Norðurland


Norðurland - 29.03.1902, Blaðsíða 1

Norðurland - 29.03.1902, Blaðsíða 1
27. blað. JnORÐURLAND. Ritstjóri: Einar Hjör/eifsson. Akureyri, 29. marz 1902. í. ár. Möðruvallaskóli brunninn. Á laugardagskvöldið var færði ‘Norðurland« með fregnmiða Akur- eyrarbdum þá frétt, að Möðruvalla- skóli væri brunninn. Hér kemur nú (tarleg frásögn af þessum at- burði, eftir cand. Ólaf Davíðsson, samin á mánudaginn var. I. 1 .augardaginn 22. marz fór alt f>'am að Möðruvöllum í Hiirgárdal, eins og vant var fyrra hluta dags. Piltar og kennarar voru í tímum frá ki. 9 til þess er kl. vantaði 10 niínútur ( tvö, eins og tízka var við skólann, og stóð svo á, að Halldór kennari Briem og Ólafur Piavíðsson frá Ilofi, sem hefir feng- >st við kenslu að Möðruvöllum í Vetur í stað Jóns skólastjóra Hjalta- líns, voru í seinasta tímanum. Þá er honum var lokið, fór Halldór upp 1 herbergi sitt í norðurenda húss- ■ns, en Ólafur skauzt upp í her- bergi skólastjóraris, því að þar hélt hann til, skildi þar eftir kenslubók, er hann hafði notað í seinasta tím- anum, lokaði svo herberginu, og fór Lt { hús Stefáns kennara til þess að snæða. Þá er klukkan var hálf-þrjú (Akureyrarklukkan nálægt hálf-tvö), v>ldi svo til, að einn skólapilturinn, sem heitir Friðrik Klemensson, ætl- aði að ganga upp í svefnloft, á rieðsta lofti, en um leið og hann gekk upp stigann, sá hann, að eld- rir var farinn að læsa sig um efsta riluta skólans í suðvesturendanum. Plann hljóp þegar niður, og gerði félögum sinum viðvart, en þeir hrugðu skjótt við, og fóru að bjarga koffortum og öðru lauslegu, er þeir áttu bæði í svefnloftunum og uppí á miðlofti, því að þegar var auð- saitt, að eldurinn mundi hafa feng- 'ð mikið magn uppi á efsta lofti. Kennurunum var og þegar gert v'ðvart. Stefán kennari og Ólafur hlupu þögar suður eftir, og sneru þegar riokkurir piltar með þeim upp á kvist, herbergi skólastjórans, en jafnskjótt og Ólafur lauk upp kvist- úurðinni, gaus á móti þeim kafþykk- rir reykur, og minkaði hann ekkert við, að gluggar voru jafnskjótt opn- aðir. Auðsætt var, að eldurinn kom að ofan, og var eldurinn farinn að læsa sig ofan eftir þilinu við suð- vesturhorn kvistsins. Það var og farið að brenna. Næsta ''herbergi fyrir sunnan kvistinn var kompa, er ýmislegt skran var geymt í, sem Hjaltalín átti, og opnaði Stefán hana, en þar var svo þykk svæla, að ekki voru viðlit að fara þangað inn. Hann opnaði og hlerann að efsta loft- inu, en þar var heldur ekki líft fyrir svælu. Ekki var auðið að sjá, hve eldurinn hafði rutt sér mikið til rúms á efsta loftinu, og var þvf ekki vistlegt á kvistinum, því að hætta var á, að loftið gæti fallið niður þá og þegar. Þar var og ó- lifandi fyrir reyk. Menn höfðu því stutta viðdvöl á kvistinum, en þó tóku allir, er þangað komu upp, með sér það, sem þeir gátu kom- ist með af bókum og öðru laus- legu. Á þennan hátt varð bjargað talsverðu af bókum þeim, er geymd- ar voru á kvistinum, en mikið varð eftir, er brann, og verður þess get- ið seinna að nokkuru. Nú var í mörg horn að líta, enda gerðust mörg tíðindi jafnsnemma. Halldóri Briem var gert viðvart um eldinn jafnsnemma hinum kennur- unum, en hann þorði ekki að eiga undir því að dvelja nema örstutta stund í herbergi sínu, og varð því litlu bjargað þaðan. Aftur náðust mestöll föt pilta, sem geymd voru í.kompu fyrir norðan kvistinn uppi á öðru lofti. Á miðloftinu voru , svefnherbergi skólapilta, þrjú að tölu. Rúmfötum öllum var fleygt út um gluggann í snatri og öðru lauslegu, er þar var, en rúmstæðin voru skilin eftir. Að vísu hefði verið hægt að bera þau niður, en bersýnilegt var, að það mundi taka talsverðan tíma, og var því látið ganga fyrir að bjarga öðru, er markverðara þótti. Möðruvalla- skóli hafði eignast allgott bóka- safn, og var sumt af því geymt uppi á kvisti, en sumt í herbergi sunnantil í húsinu að vestanverðu, er kallað var bókabekkur. Þar var og geymt það, er skólinn átti af náttúrugripum og öðrum kenslu- áhöldum. Stefán kennari fór þang- að, jafnskjótt og hann sá, að litlu varð bjargað af kvistinum, og var þegar farið að bera bækur og ann- að út í pokum, en kvenfólk bar í svuntum sínum, og gengu allir vel fram. Áður en Iangt um leið, var bekkurinn hroðinn öllu, er þar var lauslegt, en þó mun nokkuð hafa orðið eftir af ritum Swedenborgs, er þar var mjög mikið til af. Þau voru látin sitja á hakanum, af því að menn vissu, að talsvert var til af þeim í Amtsbókasafninu. Hjaltalín skólastjóri átti talsvert af búsgögnum og öðrum munum í tvéimur herbergjum niðri á gólfi austan og sunnan til í húsinu, og var öllu bjargað þaðan, er lauslegt var, og nokkurs var virði. Þar var ekkert eftir nema ýmislegt skran í djúpum veggskápum lokuðum, sem ekki var hægt að eiga við. Þá er hér er komið sögunni, hafði loginn brotist út úr efsta loftinu og miðloftinu, og var að vísu alt ó- brunnið niðri, en ekki dælt að ganga út og inn, því að eldsíum rigndi niður, hálfbrunnum sprekum og þak- hellum. Vegna eldsins inni hefði þvf verið hægt að bjarga ýmsu úr svefnloftunum og bekkjunum, er ó- bjargað var, en mannhætta var að fást við það í svipinn vegna flugs- ins; bauð því Stefán kennari öllum að fara út úr skólanum, og var því hlýtt. Þá er þakið var fallið niður að vestanverðu, fóru nokkurir pilt- ar inn í neðra bekk, og náðu það- an út öllu lauslegu, borðum og bekkjum út um gluggana, en þá var eldurinn kominn í efra bekk, og stiginn allur ( björtu báli, og voru því ékki tiltök að bjarga meiru. Áður höfðu flestir skólapiltar í efra bekk bjargað bókum sínum, en bekk- ir allir brurinu þar inni og skóla- borðin öll. Það, sem út var borið, var sumt borið þegar út í kirkju, svo sem bækur, en sumt var skilið eftir til bráðabirgðar milli skólans og kirkj- unnar, og flutt svo seinna út í kirkju. Sumt var aftur borið út í leikhús. Meðan skólinn var að brenna, var kul á norðvestan, og var það hin mesta hepni, því að hefði gol- an verið sunnan, hefði íbúðarhúsi Stefúns kennara verið mikill háski búinn, Kirkjunni og leikhúsi skól- ans var og óhætt eftir því, sem veðurstaðan var. Hætla var samt á, að veðurstaðan kynni að breyt- ast snögglega, og þorðu menn því elcki annað en að bera út úr suður- endanum á húsi Stefáns bæði hátt og lágt. Snjókökkum var og hlað- ið að suðurgafli hússins og að suð- austurhorni leikhússins. Enn var húsi Stefans háski búinn, ef norður- stafninn á skólanum kynni að hrynja norður, en svo vel vildi til, að hann hrundi inn, og sáu menn því, að óhætt var að flytja inn aftur það, sem út hafði verið flutt úr húsi Stefáns. Nóttina eftir brunann vöktu fjór- ir menn yfir rústunum og tveir í nótt, er var, en alt af hefir verið norðanátt, og hefir öðrum húsum að Möðruvöllum því verið óhætt með öllu. Enn rýkur úr rústunum við og við, en þó mun vera farið að minka um eldsneyti í þeim. II. Þá er Möðruvallaskóli var bygð- ur fyrir 22 árum, voru veggirnir reistir úr múr að mestu leyti og viðir að eins til þess að treysta hann. Auk þess var múrhúð á inn- veggjunum beggja megin, en borða- lagning utan á útveggjunum. Hús- ið var því talsvert lengi að brenna. I annan stað var húsið tiltölulega hátt, og sást loginn því langt að. Meðan bruninn stóð sem hæst, var alltilkomumikið að sjá skólann brenna. Einkum var tilkomumikið að sjá blóðrauðar eldtungurnar sleikja út um gluggana á efra bekk, því að blossann lagði til austurs eftir veðurstöðinni. Eftir því, sem eld- urinn eyddi bjálkunum innan í múrn- um, eftir því féllu múrfyllurnar niður, og stundum sveifluðust vegg- irnir fram og aftur urn stund, áð- ur en þeir féllu. Nyrðri reykháfur- inn féll tiltölulega fljótt, en sá syðri féll ekki fyr en alt miðloftið var brunnið og mikið af neðsta loftinu. Þá reið hann niður í eldhafið með braki miklu. Þá er húsið var gjör- fallið, nálægt kl. 7 um kvöldið, litu rústirnar lít eins og múrsteinahrúga, en upp úr henni stóð reykháfsstúf- ur nálægt 5 álna hár og horn af

x

Norðurland

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Norðurland
https://timarit.is/publication/203

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.