Norðri - 05.07.1907, Side 2
106
NORÐRI.
NR. 27
mm
NORÐRf
Gefinn út af hlutafélagi.
Ritstjóri: Jón Stefánsson.
Skrifstofa Hafnarstrœti 3.
Prentsmiðja B. Jónssonar.
Nýir kaupendur að iii. árgang
Norðra geta fengið þenna árgang
ókeypis
meðan upplagið hrekkur og enn
fremur gefins söguna
Óðalsbændur
ÍÁ J ágætis þýðingu eftir Porgils gjallanda
Slík kostakjör býður ekkert blað annað
og ættu menn að nota það
DOKTOR NIKOLA
saga sú sem nú er að koma út í blaðinu
verður sérprentuð, og fá þá allir skilvísir
kaupendur blaðsins hana í kaupbæti, Það
verður þykk bók í stóru 8 blaða broti og
óefað hin lengsta og merkilegasta
saga [er íslenzk blöð hafa gefið kaupend-
um sínum.
Gjalddagi ,Norðra‘
var fyrir 1. júlí. Háttv. kaupendur eru
beðnir að minnast þess svo fljótt sem þeim
er unt.
Sérstaklega væntir blaðið þess að
þeir er en hafa ekki borgað 1 árg. geri það
nú tafarlaust.
Flokkssamkun dan.
á Þingvöllum.
„Ósköp léleg!“
Svo komst að orði þjóðkunnur mað-
ur og yfirlætislaus er hann var spurð-
ur um í símanum hvernig hefði verið
flokksamkunda Þjóðræðisliða á Þing-
völlum.
Það hefir áreiðanlega heldur ekki
verið ofmælt. Það er hvortveggja að
þetta var ekki Þingvallafundur í þess
orðs venjulegu merkingu, enda mætti
kalla það misþyrming þess orðs að skýra
slíkar flokksamkundur því nafni, sem
þjóðinni í heild sinni er jafnheilagt og
ástfólgið. Björn Jónsson ritstjóri ísa-
foldar sem mun vera aðalfrumkvöðull
þessa flokksfundar þeirra þjóðræðisliða,
skrifaði fyrir nokkrum árum ýtarlega
grein um þingvallafundi og var það í
tilefni af síðasta Þingvallarfundarboði
Benedikts sál. Sveinssonar. Þau ummæli
B. J. eru í fullu gildi enn í dag og
þykir ekki illa til fallið að rifja þau upp:
. . . . því að þingvallafundur í sum-
ar er ekkert annað en vitleysa.
Svo getur verið ástatt, að þingvallafund-
ur eða samskonar þjóðfundur almennur á
einhverjum hentugum stað á ’landinu sé
óskaráð. Það er þegar þjóðin er samhuga
í einhverju mikilsverðu máli og henni ligg-
ur á að lýsa yfir vilja sínum og samhygð.
Til alls annars er slíkur fundur með öllu
óhæfur og ónýtur.
Þetta liggur í hlutarins eðli. Annar þátt-
ur löggjafarvaldsins hefir enga fulltrúa á
slíkum fundi. Engar skýringar eru fyrir
hann lagðar, sem ekki hafa áður verið gerð-
ar kunnar alþýðu manna. Hann hefir ekk-
ert vald til, á ekki eiriu sinni kost á að
semja um nokkurn skapaðan hlut, enda hef-
ir honum aldrei verið ætlað það. Honum
er ætlað að lýsa yfir fyrirfram fengnum
skoðunum. Það er alt og sumt.*
Svona sagðist honum þá blessuðum,
en líklega væri honum ekki um að
skrifa undir sama guðspjallið núna.
* * * * *
♦ * * *
Ollum mun kunnugt um gauragang
þeirra »Isafoldar»dýrkendanna í vor til
þess að undirbúa samkomu þessa, kjósa
»fulltrúa» o. s. frv. og ganga margar
kynlegar sögur af því atferli. Meiri hluti
fulltrúanna er kosinn með fárraatkvæða
meirihuta. Þeir fáu sem voru kosnir
hér nyrðra — utan Akureyrar — eru
kosnir með 4 — 10 atkv. meirihluta. Á
ýmsum stöðum kvað hafa verið mjög
örðugt að fá tiokkurn til fararinnar; í
einum stað hafði þeim manni verið
heitið 400 grásleppum er fengist til þess
Ísfírðingar gátu ekki fengið neinn verk-
færan mann til ferðarinnar og sendu
svo einhverja liðléttinga — unglinga að
því er »Vestri« segir. Um kosningarn-
ar hér á Akureyri er mönnum kunnugt.
Fyrst kusu »Skjaldborgar«-liðar Ouð-
mund lækni Hannesson á opinberum
fundi, svo þá Sigurð Hjörleifsson og
Karl Finnbogason a lokuðum fundi
innan félagsins og síðast báðu
þeir Gísla Sveinsson exam. jur. á opn-
um fundi að mæta á samkundunni en
ekki er oss kunnugt hvert hann hefir
játað því eða ekki.
Hæpið var að »fulltrúarnir«héðan að
norðan næðu á fundinn. Þeir lögðu
af stað héðan með »Vestu« er kom
ekki til Rvíkur fyr en aðfaranótt hins
29. júní og lögðu þá Skjaldborgarsendl-
arnir þegar af stað til Þingvalla segir
símfrétt frá Rvík »Norðurlandsi itstjórinn
í broddi fylkingar, lesandi langferða-
mannsbæn er hann hafði lært úr Ísafold
og kunni utan að reiprennandi en 'Karl
Finnbogason rak á eftir með »örlaga-
þáttum mannssálarinnar« svo að »ömur-
Iega þaut« í «skynjanfærum« kapla þeirra
er voru í ferðinni!!« —
Guðmundur Hannesson fór í land af
»Vestu»á Blönduósi og landveg þaðan
en ekki kom hann á Þingvailasamkom-
una. Er það ekki ósjaldan að samvizku-
semi og sanngirni lýsir sér hjá G. H. Var
það skaði að hann fór ekki á Þingvöll
því vel hefði getað farið svo að hann
hefði getað komið þar til leiðar einhverju
þarflegu.
Annars er það af árangri samkomu
þessarar að segja, að þar kvað hafa
verið samþykt tillaga er fór í líka átt
og blaðamannaávarpið sæla. En verði
ekki tillit tekið til hennar kvað eiga að
heimta algerðan skilnað við Dani. Þetta
hafði verið aðaltillagan, samþykt með
meiri hluta atkvæða. Alls höfðu mætt
á samkomunni um 90 «fulltrúar» flest-
ir úr Rvík og grendinni, er höfðu ver-
ið »kosnir« hér og þar á landinu, um
einn þeirra er í frásögur fært að hann
hafi verið kosinn með 2 atkvæðum,
Nýtt uppnefni.
„Sjálfstæðisflokkurinn"!!
Eftir að búið var að setja það sem
stendur hér að framan um Þingvalla-
samkomuna höfum vér fengið símfrétt
um að «Þjóðræðis»-liðar hafi ennfrem-
ur samþykt þai að skíra sjálfa sig um
og kalla sig «Sjálfstæðisflokk»! Ætla
þeir líklega að reyna að drepa Já sér
óþrifin með því, og telja þjóðinni trú
um að þeir séu lausir við syndir
«Þjóðræðisflokksins«, t. d. blekking-
ar hans, lygar og rógburð gegn rit-
símanum o. fl. — En það mun vera
árangurslaust. Þjóðin er orðin svo vön
við hamskifti og flokksnafnabreytingar
hjá þeim mönnum, er fremstir eru í
«Þjóðræðis»-safninu, að þessi nýja blekk-
ingarskírn verður fánýtt glys í hennar
augum, er hún virðir að vettugi á allan
veg.
Ekki getum vér að óreyndu trúað
því, að «Landvarnarmenn» hafi samþykt
að kasta svo frá sér hinu fagra flokks-
heiti sínu að þeir «séu með» í þessari
ráðagerð. Þætti oss þá mjög illa farið
ef svo væri, og ekki ósennilegt að þeir
í fleiru en nafnbreytingunni væru komn-
ir nokkuð langt frá hinni upprunalegu
stefnu sinnu, eins og oss því miður,
r
Agætar danskar
KARTÖFLUR
fást. í verzlun
M. Jóhannssonar
á Oddeyri.
■iwww,■ ,nii«» ■■ «,■ miiu
hefir fundist fleira en eitt benda til á
síðustu tímum. Er ilt til að vita ef
svo færi að hreinar hvatir og góðar
yrðu verkfæri í höndum pólitískra var-
menna og flautaþyrla, er bannfæra á
morgun það. sem þeir blessa í dag svo
þjóðin trúir þeim hvorki til eins né
neins vegna hlutdrægni og margreyndar
blekkingartilrauna í helztu velferðarmálum
hennar.
Bækur.
Tímarit fyrir kaupfélög og
samvinnufélög. Ritstj. Sig-
urðurjónsson Ystafelli.
I. ár 2. hefti.
Þetta hefti er að öllu fjölskrúðugra
en fyrsta heftið er kom í vetur. Pétur
alþm. á Gautlöndum birtir þar kafla
úr ræðu er hann hélt í vetur á aðal-
fundi Kaupfélags Þingeyinga er það var
25 ára og segir þar sögu þess í ágripi.
Mörgum mun þykja það miður að Pét-
ur hefir eigi látið prenta þann kafla,
ræðu sinnar, er ræddi um Jakob Hálf-
dánarson á Húsavík, höfuðstofnanda
félagsins og starfsmann þess öll árin til
þessa. Hefði verið fróðlegt fyrir síð-
ari tíma að eiga þar á prenti frásögn
um stofnun félagsins og fyrstu forkólfa
þess, og viljum vér skjóta því að rit-
stjóra tímaritsins, að hugsa til þess við
tækifæri.
Þá flytur tímaritið einnig ýmsar skýrsl-
ur um K. Þ. og athugasemdir og skýr-
ingar við þær eftir ritstjórann, lög Kaup-
félags Eyfirðinga og grein um starfsemi
þess eftir Hallgrím Kristinsson.
Tvær höfuðritgerðir eru enn í þessu
hefti eftir ritstjórann báðar. Hin fyrri
nm «nýbreytni í kaupfélagsskap og sam-
vinnumálum», og skiftist aftur í 9 kafla
sinn um hvert efni. Viljum vér sér-
staklega vekja athygli manna á kaflan-
um um «sparisjóði í sambandi viðkaupfé-
lög og sambandsfélög», erflytur sérlega
þarfar og tímabærar bendingar. Er oss
það ánægja, að höf. heldur þar fram
sömu skoðun um sparisjóði til sveita,
gagnsemi þeirra og nauðsyn eins og
haldið var fram í »GjalIarhorni« fyrir
tæpum fjórum árum þar sem andmælt
var þeirri hreyfingu að smásparisjóðir
til sveita yrði smátt og smátt óþarfir
eftir því sem bankarnir og útbú þeirra
yrðu sterkari. — Bendir ritst. tímaritsins
t. d. á skifti rjómabúa og sparisjóðs er
hafi verið til mikilla þæginda báðum
pörtum o. s. frv.
Síðari höfuðritgjörðin er um rjómabúin
hér norðanlands, frásögn um starfsemi
þeirra, ymsar leiðbeiningar og fleira.
Fróðleg grein og vel samin.
Sjálfsagt virðist að hver maður hérlend-
is er ann samvinnufélagsskap eða vill
kynna sér hann kaupi tímaritið. — Menn
ættu líka að styðja ritstjórann í því að
gera það sem fjölbreyttast með því að
senda honum skýrslur, kaupfélagstíðindi
og annað er lítur að samvinnufélagsskap
eins og hann talar um i tímaritinu.
(bls. 120).
--o—<Q>—0-
Fjárræktarfélag S.-Þingeyinga hélt
aðalfund sinn 2. júní. Fjárhagur félagsins
er nú í allgóðu lagi, og hluteignir félags-
manna komnar nokkuð upp fyrir nafn-
verð. Félagið áformar að kaupa nokkr-
ar kynbótakindur vestan úr Stranda-
sýslu, af sérstökum (útlendum?) ættstofni
og á að halda þeim flokk óblönduðum
fyrst um sinn.
Formaður félagsins endurkosinn Sigur-
jón Friðjónsson á Einarsstöðum og Ijær
hann fjárbúinu j-rð'.rafnotog sér um búið
að flestu leyti.
Sýslumenn eru þessir settir í sumar
yfir alþingistímann: Akureyri BjörnLíndal
kand. juris, á Húsavík Benedikt Jónsson
frá Auðnum og á Seyðisfirði Bjarni
Jónsson kand. juris.
A G Æ T óvanalega falleg og
GÓÐ SJÖL
nýkomin í verzlun
M. Jóhannssonar
Oddeyri.
Alþingi 1907.
ii.
Sameiginlegur fundur alþingismanna
til að ræða um millilandanefndina og
tilnefna menn í hana er ákveðinn á laug-
ardaginn kemur.
Kirkjumál 10 að tölu eru til með-
ferðar í einni nefnd í efri deild og sitja
í henni Eiríkur Btiem, Guttormur Vig-
fússon, Þórarinn Jónsson, Sigurður )ens-
son og Sigurður Stefánsson.
Fjárlaganefnd í neðri deild: Tryggvi
Gunnarsson, Jón Jónsson Múla, Skúli
Thoroddsen, Eggert Pálsson, Stefán
Stefánsson kennari, Þórh. Bjarnarson,
Árni Jónsson.
Reikningslaganefrtd: Ólafur Briem,
Guðl. Guðmundsson, Magnús Kristjáns-
son.
Tollaukalaganefnd: L. H. Bjarnason,
Pétur Jónsson, BjörnKristjánsson, Guðm.
Björnsson, Hermann Jónasson, Ólafur
Ólafsson, Ólafur Briem.
Landsreikningarnirfyrirfjárhagstímabilið
1904—1905 liggja fyrir þinginutil stað-
festingar eins og lög gera ráð fyrir.
Tekjuafgangur varð talsverður en ekki
afarstór tekjuhalli eins og áætlað var og
»básúnað«heíir verið um af »þjóðræðis
blöðunum.
Flokksfundur Heimastjórnarmanna.
var haldinn í Reykjavík 30 júní. Ekki
hafði verið boðað til hans með alskon-
ar gauragangi fyrir mörgum vikum eins
og til flokksfundar þjóðræðisliða,heldur
aðeins með eins dags fyrirvara.
Þá dagana hittist svo á. að ymsir heima-
stjórnar menn voru staddir í Reykjavík
víðsvegar að af landinu og þótti þeim
rétt að koma saman á fund í sama
mund og þjóðræðisliðið hafði Þingvalla-
mót sitt. Á fundi þessum var meðal
annars samþykt svolátandi tillaga með
162 atkvæðum kosningarbærra manna
Fundurinn mótmælir því fastlega að
samþykkis Dana sé leitað til nokkurra
breytinga á stjórnarskrá íslands svo sem
til breytinga á ríkisráðsákvæðinu, enda
telur fundurinn það mál liggja undir at-
kvæði íslendinga einna og kpnungs«.
Auk þess samþykti fundurinn trausts-
yfirlýsingu til stjórna innar og meiri-
hlutans á þingi og tillöju um heimflutn-
ing Vestur - íslendinga ásamt áskorun til
þingsins um að greiða götu þeirra er
heim kæmi.
Fundarsamþykt sú er hér fer á eftir
barst oss með «Vesta» síðast í f. m.
Vér látum hana á «þrykk út ganga* þó
seint sé, því svo mun hafa verið til ætlast
af þeim ei sendu.
A fundi Félags íslenzkra stúdenta í
Kaupmannahöfn 11. maí 1907 voru
samþ. svolátandi fundarályktanir.
1. Félag íslenzkra stúdenta í Khöfn
skorar áalþingi og stjórn, að hefja ekki
samninga við Dani um sambandsmálið
fyr en nýjar kosningar hafa farið fram
á íslandi. (Samþ. með 33 atkv. gegn 1.)
2. Fundurinn skorar á alþingi, að taka
nú þegar til íhugunar löggjöf landsins um
eignarrétt útlendinga á Islandi og at-
vinnurekstur þeirra þar; sérstaklega að
vinda bráðan bug að samningi laga um
búsetu fastakaupmanna og laga um hluta-
félög. (Samþ, í einu hljóði.)
Ólafur Björnsson. Guðjón Baldvinsson
p. t.forseti. p. t. ritari.