Norðri - 07.12.1906, Side 3

Norðri - 07.12.1906, Side 3
NR, 50 NORÐRI. 201 Háttvirtir kaupendur „NORÐRA“ eru vinsamlega beðnir að borga blaðið hið allrafyrsta. Gjalddaginn var 1. júlí síðasti. Bækur, Kristín barnafræði i ljóðum Eftir Valdemar Briem. Pað er dálítið einkennilegt, að láta sér detta í hug að fara að búa til barna- lærdómskver í ljóðum — og þó varla meira en það, að steypa allan sögu og sagnaþráð biflíunnar í ljóð, eins og hinn heiðraði höfundur hefir gert. Hér hefir hann steypt barnalærdóm séra Helga Hálfdánarsonar upp í 30 sálma, og er svo að sjá, sem höf búist við, að börn kynni að verða látin læra þetta kver í stað þeirra barnalærdómskvera sem nú efu í Iögum. — Það er hætt við að það verði ekkí úr því, Ber margt til þess. Fyfst og fremst er það ekki eðlilegt nú að dög- um að hafa Iærdómsbækur í Ijóðum, og þó að svo mætti vera, þá þurfa þau ljóð að vera jafn ljós og glögg og skiljanleg, eins og minnisþulur þær, er lærðar voru á miðaldaskólunum. En svo er eigi; það er margt í þessum sálm- um þunglamalegt og jafnvel stirt, alls ólíkt því, sem sálmar höfundarins eru í sálmabókinni. Bragarhættirnir eru ekki nærri nógu auðveldir handa börnum, t. d. við 2., 13. og 18. sálminn, sem fara vel í söng, en eru ekki þægilegir til upplestrar; sumstaðar virðist dauflega til orða tekið, þó að mjög margt sé einkar fallega sagt, enda sést það bezt á þessum Ijóðum, hvílíkur afarvandi það er að yrkja handa börnum, þegar sjálf- um séra Valdimar skyldi ekki takast betur en þetta. En svo er annað: það er alt of mikið af rímaðri dogmatík eða vísindalegri trúarfræði í kverinu. Flest- um prestum mun hafa orðið nógu er- fitt að spyrja svo út úr kveri síra Helga, með öllum þess vísindalegu ummerk- ingum, að það yrði börnunum ljóst og kæmist inn í hjörtu þeirra, sem sann- indi. En ekki mundu spurningarnar létt- ast við þetta, það þarf meira en litla skýringu við, t. d. 13., 5 — 9, 16., 2, og enda 4, o. fl. ef það ætti að skilj- ast vel og samþýðast hugsun barnanna. Margt er ágætlega og skarplega sagt í fám orðum í kveri þessu, en hræddur er eg um, að bið verði á því að það verði tekið upp sem barnalærdóm- ur. En fjöldamörg vers og sálmakaflar í kverinu er hentugt til þess að láta börn læra það, og festa þannig í minni mörg mikilvæg atriði. J. Nokkur kvæði eftír Sigurbjörn Sveinsson. þetta er lítið kver (32 smáblaðsíður), en þess vel vert, að þess sé getið af einhverjum, sem gildi þess kann að meta. Flest allir kveðlingarnir eru mætavel kveðnir og hver einasti þeirra ber vott um eðlilega fölskvalausa guð- rækni og mannelsku. En hinsvegar sýn- ir höf. á hverju blaði að hann er gædd- ur töluverðri gáfu sem skáld, það sézt á kveðanda hans, náttúrulýsingar, sam- líkingum og valdi hans yfir yrkisefninu. ,Við dauðans dyr’ heitir fyrsta kvæð- ið: um unga konu, sem er aðfram kom- in, en réttist þó við. Beztur er endir- inn, um fögnuð hinna ungu hjóna, og samlíkingin fyrst og síðast: Sumarsól- in, sem sefur á öldunum. Mun hún hverfa drukna, deyja, en rísa upp í nýrri dýrð ? Næst er lítið kvæði, sem heitir: «Móðir mín», dável ort. Par í er þetta : «F>ótt skrautblóm lífsins skrælni af sólarbruna, í skæðum haustbyl falli eins og hjóni, ei blikna mun í frosti eða funa hið fagra móðurelsku himinblóm.» «Drykkjumannskonan» er enn þá betur ort kvæði, og set eg hér enda þess: «Af bláum himni hafs í vota sæng er hnígin eldrauð sól, en dökkan væng svo þögu! nóttin breiðir yfir bæinu og bleika grund og spegilsiéíta sæinn. Eitt ár er liðið. — Hrörlegt hús í skugga við hafið stendur, — ekkert ljós í glugga; því nú er kona drykkjmannsins dáín, í dimmU grafar hvílir hún sVo rótt. Með heitum iárurn hryggur vökvar stráin á hennar leiði einn um þögla ndtí, b a n n sem að flýtti fyrir hennar dauða, én fær ei umbreytt því sem komið er. Éitt ahdvarpi «Drottinnmiskuna þú mér»! til himinS leitar gegnum geiminn auða.» «Sjómannskonari», ér eiri perlan, lagleg sönn og skarpleg lýsing á konri, sem á mann sinn á sjónum, sér hann týnast af ofhleðslu þegar sem bezt stend- ur. Eitt erindið er þetta. Ef að vindur óhnur þýtur eða dökknar himininn svefns né værðar vart hún nýtur, var svo og í þetta sinn, andvarpandi upp hún lítur: «Æ, hvað syrtir, Drotinn minn !« En síðasta vers er svona: Niður í sandinri sér hún fleygir, syrgir horfria ástvininn, biður Guð sinn uns hún eygir ekkert nema himininn, stendur aftur upp og segir: «U hvað birtir, Drottinn minn!» «Drykkumaðurinn» er og vel hugsað og átakanlegt kvæði, sem ber vott um fegurstu sampinin^ höf. við breiskan mann. Maðurinn átti stirða konu og fór því «að svala sér á þeirri eiturlynd, er veldur bæði svívirðing og synd, og drykkjumannsins valdi veginu hála». Maðurinn deyr á flækingi: «1 árdagskyrð má heyra klukknahljóminn, menn höfðu fundið gamlan dykkjumann, sem átti að jarða. Engin syrgði hann, og enginn grét þann dag, nema daggvot- blómin.» «Dúfan» eru tvo smákvæði, en svo snotur, að eg set þau hér: Áður út um glugga arkardúfan smaug, hulin skýjaskugga skelfd um loftið flaug. Ekkert laufblað eygði, aðeins bylgjuflóð, inn í örk sér fleygði aftur vegamóð. Er vor augu Iíta ekkert vonarstrá, horfa í brimið hvíta hafi tímans á: oft vor önd þá flýgur yfir báruflóð, Guðs að hjarta hnígur hrædd og vegamóð. Enn fleiri vers úr smákvæðum þess- um, t. d. úr «Tveir heimar», «Tími og rúm», «Tungan« o. fl. gæti eg tilfært, en þetta mun þykja nóg. Um stórar kröfur er og ekki að tala. En góður og fagur kveðskapur er ekki lengd og breidd né stóryrði, F*að sem hér skal bent á, er tilveruréttur eins hins fína smágjörfa, auðmjúka mannelskufulla, eins og hins stórfelda, sterka, tilþrifa- mikla. Af þeirri stefnunni eigum vér nógu margt og mikið, en oflítið af þeSsari. Sé skáldskapurinn eigi göfg- andi og betrandi fyrirgerir hann sínum tilverurétti. Höfundurinn hefir dálítið gefið sig við trúboði, og kemur það ekki þessu máli við, nema hvað eg verð að segja, að eg er sá metnaðarmaður, að egann ekki hverjum vinglara ,og heimskingja að fara með Guðs erindi um landið, þótt það fár sé nú ofarlega í tfðinni — sem mótsetningsöfgar heiðinglegs kulda og siðferðislegs volæðis, þeirra semlifa á molum hins nýja, en hafa týnt kjarna hins eldra. En trúboðum af sama tagi og höfundurinn hlýtur að vera, fyrir- gef eg mikið, þótt illa kunni eg kredd- um og allri bókstafsdýrkun. Eg vil óska höf. til lukku og ekki síður lesendunum, og eigi Sigurb. Sveins son meira til af svo góðu, ætti það að koma sem fyrst fyrir almennings- sjónir, því hjá því getur varla farið að þess konar smákvæði vinni hylli al- þýðu. Matth. jochumsson. Símskyti. Fregnríti «Timis> í Khöfn fullyrðir-. Polinmæði Dana er þrotin við sinýjar œsingakröfur íslendinga. Engin stj órn reynir samninga á þeim grundvelli að ísland sé frírtki samtengt Danmörku. Skeyti þetta fékk Jón ritstjóri Ólafsson í Rvík 30. nov., en sendi það af góðvild sinni til Norðra 1. des. er flutti það í fregnmiða samstundis. Maririalát Nýdánar eru ekkjurnar Oddný F’or- valdsdóttir Lillieridahl á Vopnafirði80 ára að aldri, móðir Nielsar Lilliendahl á Ak- ureyri, og Gróa Eyjólfsdóttir á Seyðis- firði 75 ára, móðir þeirra Stefáns Th. konsúls og Eyjólfs útbússtjóra þar. «Báð- ar voru þær atgerfiskonur greindar og fróðar um margt á forna vísu.» — Látin er og ennfremur áSeyðisfirði konan Guð- rún Sumarliðadóttir eftir langa vanheilsu og Stefán jönsson í Rauðhólum á átt- ræðisaldri. Steinunn Friðfinnsdóttir í Skriðu í Hörgárdal, ekkja Jóns heitins bónda í Skriðu. andaðist þar 29. f. m. nálægt sjötugu að aldri. «Hún var ein af mik- ilhæfustu og beztu konum þess bygð- arlags». Frá landssíma- stöðinni. Tf 1 varastarfsmanna við Akureyrar- gæzluhring, geta orðið teknar tvær stúlk- ur til kenslu í verklegri telegrafi og telefóni. Kenslan fer fram á Akureyri, verður ókeypis og byrjar eftir nánari ákvörðun. Umsækendur verða: að vera milli 17-23 ára aldri, að vera heilsugóðar, að hafa góða hæfileika til starfsins, og á umsókniti að gefa upplýsingar í því efni, að skrifa greinilega og góða rithönd, að kunna dönsku, nokkur kunnátta í ensku og þýzku er einnig æskileg. Eftirtekt skal vakin á, að umsækend- ur fá engin laun meðan á kenslutíma- bilinu stendur. og síðan aðeins fyrir þann tíma er þær starfa, og þá að líkindum 2 krónur fyrir hvert starfstímabil (vana- íega 6V/2 klukkustund). Stöðugri atvinnu er ekki tekin ábyrgð á. Umsóknir um þeita, séu stílaðar til: Laudssímastjórinn í Reykjavík. F’eim skal fylgja læknisvottorð og fæðingar skírteini, og afhendist undirrituðnm sem fyrst, er gefur nánari upplýsingar. Akureyri, 6. desember 1906. Paul Smith. Et fortræfíeligt Middel mod Exem er KOSMO L. Virker helbredende, giver en klar, ren Hud og Hænderne et smukt Ud- seende, er tillige et udmærket Middel mod al Slags daarlig Hud og röde eller revnede Hænder. Koster 2 Kr. 50 Öre -)- Porto 20 Öre pr.Flaske og forsend- es mod Efterkraf eller ved Indsendelse af Belöbet. (Frimærker modtages). Fabriken KOSMOL, Afdeling 5 Köbenhavn. Skandinavisk Exportkaffe Surrogat. F. HJorth & Co. Köbenhavn. VINDLA til jólanna, kaupir maður bezta og ódýrasta hjá Otto Tulinius. Fást þar með verksmiðju- verði. r I húsinu ur. 105 í Hafnarstræti hér í bæ, fæst til leigu: 3 íbúðarherbergi, eldhús. búr og geymslurúm í kjallara. Ennfremnr fjós fyrir 2 kýr, hlöðu, sem tekur 2 kýr- fóður og ábnrðargeymsluhús. Semja má við undirritaðan. — Akureyri 30. nóv. 1906. Bcnedikt Porsteinsson Aðalstræti 27. Eigandi stórrar verzlunar °g útgerðar á Suðurlandi vill selja h á I f a verzlun og útgerð sína dugandi manni og félaga sem getur tekið að sér meðforstöðu og allan »rekstur« nefndrar verzlunar og útgerðar. — Tilboð sendist SIGFÚSI SYEINBJÖRNSSYNI fasteignasala i Reykjavík. Sigfús Sveinbjörnsson fasteignasali í Reykjavík hefir bæði til sölu og leigu úr- val af fasteignum í REYKJAYIK skipum, þar á meðal „MÓTOR“- og GUFUSKIP, verzlunarstöð- um, sveita- og sjávarstöðum, á Vestur og Suðurlandi, þar á meðal nokknr nýlosnuð ágætis JARÐNÆÐI.— íúrvali þessu finn- ast flestallar tegundir íslenzkra H-L-U-N-N-I-N-D-A. Hið bezta Chocolade er frá Chocolade- verksmiðjunni SIRIUS Khðfn. Pað er hið drýgsta og næringarmesta og inniheldur mest Cacao af öllum Chocolade-tegundum sem hægt er að fá. TÁNDARÐ er ódýrast og frjálslynd- asta lífsábyrgðarfél- ag, sem starfar hér á landi, þá á alt er litið F’að tekur als- konar tryggingar, almenna lífsábyrgð, ellistyrk, fjárábyrgð, barnatryggingar o. fl Aðalumboðsmaður H. Einarsson Akureyri. Aalgaards ullarverksmiðjur í Noregi eru áreiðanlega þær beztu. Umboðsmaður á Akureyri Sigvaldi Porsteinsson kaupmaður. Crawfords Ijúffenga Biscuits (smákökur) tilbúið af Crawfords & Sons, Edinburgh og London. Stofnað 1813. Einkasali fyrir ísland og Færeyjar : F. Hjorth & Co. Köbenhavn K.

x

Norðri

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Norðri
https://timarit.is/publication/201

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.