Norðri - 13.09.1910, Side 1

Norðri - 13.09.1910, Side 1
V. 34. Akureyri, þriðjudaginn 13. september, 1910. Til minnis. Bæjarfógetaskrifstofan opin kl. 10—2, 4—6 Bæjarsjóður, Lækjargötu 2, mánud. mið- vikud. og laugardaga kl. 4—6 Kitsímastöðin virka daga 8 f. h. til 9 e. h. helga daga 8—11 og 4—6 Bókasafnið, þriðjud.. fimtud. og laugard 5—8. Sunnudögum 10—11 og 4—8 l’ósthúsið hvern virkan dag 9—2 og 4—7 helgid. 10—llf.h. Utbú Islandsbanka 11--2 Utbú Landsbankans 11—2 Stúkan Akureyri fundard. þriðjud.kv.kl. 8. Brynja miðvikudagskvöld kl. 8. Isafoíd Fjallkonan sunnudagskv. kl. 4. Trúföst mánudagskv. kl. 8. Alþjóðaþingið í Berlin. Það var haldið fyrri hluta ágústmán. af klerkum og guðfræðingum frá yms- um löndum og heimsálfum. Eru þess- konar trúarbragðaþing kristinna þjóða afarmerkileg og þýðingarmikil á vorum dögum, enda mæta nálega ávalt á þeim málþingum valdir spekingar og trúboð- ar frá flestum kristnum löndum, og líka frá Japan, Kína, Indlandi, frá Tyrkjum . og Gyðingum — hvar sem trúarmál Og hugsunarfrelsi er á dagskrá. Trúarþing það, sem nú var haldið í Berlin er hið 5. síns eðlis; hefir það verið haldið annaðhvert ár síðan hið 1. var stofnað árið 1900 af Únítörum og öðrum frjálslyndum kristnum trúarflokk- um; hafa fundirnir verið haldnir hinn 1. í Lundúnum, 2. í Amsterdam 3. í Gefn, 4. í Bostton í Am., og þessi í Berlin, undir forsæti Þjóðverja. Aldrei hafa fleiri kristnir flokkar sent fulltrúa en í þetta sinn, svo eykst álit hins kristna heims á þessu fyrirtæki, enda taka þar til máls nokkrir af mælskustu og lærð- ustu prófessorum og prelátum heims- ins. Guðfræðingar Pjóðverja réðu mestu á þessu þingi, en hið mesta bróðern- hélzt á hverri samkomu, og var gest- unum sýnd öll hugsanleg virðing og gestrisni. Ekki lét Páfinn sín viðgetið, og enginn légáti mætti í nafni þeirra þjóða, er hann kallast eiga öll ráð yfir. En flestir málsmetandi flokkar mótmæl- enda, eins ríkiskirkna sem fríkirkna áttu þar formælendur. Næst stærstur fundur var sá, er hald- inn var í Boston; 1907 þar mættu 240 fulltrúar af 16 þjóðlöndum og nærfelt frá 100 trúardeildum (eða flokkum og félagsskap.) Aðalstefnuskrá þessara funda er þessi: «Að sameina til bróðurlegrar samvinnu alla, sem efla vilja sanna guðrækni, upp- lýsing, trúarfrelsi og umburðarlyndi til siðbóta og samkomulags öllum þjóð- uin.» Hinsvegar skal ekki deila um sér- kreddur manna, né aðra þá hluti, er ekki miða til allsherjar samlyndis, það, sem sameinar skal ávalt ráða meira en það sem sundurdreifir. — Á skipi, sem flutti til Englands frá Ameriku hátt á annað hundrað hluttak- endur á þessu Berlinar þingi, voru fé- Iagar fráeftirfylgjandi trúardeildum: Ún- itörum, Únisversalistum,Kvekurum, þýzk- um Evangelistum, Kristnum (Christians), Baptizkum, Biskupakirkjumönnum, Met- hódiskum, Katólskum ogfélögum «Krist- inna vísinda.» «Voru þeir allir í góð- um hug hverir til annara á leiðinni, skemdu sér og léku eins og börn á milli þess er þeir heldu andríkar sam- komur á skipinu.» «Og er hæst stóð einhver skemtunin kom hópur af utig- um sveinum upp úr «lestinni« til að hlýða á. Það voru fátækir skólasveinar, er keypt höfðu sér far til Englands með því að hirða nokkur hundruð nautgripi niðri í fkipinu, er áttu lífsnauðsynlegt erindi til slátraranna í Liverpool.. Dr. Karl Schrader í Berlin var for- seti þingsins og talaði fyrstur. Meðal annars sagði hann: «Tilgangur þingsins er sá að efla frelsi í trúarefnum, svo trú manna megi verða djúp og hrein- skilin. Frelsið verða menn að sjá að sé ómissandi eins og skilyrði þess að hin- ar ýmsu kirkjudeildir læri að viður- kenna hvor aðra og halda friði sín á milli úr því jafnræði væri fengið. Hins- vegar væri óhjákvæmilegt að flokka greindi á, en þá þarf að gæta allsumburð- arlyndis. «F*ar næst tók hann fram að allir rnestu menn hjá hverri þjóð hefði lengi verið vinir trúar- og samvizku- frelsis. Hann hvað og slíka allsherjar- fundi síður en ekki vinria fyrir gíg þótt sumir teldu þá ópraktíska, nú væru sjaldan góð Og sönn orð töluð í heyr- enda hljóði, svo að ekki bærust þau víða og féllu í góðan akur. Hér væri og saman komnir nokkrir málsnjöllustu menn úr heimsins helztu löndum. Tvo ræðumenn verður að nefna og báða þýzka. Annar var Carljatho prest- ur í Köln, en hinn G. Traub prestur frá Vestfal. Jathó vakti mikla unun og æsing í fundarsalnum með afli áhuga síns og mælsku. Meðal annars dró hann upp ímynd framtíðarinnar — þegar menn eru vaknaðir frá draumum vorra tíma heimsku og hleypidóma. Hugtakið trúarvillu (sagði hann) skilja þó fáir lengur — svo langt er komið. Traub talaði með meiri stillingu, en fult eins góður rómur var gerður að hans tölu um það er henni lauk. Hann talaði mest um vandræðin, sem þar í landi stöfuðu af sambandi ríkis og kirkju; það sambandi svæfir alt fjör í fæðing- unni og allir mætast í miðju trogi uns alt étur hvað annað nýtt og gamalt. Trú og pólitík eiga, hvað hann, því síður samleið, sem hin síðarnefnda hefur á- valt orðið bani hinnar. Brott þú, póli- tík úr trúarmálunum! F>au eiga að lifa í frelsi svo þau ávinni sér hita og hrein- skilni.” Hann sagði að trú prótestanda yrði að gera eitt af tvennu: lifa fyrir per- sónulega sannfæring, eða deyja ella! «Vér þolum ekki lengur þá, sem setja boð og bönn ofar en lífi (c: breytni), og rétttrúan ofar en guðrækni. Hinn nafnfrægi Harnack professor hélt tölu um textan: «Jesús eða Krist- ur,« hið niikla mál, sem stendur á dag- skrá allra protentanta. Hann fór hóvær- lega með það mál, og tala sú sefar margrá ofstopa. Hann færði full drög til að þetta tvískifta guðspjall væri, ef vel væri athugað, jafn gamalt kristinni. Að vísu hefði hinn mikli mótsetninga-post- uli og trúarofurhugi’ Páll, stórum eflt og aukið kristfræðina. En evangeliið var aldrei einungis orð Jesús: Rætur kenningarinnar um frelsið fy rir h a n n finnist i öllum guðspjöllunum, svo og kenningarinnar um veru sjálfs hans, sending hans frá guði og samveru við föðurinn; rætur alls þessa hafa verið til á undan köllun Páls. Að lokum tók Prófes- sorinn fram, að hversu fast sem menn heldu fram manneðli Jesú Krist og af- neituðu hinni fornu kenningu um t v í- e ð I i hans, þó skuli menn trúa því eins fastlega sem áður sem staðhöfn, að Guð hafi sent Jesú og gert hann Krist og drottinn fyrir mannkynið, og að trúin á hann hafi ávalt skapað guðs- börn. — Hin danska dama MaríaWesten- holtz mætti ásamt fleirum öðrum á fundinum fyrir Norðurlönd. Hélt hún þar fagra tölu sem vakti töluverða eft- irtekt. (Frk. M. W. er auðug og ætt- stór, framúrskarandi frjálslynd og áræð- in, mælsk og skapmikil, enda var það hún, sem greip þingbjölluna forðum úr hendi forseta danska Ríkisþingsins meðan hún lét dæluna gangafyrir herr- unum í þinginu. Geri aðrar betur! M. /. Samsæti höfðu um 100 sóknarmenn síra Ein- ars Jónssonar á Kirkjubæ 31. júlí s. I. til að kveðja prófast, sem flytur nú að Desjarmýri í Borgarfirði. F*ar var flutt eftirfylgandi kveðj uá va r p. Mikið fyrir skildi skarð. skeði Tungubúa. Á miðju sumri myrkur varð, þeir mistu vininn trúa. Seint og snemma, sí og æ, á sorga- og gleði-stundu, komu þeir «heim að Kirkjubæ» og kæra vininn fundu. Öllum bætti á einhvern hátt, ekkert til þess sparði. Héðan fór því hjartað kátt, hryggt er bar að garði. Glaður hann með glöðum var, grét, er slysið skeði Fyrstur gekk til fagnaðar, fyrstur að dánarbeði. Margra græddi’ ’ann meinin vönd, margra tár hann þerrði; aldrei vissi hægri hönd hvað sú vinstri gerði. Hrós og lofgjörð hræsnarans heyra aldrei vildi; en þagnarorðin ómálgans öl! hann þekti’ og skyldi. Farðu góði vinur vel, verðlaun dyggða hljóttu, þig eg drottins forsjón fel, fagrar elli njóttu. J. St. Scheving. Par sem eg sökum anna og ferða- laga í haust, og fyrrihluta vetrar, get eigi að öllu leyti séð um ritstjórn Norðra set eg eigi nafn mitt á blaðið sem ritstjóri þótt eg sjái um eða láti sjá um útgáfu þess, og sé ábyrgðar- maður gagnvart prentfrelsislögunum. Ritgerðir og auglýsingar í blaðið eru menn beðnir að senda til prentsmiðju minnar á Oddeyri, eins og hingað til. Akureyri, 10. september 1910. Björn Jónsson. Sfld til marmeldis. Nú til nokkurrar ára h;fir eigi síld- arveiði í hringnætur úti á hafi og í fjarðarminnunum brugðist fyrir Norður- landi. Auk þess hefir eigi svo lítið veiðst af síld í lagnet á Eyjafirði á haustum. Herpinótasíldin, einkum þegar mikið veiðist, er oftast í lágu verði, svo lágu að skip hætta opt að veiða hana þeg- ar kemur fram í september. Á haustin er síldin því oftast ódýr á Aktireyri og Siglufirði þar sem mest berst á land. Niðursaltaða og vel verk- aða síld mun oftast mega fá fyrir 12 kr. hér með tunnu, ef töluvert væri keypt í einu. I tunnunni er um 180 pd. Tunnuna má reikna á 2 kr. og yrði þá síldin tæplega 6 aura pd. Fyrir fólk í köldu löndunum er síld- in álitin holl og hentug fæða með brauði og kartöplum, og þeir sem ven- ja sig á að eta hana vilja ógjarna án hennar vera. Norðmönnum, Svfum og Rússum þykir hún ómissandi. íslendingar ættu að venja sig á að eta miklu meiri síld en þeirgera. Tvær tunnur af síld til heimilisins á ári er eigi ofmikið fyrir meðal fjölskyldu. All- ir bændur á Norðurlandi ættu að kaupa síld til búa sinna þegar hún fæst með góðu verði. Heilir hreppar ætu að legg- ja saman og panta hana hjá útgerðar- mönnunum þegar verðið er lágt. En kaupa þá eigi nema góða vöru og láta hirða hana vel. Síld er sú vara sem skemmist fljótt, ef hún er illa hirt, en ef séð er um að halda stöðugt á henni nægilega sterk- um saltlegi má geyma hana lengi, eitt ár að minsta kosti. Pess skyldu og bændur krefjast að síldin sé óskemd og átulaus þegar hún er söltuð niður. Pótt haus og slóg gangi úr síld þeirri sem höfð er til manneld- is er það eigi verðlaust þar sem skepn- um má gefa það. Bændur sim árlega hafa lagt síld til búa sinna láta vel yfir; og segjast nota hana hráa, einnig útvatnaða og þá soðna eða reykta. I haust er útlit til að síld verði ódýr á Akureyri. Bændur ættu því að byrgja sig nokkuð af þessari vöru og sömu- leiðis þurrabúðarfólkið í kauptúnum og sjóþorpum.

x

Norðri

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Norðri
https://timarit.is/publication/201

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.