Norðri - 27.07.1907, Page 1
1907,
Akureyri, laugardaginn 27, júlí,
Eg hefi ráðgert að leggja af stað í ferð
til Reykjavíkur næstu daga og verð því
fjærverandi nokkurntíma. Björn Líndal kand.
juris hefir lofað mér að sjá um ritstjórn
Norðra meðan eg er að heiman, en vegna
annríkis getur hann líklega ekki gefið út
nema hálft blaðið í hvert skifti. Eg vona að
kaupendur virði það á betri veg og verður
þeim bætt það upp fljótlega.
Akureyri 20. júti 1907
Jón Síefánsson
K » "■ iiin
f(aupstaðurinn »at Gásum»
Pað er alkunnugt að í fornöld var
mjög mikil verzlun að vestanverðu við
Eyjafjörð, á þeim stað, er nefnist Gæs-
ir; jafnaðarlegast var sagt «at Gásum«.
Um 'og eftir 1300 sýnist nafnið «Gás-
eyri» að vera tíðast, hvernig sem á því
stendur, um sjálfan verzlunarstaðinn.
Staðurinn liggur ák&flega vel við öllum
nærsveitum þar við fjörðinn og þar var
ágæt lending og skipauppsát. Pað er
því engin furða, þótt kaupmenn fyndu
snemma þenna hagkvæma stað og
notuðu hann í þarfir sínar*. A 10. öld
er þar þegar orðinn allmikill kaupstað-
ur, og sögur vorar segja frá ýmsum,
sem lentu þar eða fóru þaðan, ýmsum,
sem komu þar til kaupa. Þar var selt
bæði malt og timbur, og sjálfsagt allar
útlendar vörur, sem íslendinga vanhag-
aði um.
Merkilegt er það ekki síður, að talað
er um-fisk verzlun; þetta hlýtur að eiga
við innlendan fisk. Um allar eftirfarandi
aldir, niður að lokum 14. aldar átti
þessi verzlun sér stað. 1391 nefna ís-
Ienzkir annálar síðast skipkomu á Gásum
Af sögunum má ennfremur sjá, að
þar hefur verið allmikill fjöldi manna
saman kominn, þar er oft talað um mörg
skip í einu, og kaupmenn í fleirtölu,
og það sést, að þeir hafa verið þar,
búið þar, alt sumarið, eða mikinn hluta
þess. Jafnvel aðrir en kaupmenn voru
þar langvistum, því að um Hrafnssonu
er sagt að þeir hafi dvalið þar sumar-
tímann (1231). Hér er því um nokk-
urskonar verzlunarbæ eða kauptún að
ræða eftir kringumstæðunum, en þó sjálf-
sagt ekki nema um sumartímann. Á
vetrum hefir alt verið hér jafndautt eins
og alt var þar lifandi og fjörugt á sumr-
in. Oft hefir þar víst verið glatt á hjalla og
má meðal annars ráða það af því, sem
segir um munka nokkra frá Möðruvöll-
um. «Fyrir úskynsamliga meðferð Ijóss
þess, er þeir höfðu druknir með farit
um nóttina, sem þeir kómu afGáseyri*
kviknaði í reflum þeim, sem í kórnum
vóru, og í skrúðakistu, sem þeir luku
upp, og brann klaustrið. Líka hefur
stundum verið róstusamt þar og menn
hafa borist vopn á, og þar drap Grettir
ferðalanginn, sem kunnugt er.
Einu sinni er talað um ófrið milli
íslendinga og kaupmanna, og átti að
ræna þá (á 13. öld). Kaupinenn þessir
hafa að líkindufn frá því fyrsta verið
norðmenn að miklu leyti, frá 13. öld
vafalaust að öllu leyti.
*) Kaupangur hefir líka verið kaupstaður,
eh hann er mjög sjaldan nefndur.
Til kaupmanna!
Hér með leyfum við okkur að tilkynna heiðr-
uðum kaupmönnum á Islandi að innan skams
munum við hafa steinolíu „á Lager“ í Reykjavík
og á Eskifirði. Seljum við því bráðlega steinolíu
til allra hafnarstaða á íslandi, þar sem gufuskipin
koma við.
Með mikilli virðingu.
Det danske Petroleum Aktieselskab.
Ágætis
smurningsoííu
fyrir mótora selur með innkaupsverði
’VerzIunin Akureyri‘
Christensen
& Wedel
Islandsk Commissionsforretning
Köbenhavn K.
Telegramadr: Wede/christ.
I Iok 14. aldar sýnist verzlun þessi
að hafa lagst niður. Um orsakir til
þessa skal hér ekki rætt.
Bærinn, sem þar er riú, er mjög gam-
all, þótt ekki sé hans getið í Landnámu;
um miðja fimtándu öld er hans getið
í bréfum og má ráða af því, sem þar
segir, að jörðin var ekki álitin svo rýr.
Sjálfsagt hafa Gæsir verið annar mest-
ur kaupstaður á íslandi um alla forn-
öld vora; hinn var Eyrar á Suðurlandi,
(nú Eyrarbakki).
F*að sem hér hefir verið drepið á
eftir sögum og annálum styrkist full-
komlega við það sem staðurinn enn ber
með sér sjálfur. Rétt við sjó og fyrir
ofan hina eiginlegu Gáseyri — allmik-
il sandeyri og hefir verið dýpra áður á
milli hennar og meginlandsins má
enn sjá fjölda af lautum eða bollum í
stórri þyrpingu með allþykkum veggj-
um um kring, og er enginn vafi á því,
að þetta eru leifar af hinum gömlu kaup-
mannabúðum, enda hefir verið svo álitið
alla tíð. En fjöldi þessara bolla
og veggja sýnir bezt hvað verzlunin
hefir verið mikiloghvað margt fólk hefir
komið hér saman, jafnvel þótt ekki sé
víst, að þær hafi allar verið notaðar í
einu. Ennfremur sést það af því, sem
ekki hefir verið nefnt enn, og það er,
að mönnum hefir þótt þurfa að hafa
kirkju þar sér til uppbyggingar. Henn-
ar er getið í annál við árið 1359 með
þessum orðum: «Brotnaði kirkja á Gása-
eyri.»
Rað er ekki furða, þó þessi staður
hafi vakið athygli manna fyr og síðar,
en lítt hefir hann verið rannsakaður fyr
en nú í sumar. Hann hefir allur verið
mældur og teiknaður, og tekin svo ná-
kvæm lýsing, sem hægt er. Til fulls er
þetta ekki hægt, bæði vegna þess, að
sjór hefir brotið þó nokkuð framan af,
og eins af hinu, að greining milli hinna
einstöku búða er ekki ætíð nógu glögg,
svo hægt sé með vissu að segja, hvað
eigi saman. Eftir skoðun þess, sem rit-
ar þessar línur, hafa hér verið 12-16
aðalbúðir og ef til vill fleiri, en í hverri
aðalbúð hafa oftast verið 4-5 «herbergi»
(eða færri eða fleiri stundum), en «her-
bergin» eru bollarnir eða lautirnar, sem
enn sjást. Rvers um frá norðri til suð-
urs liefir verið gangur eða gata, og skift
ir hún aðalbúðunum í tvent, efri og
neðri röðina. í báðum snýr inngangur-
inn í hverja aðalbúð að sjónum og
götunni, en þó er inngangurinn á stöku
stað í efri röðinni að oían. Örmul fleiri
smátótta sjást, og eru sumar lausar frá
aðalhvirfingunni.
í eina aðalbúðina með 5 bollum
(«herbergjum«) hefir nú verið grafið;
kom það þá í ljós, að einn hefir verið
eldhús, og fundust þar fleiri öskulög
en eitt, mishátt, og sýnir það, að einn
hefir notað þetta eftir annan, en gólfið
hækkað smámsaman af ösku og mold,
sem niður hefir fallið; aska fanst og
nokkur í öðrum bollum, og kann það
að koma til af því, að þeir hafi verið
notaðir á mismunandi hátt á mismunandi
tímum. í öðrum bollanum fanst allmikil
steinlegging ferstrend nokkuð hátt uppi og
mætti ætia, að hér sé t. d. borð; í þeim
þriðja annar minni stallur, en um hann
verður ekkert sagt með vissu; í eldhús-
inu fundust engar hlóðir; í bolla í ann-
ari aðalbúð, sem grafið var í, fundust
steinar alveg eins og hlóðir væri. Ressi
»herbergi« hafa eflaust verið svefnher-
bergi og vöruhús. Fémætt fanst ekk-
ert, nema einstöku bein úr kindum,
nautgripum og fuglum og þó sáralítið
alls. Vafalaust má telja, að allar aðal-
búðir hafi verið hér um bil eins, og
því þýðingarlaust að grafa í þær fleiri;
þó hafa tilraunir verið gerðar í marga
bolla víðsvegar, en ekkert frekara fund-
ist (nema hlóðir þær, sem nú voru
nefndar). Ofarlega í einum bolla fanst
brýni; hvað gamalt það sé er nokkuð
óvíst. Ennfremur má segja að búðirn-
ar (»herbergin«) hafi þrengst, því leng-
ur sem leið, vegna moldar, sem fell
inn, og var ekki mokað burtu.
Með fullri vissu má álykta, að búðirn-
ar hafi aðeins verið úr torfi og ekkert
grjót í, og að þak hefir ekki verið á
þeim nema úr vaðmáli eða dúkum.
Litlu ofar en búðaþyrpingin er getur
að líta lágt hér um bil kringlótt gerði;
innan í því sást votta fyrir aflangri, hér
um bil ferstrendri tótt eða tóttargrund-
velli. Þetta eru leifar af kirkjunni.
Inngangurinn í hringinn er eðlilega
að austanverðu, andspænis búðunum.
Hér var grafið til að finna grundvöllinn
og þegar grassvörðurjnn var tekinn af
(þótt ekki væri alstaðar) kom í Ijós ó-
slitin steinaröð (steinarnir fremur smáir)
á allar hliðar; austanvert er kórinn greini-
egur. Dyrnar voru eflaust á suður-
hlið, nær vesturgaflinum, og fanst þar
hella eða steinn fyrir utan aðal steina-
röðina, auðsjáanlega steinn til að j stíga
á yfir þröskuldinn. Öll er kirkjan 40
fet á lengd en 14 fet á breidd að inn-
an, kórinn 12 fet. Steinarnir eru svo, að
af þeim má ráða, að þeir hafi verið
undirstaða timburstokka og kirkjan hef-
ir verið úr timbri (sbr. og orðið «brotn-
aði« í annálnum) en þó slást enn merk
þess, að utanum hefir verið torfveggur
til stuðnings, líklega ekki allhár (svo sem
2 fet).
Þetta er helzti árangurinn af því,
sem gert hefir verið til þess að kom-
ast að svo nákvæmri niðurstöðu um
þennan merkilega stað sem hægt var
eftir kringumstæðunum. Hér eftir er
varla annað við hann að gera en grafa
fleiri eða flesta bollana, ef menn vilja.
Ress skal að síðustu getið, að öllu
verðnr komið aftur í samt lag sem næst
því sem það var, áður en grafið var.
P-J-
Frá útlöndum.
Sofus Bugge prófessor í Kristjaníu,
mesti norrænufræðingur Normanna, hef-
ir nýlega fengið slag og er engin bata
von. Hann er 74 ára gamall. Hefir
hann unnið bókmentum vorum hið
mesta gagn með ransóknum sínum. Læri-
sveinn hans í forníslenzkum fræðum
er prófessor M. Hæggstad, sá er hér
var á ferð í vor, til þess að kynna sér
nútíðarframburð islenzkrar tungu.
í gærkveldi kom símfrétt hingað, um
að Sofus Bugge væri látinn. Ætlar ríkið
að kosta útför- hans og er gert ráð fyr-
ir mikilli viðhöfn. Prófessor Finnur Jóns-
son ritar æfiminningu hans í næsta blaði
Norðra.
Helga Vídalín, er áður var gift Jóni
Vídalín, breskum konsúl í Reykjavík, er
nýlega gift H. Matzen prófessor í lög-
fræði við Kaupmann ahafnarháskólann.
Norðri óskar þess, að á þeim megi ræt-
ast gamalla manna mál um það, að
seint fyrnist fornar ástir.