Norðri - 27.07.1907, Blaðsíða 3

Norðri - 27.07.1907, Blaðsíða 3
NR. 31 NORÐRl. 123 Nýtt íslenzkt þjóðsöngslag? Blað- ið Pólitiken skýrir frá því, að hornleik ari í sjóhernum danska, Victor Bentzen- að nafni og með er íkonungsförinni hing- að til landsins, hafi samið nýtt lag sem hann nefnir ,Island‘. Blaðið getur ekki um, hvort að nokkur texti fylgi laginu en hrósar því mjög.Telur þaðundrun sæta,ef viðíslend- ingar eigi grípum við því fegins hendi og gerðum það að þjóðsöngslagi voru í stað þess, er vér höfum hingað til not- að í félagi með Englendingum og Pjóð- verjum, A blaðið þar við lagið «Eld- gamla Isafold«, sem er sama lagið og þjóðsöngslagEnglendinga og Pjóðverja. Hafa þær tvær þjóðir lengi þrefað um, í hverju Iandinu lagið hafi til orðið í fyrstu. Mest eru líkindi til, að það sé enskt að uppruna. ,Pólitiken‘ virðist ekki þekkja lagið »Ó guð vors land«, þó það hafi mjög oft verið um hönd haft í Khöfn. Óhætt þykir oss að fullyrða, að mikill undrakraftur megi fylgja þessu lagi ef því hepnast að vinna svo mikla hylli hér á landi, að til þjóðsöngslags verði hafið. Hitt teljum vér líklegra, að flest- ir Islendingar haldi áfram að syngja »Eldgamlaísafold« þegaríslands er minst þangað til eitthvert íslenzkt tónskáld verð- ur þess megnugt að semja lag, er betur Iáti í eyrum þjóðarinnar. Fornmenjaransóknir. Prof. Finnur Jónsson og Daniél Bruun dvelja hér í Eyjafirði um þessar mundir. Starfa þeir að fornmenjaransóknum af hinu mesta kappi eins og vænta má af þeim báð- um. Fyrir bænastað vorn hefir profess- orinn ritað hina afar fróðlegn grein um ,Gásir‘ sem prentuð er á öðrum stað hér í blaðinu. Þykjumst vér þess full vissir, að hún muni kærkomin öllum lesendum Norðra, en þó einkum Ey- firðingum. Hafnarbryggjugerðinni á Torfu nefi miðar vel áfram og verður hið snotrasta mannvirki. Helzt mun vera í ráði að skipakvíargarðurinn fyrirhugaði liggi frá ytri enda hennar og norður að Grundargötu á Oddeyri; fengist þá gott, óhult og nægilega djúpt skipalagi ofan við garðinn. Thorvald Krabbe landsverkfræðing- ur hefir nýlega kvongast í Reykjavík, ung- frú Margrethe Krabbe. Gufuskipið »Laura« kom hingað frá Rvík finimtudagsmorguninnáferð hringinn í kring- um landið. Var ferð þessi ákveðin sakir kon- ungsheimsóknarinnar, til þess að gera mönuum úr fjarlægum héruðum, er fagna vildu hon- um í Reykjavík, hægra fyrir að komast þang- að. En sá er galli á, að viðkomustaðir eru alt of margir; sækist því seint ferðinj og er tvísýnt hvort skipið nær til Reykjavíkur í tækan tíma, enda var fátt farþegja með þeirra, er sækja vildu konungsfund þangað. Hingað komu með skipinu, Sigurður læknir Hjörleifsson, ritstjóri Norðurlands, af þing- vallafundinum fræga, og húsfreyja hans. Ragnheiður Benediktsdóttir, húsfreyja Júlíus- ar Sigurðssonar bankastjóta, Kristín húsfreyja Steingríms læknis Matthíassonar. Frá Ame- ríku kom ungfrú Lára Blöndal og Svanlaug- ur Isleifsson með konu og barni. Frá Vofna- firði húsfreyja Ágústa Lilliehdahl, og Hulda Laxdal frá Húsavík, Á suðurleið með skipinu voru: Þórður læknir PáIsson,til dæknishéraðs síns á Mýrun* um.’Jón Pálsson organisti frá Reykjavík með konu sinni, Sigríður Arnljótsdóttir, húsfreyja Jóns læknis Jónssonar á Blönduósi, nokkurlr verzlunaragentar o. fl. Skipið fór héðan samdægurs, kl. 5 e. h. og fóru með því héðan til Reykjavík hús- freyja Guðlögs bæjarfógeta Guðmundssonar og dóttir þeirra, Ásdts. Til Blönduóss fór húsfreyja Sæmundssens verzlunarstjóra og cand. phil. Valdemar Thorarensen. Sterling, gufuskip Thorefélagsins, kom hingað í morgun frá Khöfn og fór héðan aftur kl. 3, áleiðis til Reykjavíkur. Nokkru meira en 30 farþegar voru með skipinu. Þessa vitum vér unl: Konungur vor Friðrik VIII. lagði af stað frá Khöfn á sunnudaginn var, síðdegis. 40 danskir ríkisþingmenn eru með í förinni. 3 skip eru í för- inni: Birma, Atlanta og Geysir. hluta nefnds vegar, sem enn var óvarð- aður, frá Sóleyjarhöfðavaði á Þjórsá nið- ur að Skriðufelli, og skyldi því lokið á því sumri. Var verkið selt mér fyrir ákveðiðverð ámíluhverja,tiltekinn vörðu- fjöldi og hæð, og tekið út af þar til skipuðum manni að loknu verkinu. Jón Oddsson var vegvísir en Jón Þorkels- son aðalhleðslumaðurinn. Vörðurnarskildi byggja úr grjóti, torfi eða setja staura ef ekki væri unt að ná efni í vörður. Bygði eg lítt á stauraverki slíku, en fór með kerru til að færa til efni. Allar voru vörður þær, er við félagar reistum 425, þar af 417 af grjóti gjörfar. Reynd- ist ilt um efni, ef nota skyldi hnaus, enda var rótlítið í Efriverum en þurit > á vikurlag í Neðriverum eða grasþláss- um þeim í Gnúpverjahrepps afrétt. Þá 44 daga sem við vorum við vörðuhleðslu, urðum við að keyra grjót í 40 daga. Erviður og dýr varð aðflutningUr grjót •• ins, þvíþaðvar alllangt að aka, því veg- inn varð að leggja þar sem bezt var umferðar, og naut eg þar að kunttug- leika Jóns Oddssonar, sem eg undr- aðist opt. Munu þess fá dæmi að nokk- ur maður sé svo nákvæmlega kunnug- ur í jafn víðlendri afrétt. Hverju gili og hverri gróf lýsti hann fyrir okkur, áður en þangað kom, hver hóll og hæð voru honum kunnar, og nefndi hann slíkt með nöfnum. Virtist mér honum standa eins ljóst í minni alt afréttarplás- ið frá bygð til jökla, sem athugulum, smala eru tnargfarnir búfjárhagar. Við Jón Þorkelsson vorum þar á móti aiveg ókunnugir í þessu plássi, og höfð- um marga skemtistund þá er gott var útsýmð á kvöldin eða við vorum á ferð. (Framh.) Snjóhvítir SKÓR Þórarinn E. Tulinius stórkaupniaður frá Khöfn, með konu og tveim börnum, cand. jur. Sveinn Björnsson, ritstjóra í Reykjavík og unnusta hans, ungfrú Hansen. Ungfrú Unnur Thoroddsen Bessastöðum, ung- frú Sigríður Torfadóttir frá Flateyri; stór- kaupmaðurT'ang með konu, ogfjöldi danskra og sænskra ferðamanna. Hingað kom cand. theol. Haukur Gíslason. Héðan fóru með skipinu til Reykjavíkur: kona Guðm. Hannessonar héraðslæknis í Rvík, kona Stefáns kennara Stefánssonar, Anton Jónsson timburmeistari, Guðm. Guð- laugsson, sýslum. o. fl.. Símskeyti. Konungur vor kom með föruneyti sínu til Trangisvaag í Færeyjum á mið- vikudaginn. Var þar viðstaddur helm- ingur Suðureyjabúa. Færeyskir þjóð- dansar voru dansaðir fyrir konung, í landi. Allmörgum heldri mönnum var boðið til veizlu í konungsskipinu. Þaðan var haldið til Þórshafnar á fimtu- daginn. Herskipið »Hekla« slóst íför- ina með í Trangisvaag Lögsókn er hafin gegn 169 rússnensk- um þingmönnum í Pétursborg, er ritað hafa undir Viborgarávarpið. Gufuskipið Columbia frá San Frans- isco, hefir rekist á annað gufuskip og far- ist. 69 menn druknuðu, 144 var bjarg- að. Ráðskona húsmanns nokkurs í nánd Inn á öræfum íslands. Sprengisandsvegurinn. Eftir áskorun samverkamanna minna við vörður sprengisandsvegarins síðast- liðið sumar, hefi eg ætlað að minnast þess vegar og ferða okkar með nokkr- um orðum í einhverju dagblaði voru. Hefur það dregist alt til þessa. Bið eg þig Norðri minn að lána mér rúm fyrir fáar línur um nefnt efni, þó viðvanings- legar verði, því aldrei hefi eg stigið eitt spor á skriffinskubrautum blaðanna. Frá Mýri í Bárðardal að Skriðufelli í Þjórsárdal álíta kunnugir að vegalengd- in sé sem næst 28-30 mílur, eftir þeim vegi sem nú er búið að varða, er þetta þó að nokkru leyti ágizkun, því ekki hefir verið mælt með streng annað en það sem varðað var síðastl. sumar. En athugað hafa vörðuhleðslumennirnir á norðurhluta vegarins, vegalengdina, enda hefir verið farið með lest um leiðina, og þannig fengist full sennileg hug- mynd um alla vegalengdina. Eftir samningi við stjórnarráð Islands, lögðum við þrír á stað úr bygð, allir hér úr Bárðardal: Jón Þorkelsson frá Jarlstöðum þektur af ferðum um ^jdáða- hraun með Þorvaldi Thoroddsen, og fleiri fjallaferðum, og Jón Oddsson þekt- ur af ferðum með D. Bruun, og ýmsum fleiri, hefir hann farið oftar milli bygða Sprengisandsveg en nokkur annar nú- lifandi manna. Eru þeir nafnar rosknir og reyndir útilegu og fjallferðaforkar, en eg var sá þriðji, óvanur og ókunn- ugur. Ferðin var stofnuð til að varða þann fást í yerzluninni „ D í Ö N U “ undisthefur/?/7aMtos/:a flunkurný með skritnu i. Réttur eigandi vitji hennar til TryggVO. Árnasonar Norðurgötu 17 / bókaverzlun Guðm. Guðmundssonar er nýkonið: Snorra Edda og Þjóðvinafélagsbæk- urnar, sem áskrifendurnir eru vinsamleg- ast beðnir að vitja hið fyrsta. Til sölu Af sérstökum orsökum er til sölu íbúð- arhús á Oddeyri ásamt stóru pakkhúsi; — 2 kúa fjósi, 2 hesta hesthúsi c. 70 hesta heyhlöðu og 1344 [J álna lóð — Mjög ódýrt. — Vatnsleiðsla er í hús- inu bæði niðri og uppi á lofti. Borgunarskilmálar ótilfinnanlegir. Eng- in bein peningaútlát. Húsið gefur af sér í árlega leigu kr. 498,00 alt borg- aðípeningum mánaðarlega Pað borg- ar sig á fám árum. Ritstjóri þessa blaðs vísar á seljanda. við Holsterbro í Danmörku, hengdi þrjú börn sín og þrjú börn, er húsbóndi henn- átti og svo sjálfa sig á eftir. Stjórnarandstæðingar hafa flutt ínn á þingið frumvarp til stjórnarskrárbreyting- ar, um afnám ríkisráðsákvæðisins. Var það til umræðu í neðri deild á mið- vikudaginn. Var því andmælt af Guðl. sýslumanni Guðmundssyni og Lárusi sýslumanni Bjarnasyni. Umræðum frest- að. Nefnd: Guðl|Guðmundsson, Guðm. Björnssou Hannes Þorsteinsson, Pétur Jónsson, Einar Þórðarson og Jón í Múla. Sumarblíða í Reykjavík. Vegna konungskomunnar er alþingi frestað frá deginum í dag til 10. ágúst. Verzlun J. Gunnarssonar & fengið frábœrlega fallegan S. Jóhannessonar hefir rétt i þessu SKOFATNAÐ bœði karla og kvenna, en sem vissra ástæða vegna verð- ur fyrst um sinn seldur með innkaupsverði. KONUNGURINN er í nánd og þegar hann kemur hingað verða allir að ganga á nýjum skóm. 1

x

Norðri

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Norðri
https://timarit.is/publication/201

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.