Norðri - 23.11.1906, Blaðsíða 3
NR. 48
NORÐRl.
193
Bækur.
Jón Jónsson: Gullöld íslendinga.
Menning og lífshættir
feðra vorra. Alþýðu-
fyrirlestrar með mynd-
um.
Sigurður Kristjánsson hefir kostað
útgáfu bókar þessarar, og er það eitt
af hans mörgu þjóðþörfu verkum. Bók-
in verður eflaust almenningi kær, og á
það skilið; hefir hún að geyma mikinn
og margskonar fróðleik og skýringar.
Auk þess hefir hún þann hinn sama
höfuðkost sem önnur rit höfundarins, og
nægir þar að minna á íslenzkt þjóðerni,
að yfir allri frásögninni er óviðjafnan-
legur blær innileika og ættjarðarástar.
Eru slíkar bækur hinar hollustu ungum
mönnum, efla þjóðrækt, ættjarðarást og
djörfung. Málið er mjög gott, en þó
ekki gallalaust með öllu, svo sem: »eins
og t. d.« æði oft.
Einar Benediktsson: Hafblik. Kvæði
og söngvar
Ekki kann eg við nafnið, og skil
ekki, hvað Einar vill, með þá sundur-
gerð. En kverið er næsta eigulegt, og
frágangur allur hinn snotrasti. Skáld-
fákur Einars er gammvakur, fastur á
skeiði og óvíxlaður með öllu. En hann
er ekki vegvandur og hirðir lítt um
gamlar þjóðgötur eða ruddavegi. «Hvergi
sinti hann gjótum, hvergi grjóti« má
um hann segja. En — ekki er hann
þýður á klungrinu.
Nefndir
hefir Verzlunarmannafélagið á Akur-
eyri skipað, til að íhuga og komafram
með tillögur um tvö mikilsverð mál.
Önnur nefndin á að koma fram með
tillögur um stofnun innlends brunabóta-
sjóðs. í henni eru: alþm. Jón Jónsson
°g M. J. Kristjánsson, kaupm. Otto Tuli-
níus, verzlunarstj. Ragnar Ólafsson og
bankastjóri Fr. Kristjánsson. Hin nefnd-
in á að hafa til meðferðar gufubáts-
mátið, reyna að fá sem bezt lag á það
næsta ár, og koma með tillögurum það,
hvernig því verði bezt og haganlegast
fyrir komið þar á eftir, þegar út er runn-
inn samningur sá, við Pétur kaupmann
Bjarnason á ísafirði, sem nú er í gildi.
I þeirri nefnd eru þessir: Vigfús Sigfús-
son, hóteleigandi, verzlunarstjóri Krist-
ján Sigurðsson og kaupm. Karl Schiöth.
Báðar þessar nefndir eiga vandasamt
starf fyrir hendi, og óskum vér þeim
heilla og góðs árangurs af verkinu.
Samkomuhús
eru til í nokkrum sveitum hér nærlend-
is. Þau eru sumstaðar notuð á þann
hátt, að þau stuðla mjög að því að
efla andlegt líf og framkvæmdarsaman
félagshug. í Mývatnssveit og Ljósavatns-
hreppi eru þau notuð til að halda í
þeim unglingaskóla á vetrum, eins og
blað vort gat um fyrir skömmu. Sam-
komur til skemtana og gagns eru haldn-
ar í þeim, og er ekki unt að segja, hve
mikið óbeinlínis gagn getur leittaf slík-
um samkomum. En það er víst, að
það er mikið.
í Mývatnssveit og Reykjadal og ef
til vill víðar, er orðin föst regla að
halda fundi í þinghúsunum á hverju
hausti, þá er mestu haustönnum er lok-
íð; nefna þeir þá fundi »Slægjur«. Menn
koma þar saman til að skemta sér, minn-
ast liðins sumars með ræðum og stund-
um með kvæðum. Svo eru ýmsar aðrar
ræður haldnar til skemtunar og fróðleiks,
koma þá fram ýmsar hugmyndir og til-
lögur, ogaf þeim fræjum, sem þannig er
sáð, kann margt gott að spretta fyr eða
síðar. Að öðru leyti skemta nienn sér
með söng, dansi, glímum o. s. frv. t
Vér ætlum að þessar samkomur séu
hollar, og vænlegar til gagr.s. Vilja ekki
fleiri sveitir reyna?
t’ingmannaförin.
Margir lesenda vorra hafa beðið oss
að færa alþm. Árna prófasti Jónssyni
kært þakklæti, fyrir frásögn hans af at-
burðum þeim er gerðust í þeirri ferð.
«Hún er fullkomnust lang-ýtarlegust og
skemtilegast skrifuð af öllu því er blöð-
in hafa flutt um þá ferð» skrifar merk-
ur bóndi, fyrir vestan, nú nýlega. Vér
getum glatt lesendur vora með, að enn
er mikið óprentað af frásögu þessari.
«Prospero“
átti að fara frá Khöfn til íslands 22,
nóvbrl Hún átti að koma við í Krist-
jánssandi og taka þar mikið af trjávið
til Akureyrar, verður hún því vafalaust
nokkuð á eftir áætlun.
Stóra tombólu
ætla templarar að halda í hinu nýja
stórhýsi sínu næstkomandi laugardag og
sunnudag. Rar er til margra góðra
hluta að vinna og um leið hægt að
styrkja nytsamt fyrirtæki: Húsbygging
þeirra templara er bænum til sæmdar,
til hennar rennur arðurinn af hlutavelt-
unni.
Kirkja Húsvíkinga.
er nú vel á veg komin og mun verða
fallegt hús og athöfninni samboðin, er
þar skal fram fara. Hæð hennar frá jörðu
og upp á kross er 80 fet, — í bréfi
til Norðra frá merkum Húsvíkingi segir
svo: »Eg hygg Rögnvaldur husagerða-
meistari Ólafsson sé vel ánægður með
kirkjuna og telji okkur hana til sóma.
Fullger verður hún fráleitt fyr en með
vorinu og þá er hætt við að okkur
skorti fé til þess að skreyta hana að
innan«.
Messað verður á sunnudaginn kl. 5.
e. m.
Landlæknisembættið
er veitt 7 nóvbr. héraðslækni ]og sett-
um landlækni Guðmundi Björnssyni í
Reykjavík.
Símskeyti
frá Khöfn í dag til Reykjavíkur.
Á fulltrúafundi hægrimanna var
Scavenius andvígur breytingá stöðu-
lögunum en Birck með.
Börs-kvittur, um að miljónafélag
nokkurt hefði keypt verzlanir 0r-
um & Wulffs, Gránufélagsog fleiri
verzlanir á íslandi.
Studentar hefja einokunarmót-
mæli á morgun.
Sent af «ísafold » til Norðra.
Mannalát.
Bjarni Bjarnarson áður sölustjóri á
Húsavík, andaðist í þ. m. Hann var
drengur góður, vinsæll og gáfumaður
mikill. Mun hann t. d. hafa ritað ís-
lenzku flestum betur sem nú eru uppi.
Guöbjörg Aradóttir á Skútustöðum,
ekkja séra Þorsteins Jónssonar í Yzta-
Felli, er og látin nýlega í hárri elli.
Meðal barna hennar er Jón skáld Ror-
steinsson á Arnarvatni.
Jóhanna Oddgeirsdóttir kona Magn-
úsar Jónssonar sýslumanns í Vestmanna-
eyjum, andaðist úr lungnabólgu í þ. m.
Málfriður Ludvíksdóttir kona séra
Rikharðs Torfasonar í Reykjavík and-
aðist 15. þ. m.
Eftirmæli.
Friðrik Theódór Ólafsson, verzlunar-
stjóri á Borðeyri var fæddur 19. apríl
1853 í Stafholti. Voru foreldrar hans
merkispresturinn síra Ólafur Pálsson R.
af Dbr. og kona hans Guðrún Ólafs-
dóttir sekretera Stephensens í Viðey,
Theódór sál ólst upp með foreldr-
um sínum, fyrst í Stafholti, og síðar í
Reykjavík, eftir að foreldrar hans fluttu
þangað, er faðir hans varð þar dóm-
kirkj uprestur. Var hann þá settur til
menta í lærðaskóla landsins, ásamt tveim
bræðrum sínum. Fór hann í skóla 14
ára gamall vorið 1867 og var við nám
fjögur árin næstu, en er hann hafði tek-
ið fyrri hluta stúdentsprófs hvarf hann
frá skólanámi. Sama ár fluttist hann
með foreldrum sínum norður að Mel-
stað og var þar þrjú næstu ár. Með-
al annars, er hann hafði fyrir stafni á
þeim árum, kendi hann söngfræði og
hljóðfæraslátt. 14. júní 1874 kvæntist
hann Arndísi Guðmundsdóttur prests frá
Melstað, sem lifir hann. Byrjuðu þau
hjón þá búskap, og bjuggu að Ytri-
Völlum og víðar 6 ár, en árið 1880
tókst hann á hendur verzlunarstörf á
Borðeyri, og var hann þá 27 ára gam-
all, fyrst sem bókhaldari og síðan sem
verzlunarstjóri. Hafði haun þau störf á
hendi upp frá því, unz hann sumarið
1904 lét af verzlunarstjórninni. Eign-
uðust þau hjón ellefu börn, níu þeirra
lifa.
Theodór sál. var mikill maður vexti
og hinn höfðinglegasti í framgöngu allri.
Ahugamaður var hann um þjóðmál og
lét sig þau miklu skifta, var hann og
vel virður í héraði og mátti sín mikils
þar um allar tillögur. Hann var yfir-
höfuð hæfileikamaður sem ætt hans
var til.
--0—C05—O--
Vesturlandssíminn.
Flerra ritstjóri Norðral
Blað yðar 14. þ. m. flytur fréttapistil úr
Strandasýslu, og er þar getið um ferð
okkar Halvorsens til athugunar símaleið til
Vesturlands. Skýrir þar frá þeim orðum
Halvorsens, að símann mætti leggja svo
sem þar segir og stöðvar setja. En þess
er að gæta að rannsóknarferðin var þ á a ð
eins byrjuð, og þótti H. hafi skýrt ein-
hverjum gestrisnum húsbónda frá, hverja
leið við þá hófðum farið, og að húr. væri
fær fyrir símann, var það ekki ætlað til birt-
ingar, og sízt ætti að byggja á því vissa von
um að síminn verði svo lagður, þar sem
fullnaðartillaga frá H. getur fyrst komið (til
landstjórnarinnar) eftir að ferðinni cr lokið.
og allar tiltækilegar leiðir skc.ðaðar, og er
því fyrst lokið í dag.
Við höfum nú athugað leiðir frá Hrúta-
firði út með Ströndum til Steingrímsfjarðar,
yfir Steingrímsfjarðarheiði, með Isafjarðar-
djúpi (fyrir hvern fjörð og nes) beggjavegna,
frá ísafjarðarkaupstað um alla Vestfirði til
Vatneyrar við Patreksfjörð, endilanga Barða-
strandasýslu og Dalasýslu niður til Laxár-
dals og þaðan til Hrútafjarðar aftnr
Nú fyrst gatum við sagt álit okkar um
hverníg bezt.og hagkvœmast mundí að leggja
simann, og munum gera það á sínum stað
og tíma. Þótt ein leið sé vel fær og til-
tækileg, getur önnur verið betri, og að svo
stöddu má ekki gjöra sér of háar vonir um,
að síminn verði lagður hér eða þar.
p. t. Hrútafirði, 24. sept. 1906.
Björri Bjarnarson.
Bréf þetta fékk Norðri fyrst 22. nóvbr.
Norðlendingar,
sem ætla að kaupa SKIP eða að flytja
til REYKJAVÍKUR eða að fá sér JARÐ-
NÆÐI á Vestur eða Suðurlandi, geta
skrifað, simað eða ,,fónað“ til
Sigfúsar Sveinbjörnssonar
fasteignasala í Reykjav ik.
TÁNDARÐ er ódýrast og frjálslynd-
asta lífsábyrgðarfél-
ag, sem starfar hér á landi, þá
á alt er litið Rað tekur als-
konar tryggingar, 'almenna lífsábyrgð,
ellistyrk, fjárábyrgð, barnatryggingar o. fl
Aðalumboðsmaður
H. Einarsson Akurcyri.
Allir þeir,
við verzlun okkar eru alvarlega
ámintir um að borga skuldir sín-
ar fyrir 31. des. n. k. eða semja
um þær fyrir 15. des. að öðrum
kosti verða þær innheimtar með
tilstyrk laganna á þeirra kostnað.
Eins og að undanförnu tök-
um við alt að 8°/o af öllum skuld-
um sem standa ógreiddar við
næstu áramót, nema öðruvísi sé
umsamið.
J. Gimnarsson & S. Jóhannesson.
á Akureyri.
Sigfús Sveinbjörnsson
fasteignasali i Reykjavík
hefir bæði til sölu og leigu úr-
val af
fasteignum í REYKJAYIK
skipum, þar á meðal „MÓTOR“-
og GUFUSKIP, verziunarstöð-
um, sveita- og sjávarstöðum, á
Vestur og Suðurlandi, þar á
meðal nokknr nýlosnuð ágætis
JARÐNÆÐIíúrvali þessu finn-
ast flestallar tegundir íslenzkra
H-L-U-N-N-I-N-D-A.
Vanur verzlunarmaður ósk-
ar eftir’ SKRIETUM .
Ritstjóri vísar á.
^0^ Stofustúlka óskast.
Hátt kaup í boði.
Ritstjóri vísar á
Hið bezta Chocolade er frá Chocolade-
verksmiðjunni SIRIUS Khöfn. Það er
hið drýgsta og næringarmesta og inniheldur
mest Cacao af öllum Chocolade-tegundum
sem hægt er að fá.
Eigandi stórrar
verzlunar og útgerðar
á Suðurlandi
vill selja h á 1 f a verzlun og útgerð 'sína
dugandi manni og félaga
sem getur tekið að sér meðforstöðu og
allan »rekstur« nefndrar verzlunar og
útgerðar. — Tilboð sendist
SIGFÚSI SYEINBJÖRNSSYNI
fasteignasala i Reykjavík.
H ó t e 1
„Fredensborg11
Vestervoldgade 91. Kjöbenhávn
selur herbergi og fæði frá 12 kr.
um vikuna handa hverjum ein-
stökum.