Norðri - 05.10.1907, Side 2

Norðri - 05.10.1907, Side 2
178 NORÐRI. NR. 45 wm NORÐR/ M Gefinn út af hlutafélagi. Ritstjóri: Jón Stefánsson. Skrifstofa Hajnarstrœti 3. 'jjfl Prentsmiðja B. Jónssonar. M Samkomulag þjóða. Það gengur seigt og fast og gengur þó. Tvö dæmi frá þessu ári sýna það að samtök og félagsskapur, jafnvel hinna óskildustu þjóða er furðulega vel að fara í vöxt —stundum fyrir tilstilli stjórna og stjórnvitringa, stundum fyrir fylgi vísindamanna, og enn stundum fyrir framtak einstakra skörunga. P*annig héldu vinir hins nýja alsherj- ar tungumáls Esperanto fund með sér í Cambridge. mættu þar 13 hundruð Esperanta, Dr. Zamenhoff, pólskur mað- ur og höfundur tungunnar, stýrði þing- inu. Var þar hinn blíðasti félagsskapur milli hvítra, svartra, rauðra og gulra manna af fjarlægustu löndum, enda könn- uðust fæstir félaganna við söguna um turninn í Babel og óttuðust engar grýlur; svo glaðir voru þeir að geta skilið og talað hverir við aðra. Flestir voru ungir menn, er þar mættu, og sá yngsti 7 ára sveinn, málið þykir vera fyrirtaks uppfundur, mjúkt og snjait, en án allra óþarfa-beyginga og hefir engar óreglu- myndir. Á fáum vikum má nema það eftir góðum kenzlubókum. Það telur 3000 orð, en enskir menn og franskir skylja af þeim allan hávaðan eða um 2700 orð. Fær það og ótrúlega fljóta útbreiðslu, en nálega engin mótmæli. Annar fundur eða þing, sem miklu skiftir, stóð nú snemma í haust í Boston helstu mentaborg Bandaríkjanna. Pví þingi er jafnað við trúarþingið mikla í Chiáagó árið 1893. Hafa helstu skör- ungar Unitaraflokksins stofnað þá alþjóða samkomu, sem haldið er annað hvert ár, og er þetta 4. þingið. (hið 1, í Lundúnum 1901, 2. í Haga á Hollandi 3. í Gefn í hitteð fyrra). Safnast þá saman af ýmsum Iöndum helstu forvígis- menn hins kristna heims, flestir úr hin- um frjálsustu kirkjuflokkum. Er mark- mið þeirra: endurbót kristinnar trúar og siðmenningar fyrir alsherjar félagsskap og vakningu. En seint gengur þeim herrum að hefja til framskriðs hin miklu bákn ríkis og kreddukirknanna. Og »þó gengur hún,« sagði fræðimaðurinn Galilei. Hinar föstu og bundnu kirkjur kjósa þann kost að nefna ekki skollann — þessa frítrúarfundi, heldur freista að þegja þá í hel. Svo gerir lika blessað Nýja kirkjublaðið hjá oss —auðvitað þykjast menn vinna Guði og sannleik- anum »þægt verk« — nema að sú ástæð- an slæðist með, sú, að forða hjörðinni frá nýmælum, sem kynnu að tvístra henni og reka upp á eihhvern heiðin afrétt. Margt er að varast, og ekki síst áfergi fríhyggjumannanna. Og skrítið er eitt: rétttrúuð blöð geta mikið heldur um fundi manna, sem spotta alla, spilla og afneita. Frændur eru þar frændum verstir. ♦ * * Aftur gengur sárlega erfitt að kveða niður hið pólitíska og hagsmunálega sundurlyndi þjóðanna. Það sýna Haga þingin. tollmálasaga þjóðanna, svo og póstmál, að nokkru leyti, þótt stórt spor sé nú stigið í rétta átt; er það að þakka stórþjóðunum einkum Englendingum, sem geta látið »marginn« borga Penny- paper, pennystamps og pennyakitions (o: dagblöð fýrir 6-7 aura, frí merki, og heilt rit fyrir sama verð) er alt Eng- landi að þakka. Yfirleitt gengur eins erfitt að festa samtök og félagsskap milli þjóða í smá- munum. Pannig er varið um allherjar hitamæli; honum hefir enn ekki orðið komið á. Samt sem áður, hafa ýmsar þjóðir ekki látið þjóðdrambið Ieiða sig, heldur sýnt mikið frjálslyndi í að hafna einþykni og fylgja dæmi annara þannig hafa enskir menn Fahrenheits thermo- meter, eða hitamæli og var þó Fahrent Pjóðverji. Pjóðverjar nota Reaumurs- mæli, en R. var franskur, en Frakkar Celsiusar mælir, en sá var Svíi, en í Svíþjóð er sá mælir hafður, sem Eng- lingun'nn Leslie bjó til. Par sýna menn alsherjar frjálslyndi, en síður samtök. M.J. —>y<— Mannkærleiki. Maður er nefndur Skapti Sigvaldason. Hann er íslenskur bóndi í Ivanhoe, Minnesota. Hann er trúmaður mikill og mannvinur. Nú liggur hann á sjúkra- húsinu St. Paul vegna þess, að hann tók að sér að hjálpa manni til heilsu, er talinn var ólæknandi, en til þess varð hann að leggja 125 ferþumlunga af hörundi sínu í söiurnar, Tildrögin til mannúðarverks Skafta eru þessi: Fyrir 4 mánuðum skaðbrenda sænsk hjón sig í St Paul á alkóholi er kviknaði í af slysum. Konan dó af brunasárum, en maðurinn hefir legið á sjúkrahúsinu í St. Paul og eigi tekist að græða hann. Læknarnir á sjúkrahúsinu reyndu alt sem þeim kom til hugar við brunasár mannsins og þegar ekkert af því kom að haldi, var auglýst að mað- urinn væri ógræðandi nema einhver vild verða til að leggja hörund sitt fram til að græða með brunasárin, Skapti Sigvaldason sá auglýsinguna og ritaði þegar yfirlækni sjúkrahússins og spurðist fyrir um það hvort hann fengi aðgang að sjúkrahúsinu ókeypis ef hann tækist á hendur að bjarga manninum. Lækn irinn kvað já við því. Fór Skapti þá til sjúkrahússins og lét flá af hörundi sínu 125 ferþumlunga, til að bjarga manninum. Skurður þessi var mjög kvalafullur, en læknarnir töldu Skapta hafa borið þær þjáningar vel og karlmannlega. Mennirnir kváðu báðir á batavegi. Fregnir um þetta hafa verið í ýmsum Bandaríkjablöðum og ítarlegastar sem vér höfum séð, í Minneota Mascot, og er framanritað aðalútdráttur úr því, sem þar er sagt. Skapti hafði hvorki heyrt né séð sjúka manninn áður og því hjálpað honum af mannúðarhvötum einum. Slíkur mannkærleiki, sem eigi hikar við að leggja líf og blóð í sölurnar fyrir meðbræðurna, er svo fátíður að hann á það skilið að honum sé haldið á lofti, og það er sómi fyrir oss ís- lendinga, að hetja þessi skuli vera vorr- ar þjóðar. (Eftir »Lögbergi.«) Ljósmynd allstóra hafa Temlarar hér á Akureyri látið gjöra af dbrm. Frið- birni Steinssyni bóksala. Myndin var afhjúpuð í Templarahúsinu sunnudaginn 27. f. m. og voru þar viðstaddir flestir Temlarar bæjarins. Guðl. Guðmunds- son hélt þar snjalla ræðu um afskifti Friðbjarnar af bindindismálum og þakk- aði þau í nafni stúknanna; einnig var sungið kvæði eftir Pál Jónsson kennara sem ort var í nafni Templara og hljóð- ar svo: Er ofdrykkjunnar voðavöld hér voru' í hæsta gengi, þú greipst í hendur hjör og skjöld, til hildar kvaddir mengi, því löngun þér í brjósti branri vorn bæ og fólk að verja. Pú vaktir margan vaskan mann á vínsins lið að herja. En fremstur þú í fylking stóðst, þar frægð þér vanst og heiður og vaskur háan valköst hlóðst. Þá varð hann Bakkus reiður og fanst þú höggva furðu hvast, ér fram þú gekst til víga. Og loksins flótti’ í lið hans brast og lét þér undan síga. Nú Bakkus ætti að bregða sér á burt úr voru landi, því meginn herinn eyddur er þó eftir riðlar standi. Og bráðum dugur bilar hans og brestur eitur-vigur, en fögnuð vekur lýðs og lands hinn lengi þráði sigur. * * * Vor kæri bróðir, þökk sé þér unz þrýtur hinzti dagur. Og þess mun getið gert sem er, ei gleymist orðstýr fagur. Og skrifað bæði skal og rætt, þá skeið þíns lífs er runnið: «Hann Friðbjörn hefir fólkið bætt og fagurt dagsverk unnið.« „Bernskan“. Svo heitir dálit’ð safn af frásögum fyr- ir börn, eftir Sigurbjjm Sveinsson. Pó að sögur þessar kunni að virð- ast veigalitlar mörgu fullorðnu fólki, munu þær öðruvísi finnast þeim lesend- um, sem þær eru ætlaðar, en það eru börnin. Er og höfundurinn áður að góðu kunnur þeirri alþýðu hér á Akureyri, eimitt fyrir sögur sínar. Hefir hann ekki allfá kvöld boðið börnunum til sam- komu, hefir fengið húsfyllir og börnin skemt sér hið bezta. Eins mun reynast með þessar sögur, — og þótt eitt eða fleiri hefti fylgdu, — að börnin taka þeim fegins hendi. Pað hefir lengi verið sagt, að meiri vandi sé að semja góðar sögur fyrir börn, en það sé á hvers manns færi. Efnið má vera eins og vill: tilkomu- mikið eða um »Ieggog skel», um Ragna- rökkur, eða um röndóttan kálf, um tíu tröllskessureðatværhunangsflugur. Börn- in eru ekki tiltektasöm, sé þeim ein- ungis skemt og sé sögumaðurinn verki sínu vaxinn. En hver er því verki vax- inn? Sá einn, sem hefir ekki einungis mál og sál barnanna undir tungurótum sínum, heldur himin og jörð í hendi sér á líkan hátt og ímyndun barnanna hefir. Peirra veröld aðgreinir lítið smátt og stórt—eða réttara sagt: barnið Iætur það skifta hlutverkum: Kötturinn sigrar ljónið, narrar það til að gera sig að mús og etur það svo. Aftur kunna börn miklu fyr að greina fagurt frá ljótu, svo og að þekkja hið frábrugna og skrítna, hið dapra og hið hlægiiega, o. s. frv. Alt verður að vera sniðið eftir eðli og og þroska barnsaldursins. Sögumaður- inn verður að samþýða og bera í sér eins og þrjár persónur: barnið, barna- þekkjarann og listamanninn. Til þess að vera þetta þarf miklu minna af lær- dómsmentun en vissri gáfu eða köllun. Má vera að einn eiginleiki sé nógur til að leysa gátuna. Hverþá? Elska til barnanna og lotning, fyrir hinu unga manneðli, sem þar skín í sínu hreina skírnarklæði. Mörg konan,móðirín, amm- an, fóstran, niðursetan hefir kunnað bet- er að fara með barnasögur en margur háskólakennari. Gyðja listanna verður ekki Iokkuð eða glapin, og engin nær frá henni orði né augnaráði nema fyrir náð betri náð en nokkurs kóngs. —■ Að öllu leyti vil eg og þori að láta nefndar barnasögur mæla með sér sjálf- ar; þær eru ódýrar og vel prentaðar, og í stuttum formála hefir höfundurinn gert fulla grein fyrir tilgangi sínum og markmiði. Enginn þarf að óttast að í kverinu finnist klúrt orð eða nokkuð, sem ekki sé börnunum boðlegt. Að minni ætlan hefir höfundinum mæta vel tekist. (M. /.) Nýr stjórnmálaflokkur. Lesendur »Norðra« mun reka mun minni til þess að á Pingvallamóti «Þjóð- ræðis»- klikkunnar í sumar hafði verið samþykt að hún skyldi reyna að ausa sig vatni enn einu sinni og kalla sig «Sjálfstæðisflokk» Norðri gat þess um leið að hann gæti eigi gert sér í hugarlund að Landvarnarmenn væru með í þessari ráðagerð og kemur nú fram að það álit hefir verið á rökum bygt, því nú skýra Reykjavíkurþiöðin (Lögréttg og fieiri) frá því að „Þjóðrœðisliðar» og Landvarnarmenn, >séu skildir að borði og sæng» «Pjóðræðisliðar» höfðu sent menn á fund landvarnarmanna í haust um það bil er þingi var slitið til þess að fá vitn- eskjuum hvort félagsskapur þeirra mundi ekki standa framvegis sérstaklega er til kosninga kæmi. En «Landvarnarmenn voru stuttir í svari, vildu engu lofa — en öllu ráða ef samvinna ætti að tak- ast.»— Skruggan skall og yfir «þjóðræðis-« liða skömmu síðar. Landvarnarmenn gerðu það heyrum kunnugt að þeir hefðu kosið sér flokksstjórn og skipa hana: Bjarni Jónsson frá Vogi, Benedikt Sveinsson ritstjóri, Guðm. Hannesson héraðslæknir, Guðm. Magnússon læknaskólakeneari, Jón Jensson yfirdómari, Jens Pálsson prófastur, Jón Porkelsson skjalavörður. Lögrétta getur þess ennfremur að flogið hafi fyrir sú fregn að Björn Jóns- son ritstj.«ísafoldar» haft beiðst upptöku í landvarnarfélagið með allar «þjöðræðis- reiturnar. Perfect skilvindan stórum endurbætt. Hin nýja »Perfect« skilvinda með sjálf- jafnvægi, eða hið svonefnda »Knudsen Patent«, sem nú er verið að smíða í hinni nafnkendu verksmiðju Burmeister & Wains, hefir þegar sýnt að hún ber af öllum skilvindum sem sýndar hafa verið. Á sýningunni í Lemberg í Finnlandi í haust, fékk hún heiðursmerki. Dómurinn var bygður á fjölda mörg- um ransóknum sem dómnefndin stóð fyrir og varð útfallið svo gott, að það eru eins dæmi, og á hinum tólfta al- menna landbúnaðarfundi í Kristianiu fékk »Perfect» skilvindan einu gullmed- aliuna, sem úthlutað var fyrir skilvindur. «Alfa Laval» skilvindan dróg sig til baka eftir að dómnefndin var tekin til starfa þegar sú frétt flaug að «Perfect» var á sýningunni. Allar aðrar skilvindur yfir- leitt sem á sýningunni voru fengu ann- aðhvort lægri verðlaun, eða drógu sig til baka. Eins og kunnugt er hefir stórkaup- maður JakobGunnlaugssoní Kaupmanna- höfn einkasölu á «Perfect» skilvindunni til fslands og Færeyja. HöfuðbóliðPingeyri í Húnavatns- sýslu hefir Sturla kaupmaður Jónsson í Reykjavík keypt af Hermanni alþm. Jóns- synt fyrir 25 þúsund krónur. Um Hofteigsprestakall er staðið hefir óveitt síðan 1904 sækir nú Harald- ur Þórarinsson kand, theoi. frá Efrihól- um i Núpasveit

x

Norðri

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Norðri
https://timarit.is/publication/201

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.