Norðri - 28.12.1906, Síða 3
NR. 52
NORÐRI.
209
Guðm. skáld Friðjónsson frá Sandi
hélt fyrirlestur á Hótel Akureyri 16. þ.
m. um »lífslindir þjóðarinnar« og gerði
hann það að tilhlutun Ungmennafélags-
ins. Fyrirlesturinn var vel fluttur og
áheyrilega og var húsfyllir áheyrenda.
Látinn er í þ. m. á Flensborgarskóla
syðra Þórarinn Benidiktsson, mjög efni-
legur piltur á unga aldri. Banamein
hans var botnlangabólga.
í’ingmenn Rvíkinga hafa neitað að
flytja „fánamálið* á næsta þingi, Sú
fregn kvað hafa borist hingað með tal-
símanum
Leikhúsið. Enn þá er ekkert fast leik-
félag myndað hér. Þeir sem ætla að
leika «Æfintýrið «gera það eingöngu til
ágóða fyrir leikhúsið sjálft eða eigend-
ur þess, G. T. stúkurnar hér í bænum.
Nytt skólahús á að byggja í sum-
ar á Eiðum. Þorsteinn Jónsson kaupm.
á Borgarfirði hefir tekið að sér bygg-
ingu þess fyrir 13,000 kr.; á það að
vera úr steinsteypu 24X14 al. að stærð
segir Austri.
Georg læknir Georgsson á Fá-
skrúðsfirði hefir nýlega fengið franska
orðu og nafnbót, segir Dagfari.
SamkomuhúshafaTemplarar áHúsa-
vík bygt handa sér og athöfnum sínum
og var það vígt í miðjum f. m. að við-
stöddum fjölda manna. F*að er laglegt
hús en ekki stórt.
Lifandi myndir eru stöðugt sýndar
í Rvík og eru það tvö félög er um það
keppast hvort við annað. Undarlegt má
það heita að engum ungum manni hér
skuli hafa komið til hugar að stofna til
samtaka í því skyni.
Pingmannaförin.
Eftir
Árna prófast Jónsson.
XVI.
Á fimtudagsmorguninn kl. 71/* var
enn haldið í skemtiför, og ekið út úr
Vébjörgum í sunnanvindi og sólskini
suður á bóginn, um öldumyndað og
fagurt landslag sérstaklega kringum vatn-
ið «Hald». Rar Iiggur «Dol!erup» mylla
í fögrum hvammi, og var skemtilegt að
keyra þar fram hjá. Skömmu síðar
var komið til «Lysh0j», það er höll
nokkur, er þaðan víðsýni og fagurt um
að litast í allar áttir. Rar^var flaggað
og fólk saman komið til fagnaðar.
Upp á hólrium er myndastytta skálds-
ins St. St. Blichers. Horfir hann þarna
yfir heiðina sína. Blasa þar við marg-
ir sögustaðir hans, prestakallið sem hann
þjónaði og fæðingarstaður hans. Cand.
mag. N. P. Jensen þingnraður og úr
þingmannaliðinu, skýrði þarnafrá því,sem
merkilegast var að sjá alt umhverfis. Að
því búuu var hrópað húrra fyrir minn-
ingu Blichers skáldkonungs Jóta.
Pá var haldið áfram og nokkru síðar
ekið inn í mikinn skóg (Alhedens Plant-
ager), Pað er frumskógur Jótlands, —
70 til 80 feta há tré — því þar var
skógræktin byrjuð seint á 18 öld. Pað
var um 1760 sem nokkrir Pjóðverjar
voru fengnir til þess, að nema land
þarna á heiðinni. Áttu þeir að eyða
beitilynginu, en gjöra heiðarnar að ak-
urlendi. Pað mun einnig hafa verið
um þetta svæði sem setja skyldi íslend-
inga niður þegar til tals kom að taka
þá upp og flytja yfir á Jótlandsheiðar.
Ekki gekk þessum innfluttú Pjóðverj-
um akuryrkjan, og 30 árum seinna keypti
stjórnin af einum þeirra Stendalgaard,
sem var lítilfjörlegur bær, og skyldi
skógarvörður búa þar. pvf nú átti að
fara að rækta skóg, og hefir það orðið
mikið framfarafyrirtæki þótt hægt færi
í fyrstu.
Nú liggur «StendaIgaard» í miðjum
skóginum. Þar var búinn morgunverð-
nr í tjaldi, sem var með ílöggum og
blómskreytt. Stóð þingmannaliðið fyrir
þeim veitingum. Par hélt prófessor Prytz
fróðlega skógræktar-ræðu, og endaði með
því að óska, að hinn forni málsháttur:
«Með lögum skal land byggja» mætti
framvegis hljóða svo á íslandi: «Með
skógum skal land byggja». Framh.
Vindlar
í 7i 72 kössum fást vindlar
með verksmiðjuverði, hjá
Otto Tulinius.
t*ar sem öllum
útlán um
er nú hætt
við verzlun mína áminnast þeir er skulda
um að borga
sem allra fyrst.
Reir sem skulda
ve rð a
að hafa samið
um greiðslu skuldarinnar
fyrir 1. febrúar
n. k. því þær skuldir,
sem þá ekki verður búið að semja um
borgun á, býst eg við að innheimta
með lögsókn.
Otto Tulinius.
Hvergi er annað eins úrval af
karlmannaslaufum, kraga og
fl - "y-VÖ '
manchetthnöppum, hönzkum,
karla- ogkvennbeltum eins og hjá
Otto Tulinius.
Hvað sannar að
„Dan“-motorinn
er beztur?
Sv; Reynslan.
Uinboðsmenn á Akureyri
r
Otto Tulinius og Ragnar Olafsson.
Peningabuddur, tóbaks og
vindlaveski og reikinga-
pípur mest úrval hjá
Otto Tulinius.
Et fortræffeligt Middel mod Exem
KOSMOL.
Virker helbredende, giver en klar,
ren Hud og 'Hænderne et smukt Ud-
seende, er tillige et udmærket Middel
mod al Slags daarlig Hud og röde eller
revnede Hænder. Koster 2 Kr. 50 Öre
-j- Porto 20 Öre pr.FIaske og forsend-
es mod Efterkraf eller ved Indsendelse
af Belöbet. (Frimærker modtages).
Anbefalinger fra exemlidende foreligger
til behagelig eftersyn. Copi af disse
sendes paa Forlangende.
Fabriken KOSMOL,
Afdeling 5 Köbenhavn.
Eigandi stórrar
verzlunar og útgerðar
á Suðurlandi
vill selja h á 1 f a verzlun og útgerð sína
dugandi manni og félaga
sem getur tekið að sér meðforstöðu og
allan »rekstur« nefndrar verzlunar og
útgerðar. — Tilboð sendist
SIGFÖSI SVEINBJÖRNSSYNI
fasteignasala i Reykjavik.
' ' ' J
Svendborg
eldavélarnar,
eru nú komnar. Flýtið yður að ná
í þær áður en þær ganga upp.
Eggert Laxdal.
Mánudaginn 1. apríl 1907, kl. 5 e. h.
verður á Akureyri
háð kappglima
um verðlaunagrip Grettisfélagsins
leðurbelti silfurbúið. —
Petta tilkynnist hér með öllum glímufélögum lands-
ins, sem taka vilja þátt í kappglímu þessari.
Glímufélagið „Grettir“.
yy-—TT-»i ■*• y*» ^ v * 1, * ^ v1* /*! ^ \ “ * ,** ^ 1 *1 ^ ^
Möllerups mótorar
eru endingarbeztir, hentugastir og eyða minst olíu
allra mótora sem hingað hafa fluzt á síðari árum.
Hefi eg sjálfur pantað þá til eigin notkunar og
get því sýnt þá mönnum hér á staðnum er vilja
sannfæra sig um traustleik þeirra og gæði.
Enn fremur get eg gefið allar nákvœmar
upplýsingar þeim er óska, er eg hefi nýlega feng-
ið frá verksmiðjunni C. MÖLLERUP í Khöfn
sem eg er
aðalumboðsmaður fyrir á Norðurlandi.
J. V. HAVSTEEN
ar eð eg ætla að breyta verzlun minni í SÉR-
VERZLUN, verður öll álnavara, glysvarningur og fleira
selt gegn peningum út í hönd með
20°|o afslætti
frá peningaverði
Íþegar minst er keypt fyrir tvær krónur í einu. Pannig
fær maður t. d. skó, sem kosta fimm krónur, fyrir 4 kr.
^ Nóg er úr að velja.
Til dæmis:
Mousselin og ullartau, margar tegundir.
ÍFatatau og tilbúin föt. Nærfatnaður karla og kvenna.
Ullarklútar og sjöl ötal tegundir. Mikið úrval af sófatn-
aði. Japanskar vörur. Fiolin. Hálstau. Hanzkar. Hattar
Húfur, Muffur, Búa og marrgt og margt fleira.
Notið tækifærið.
OTTO TULINIUS.
afsláttur. ____ 20°o afsláttur.