Norðurland


Norðurland - 29.03.1902, Blaðsíða 4

Norðurland - 29.03.1902, Blaðsíða 4
Skarlaíssóttar-ráðstafanir. í tilefni af skarlatssóttar-grun þeim, er héraðslæknir Guðm. Hannesson ritar um hér í blaðinu, hefir hann skrifað bæjarstjórninni og lagt fyrir hana eftir- farandi spurningar: 1. Hvort hún vilji styðja sóttvarnir gegn skarlatssóttinni. 2. Hvort hún gæti látið í té húsnæði til einangrunar. 3. Hvort hún vildi verja nokkuru fé til sóttvarna. Hinn setti bæjarfógeti, Stephensen umboðsmaður, hélt þegar aukafund í bæjarstjórninni, og urðu all-langar um- ræður um málið. Allir vildu, að reynt yrði að verjast skarlatssóttinni eftir mætti; nokkurir létu í Ijós óánægju sína út af aðgjörðum landsstjórnarinnar í þessu máli, aðrir hvöttu iækni tii þess að hiífast ekki við að einangra einnig grunsama sjúklinga, þótt ekki væri full vissa fyrir veikinni, og að auglýsa, hvar hætta væri á ferðum. Samþykt var: 1. Að taka eina stofu á sjúkrahúsinu til einangrunar, til þess er unt yrði að útvega annað húsnæði, og skyldi hún íyliilega aðgreind frá hinum stofunum, svo sjúklingunum stæði engin hætta af. 2. Að feia heilbrigðisnefndinni frek- ari ráðstafanir í þessu. Henni skyldi heimilt að verja alt að 100 kr. til sótt- varna fyrst um sinn. \ Samsæfi. Þ. 9. mara héldu nokkurir vinir Þ. Guójóhnsens á Húsavík samsæti, til þess að kveðja hann og þau hjón bæði sam- an; því að nú eru þau á förum af landi burt tií Danmerkur. Hér um bil 60 manna tóku þátt í þessari gleði og þótti hún takast vel. Þessir menn héldu ræð- ur: séra Jón í Húsavík, séra Benedikt á Grenjaðarstað, Guðmundur á Sandi, Þorbergur hreppstjóri á Sandhólum, Arni í Lóni, Lúðvík Knudsen, Björn Jónsson frá Ameríku (sem dvelur hér í vetur) og síðast en ekki sízt heiðurs- gesturinn siálfur. — Þar var honum af- hentur menjagripur að skilnaði — stand- lampi seilingarhár, er kostaði 200 kr. og grafið á hann: »Til Þórðar og Maju Guðjóhnsen frá vinum í Þingeyjarsýslu 1902«. * Hér er eigi rúm til að geta um ræðu- höldín í sundurlíðuðu máli, svo að al- menningur verði nokkuru nær. En með- al annars, sem þar var mælt til heiðurs- gestsins, var þessi vísa: Menn óska sér gæða, en úkveflið mark er auðlegð, sem fjöldinn ei þráir, og því er svo lítið um karlmensku-kjark og kraftarnir litlir og fáir. — En þú varst sá kraftur, það bjarg, sem ei brást, það bjarg, sem var aldrei í molum; og vinfestu-trygð þín og orðheldnis-ást var eldur, sem lifði í kolum. Samskofa-byrjun. »Þeir læknarnir Guðm. Hannesson og Sigurður Hjörleifsson komu að Möðru- völlum meðan á brunanum stóð,« skrif- ar Stefán kennari Stefánsson »Norðurl.« 26. þ. m. »Hóf Sigurður Hjörleifsson máls á því, að sjálfsagt væri að efna til samskota handa piltum þeim, sem liðu beint eða óbeint tjón við brunann, og gaf þegar 10 kr. Guðm. Hanneeson tók í sama streng og gaf einnig 10 kr.« Vöruskorfur er að verða mjög mikill í öllum verzl- unarstöðum norðanlands, svo að teppist sigling fram eftir vorinu, eru vandræði fyrirsjáanleg. Mestar eru birgðirnar hér á Akureyri, og þó eru sumar nauð- synjavörur á fötum eða þrotnar. Hveiti- mjöl er ófáanlegt og mjög lítið orðið um sykur. Kaffi mun líka að þrotum komið. Norðan af Húsavík hafa menn nýiega komið hingað eftir vörum. LeiðréttinK. í greininni Norflle/izkir skólar« II. í síðasta blaði 2. dálki hefir misprentast Siguvbjörg fyrir Sigurlog. — »Hjá sýslu- manni Briem« 'falli burtp og i stað »og hafði Eiín dóttir hans« komi og haföi ungfrií Elín Briem. Snjór mikill á jörðu. Blindbylur fyrra hlut mánu- dags og aftur á þriðjudaginn. Síðan hefir verið stilt veður og snjókoma lítil, en frost töluvert oftast. I Veðurathuganir á Möðruvöllum í Hörgárdal eftir Stefán Stefánsson. 1902. Marz. Um miðjan dag ( tl s . ■< 4 d. & 6 Úrkoiha. | Minstur hiti (C.) á sólar- hringnum. Fd. 21. 76.5 - 9.0 Nau 3 10 S: - (i.o Ld. 22. 76.5 -12.8 N 2 10 S 1 - 15.o Sd. 23. 76.0-10.5; N i 2 10 S jj - 16.o Md. 24. 75.i »-6.o Nau 2 10 S - 15.2 Þd. 25. 75.o O.o! Nau| 2 10 S - 15.o Md. 26. 76.i i -0.i|Nau| 1 9 S j - 3.2 Fyrsti sjúklingurinn minn. Ensk saga. IV. Eg fann, að mér var að hitna af gremju. Hvers konar maður var }>essi dr. Ogilvie? Hvers vegna var hann fjarverandi, þegar önnnur eins hætta var á ferðum? Hvers vegna var vinnu- fólkið svona undarlegt og órólegt? Og ekki var hvað minst um það vert — hvernig stóð á því, að mér var nú sjálf- um svo órótt, sem eg hafði aldrei fund- ið til áður, þegar eg var að eiga við sjúklinga? Eg fann það á mér, að eitthvað voðalegt hafði gerst í þessu herbergi, °g eg fór að hugsa um það, hvort hin öflugu lífgunarráð, sem eg ætlaði að nota, mundu ekki koma svo seint, að þau yrðu alveg gagnslaus. Dr. Roper kom inn í herbergið og við tókum til starfa. Fyrst lá fyrir að ná burt þeim hluta eiturskamtsins, sem enn kynni að vera í maga sjúklingsins. Rafmagnsvirkið var svo sett í stelling- ar og andardrátturinn aukinn. Lengi fengumst við við þetta, án þess að nokk- ur sjáanlegur árangur yrði af því. Dr. Roper fölnaði svo mjög, að eg hélt, að yrði að styðja hann út úr her- berginu, þegar hann leit á það, sem komið var í magadæluna; en hann náði sér brátt aftur og hjálpaði mér nú svo ötullega, að auðséð var, að hann var alveg orðinn mér sammála. Hjúkrunarkonurnar voru eins og góð verkfæri í höndum okkar. Einkennilega hljótt var í herberginu, meðan við vorum að þessu starfi. Við gerðum svo lítinn skarkala, sem okkur var unt þessar löngu næturstundir, með- an við vorum að heyja þessa voðalegu baráttu við dauðann. Undir morgunin heyrðist hávaði nokk- ur í næturkyrðinni úti á strætinu. Dr. Roper lét sér um munn fara þakklætis- orð til skaparans, og til óumræðilegs fagnaðar fyrir mig hafði hávaðinn áhrif á sjúklinginn. Hún leit upp augunum, brosti dauf- lega, horfði beint framan í gamla lækn- inn, tautaði nafn manns síns fyrir munni sér og lét svo augun aftur. ♦ Ogilvie er kominn heim,« sagði dr. Roper og leit á mig. »Guði sé lof! Nú getum við fengið að vita, hvað hefir tafið hann. Það var fótatak hestsins hans, sem þér hejmðuð rétt núna við dyrnar.« »Og frú Ogilvie er betri,« sagði eg. »Eg hefi góða von um, að nú sé henni óhætt. Eg þori ekki að yfirgefa hana stundarkorn, en þér gætuð farið ofan og látið dr. Ogilvie vita, hvað gerst hefir í fjarveru hans.« »Sagt honum, hvers við höfum orðið vísari?« tók dr. Roper til máls. »Nei, nei, hann er gamall vinur minn — það verður einhver annar að gera.« »Þei, þei,« sagði eg. »Frú Ogilvie er að fá meiri og meiri meðvitund með hverri mínútu. Við verðuin að fara gæti- lega; hún þolir ekkert.« Eg leit til rúms- ins um leið og eg sagði þetta. Sjúklingurinn lá með opin augun. Þau voru enn daufleg af áhrifum eitursins, en óeðlilegi dauðaliturinn var horfinn af kinnum hennar og andardrátturinn var fjörlegri og reglulegri. »Verið þér eftir hjá henni,« hvíslaði eg að gamla lækninum. »Eg ætla að finna dr. Ogilvie sjálfur og kem mjög bráðlega aftur.« Eg fór út úr herberginu. Eg bjóst við að mæta húsráðanda í stiganum, gerði ráð fyrir, að hann mundi hraða sér til konu sinnar svo, sem honum væri unt. í þess stað varð eg var við uppnám og ótta. Otta á andlitum nokkurra þjón- ustustúlkna, sem þutu ofan stigann í dauðans ofboði. Háværar hræðslu- og vandræðaraddir kváðu við neðan úr forsalnum. Þotið var um húsið, hurðum l'okið upp og skelt hvatskeytlega. Dr. Ogilvie var hvergi sjáanlegur. Hvað var hann að gera? Hvers vegna hafði hann verið að heiman svona lengi og þegar svona stóð á, og, framar öllu öðru, hvern- ig stóð á því, að húsið skyldi alt kom- ast í uppnám við það að hann kom heim, mitt í næturkyrðinni ? Frú Ogilvie var áreiðanlega betri, en hjarta hennar hafði orðið fyrir mikilli áreynslu, og kæmist hún í nokkura geðs- hræring, gat það orðið til þess, að alt okkar verk um nóttina yrði til einskis og alveg gat tekið fyrir veikan og ó- stöðugan andardráttinn. Eg flýtti mér ofan stigann. »Þei, þei,« sagði eg. »Eg verð að biðja ykkur öll að hafa hljótt um ykk- ur. Hvar er dr. Ogilvie? Eg verð að fá að tala við hann tafarlaust.« Þjónninn, sem hafði vísað mér inn í húsið daginn áður, kom nú á móti mér. Hánn var ekki nema hálfklæddur, og hárið á honum var alt úfið og umhverft. »Viljiðþér koma inn í þetta herbergi, hr. Halifax?« mælti hann. »Hér hefir eitthvað voðalegt komið fyrir. Hryssan er komin heim aftur mannlaus!« »Hryssa dr. Ogilvies?« spurði eg og varð mér bylt við. »Já. Húsbóndans verður hvergi vart, og við erum öll hrædd um að óttalegt slys hafi borið að höndum. Hryssan skalf og nötraði, þegar hún kom heim að dyrunum. Þarna er hestasveinninn — hann getur sagt yður sjálfur, hvern- ig skepnan var útlits, öll í einu löðri og titrandi. Komdu inn, Williams, og segðu lækninum frá því.«. »Það er alveg satt, sem hann segir,« tók Williams til máls; hann hafði staðið í dyrunum og hlustað á samræðu okk- ar. »Eg hefi aldrei 'séð skepnu eins útleikna. Hún nötraði eins og strá í vindi og hneggjaði Iíkast barni, sem er að hljóða. Eg trúi því naumast, að hún hafi fleygt lækninum af sér, því að þó að hún sé nokkuð prataleg, þá er hún alt af eins og lamb, þegar hann situr á henni. Þetta er voðalegt alt saman, og eg botna ekkert í því. Það getur verið, að hann hafi farið af baki til að finna einhvern og hafi bundið hana, eins og hann er vanur, og hún svo þot- ið á burt. En þá hefði beizlið verið slitið, og það er það ekki. Jæja, hvernig sem það nú er, þá vitum við Georg ekkert, hvað við eigum að gera.« »Hvað viljið þér ráða okkur til að gera?« spurði þjónninn, sem eg heyrði nú að hét Georg. »Eg geri ráð fyrir, að við verðum að fá flokk af mönnum til þess að leita að honum; en eg get ekki séð, hvernig við eigum að ná þeim saman, og svo er enn níðamyrkur.« ILST Fáein eintök^af Lagasafni handa alþýðu, 4. bindi, fást með all- miklum afslætti hjá Frb. Steinssyni. Smjör keypt háu verði í allan vetur við Höepfners verzlun. Við Höepfners verzlun er ýmis- konar eldri varningur seldur með miklum afslætti gegn borgun út í hönd. Höepfners verzlun kaupir síld einkum stóra hafsíld — við hæsta verði. Norðurland kemur út á hverjum laugardegi. 52 blöð um árið. Verð árg. 3 kr. á íslandi, 4 kr, í öðrum Norðurálfulöndum, I1/2 dollar í Vestur- heimi. Cijalddagi fyrir miðjan júlí að minsta kosti (erlendis fyrir fram) Uppsögn sé skriflegog bundin við árgangamót; ógild nema komin sé til ritstjóra fyrir 1. júlí. Auglýsingar teknar í blaðið eftir samningi við ritstjóra. Afsláttur mikill fyrir þá, er auglýsa mikið. Prentsmiðja Norðurlands.

x

Norðurland

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Norðurland
https://timarit.is/publication/203

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.