Norðurland


Norðurland - 01.10.1901, Blaðsíða 2

Norðurland - 01.10.1901, Blaðsíða 2
<1*—»— Norðurland eitt. Eg hefi átt því láni að fagna að vera um nokk- ur ár riðinn við það blað, sem vafalaust er langvíðast lesið hér á iandi, og eg geri mér góðar vonir um, að íslenzkir blaðales- endur muni ekki snúa við mér bakinu fyrir það eitt, að eg fer nú að fást við annað blað. Skoðanir mínar á helztu málum þjóðarinn- ar eru mönnum kunnar. Eg er sannfærður um, að það stjórnar- fyrirkomulag, er vér nú höfum, stendur oss stórlega fyrir þrifum; þessvegna vil eg vinna að því af öllum mætti, að þar geti breyt- ing á orðið til hins betra. Eg hefi svo mikla trú á gæðum þessa lands, er svo sannfærður um, að hér getur þjóðinni liðið vel, ef rétt er á haldið, að mér blæðir í augum, hve lítið atvinnumálum vorum er sint; eg vil því leggja hið ítrasta kaþþ á, að þar verði bót á ráðin, meðal annars á þann hátt, að þjóðinni verði aflað nægra peninga til að reka atvinnugrein- ar sínar. Og egveit að þessi þjóð er svo vel gefin, að öll viðleitni við að auka mentun hennar mundi bera ríkulega ávexti; þess vegna vil eg einskis láta ófreistað til þess að mentamálum hennar verði komið í langtum betra horf en að unda.iförnu. í NORÐURLANDI verða því að sjálfsögðu rædd mál þjóðar- innar allrar. Fyrir því geri eg mér von uin, að það eigi erindi út fyrir Norðuriand. Ekki geri eg mér neina von um, að allir lesendur mínir verði mér sam- dóma í öllum greinum. því láni á enginn sá að fagna, sern hefir ákveðnar skoðanir á mörgum mál- um. En hins vænti eg fastlega, að lesendur NORÐURLANDS sýni þann þroska.og það frjáls- lyndi, að íhuga hvert mál, sem þar er rætt með rökum og still- ingu, Ieiti við að meta vandlega þær ástæður, sem fram verða færð- ar, og láti sannfærast, ef þeim þykja ástæðurnar veigamiklar og sannfærandi. Jafnframt skal þess getið, að öllum landsmálaskoðun- um, sem sæmilega er gerð grein fyrir, er heimilt að halda fram í blaðinu, að svo miklu leyti, sem rúm leyfir. En vitaskuld verður þeim andmælt, svo framarlega, sem eg sé sannfærður um, að þær séu rangar. En hvað sem ágreiningsmálun- um líður, vona eg að þau mál verði svo mörg, er allur þorri skynsamra manna geti unnið að í bróðurlegri samvinnu við blað- ið og tekið umræðum um þau með ánægju, að tilveruréttur NORÐURLANDS verði ekki vé- fengdur. Deilurnar eru að verða svo miklar hér á landi, að öll þörf er á þvf, að vér gerum oss það sem ljósast, að það eru ógrynnin öll, sem vér erum í raun og veru sammála um, verðum ráðnir í að hafa það jafnan hugfast, að þó að baráttan sé óhjákvæmileg, þá er þó samvinnan margfalt dýr- mætari. Geti NORÐURLAND orðið til þess að halda þeirri hugs- un betur vakandi, en hún nú virðist vera, þá á það sannarlega erindi til þjóðarinnar. Og á það vill hið nýja blað leggja alla þá stund, sem það hefir vit á. Eg hygg ekki, að neinn veru- legur ágreiningur sé um það, að brýn þörf sé á því, að nýtt blað sé stofnað hér á Norðurlandi. Að minsta kosti hafa allir, sem eg hefi átt tal við, lokið upp einum munni um það. Hitt er vitanlega miklu meira álitamál, hvort for- göngumenn fyrirtækisins hafa val- ið rétt, þegar þeir kusu mig til að koma þessu í framkvæmd, hvort eg reynist maður til að fullnægja viðunanlega þörfinni, sem hér er um að tefla, og koma hér upp góðu blaði. Viljann hefi eg áreiðanlega, hvað sem öðrum hæfileikum líður, sem til þess þarf. Um þá verður reynslan að dæma. Eitt er vfst að mig skortir mikil- lega sem stendur: þekkingu á sér- málum Norðurlands. Fyrir þá sök sérstaklega bið eggóðviljaðamenn að sýna mér þolinmæði og lang- lundargeð. Sú þekking vona eg að komi smátt og smátt við dvöl mína hér og kynningu við menn. Svo hefi eg fengið loforð um gréinar í blaðið frá nokkurum af helztu mönnum norðanlands og mun gera mér far um að afla blað- inu slíkrar aðstoðar frá sem flest- um. Á þann hátt geri eg mér í hugarlund að bætt verði úr þess- ari vanþekking minni. Að svo mæltu fel eg NORÐ- URLAND góðvild allra góðra manna. Til þess er stofnað í því skyni, að það geti orðið til gagns. Með þeim skilningi vona eg, að því verði tekið. Einar tíjörleifsson. r Síldin. Landburður. Sfórgróði. »Nú er björgulegt á Akureyri,« segja menn hver við annan, þegar þeir hittast. Og það er engin furða, þegar síldin er komin, eins og hún væri hamslaus eftir að ganga í greipar mannanna. Síldarlaust hefir verið að kalla í sumar, nema utarlega á firðinum. Lehmkuls-félagið á Litlaskógssandi hafði fengið rúmar 500 tunnur að sumrinu. Aðrir víst ekki aflað svo teljandi sé. Svo fékk 0sten Johnsen lítið síldarkast fyrir utan Krossanesbót- ina 10. sept. Eftir það fór hennar að verða vart smátt og smátt. Sami maður fekk að kvöldi þ. 11. og að morgni þ. 12. sept. smá köst, 30—60 tunnur. En 14. sept. byrjar veiðin svo um munar. Vikuna þar á eftir, 15 — 21. sept. reglulegur landburð- ur af síld, bæði í stórar nætur og lagnet, fyrir innan Svalbarðseyri að austan og Bjarg að vestan, þar fyr- ir utan er veiðin lítil eða engin í firðinum. Þessa viku er gizkað á af mönnum, sem eru mjög gætnir og hóglegir í öllum sínum ágizk- unum, að lokað hafi verið inni í stórar nætur, vörpur, sem eru eign hinna meiri útgerðamanna, alt að 10,000 tunnum af síld. Lagneta- síldin, sem yfirleitt er veiði almenn- ings, nam þessa viku að minsta kosti 2500—3000 tunnum. Síldin er upp og niður afbragðs »millisíld« og smá »millisíld«. Að hér sé ekki um neitt smá- ræði að tefla, má sjá á þvf, að gert er ráð fyrir 10 kr. ágóða að minsta kosti á hverri tunnu, eftir fregnum frá útlöndum. Þessi um- getna vika hefir því fært mönnum slíkt stórfé, að ekki þarf sérlega margar slíkar vikur til þess að margfalda fjármagnið hér í bænum og grendinni. Fram að 19. sept. keyptu kaup- menn síldartunnuna fyrir 8 kr. í peningum og 10 kr. í vörum. Þá fór að verða fyrirsjáanlegur skort- ur á tunnum og síldarverðið fór þá ofan f 4—6 kr. Við það kom kurr mikill í alþýðu manna. Ein- stöku menn mintust jafnvel á það, að ef þetta hefði verið í fornöld, mundu menn ekki hafa unað slíku rang- læti. En við nákvæmari íhugun munu allir hafa áttað sig á því, að verðlækkunin var eðlileg, eins og ástatt var. Áhrif sfldargöngunnar á vinnu þá, er bæjarmenn höfðu með hönd- um, voru auðsæ. Fólkið varð ekki hamið í annari lausavinnu, sem ekki var heldur von. Allir þurftu að fara að leggja net eða afla sér þeirra. En þegar svo síldin fór að falla í verði, varð alt spaklátara. Aðalvinn- an í bænum hefir þó síldarvinnan verið allan síðara hlut mánaðarins, starfið við að taka sfldina upp úr lásunum, bera hana upp úr bátun- um, kverka hana, salta hana, slá til tunnur og pækla þær. Einkum hefir kvenfólk mikla atvinnu af síld- inni. Tvær stúlkur salta í 15 — 20 tunnur á 10—12 klukkustundum, og fá í daglaun kr. 3,50—4,50, en meira, ef þær vinna lengur, eða fá meiru afkastað. Mesta veiði hafa þessir fengið: Herlufsens fjelagið í Krossanes- bótinni um 1300 tunnur. Friðriks Kristjánssonar-félagið um 1000 tunnur. Wathnes-fjelagið og Jóns Norð- manns - félagið um 4000 tunnur í sameiningu. Eggert Laxdal 1 500-2000 tunnur. Bergsteins-félagið um 1200 tunnur. Túlinfus um 1600 tunnur. Kolkrabbanum ur þökkuð þessi mikla blessun, fullyrt, að fyrst hafi hann rekið síldina utan af firðinum og hingað inn á Akureyrarhöfn, og svo aftur upp að landinu beggja vegna. Annars er þetta óvenjulegur feng- ur um þetta leyti árs. Síldin veið- ist stundum í lagnet alt sumarið; en venjulega fer hún ekki að veið- ast í vörpur fyr en í september- mánaðarlok eða þegar komið er fram í október. r

x

Norðurland

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Norðurland
https://timarit.is/publication/203

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.