Norðurland - 08.10.1901, Blaðsíða 3
7
Skólamál Vesfur-íslendinga.
Svo sem flestum hér á landi mun kunn-
ugt, hafa Vestur-íslendingar um mörg ár
veiið að búa sig undir að geta komið
upp íslenzkum æðri skóla. Síra Jón Bjarna-
son lagði fyrstur hyrningarstein fyrirtækis-
ins með 100 dollara gjöf á kirkjuþingi í
Winnipeg sumarið 1887.
Síðan hefir málinu miðað fremur hægt
áfrain, nokkurt fé safnast, en ekki svo núk-
ið, að menn hafi séð sér fært að stofna
skóhnn. Og nú þykjast menn sjá fram
á, a ' þess verði of langt að bíða, að slíkt
fjái i íagn verði fyrir hendi, sem til þess
þaii', og að hrinda verði málinu áfram
einliverja aðra leið.
l yrir því hefir það ráð verið tekið, sem
vafalaust er mjög hyggilegt, að koma á
kenslu í islenzkri tungu og íslenzkum
fræðum við þarlenda kenslustofnun.
Samningar um það hafa tekist við einn
af lielztu skólunutn í Winnipeg, Wesley
College, sem er eign meþódista, en jafn-
frat t ein deild af háskóla Manítóbafylkis.
l að er kirkjufélag Vestur-Islendinga,
seni eitt hefir gengist fyrir þessu fyrir-
tæki. Þess vegna ræður það og kennarann.
Og hann er síra Friðrik J. Bergmann.
Það er mjög merkilegt mál, sem hér
er að komast í framkvæmd með bræðr-
um vorum í Vesturheitni, mál, sem ætti
að vera fagnaðarefni öllum þeini, er unna
tungu vorri og þjóðerni og sóma þjóðar
vonar í annarri heiinsálfu. Fátt styrkir
betur þjóðerni vort þar vestra, né varp-
ar ineiri ljóma yfir vora litlu þjóð, en
það, að íslenzkan komist að við háskóla
Vesturheims.
Og hvort sem litið er til þjóðflokka
þeirra, er íslendingar eiga saman við að
sælda í Vesturheimi, eða Vestur-íslend-
inga sjálfra, er það sérlega ánægju-
legt, að það skyldi vera síra Friðrik J.
Beigmann, maður, sem jafn-vel er búinn
gáftim og mentun, mannúð og frjálslyndi,
sem fyrstur komst í þessa stöðu. Hvort-
tveggja er jafn-víst, að hann verður þar
þjóð vorri til sóma út á við, og að áhrif
þau, er hann hefir á íslenzka námsmenn
vestan hafs verða hin heillavænlegustu.
r
Engin einokun.
»NorðurIand« er gersamlega and-
sta tt allri einokun. En skoðana-ein-
okun telur það versta. Fyrir því
vill það unna rúms öllum skoðun-
um, sem greindarlega eru í letur
færðar, að svo miklu leyti, sem
unt er. Enginn þarf því að skirr-
ast við að senda »Norðurlandi«
það, er honum liggur á hjarta, af
ótta við það, að blaðinu muni ekki
geðjast að þeim skoðunum, scm
jiar er fram haldið. Það kemst al-
veg eins að fyrir því, svo framar-
lega, sem rúm leyfir. En eðlilega
er þeim mun auðveldara fyrir menn
að komast að, sem þeir eru stuU-
orðari.
Náskylt þessu er það, að »Norð-
urland« vill flytja allar fréttir af
landinu svo [ítarlega og rétt, sem
kostur er á. Markmiðið er það, að
enginn maður, hvort sem hann er
flokksbróðir blaðsins eða andstæð-
ingur, þurfi að leita til annarra blaða
til þess að fá rétta vitneskju um
það, er markvert gerist á landinu.
Og því markmiði nær »Norður-
land«, svo framarlega, sem þjóðin
vill styðja slfka viðleitni.
\
Þörfin því meiri.
Rödd hefir komið fram í vestur-íslenzku
blaði, frá merkum leikmanni og mikils-
virturn, í þá átt, að síra Friðrik J. Berg-
mann sé í raun og veru ekki nógu lút-
erskur, ekki nógu mikill biblíutrúarmað-
ur til að skipa það embætti, sem hann
hefir tekist á hendur. Maðurinn heldur
auðsjáanlega, að það sé kjarni lútersk-
unnar og að líkindum kristindómsins
alls, að trúa þvf að hvert orð í ritning-
unni sé innblásið af guði. Sú skoðun,
jafn-kynleg og hún er, er víst ekki óal-
geng meðal íslenzkra leikmanna í Vestur-
heimi. Því meiri þörf er á því og því
meira fagnaðarefni er það, að fá fyrir
aðalleiðtoga íslenzkra mentamanna vestra
mann, sem lítur á trúarbrögðin jafn-skyn-
samlega og frjálsmannlega eins og síra
Friðrik.
r
Eftirmæli.
Hinn 24. sept. sfðastl. andaðist
hér á spítalanum frú Ólöf M. Hall-
grímsdóttir Jónsson, kona Stefáns
Jónssonar verzlunarstjóra á Sauðár-
króki. Faðir hennar var Hallgrímur
gullsmiður á Akureyri, Kristjánsson
prests á Völlum í Svarfaðardal,
Þorsteinssonar prests í Stærraár-
skógi; en móðir hennar var Ólöf
Einarsdóttir Thorlacíus, prests í
Saurbæ. Frú Ólöf giftist St. J. 1879,
og er einn sonur þeirra á lífi, Jón,
sem stundar nám við Kaupmanna-
hafnarháskóla.
Sullaveiki varð henni að bana,
eftir að holdskurður hafði verið
gerður á henni tvívegis hér á spít-
alanum. Maður hennar, sem gert
var viðvart, þegar síðari skurður-
inn var gerður, náði ekki hingað svo
snemma, að hann fengi séð hana
lifandi,
Lík hennar var flutt héðan með
Ceres. Við úthafninguna af spítal-
anum héldu þeir ræður sóknar-
presturinn sfra Geir Sæmundsson
og síra Matth. Jochumsson. Ljóð
voru og sungin eftir M. J.
Frú Óiöf sál. var valkvendi mesta
og einkar-vel látin af öllum.
Að kvöldi hins 15. f. m. andað-
ist hér í bænum, eftir nái. hálfs
árs veikindi af brjósttæringu, ung-
frú Dórothea Jóelsdóttir, 27 ára
gömul.
»Dórothea sál. var gædd liprum
og góðum gáfum og vel mentuð
til munns og handa; hún var á-
gætis stúlka og ávann sér því elsku
og virðingu allra þeirra sem nokk-
ur kynni höfðu af henni.«
r
Stldin
hefir haldist hér við Akureyri nokk-
uð alt til þessa. Veiði nokkur f vörpur,
en þó miklu minni en áður, í net lítil.
Síldin er nú stærri en sú, er fyrst
veiddist.
Tunnuskorturínn.
Jón Norðmann verzlunarstjóri skrif-
aði með síðustu ferð Hóla austur eftir
2000 síldartunnum, og sendi auk þess
mann til Austfjarða til þess að útvega
tunnur, sem koma áttu með »Ceres«.
Erindislok mannsins urðu þau, að hann
gat fengið 600 tunnur á Seyðisfirði, en
þær fengust ekki fluttar með »Ceres«.
Samt hefir ræzt svo úr tunnuskortinum,
að ekki horfir til neinna vandræða.
Gufuskipið »Jökull« kom á fimtudags-
kvöldið var með allmikið af tunnum til
Wathnes-útgerðarinnar og Laxdals, og
gufuskipið »Alf« á sunnudaginn með
tunnur, salt og kol til Túliníuss. Svo
er á hverjum degi von á skipum með
tunnur.
Þilskipavetðar sunnanlaads hafa yfir-
leitt gengið mæta vel í ár. »Eitt skip,
er Þorsteinn Þorsteinsson á og er fyr-
ir, hefir fengið hina lang-hæstu afla-
hæð að tölu til, sem dæmi eru til hér
á landi — 138,000 eftir sumarið, seg-
ir ísafold.
Druknan. Jón Kristjánsson frá Hausa-
staðakoti í Garðahverfi, kvæntur mað-
ur og 7 barna faðir, og Þorgils Þor-
gilsson frá Óseyri við Hafnarfjörð,
ókvæntur, hrukku útbyrðis af fiskiskút-
unni »Litlu-Rósu« frá Hafnarfirði 9. f.
m. út og norður af ísafjarðardjúpi og
druknuðu.
Verð á sláturfé
hér á Akureyri upp í skuldir og gegn
vörum er það, er nú skal greina:
Kjöt pd....................15—21 a.
Gærur — ... ................ 25 -
Mör —...................... 23 -
Haustull —...................... 40 -
Lifandi fé taka kaupmenn upp í skuld-
ir og gegn vörum með þessu verði á
fjármörkuðum:
Sauði .............10 —13V2 a. pd.
Hrúta ............. 8V2—11 - —
Ær ................ 7V2—11V2 - —
Gimbrar............ 9 —10 - —
Barnaveiki.
Nýdáið er úr henni barn á 3. ári í
Götu í Arnarneshrepp.
Uppboð
á eigum Garðarsfélagsins var haldið
á Seyðisfirði í lok síðasta mánaðar.
Kaupendur höfðu bundið félag með sér
um skipin, fimm að tölu, og urðu þessir
eigendur: Sigurður Johansen kaupmað-
ur (fekk 2), Þórarinn Guðmundsson
kaupmaður, P. J. Thorsteinsson kaup-
maður á Bíldudal og Ólafur Árnason
kaupmaður á Stokkseyri. Við skiftin
varð dýrast annað skipið, sem S. J.
keypti, 7700 kr.
Bryggju félagsins ásamt lóð fyrir
ofan hana, íbúðarhúsi og 3 geymslu-
húsum keypti Seyðisfjarðarbær fyrir
2550 kr og var gjafverð. íshús keypti
um 20 manna félag fyrir 5500 kr., og
ætlar að rífa það. Svo voru og seld
veiðarfæri og húsgögn við háu verði.
Tíðarfar.
Eftir einmunatíð fram í miðja síðustu
viku er veðráttan nú tekin að spillast
og nokkur snjór kominn af norðanátt.
í nœsta blaði
»Norðurlands« verður meðal annars
ágrip af sögu bankamálsins á síðasta
þingi. Þar verður og minst allítarlega
á grein í danska blaðinu »Politiken«
um stjómarmál vort, og er þess því
meiri þörf, sem hér hefir birzt þýðing
af greininni, sem svo er ónákvæm, að
lesendur fá að sumu leyti alveg ranga
hugmynd um það, er danska blaðið
segir. Enn fremur byrjar og í næsta
blaði veðurskýrsla eftir Stefán Stefáns-
son, kennara á Möðruvöllum, og held-
ur svo áfram vikulega.
Síra Halldór Bjarnarson
hefir af nýju fengið veitingu fyrir
Presthólum.
Fjárkaupmaðurinn
frá Belgíu, hr. Martin Pöels, kom með
„jökli" austan af Seyðisfirði um daginn,
hafði keypt þar einn fjárfarm og sent til
Frakklands, og fór landveg vestur á Sauð-
árkrók tii fjárkaupa þar. Fjártökuskip
hans átti að koma þangað 13.-14. þ.
m. Hann gerði ráð fyrir að halda áfram
fjárkaupum hér að ári, en hitt lét hann
ekki uppi, hvort þau mundu verða víð-
tækari þá en þau urðu þetta haust.
Prestkosning
átti að fara fram í Hjarðarholti í Döl-
um 15. f. m. Umsækjendur voru: síra
Jósep Kr. Hjörleifsson á Breiðabólstað á
Skógarströnd, síra Ólafur Ólafsson á
Lundi og Magnús Þorsteinsson cand.
theol. Kosning varð ekki lögmæt, en síra
Jósep vantaði að eins eitt atkvæði á að
ná kosningu.
Nýir læknar.
í þessi héröð hafa læknar verið skipað-
ir í sumar:
í Hesteyrarhérað Jón Þorvaldsson frá
ísafirði.
í Fljótsdalshérað jónas Kristjánsson frá
Orenjaðarstað.
í Reykdælahérað Ingólfur Oíslason frá
-^rerá.
f Nauteyrarhérað Þorbjörn Þórðarson
frá Hálsi.
Fyrir Borgarfjarðarhéraði hefir og Jón
Blöndal fengið konungsveitingu.
Auglýsingar,
sem koma eiga út í „Norður-
landi", væri ávalt gott að fá í síð-
asta lagi næsta laugardagskvöld
fyrir útkomu blaðsins. Háttvirtir
auglýsendur eru og beðnir um
að gera viðvart jafn-snemma, ef
auglýsing á ekki að prenta oftar
annars heldur hún áfram í blaðinu.