Norðri - 02.11.1906, Page 3

Norðri - 02.11.1906, Page 3
NR. 45 NORÐRl. 181 samtals 2,610,745 dýr. Tala lögskipaðra (Autoriserede) dýralækna íNoregi ár 1902** var: 156; af þeim voru 85 amts- dýralæknar, aðrir stunduðu dyralækn- ingar upp á eigin hönd o. s. frv. Sama ár var varið úr ríkissjóði 155,377 kr. og eru pað ca. 6 aur. á hvert alidýr. Eftir þessu er meir en 7 sinnuin kost- að til dýralækninga í Noregi en hér, og skifti maður húsdýratölunni milli amtslæknanna einungis, (85) hefir hver 30,714 dýr; en okkar eini dýralæknir hefir 605,258 dýr eða nær 20 sinnum fleiri en hver amtslæknir í Noregi. Sum- ir þykjast vísast geta réttlætt fæð dýra- læknanna hér með því: að hér sé minna um dýrasjúkdóma en í Noregi og öðr- um suðlægum löndum. Ekki verður um þetta sagt með vissu heldur út í bláinn, því alt að þessum tíma hefir engum skýrslum verið safnað um alidýra- sjúkdóma hér á landi. Pegar við er- um búnir að safna all-nákvæmum skýrsl- um dýrasjúkdóma eins og gert er t. d. í Noregi, þá fyrst er hægt að bera ís- land saman við önnur lönd í þessu efm. Eftir skýrslum dýralækna í Noregi, komu smittandi sjúkdómar tyrir árið 1901 25,666 hestum, 36,570 nautgrip- um, 751 sauðkindum, 361 geitkind og 5,754 svínum. Af þessum skepnum dóu eða voru deyddar: 540 hross, 2188 naut, 386 kindur, 31 geit og 731 svín. Sá orðasveimur manna hér norðan- lands að minstakosti að núverandi dýra- Iæknir okkar »geri hér ekkert gagn« er sleggjudómur. Þeir er til þekkja, vita að hann hefir marga skepnu læknað og bjargað frá dauða, gefið mörg góð ráð og skrifað margar þarflegar ritgerðir um sjúkdóma og dýralækningar. Auðvitað gerir hann mest gagn næst bústað sín- um og er engin von til að hann nái útfyrir alt landið til að gera jafnt gagn, þar sem samgöngur til lands og sjávar eru ekki örari en við vitum að er. Tal- síminn bætir nokkuð úr þessu; hann má nota til þess, að frétta dýralæknir- inn um meðferð ýmsra dýrasjúkdóma. Þar getur þó síminn að minsta kosti á einum stað komið bændum að góðum notum. — H. P. **) Berelning om Veterinvaesenæt i Norge 1901. Kveðja til skipstjóra P. Houeland. (Flutt í samsæti á Akureyri 17 okt. 1906). Kom þú nú heill oq sœll hingað sendur, Houeland vinur, með friðum knör. ísalands norður og austur-sirendur Unnandi brosa mót þinni för; Því engan vitum þér fremri finnast Á ferð yflr Ránar-sundin köld; Og því er Ijúft að mega þín minnast Og með þér drekka vinarskál i kvöld Vikingar fyrr héldu hratt að landi, Þá haustvindar blésu’ yfir lönd og sœ Og knerrina fríðu festu með bandi Og fluttu svo drápur i konunga-bœ. En þú komst ogfœrðír fjölda gœða, Fréttír og varning i skammdegis hrið, Alt til að frœða, allt til að glœða Orku og manndáð um vetrar tið. Þökk sé þér int. — Gœfu, gull og frama Greiði þér íslands vœttir hlýrrimund. Sigl þú með skrautbúna skeið og tama Hjá skergörðum vorum um langa stund; Þá munt þú eignast óðul í fjörðum, Andans Ijós meira hjá niðjunum sjá, En bjartast þó skina, / haustblœ hörðum Hraðleifturs-bál frá hverri nesja-tá. J. N. Reykjavíkur-bréf. ____ 18/io 1906. Eldsvoðar og brennuvargar. — Tíðar- far og aflabrögð — Mentunarþorstinn — Vaxtahækkun. — Síminn. — Loftskeytin. — Klaufaleg mistök. — Götulýsingin.— Kaupmenn prýða bæinn. Það er orðið langt síðan eg hefi sent þér línu Norðri minn, og vil eg nú reyna að bæta það upp að nokkru. Af því sem við hefir borið síðan eg ritaði síðast eru mér minnisstæðastir eldsvoðarnir á síðastliðnu vori og sumri. Það munu flestir vera á þeirri skoðun, að ekki sé einleikið með þá að þeir séu af manna völdum. Snema í vor kom eldur upp um nætur tíma í búð eins kaupmannsins á Laugavegi, en af því að vart varð við eldinn áður hann magn- aðist varð ekki mikið tjón að. En grun- samur þótti mörgum sá bruni. Nótt var þá orðin björt og menn alment hættir að leggja í ofna. Á hvítasunnunótt voru bæjarbúar vaktir um lágnættið með eldlúðrunum. Þá var kominn eldur upp i búð annars kaup- manns í uppbænum, sem þá var ekki heima og hafði búðin verið lokuð nokkra daga þar á undan, svo að sagt var að enginn hefði haft umgang um hana. En þar voru augljós merki þess, að í hafði verið kveikt hefilspónahrúgur inni vættar steinolíu. í búð þessa var enginn inngangur nema frá göt- unni, og hefir því sá sem kveikti í orðið að fara inn um dyrnar til að undirbúa eld- inn. Að vísu var þar brotin rúða, en það gat var ekki svo stórt að maður kæmist inn um. Það var eins með þennan eldsvoða og hinn fyrri, að við hann varð vart áður en hann magnaðist, svo að von bráðar var slökt. í báðum þessum húsum bjó fólk ekki allfátt, sem var í fasta svefni, og hefði ekki svona heppilega viljað til, að vaitvarð við eldinn í tíma, er ekki hægt að segja hve mikið tjón hefði hlotist af. Ekkert vitnaðist hver eða hverjir væru valdir að þessu, og fanst mönnum alment að lögreglan hér sýna af sér litla rögg í því máli. Enginn var tekinn fastur, ekki einu sinni sá sem búðar- lykilinn geymdi. Næsti eldsvoði kom fyrir að kveldi hins 2. ágústmánaðar (Þjóðminn- ingardagskvöldið). Þá brann klæðaverksmiðj- an »Iðunn< til kaldra kola á örstuttum tíma. Það var voðabál en veður var stilt, og verk- smiðjan ekki mjög nærri öðrum húsum, svo að eldurinn náði eigi að breiðast út fyrir hana, enda vel framgengið að verja. Næstu nótt þar á eítir sýndist gerð tilraun til að kveikja í verzlunarbúð á Laugavegi, þótt eigi yrði mein að, því að eftir því var tekið í tíma. Þar var kviknað í hálmi og tómum kössum, sem voru tindir bakhlið hússins og vantaði lítið til að eldurinn næði húsinu, þegar slökkviliðið kom. Snemma í þessum mánuði kviknaði í steinolíutunnu suður á meium, sem lá úti fyrir skúr þeim, er kaup- menn geyma steinolíu sína í. Það var um hádegisbil í bezta veðri og glaða sólskini. svo heppilega vildi þó til þarna, að ekki brann nema þetta eina fat. Hefði eldurinn náð í fötin, sem voru inn í skúrnum, hefði ekki orðið við neitt ráðið og bágt að segja hvað af hefði hlotist. Ekki kemst neitt upp af þessu og veit enginn hver er valdur að, þótt svo líti út, sem hérséu einhverjir brenni- vargar í bænum. En afleiðingar af þessu eru þær, að nú, hafa öll brunabótafélög, sem hafa viðskifti við ísland, hækkað iðgjöld sín um 50°/o. Það er ekki smáræðis útgjaldaauki. Sá sem áður þurfti að borga kr. 40.00 iðgjald, verð- ur framvegis að borga kr. 60.00 árlega. Og fari þessu fram lítur helzt út fyrir að eigi fáist vátryggt. Vortíðin var hér fremur köld og greri jörð með seinna móti. En óvanalega var hér þurviðrasamt i sumar. Fiskiafli á þil- skipum varð í meðallagi góður. í sept- embermánuði fer að bregða til votviðra og hefir haldist síðan yfirleitt, þó eigi þunga- rigningar að jafnaði. Nú er komið frost og gránaði í dag ofan i sjó Hér er margt um manninn þessa daga, fólkið streymir tíl borgarinnar þessa daga hvaðanæfa margir, bæði konur og karlar, að leita sér mentun- ar í hinum ýmsu mentstofnunum höfuðstað- arins, svo sem hinum almenna mentaskóla landsins, hinum nýstofnaða iðnskóla, verzl- unarskólanum og sumir til að komast að einhverju af gæðum þeim sem borgin hef- ir að bjóða. Þótt stórhýsin þjóti hér upp eins ótt og gorkúlur á mykjuhaugi, þá virð- ist svo, sem ekki sé of mikið um hús^peði hér. Það verður fróðiegt að vita hve marga ibúa Reykjavík telur í haust, þegar mann- talinu er lokið. En alt útlit er fyrir að þeir hafi fjölgað að mun síðan í fyrra. íslandsbanka barst símaskeyti frá útland- inu nýlega um, að »diskonto« væri hækk- uð í útlandinu um l-l1/2°/o, og hefir bank- inn hækkað vextina af útlánum upp í 6°/o. Landsbankinn verður líkiega að fylgast þar með. Sagt er að þetta stafi af peninga ettir- spurn frá Ameríku og Rússlandi sérstak- lega. Ekki er mjer kunnugt um hvert spari- sjóðsvextir verði hækkaðirupp að samaskapi, en öll sanngirni sýnist mæla með því að það yrði. Nú er komið símasamband við umheim- inn og geta allar fréttir borist fljótt hvað- an úr heimi sem er. En lítið hefir enn birst af þannig löguðum fréttum ennsem komið er í blöðunum hér. Loftskeytin eru alveg hætt að koma hing- að. Hverjar orsakir eru til þess, veit eg eg ekki, en einhver gat þess til, að loft- skeytamaðurinn hérna mundi hafa móðgast af því, að eitt blaðið, sem stöðugt hefir haldið fram þeirri hraðskeyta aðferð og tal- ið hana bezta, lét i ljós í haust að henni mundi vera að fara aftur. Að vísu fór blað- stjórinn aftur að hæla loftskeytunum, en það sýnist ekki hafa komið að notum, eða haft nein áhrif á framhald þeirra. Götulýsing bæjarins er að taka miklum bótum. Þeir sem hér eru kunnugir, muna víst eftir götuljósunum gömlu, þessum mó- rauðu tírum. sem voru héroghvar á stangli um göturnar, eu lýstu nauða lítið. Það er samt ekki bæjarstjórnin sem hefir bætt götu- lýsinguna, heldur er það kaupmenn bæjar- ins, sem 'keppast nú hver við annan að koma upp fyrir framan búðir sínar, skær- um Luxlampa-ljósum. Alt Hafnarstræti og Austurstræti er nú á hverju kvöldí uppljóm- að af ljósum þessum, svo að nálega hvergi ber skugga á. Og Bankastræti og Lauga- vegur eins. Ljós þessi fjölga með hverju kvöldi og er það stór mikil framför. Þó eru gömlu tírurnar enn þá innan um og eru til lítils sóma fyrir borgina. Munurinn á Luxlampa-ljósum og þeim, er eins mikill eða meiri en á góðum olíulampaljósum og grútartírum, sem notaðar voru áður en stein- olía tók að flytjast. Eg vildi helzt ráða bæjarstórninni til að flytja gömlu luktirnar burtu af þessum aðalgötum, og setja þær í úthverfi bæjarins, þar sem engin Ijóstíra er; þar eru þær skárri en ekki, en innan um Lúxljósin eru þær að mínu álitf til skamm- ar og svívirðingar fyrir höfuðstað landsins. »Ceres« kom að austan um miðjan dag 15. október með fjölda farþega, flest er- fiðisfólk. I dag afspyrnurok á norðan með frosti svo ekkert varð aðhafst á sjó. Það er kom- inn fullkominn vetrarbragur á tíðina og sumaraukans ætlar ekki að verða vartnema í almanakinu. Skipaferðir. »Ceres« (Gad) kom sunnan um Iand 28. okt. og fór aftur áleiðis til útlanda hinn31. Farþ.lngólfur læknir Gíslason og fjölskylda hans til Vopnafjarðar. Til út- landa fóru Þingeyingarnir er nefndir voru í síðasta blaði. „Vesta” (Gottfredsen) kom frá útl. 29. okt. Með henni var Jón Jónsson héraðslæknir frá Vopnafirði áleiðis til Blönduóss. Farþ. héðan: Ó. V. Davíðs- son (Verðlaunaglímu-sigurvegarinn) o. fl. Læknar. Guðm. Björnsson héraðslækniríReykja- vík er settur landlæknir frá 1. október og jafnframt forstöðumaður læknaskól- ans en Steingrímur Matthíasson er aft- ur settur héraðslæknir í Reykjavík. Ing- ólfi Gíslasyni Reykdælalækni er veitt Vopnafjarðarhérað og flytur hann þang- að búferlum með »Ceres». Þorbirni þórð- arsyni lækni í Nauteyrarhéraði er veitt Bíldudalshérað. Höfðfngleg ræktarsemi er það sem Vestur-Islendingar hafa sýnt með þátt-töku sinni í < mannskaða samskotunum* Það eru alls kr: 10,428,30 er þeir hafa skotið saman og sent í bankaávís- unum til gjaldkera samskotanefndarinn- ar Geirs kaupmanns Zöega í Reykjavík. Fyrir samskotunum gekst félagið «Helgi magri* í Winnipeg en í því eru marg- ir góðir menn og merkir, Ólafur S. Thorgeirsson er formaður þess. — Séra Friðrik J. Bergmann skrifaði áskorun til almennings um samskotin fyrir hönd félagsins en gjaldkeri samskotanna var Albert Johnson. Það er ekki í fyrsta sinni að landar vorir vestan hafs hafa sýnt örlæti og rausn þegar eitthvert mótlæti ber að hönd- um hér heima og er það ánægjulegur vottur um það ræktarþel er þeir munu beta til hinnar gömlu ættjarðar sinnar. Hákarlslýsi hefir stigið erlendis um 3 kr. tunnan. Símskeyti frá Rvík 2/ii: „Ingi kongur« fór í gærdag áleiðis vestur um land til Akureyrar. Engin erlend tíðindi markverð. cctxÆcccccmctmccccccccB xo <n aj eö C a Cð -43 X eð > e*- Cð XO J= > u. 3 'o 'O c cð c c •= c E 13 oj |° % ‘C . .b <v <v > m XO rt <n c '3 C c o <u <u > 3 xo 'O ‘C 1 ÖJO O Q. 33 cfi T3 u. c <U u. E 3 ir 'Cð vr-, tS) *g E E 'O 3 C o; L os < O ^3 cfi « o •=; í5 (S) - V, § 03 So S V 03 0 O Cfi tfi O OJ t 'K E 3 C 3 cuo c <u '03 Ættarnafn og húsnafn. Ættarnafn hefi eg undirritaður tekið mér, og bið menn svo vel gjöra að nefna ogskrifa mig Jón G. Isfjörð. Ennfremur tilkynnist að eg nefni hús ið mitt Melstað. Oddeyri 1. nóv. 1906. Jón Guðmundsson skósmidur. Sigluneshákarl og tros bezt og ódýrast í verzlun M. Jóhannssonar. Otto fflonsteds danska smjörlíki. er bezt.

x

Norðri

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Norðri
https://timarit.is/publication/201

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.