Norðri - 28.01.1910, Síða 3

Norðri - 28.01.1910, Síða 3
NR. 4 NORDRI. 15 Hamingja og manngildi, segir Cesare Cantu, fer yfirleitt eftir góðleik og ó- eigingirni hvers manns, og eíns er var- ið hverju félagi eða þjóð. Jöfn velvild og þú tuðsýnir öðrum, fellur þér oft- ast í skaut. Náttúran «útvelur,» segirDarwín.þásem eru hæfastir, ekki einungis hina sterk- ustu og gáfuðustu, heldur líka eftir góðleikanum eða góðri breytni; og að það sem legst í kynið af góðleik og réttvísi, það verði varanlegast. Og þar á hann einkum við félagsand- a n n eða samheldnina. Petta sézt þegar af viðskiftasögu villiþjóðanna, enda tek- ur þar veraldarsagan við, svo við þurf- um ekki fleiri vitna við. Þar sem t. d. villumenn níðast á hrumum og hjálp- arvana og fyrir- koma þeim sér sjálfum eða flokki þeirra til léttis, þar er þeim glötunin vís. Slíkt hið sama sannast af sögu ein- stakra manna nú á dögum. Sá sem er ójafnaðarmaður á oftast nær skamt til falls, og líkt fer þeim, sem ekki lærir að kunna hóf sitt (eins og fornmenn sögðu), heldur létu munn og maga ráða. Enskur maður reiknar svo, að erfiðis- maður á þrítugsaldri megi óhætt telja sér 40 ár ólifuð, sé hann reglumaður, en vart fleiri en 15 ár, sé' hann drykk- jumaður. Ofdrykkju fylgir og, segir hann, allskonar heimilisólán, er síðan bitnar á börnunum í marga liði. Alt þetta kendi Darwín, og enn segir hann berum orð- um, að maðurinn sé orðinn herra jarð- arinnar, ekki fyrir vitsmunina eina, og því síður krafta sína og ytra atgerfi, heldur einkum fyrir það, að viss afbrygði í góðleiks og samhaldsáttina lögðust í kyn hans og urðu loks föst og eðli- leg, —Fyrst hófst heimilisfélagið, en síð- an ættkvíslii, sem kunnu metnaði sín- um hóf, en þærsem voru minstsangjarnar, urðu brátt öðrum að bráð. Um Abra- ham þekkjum vér sagnir Oyðinga, að hann var 'ninn mesti jafnaðarmaður við höfðingja annara ættflokka, svo var og ísak og hans sonur Jakob; en aðrir voru ójafnaðarmenn, svo sem hinir eldri syn- ir Jakobs, og fleiri, — En bezta sönnunina um kenningu Darwíns um siðgæði, réttvísi og inildi, eigum vér Islendingar í sögum forfeðra vorra. Flestir hinna betri landsnámsmannalögðu niður ribbaldarskapinn óðara en þeir höfðu^numið land, þótt áður væru þeir rauðir víkingar; má nefna þá menn tugum saman, en þess gerist ekki þörf, því hver unglingur þekkir dæmin. Með lögum skal land byggja, sögðu þeir all- ir og eftir því breyttu þeir og flestir. Darwínsfræðin niyndar framstig mikið og merkilegt í siðmenningarspeki þjóð- anna og bætir stórum, auk siðafræð- innar, mannkynsfræðina, sálarfræðina, félagsfræðina og mörg fleiri þekkingar- verkefni nútíðar og framtíðar. Ef til vill sá Darwín lengra og dýpra en nokkur annar vísindamaður hefur séð, hveskamt nær enn allsherjar þekking jafnvel hinna vitrustu þjóða. En enginn er alrýninn. Pessi mikli náttúruskoðari og hreinskilni sannleiksleitari kvaðst sjálfur lítið vita, heldur hafi sér einungis tekist að gefa, þeim sem viðtæki efttir sig, vissar bend- ingar og undirbúning til betri þekk- ingar hins ódæmandi úthafs, sem eftir væri að kanna. M. J. Til hákarlaveiða fóru fyrir skömmu 3 mótorbátar af Siglufirði. Fengu þeir um 10 tn, lifrar hver á 1 x/2 sólarhring. Bankamálið í dönskum blöðum. Ýms hin stærri blöð Kaupmannahafn- ar átelja aðfarir ráðherrans í bankamálinu. Símfréttir til Norðra. Rvik. 21. jan. Aðfaranótt þess 22. þ. m. brann hér stórt hús i Þingholtsstrœti til kaidra kola. Húsið var eign séra Larusar Ben- ediktssonar frá Selárdal og bjó hann i því. Þar bjó og Guðmundur skáld Magnússon, Blöndal áður kaupmaður á Akureyri. í húsinu var prentsmiðja Daviðs 0stlunds. Mjöglitlu varð bjarg- (ið úr þvi. Hús þetta var trygt á 18 þús. kr. Þar rétt hjá brann bœna- hús Östlunds, trygt á 4000 kr. Tvö næstu húsin urðu fyrir nokkrum skemd- um. farðskjálftans 22. þ. m. varð hér vart. Reykjanessvitinn skemdist (rijnaði all- mikið), þó hefir verið hægt að kveikja á honum. Látin er i K.höfn Emma Thomsen, fiœg leikkona. Álit bankaransóknarnefndarinnar kom út í gœr prentað, og er selt á 50 aura. Engar nýjar sakargiftir, er máli skifta, og sem ekki hafa heyrst áður, munu koma þar fram. Áliiið hefir á sér inn- leggssnið málafœrslumanna. Jarðskjálftar. Að morgni dags, 22. þ. m. klukkan nálægt því T'Þ fanst lítill jarðskjálfta- kippur hér á Akureyri, og þegar klukk- uua vantaði 10 mínútur í 8-kom annar kippur miklu meiri, svo hús skulfu mjög og brakaði í hverju tré, lagísinn á höfn- inni sprakk allur. Jarðhristingurinn stóð yfir óslitinn að minstakosti ’/s mínútu. Eldri mönnum ber satnan um, að jafn harður jarðskjálfti hafi ekki konrið í Ey- jafirði síðan 1872. Að öðru hverju um daginn (22.) fundust smákippir, og síð- asti kippurinn er menn urðu varir við kom 23. um kvöldið. Enga teljandi skaða gerði jarðskjálft- inn á Akureyri svo kunnugt sé. í Suð- ur-Ringeyjarsýslu virðist sem jarðskjálft- inn hafi verið harðari en hér. ís af ám og vötnum sprakk þar og einhverjar skemdir höfðu orðið á húsum á stöku stað, þó munu ekki mikil brögð að því. Jarðskjálftans mun hafa orðið vart um alt land. Barnadauði. Valtýr Brandsson skósmiður á Húsa- vík og kona hans hafa orðið fyrir þeirri sorg að nússa öll börn sfn þrjú úr kíg- hóstanum. Verðlag á nokkrum vörutegundum, sem hægt er að fá á Akureyri gegn borgun út í hönd. Rúgmjöl . . pundið á 10 au. Baunir . . . . — 15 — Bankabygg . . . — 12 — Gott hveiti (Alexandra) — 16 — Marin hafragrjón. . — 16 — Kaffe................ - 58 - Exportkaffe . . . —45 — Hvítur sykur í topp. eða kassa á 27 au. Kringlur . . . . —28 - Tvíbökur . . . . -40 - ísl. smjör . . . . -65 - TÓIg -35 - Saltað kindakjöt . . -23 - Saltað svínaflesk . . -50 - Þurkaður saltfiskur úrgangur . . . . -10 - Harður fiskur , . . — 15--20au. Rúgbrauð 4 pund . —42 au. Hænuegg stykkið , . . - 6 - Nýmjólk, potturinn . . -15 - Vera má að hægt sé að fá sumar þessar vörur með lægra verði sé mikið keypt, og tekur Norðri þakklátlega móti upplýsingum viðvíkjandi verðlagi í Ak- ureyrarbæ. Sjónleikur. Hér á leikhúsinu er verið að leika enskan sjónleik, sem snúið hefir verið á íslenzku. Efnið í honum er tekið úr sögum Conan Doyl um spæjaránn Sher- lock Holmes, sem nokkrum hefir verið snúið á íslenzku, og margir kann- ast við. Holmes er aðalpersónan í leikn- um, og hefir tekist á hendurfyrir ensk- an aðalsmann, að ná skjölum af ungfrú einni, sem reið hafði verið við aðals- manninn fyrir heitorðarof við systur sína, og ætlaði að birta skjölin til hefnda við hann, þegar honum kæmi verst. Holmes finnur stúlkuna í klóm á mis- indishjónum, sem vilja ná frá henni skjö'.unum til þess að kúga með þeim fé út úr aðalsmanninum. Regar hjón- in vita, að Holmes er kominn í spilið og ætlar sér að ná skjölunum, og um leið að hjálpa stúlkunni frá þeim, og Herbergi til leigu fyrir einhleypa menn. Ritstjóri vísar á. Ef nokkrir af kaupendum eða útsölumönnum Norðra hafa fengið 1. tölublað þessa árs ofsent eða tvísent, eru þeir vinsamlega beðn- ir að láta ritstjórann vita það sem allra fyrst. sjá að hann býður þeim byrginn, leita þau fulltingis hjá alræmdum glæpa- mannaforingja sem lögreglan hafði aldrei getað haft hendur í hári á, og biðja hann að vinna á spæjaranum. Hann er fús til þess, því honum var farið að standa beigur af þessum nafn- kunna uppljóstrarmanni. Beitast þeir Síðan brögðum, foringinn og spæjarinn. en endirinn verður sá, að Holmes tek- ur foringjann fastan og hjónin, sem höfðu stúlkuna í haldi; en ungfrúin af- hendir honum skjölin sjálfviljug, því hann fær hana til að halda, að hún með því bjargi honum úr klípum,sem hann hafi komist í fyrir það göfuglyndi, að vera eigi búinn að stela skjölunum,^ sem hann átti kost á. Leikur þessi er í 5 þáttum og gengur töluvert á í honum. Eftir kringumstæð- um er hann freinur vel leikinn og æfð- ur, en lærdómsríkur er hann ekki. Hann hefir verið sóttur fram yfir vonir í því peningaleysi og harðæri, sem nú er á Akureyri. Líndalsmálið. í síðasta tölublaði Norðra segir E. S. að eg hafi orðið að slá af skýrslu þeirri, er eg gaf ritstj.Norðurl. í því máli, áð- ur en eg staðfesti hana, — þetta er ósatt. — Eg sagði þar ekki annað en það sem satt var, og eg vel gat stað- ið við, enda staðfesti eg skýrsluna orð- rétta fyrír rétti, eins og hún kom út í blaðinu. — Þessa leiðrétting bið eg yð- ur, herra ritstjóri, að birta í næstkom- andi tölublaði Norðra. Ragnar Ólafsson. 192 «Þú hefir náttúrlega líka heyrt ilt um okkur, ung- frú Thorsen og mig; en ef fólk er eitthvað saman þá á það ætíð að — en það er bara slúður — eins og þú getur nærri. —« Törres fór til að ljúka upp. Anton Jessen sat eftir — í þungu skapi. Hann vissi, að Törres var að Ijúga, laug beint upp í opið geðið á honum. En hvers vegna gat hann Joá ekki barið í borðið og sagt: «Þú lýgur!« Hvers vegna fann hann strax til þess, að hann yrði að beyg- ja sig? leika með þann skrýpaleik, láta sem hann tryði, af því þessi lygari var svo sterkur og ósvíf- inn. Hvers vegna hafði hann aldrei þrek til að gera það sem hann óskaði? Törres kom aptur þegar hann var búinn að af- greiða gestinn og sagði um leið: «Hvað var það nú sem við vorum að tala um ? — já — þú ætlaðir að fara að gipta þig: Já! það er það eina skynsamlega, þegar maður hefir sína eigin ver7lun.« Öll þessi uppörfunarorð voru heldur mikið fyr- ir herra Anlon Jessen; hinn óljósi grunur um list- gáfu, sem tnundi þá og þegar koma í ljós, og svo nú alt þetta, sem knúði hann áfram til að eignast fína verzlun — uppfylling vona hans hvað ungfrú 189 Samkeppnin milli beggja nábúa verzlananna varð altaf meiri og meiri, reyndar ennþá með vináttu yf- irskini. Törres hélt sér til Jessens, og bauð honum heim eins og aldrei hefði neitt í skorist, og eitt kvöld mættu þau bæði í ofurlitlu kvöldboði hjá Törres Wold, herra Jessen og ungfrú Thorsen. Nú var framkoma hans orðin svo fjörug og viss, að fólk hafði varla tíma til að átta sig, og áður en þau vissu af, var húsbóndinn hlæjandi búinn að demba þeim í sæti hvoru við hliðina á öðru við borðið. Hún var fyrir löngu hætt að vona að Törres mundi nokkurn tíma snúa aftur til hennar; en fann þó til þess að hún var eingöngu á hans valdi, en þegar hún varð þess vör, að það var meining hans að koma þeim saman aftur, herra Jessen og henni. fanst henni það ómögulegt, hún ætlaði að segja hon- um það — næsta dag. En það var árangurslaust þó ungfrú Thorsen herti upp hugann næsta dag og fleiri daga, hann las það út úr henni yfir hverju hún bjó, og fór undan f flæmingi, og setti hana þar sem honum þóknaðist. Það voru hræðilegir tímar fyrir hana, þegar herra Jessen byrjaði aftur að sækjast eftir henni, óviss og ákafur; — hann hlaut því að vita! — auðvitað ;

x

Norðri

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Norðri
https://timarit.is/publication/201

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.