Norðurland


Norðurland - 01.10.1901, Blaðsíða 3

Norðurland - 01.10.1901, Blaðsíða 3
3 — Sfjórnarmál vorf í Kaupmannahöfn. Á fréttum af því er mjög Htið að græða enn, sem vonlegt er. Sá skilningur hefir komist inn hjá sumum mönnum hér, sumpart út af fregnmiða, sem sendur hefir verið um bæinn, sumpart út af lausafréttum um erindislok hr. Hann- esar Hafsteins í Kaupmannahöfn, að vér eigum vísa von á alinn- lendri stjórn hjá hinu nýja ráða- neyti. Því miður er það misskilningur. Vér segjum ekkert um það, hvern- ig fara kann. Engum mundi það verða meira fagnaðarefni en »Norð- urlandi*, ef vér fengjum þær frétt- ir innan skamms, að oss standi al- innlend stjórn til boða, ekki sfzt ef þjóðip reyndist þá fær um að taka slíkum fregnum með stillingu og viturleik og það vandamál, sem þá væri fyrir höndum, yrði rætt með gætni og æsingaleysi. En engu erum vér bættari, þó að vér tökum óáreiðanleg fagnað- artíðindi trúanleg. Og sannleikur- inn í þessu máli er sá, að þegar »Ceres« fór frá Kaupmannahöfn síðast, var stjórnin allsendis óráðin í því, hvern veg hún tæki í stjórn- arskrármálið. Þetta, sem nú hefir verið sagt, er fullkomlega áreiðanlegt. Vér höfum það meðal annars frá uákunnugam manni, sem jafnan hefir verið talinn andstæðingur dr. Valtýs Guðmunds- sonar í stjórnarskrármálinu. Enginn ráðgjafanna hafði veru- lega um málið hugsað, eftir því, sem þeir sögðu sjálfir. Einn þeirra virtist telja frumvarp það, er sam- þykt var f sumar, sérstaklega vel til þess fallið að ná staðfestingu. Annar virtist helzt hallast að því, að vér fengjum ráðgjafa, sem bú- settur væri á íslandi, ætti sæti f ríkisráðinu og fengi laun sín úr landssjóði, meðal annars vegna þess, að það yrði kostnaðarminna fyrir Dani en fyrirkomulagið, sem sam- þykt var í sumar; tíumannafrum- varpið vildi hann þó ekki, engan íslands-ráðgjafa í Kaupmannahöfn, en eftirlit þar af dönsku stjórnar- innar hálfu með einhverju, ótil- teknu fyrirkomulagi. Fyrir þriðja ráðgjafanum virtist vaka að lofa ís- lendingum sjálfum að ráða stjórn- arfyrirkomulagi sínu með öllu, án þess hann hefði neitt gert sér ljóst um það, hvernig því mundi verða haganlegast fyrir komið. En þeir ráðgjafarnir, sem mest er undir komið, forsætisráðgjafinn og íslandsráðgjafinn, hafa enn ekki tjáð sig við þvf búna, að láta uppi neina skoðun á málinu. Alt er því enn í sömu óvissunni og áður. Frá öðrum löndum. Forsetamorðið f Bandaríkjunum var auðvitað aðalumtalsefni blað- anna, þegar síðast frjettist. Forsetinn, Mrc Kinley, var 6. sept. staddur í Buffalo í New York- ríkinu og var að veita mönnum við- töku, hverjum er koma vildi, eins og siður er Bandaríkjaforsetanna. Meðal annarra kom inn til hans maður, sem rétti honum aðra hönd- ina en skaut hann með hinni tveim skotum, öðru f brjóstið, hinu í kvið- inn. Forsetinn lifði rúma viku við mikil harmkvæli og lézt svo að- faranótt hins 14. sept. Morðinginn laug fyrst til nafns síns, en heitir Czolgosz, er af pólsk- um ættum, en fæddur í Ameríku. Hann segist vera'anarkisti og skoð- anabræður hans hafa tekið glæpn- um tveim höndum. Ósannað var, þegar fréttist, hverjir höfðu verið í vitorði með honum, en margir grun- aði. og teknir fastir. Ríkur grunur er á þvf, að stúlka nokkur, anar- kistarithöfundur, Emtna Ooldmann að nafni, hafi fremur öðrum lagt á ráðin. Hún hefir verið handsömuð. Morðinginn er geymdur niðri f kjallara í fangelsi í Buffalo. Ofan- jarðar þykir ekki óhætt að hafa hann, því að lýðinn langar til að ná í hann. Mac Kinley var fæddur 1844 í Ohio og hefir átt mikinn þátt í stjórnmálum Bardarfkjanna. Forseti varð hann 1896 og endurkosinn 1900. Tollverndarmaður var hann ákafur. Með honum hefst og ný stefna f stjórnarmálum Bandaríkj- anna, sú, að vinna önnur lönd. Á stjórnarárum hans bættust Banda- ríkjunum fyrst Sandvíkureyjarnar, 1898, og svo Kuba, Puortorico og Filippseyjar, eftir ófriðinn við Spán- verja sama ár. Hann vildi leggja kapp á að engilsaxnesku þjóðirn- ar væru í sem nánastri samvinnu og ráða sem mestu f veröldinni. Fyrir því voru Englendingar orðn- ir miklir vinir hans. Fréttir þær, er hingað bárust fyrir nokkuru úr Suður-Afríku, að uppreist væri hafin í Kapnýlend- unni og Englend’ngar hefðu orðið að fara með her sinn úr Transvaal til þess að snúa~t við henni, hefir ekki reynst á neinum rökum bygð. Búa-styrjöldinni átti þar á móti að halda áfram með miklu kappi og sonur Krugers forseta var nýbúinn að gefast upp fyrir Englendingum. r Stuðningsmenn á »Norðurland« góða, þar sem þeir menn eru, sem lofað hafa að *eggja í>kerf til lesmálsins f blaðinu. Guðm. Hannesson héraðslæknir ætlar að rita um heilbrigðismál f blaðinu, og vér vonum, að hann riti um fleira. Páll Briem amtmaður, síra Matthías Jochumsson, Jónas Jónasson prófast- ur, Stefán Stefánsson alþingismaður á Möðruvöllum, Ólafur Briem al- þingismaður, Sigurður Hjörleifsson héraðslæknir, Páll Jónsson kennari, Ólafur Davíðsson cand. phil. og Guðm. Finnbogasson cand. mag. hafa og lofað að láta »Norðurland« njóta þess að meira eða minna leyti, sem þeir semja, og einn þeirra hefir þegar sýnt það fagurlega í verkinu, að hann lætur ekki lenda við lof- orðin ein. Vér vonum, að mönnum lítist vel á hópinn, og að ýmsir fleiri góðir menn bætist í hann. Þingrof. Alþingi var rofið 13. sept. sfð- astl. og boðað til nýrra kosninga, sem fram eiga að fara 2—11. júní að sumri. Konungsboðskapur er enginn þingrofinu samfara, auðvit- að af því, að stjórnin þykist ekki vera og er ekki búin að átta sig á stjórnarskrármálinu. Verzlunarfréttir frá útlöndum fremur góðar. Norð- lenzk ull 57—60 a. og heldur stíg- andi. Góð nótasíld (millisíld) 22— 24 kr., en netjasíld f lægra verði. Stærsta síld 16—18 kr. Verkaður málsfiskur 55 — 57 kr. Smáfiskur 44—45 kr. Ýsa 40—41 kr. Spánar- farmar hafa verið seldir fyrir 66— 67 mörk skpd. Síldarveiði hefir haldist hér áfram alt fram að þessu. Stór hafsfld er komin utar f fjörðinn. Skipaferðir. Gufuskipið »Frithjof« fór frá Sval- barðseyri til Englands 20. sept. alfermt sauðfé frá pöntunarfélögum í Þing- eyjarsýslu og Svarfaðardal. Chr. Hav- steen kaupstjóri tók sér far með skipinu. »Mjölnir«,gufuskipTúliníusS,fór héðan 22. sept. alfermdur síld, að svo miklu leyti, sem ekki hafði verið lofað farm- rými fyrir vörur á austurhöfnunum. Með því fóru ýmsir til útlanda, þar á meðal cand. mag. Guðm. Finnbogason, sem fekk fjárlagastyrk á síðasta alþingi til þess að kynna sér alþýðumentun er- lendis tvö árin næstu. Gufuskipið »Hengest« fór héðan 24. sept. til Englands með um 2800 fjár frá pöntunarfélögum í Eyjafirði. Gufuskipið »Ceres< kom hingað 26. sept. og fór degi síðar áleiðis til Reykja- víkur. Með því voru meðal annaraHannes Hafstein sýslumaður, kominn úr utan- för sinni á fund stjómarinnar, frk. Ingibjörg Torfadóttir forstöðukona kvennaskólans hér, Mr. Jones trúboði og systir hans. Skólastjóri J. A. Hjalta- lín fór til Reykjavíkur með skipinu og dvelur þar í vetur. Bœjarstjórn Akureyrar hefir lokið áætlun sinni yfir tekjur og gjöld bæjarins þetta ár, eins og lög skipa fyrir. Alls er tekju- hæðin áætluð kr. 9792.20. Þar af auka- útsvör kr. 4282.20, 600 kr. meira en í fyrra. Gjaldaliðir, sem sérstök ástæða er til að benda á, eru tæpar 3000 kr. til barnaskólans, 1000 kr. í vegabætur og rennur, iooo kr. til húsnæðis handa bæjarstjóm (væntanlegrar viðbótar ofan á bamaskólann), 200 kr. til að reisa þarfindahús og 200 kr. til umbóta á leikhúsi bæjarins. Ágœt saga, sem vér vonum að verði lesendum »Norðurlands« til mikillar ánægju, byrj- ar í blaðinu innan skamms. Dáinn er í Kaupmannahöfn C.J. Höepfner stórkaupmaður. Æfiatriða hans verð- ur getið síðar í »Norðurlandi«. r Dánir í /Umreyrarsóki) í septembermán. 15. Dóróthea Jóelsdóttir, saumakona á Oddeyri, 28 ára. 22. Sigfús Jónsson, kaupmaður á Akur- eyri, 66 ára. 23. Benedikt Jóhannesson, bóndi á Klúkum í Eyjafirði, 48 ára. 24. Frú Ólöf Hallgrímsdóttir Jónsson frá Sauðárkróki, 46 ára. Marta og Jón Mýrdal, börn Einars Jónssonar málara á Oddeyri, tví- burar. 1 ndirrituð oeitir tilsögn, frá miðjum okfóber n. k., í ensku, þýzku, dönsku og t fortepianospih. S ýlkureyri 29. sept. 1901. I María Stephensen. Kjöt og aðrar haust- vörur kaupi eg: Kjötið fœr að jafna sig d vikt. Otto Tulinius. Nokkra duglega fiski- menn ræð eg á Kutter »Helga« til næsta árs, fyrir kaup og fæði, eða hálf- drætti og fæði. Otto Tulinius. Hér með tilkynnist öllum vinum og vandamönnum, að eiginmaður minn elskulegur, Sigfús kaupmaður Jónsson, andaðist þ. 23. þ. m. Jarðar- förin fer fram föstudaginn 4. október frá heimili mínu, kl. 12 á hádegi. Akureyri 26. sept. 1901. Marsellína Kristjánsdóttir.

x

Norðurland

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Norðurland
https://timarit.is/publication/203

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.