er ungur maður og einhleypur. Hann er vænt- anlegur hingað í næsta mánuði. Símritunarprófi hafa lokið Gísli J. Olafsson og Björn Magnússon með 1. eink., Halldór Skafta- son og Magnús Thorberg með Ii. eink. Nám æskulýðsins. Eftir Stefán Bergsson á Pverá Petta mál var eitt af jjeim, sem dög- uðu uppi, eða ekki urðu útrædd á þing- inu. Ao líkindum mun það hafa verið fyrir tímaskort, en ekki áhugaleysi þing- manna, að svo fór, því inörgum, ef ekki flestum, mun verá orðið Ijóst, að knýandi nauðsyn sé, að breyta og laga unglinga- kensluna á landi voru, enda ber hið ó- útrædda frumvarp, sem er að mörgu leyti hagfelt, þess ljósan vott, þó málið næði ekki á þessu þingi svo miklu fylgi að það kæmist í gegnum þingið. Sú aðferð, er og líka heppilegri, að fresta þeirn málum, sem að einhverju leyti eru illa undir búin, heldur en að hamra þau í gegn með svo stórum göllum, að næsta þing sé nauðbeygt til að taka þau aftur til meðíerðar og stjórnarbreytingar. Frumvarp þetta gerir ráð fyrir tals- verðum landsjóðsstyrk, sem eðlilegt er, því seint mun mentun unglinga taka rniklum breytingum til batnaðar, án þess hið opinbera styrki að því með fjár- framlagi. í frumv. er gert ráð fyrir, að styrkja: 1. Heimakenslu 2. Umgangs- kenslu, 3. Farkenslu og 4. Heimavistar- skólakenslu. Petta er nú á sinn hátt gott, en »bón fylgir bréfi og böggull sendingu«, Allar styrkveitingar þessar eru bundnar því skilyrði, að kennur- um séu borguð ákveðin laun, eða með öðrum orðum: Pað er sett lágmark launa þeirra, sem kenslu þiggjendur verða að borga kennurunum, ef þeir vilja ná í peninga úr landsjóði. Pó er sleginn sá varnagli, að ákvæði þetta nái ekAri að koma til framkvæmdar, fyr en kennara- skóli er kominn á stofn og búinn að standa í fjögur ár. Það er nú reyndar ekki gott að vita, hve lengi verður eftir kennaraskóla að biða, þar sem það mál var að síðustu felt á þinginu síðasta, aðallega, eftir því sem séð verður, vegna þess, að þing- mönnunum kom ekki saman um, hvort skólinn skildi standa í Hafnarfjarðar- kaupstað, sem er svo að kalla rétt við Reykjavík, eða í Reykjavíkurkaupstaðnum sjálfum. Má ske að næsta þing komi sér saman um að setja hann niður mitt á milli kaupstaðanna. Vér viljum vona að eitthvað rætist fram úr þessum ágrein- ingi. Alþýðufræðslumálið er svo þýð- ingarmikið fyrir hagsæld þjóðárinnar að þingið verður, vilji það gæta sóma síns að koma því til heppilegra framkvæmda. Og þar sem það mun vera af mörgum viðurkent, að góður kennaraskóli sé eitf- hvert fyrsta skilyrðið, sé fyrsta undirstað- an sem alþýðumentunin verði að byggjast á, þá virðist mega ætla, að þingmenn láti ekki slíkan ágreining standa sem kínverskan múr fyrir því nauðsynja máli. Annað mál er það, hvort rétt sé af þinginu, að blanda sér inn í þau samn- ingamál, sem ættu að vera frjáls milli umsækjenda og þiggjenda, eða kennara og nemenda eða umráðamanna þeirra, nema því aðeins að tilætlunin sé, að skólarnir, að öllu leyti, hvíli á landsjóði, setn þó ekki myndi heppilegra, jafnvel ekki að neinu leyti, Pað er annars eins og sumir menn haldi, að kennai a hæfi- legleikar séu að öllu leyti komnii undir háum launum, en hvað segir svo reynsl- an um það mál? Eru það alt betri kennarar, sem lukkuhjólið hefir sett í hin hærri kennara embætti, heldur en hinir sem hafa orðið að sætta sig við hin lægri? Nei svo er ekki alla tíð. Aðal- skilyrðið er, að maðurinn hafi góöa hæfi- legleika til að taka stöðuna að sér, hver helzt sem hún er. Enginn maðui sem vantar hæfilegleika til að takast á hend- ur lífsstöðu þá sem hann velur sér, get- ur gengt henni vel, þrátt fyrir alla ment- un. Aftur á móti er mentunin vitanlega ómissandi til að glæða ekki einasta hæfi- legleikana sjálfa, heldur jafnvel einnig tíl að vísa manninum á hæfilegleika sjálfs sín. Pað er því fjærri oss að amast við undirbúningsmentun kennaraefna, þótt hún að sjálfsögðu beri með sér aukin peningaútlát, Vér álítum að þingið ætti fyrst að koma sér saman um einn mynd- arlegan kennaraskóla handa þeim mönn- um, sem vildu gera það að lífsstarfi sínu, að fræða æskulýðinn og þar næst, eða jafnhliða, styrkja að uppkomu eins eða fleiri unglingaskóla í landinu, svo nemendurnir frá kennaraskólanum gætu fengið eitthvað að starfa. Pá en ekki fyr er tími til kominn að tala um laun- in. Alt þetta launatal og öll þessi launa- ráðagerð skapar engan skóia. En aftur á móti getur verið dálítil grýla í augum fólksins, því það vill, sem vonlegt er, spara öll peningaútlát og reynir því að athuga kostnaðarspurnsmálið, eins og líka rétt er, en aftur á móti er ekki víst að allir gæti eins vel að árángri af góðri mentun. Eins og áður er sagt gerir frumv, ráð fyrir landsjóðsstyrk fyrir eftirlit með heimakenslu, auk umgangskenslu, far- skóla og heimavistarskólakenslu. Sénú þessu haldið áfram óbreyttu, teljum vér sennilegt að landsjóðsstyrkurinn verði í sveitum inest notaður til heimakensl- unnar, svo framarlega að nokkurt gagn verði sjáanlegt að þessari eftirlitskenslu en það verður að sjálfsögðu mest kom- ið undir dugnaði og áhuga eftirlitsstjór- anna, en hvert há laun sköpuðu þann dugnað og áhuga, er óvíst. Kæmist nú í framkvæmdinni gott lag á þetta þá væri það gott, að því leyti að heima- kenslan kynni þá að aukast aftur, þai sera hún nú er sumstaðar orðin mjög lítil. Aftur á móti er athugavert, hvort vert sé að demba öllum þeim kostnaði á landsjóðinn. Kæmist þetta mál einhverntíma á þann rekspöl, að unglinga-farskólar eða heima- vistarskólar væru stofnaðir og hinn um- ræddi kennaraskóli félli einhverstaðar niður á íslenzka jörð, sem gæfi þann ávöxt, að kennara efni þaðan fengjust til unglingaskólanna, þá gæti verið fult spursmál um hvert ekki væri rétt eða hvert tiltækilegt væri að að halda áfram með styrk heimavistarinnar. Pað er mjög svo óvíst hvert réttara er, að láta peninga landsmanna renna svo inn í landssjóðinn og svo úr lionum til baka,

x

Norðri

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Norðri
https://timarit.is/publication/201

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.