Norðurland


Norðurland - 21.06.1902, Page 2

Norðurland - 21.06.1902, Page 2
154 En hvernig geta flokkarnir gert þetta? Að mínu áliti er þetta auð- velt, og er þá tvent, sem þar kem- ur til greina. Flokkarnir þurfa hver fyrir sig að hafa reglulega stjórn og að minsta kosti eitt blað hver flokkur, sem sýnir stefnu flokkanna og flokkarnir hafa siðferðislega á- byrgð á. Það sýnist eigi vera til mikils mælst að heimta þetta af flokkun- um, en eg fullvissa yður um, að þegar hin nýja stjórnarbót er kom- in á og þjóðræðið er fengið, þá er ekkert þýðingarmeira í þjóðlffi voru íslendinga en þetta. Bardagaaðferð flokkanna þarf að breytast. Flokkarnir þurfa fyrst og fremst að forðast lygi og rógburð, og í öðru lagi þurfa menn að forð- ast að brigzla hverjir öðrum um óhreinar hvatir og mannvonzku. Vér vitum það allir, að það má vekja tortrygni út af hverju atviki. Vina- boð Höskuldar gefur Merði tilefni til þess að segja, að hann búi yfir svikum. Tortrygnisandinn er, illur andi þjóðarinnar. Menn geta séð það í hendi sér, að menn skiftast eigi í flokka eftir hreinum hvötum eða óhreinum. Það veljast ekki góðu mennirnir allir í annan flokkinn og illu mennirnir í hinn flokkinn. Nei, menn skiftast í flokka eftir skoðun- um sínum. Menn skipa sér f flokka eftir því, hvort þeir álíta rétt að standa í stað eða hafa framfarir og nýbreytni, eftir skoðunum í bind- indismálum, trúarmálum o. s. frv. Þess vegna á að ræða um skoðan- irnar en nota eigi rógburð eða að- dróttanir um óhreinar hvatir. Og þess vegna eiga stjórnir flokkanna að vera skipaðar mönnum, sem geta rætt mál saman og geta komið sér saman um að hafa baráttuna milli flokkanna drengilega. Það er ekki nema eðlilegt og rétt, að flokkarnir hafi mismunandi skoðanir, en þótt svo sé, *þá er það hrein og bein skylda flokkanna að banna liðsmönnum sfnum stiga- mannaaðferð og láta þar til sín taka. Það, sem þjóðin því þarf að heimta, er drengileg barátta. Það er ekkert, sem er meira um vert og ekkert, sem er eins mikið um vert, af því að þetta er grundvöll- urinn og undirstaðan, sem báðir flokkar eiga að byggja á. Þetta er skilyrðið og mér liggur við að segja lífsskilyrðið fyrir því, að stjórnfrelsi það, sem vér eigum nú í vændum, verði oss til sannarlegrar blessunar og farsældar. Þegar eg var erlendis veturinn 1899—1900, athugaði eg þetta ná- kvæmlega. Eg fekk mér helztu blöð- in, bæði í Englandi og Þýzkalandi, °g get eg e>g' nógsamlega lofað sannleiksást þeirra og réttlætistil- finningu. Síðan þjóðræðið varð viður- kent í Danmörku er hið sama að verða þar ofan á. Eg veit að vísu, að ýmsum þykja blöðin miklu skemtilegri, ef þau eru full með skammir og lygi. Þeir eru eins þyrstir í persónulegar sví- virðingar, eins og Spánverjar í að sjá blóðugt nautaat. En látum þess- um mönnum leiðast. Látum heldur hið sanna, fagra og góða sigra í stjórnmálum. Látum drengskap í stjórnmálum sigra. Látum báða flokkana skrifa þetta á sín skjald- merki og oss sjálfa gera þetta að einkunnarorðum vorum. Þegar þjóðræðið er fengið, þá er þetta aðalatriðið í þjóðfélagslífi voru íslendinga. Eg trúi á sigur hins sanna og góða. Og þess vegna veit eg að þetta sigrar einnig. En það sanna og góða sigrar ekki af sjálfu sér. Það verður að hafa ein- hverja liðsmenn. Eg veit að vísu, að eg get haldið þessu fram, þótt eg sitji heima í sumar, en eg þyk- ist þó hafa meira erindi á alþingi, en að eins að segja já eða nei. Það er mikilsvert að geta talað við menn úr báðum flokkum og þess vegna er eg nú hingað kominn til þess að biðja mér liðs, og eg bið yður að hjálpa og liðsinna dálitlum sveini, sem er hér mitt á meðal vor. Sveinn- inn heitir drengskapmr f stjórnmál- um. Og nú vil eg biðja yður að liðsinna honum svo, að hann geti dafnað og orðið stór, svo stór, að hann geti breítt faðm sinn út yfir alt ísland, tekið alla íslendinga og vafið þá upp að brjósti sér og leitt þá inn á braut framfara, hagsældar og blessunar. ý\mtráðsfundur. Amtráðsfundur Norðuramtsins var settur hér á Akureyri 16. þ. m. Auk amtmanns Páls Briems mættu Björn Sigfússon úr Húnavatnssýslu, Ólaf- ur Briem úr Skagafjarðarsýslu, Stef- án kennari Stefánsson úr Eyjafjarð- arsýslu og Árni prófastur Jónsson úr Suður-Þingeyjarsýslu. Hólaskóli. Hann er merkasta málið, sem var til umræðu fyrra hluta fundarins. Sigurbur Sigurðsson frá Drafla- stöðum á að verða skólastjóri. Hann hefir nýlega tekið próf við Land- búnaðarháskólann í Khöfn með góð- um árangri og haft þó stuttan náms- tíma. Laun hans verða 1200 kr. á ári auk húsnæðis að einhverju leyti. Síðan er hann tók próf í vor, hefir hann ferðast um Danmörku til þess að kynna sér landbúnaðarkenslu þar. Honum hefir verið falið að kaupa kensluáhöld, sem munu taka langt fram því, er áður hefir tíðkast hér á landi. í sumar ætlar hann til Noregs til þess að verða á land- búnaðarsýningunni í Þrándheimi kynna sér landbúnaðarskóla Norð- manna og skógrækt þeirra, sem með ári hverju tekur miklum fram- förum. Annar kennari verður Jósep J. Björnsson, sem áður hefir staðið fyrir Hólaskóla. í ráði er, að hann fari utan næsta vetur til þess að kynna sér búnaðarskóla Dana, eins og þeir nú eru, mjólkurmeðferð þeirra og landbúnaðarmál yfirleitt. Jósep Björnsson hefir verið hinn vinsæl- asti kennari, enda alkunnur gáfu- maður, og mun því mælast mjög vel fyrir að hann heldur áfram að starfa við skólann. Laun hans verða 800 kr. Hann býr á sjálfseignarjörð sinni, Vatnsleysu í Viðvíkursveit, og verður þar að sumrinu. Komið hefir til orða að koma á fót mjólkurskóla á Hólum að sumrinu um þriggja mánaða tíma, og er þá ætlast til að annar kennari (Jósep Björnsson) verði forstöðumaður hans og fái vitanlega sæmileg laun fyrir það starf. En þetta er enn óráðið og verður auðvitað komið undir áhuga þingsins á að efla mjólkurbú og smjörgjörð á Norðurlandi. Eins og kunnugt er, hefir búfræð- ingur Flóvent Jóhannsson tekið Hóla og skólahúsið á leigu. Hann hefir verið erlendis á búnaðarskól- um í Danmörku síðastliðinn vetur, og er í ráði, að hann verði tfma- kennari við skólann, kenni þar bú- reikningagjörð og leikfimi, veiti pilt- um leiðbeiningu í öllu verklegu í búskapnum, bæði meðan bóknámið stendur yfir, og eins að sumrinu. Hann hefir sérstaklega lagt stund á að búa út ýmisleg nauðsynleg kensluáhöld. Zóphonías prófastur Halldórs- son hefir tvo síðastliðna vctur kent piltum íslenzku með nýrri aðferð og hefir tekist prýðilega að kenna piltum að hugsa, tala og rita á móðurmálinu. Hann heldur áfram, þessu starfi. Eignir skólans námu nú í vor nálægt 30 þúsund krónum. Skuld við landsjóð er 20 þús. kr. Að öðru leyti er skólastofnunin nú alveg skuldlaus. Hin mikla verzlunarskuld, sem skólinn var kominn í, hefir verið að fullu greidd í fyrra og í ár. Nú er verið að gera við skóla- húsið. Fjósið, sem Hermann Jónas- son, fyrv. skólastjóri, reisti á Hól- um og kostaði á 2. þúsund krónur, hefir reynst afarilla, og þess vegna hafa kýr verið á Hólúm í mjög bágu lagi. Nú er í ráði að rífa fjós þetta og reisa nýtt fjós, sem ætlað er að muni kosta um 1000 krónur. Afgjald jarðarinnar og leiga af inn- stæðum búsins á að ganga til þess. (Niðurl. næst.) Ófridi lokið með Bretum og Búum. Loks komust friðarsamningar á með Bretum og Búum um síðustu mánaðamót. Búar játast undir yfirráð Breta- konungs og skila af sér vopnum. Bretar leggja þeim til 54 miljónir króna til þess að reisa hús sín og bú af nýju, og veita þeim auk þess leigulaus lán. Herteknir Búar verða fluttir heim aftur og ganga að fyrri eignum sínum. Búar verða því ekki lengur menn- ingunni til fyrirstöðu, eins og þeir hafa verið að undanförnu, og hinu brezka veldi stendur enginn voði af þeim. Þeir komast að hinu leytinu að góðum friðarkostum. Hvort - tveggja er vel farið. En þrátt fyrir allan þann ljóma, sem vaskleikur Búa hefir varpað yfir þá, er örðugt að verjast þeirri hugsun, að ábyrgð- armikill hefir ofmetnaður þeirra reynst, og að ólíku betra hefði ver- ið að ganga að sáttaboðunum, áður en allar þær hörmungar hafa á dun- ið, sem af ófriðinum hafa leitt. Skilagrein. Eftir brunann hér í vetur gat eg skjótlega tilkynt nokkurum vinum mín- um erlendis tíðindin, og á gamlársdag var fregnin komin til Lundúna. Eftir nýárið stóð bréf frá mér, sem látlaust sagði frá brunanum, í bl. Inquirer (bezta únitarablað á Englandi), og þar hjá gullfalleg orð frá dr. R. A. Armstrong, þjóökunnum kennimanni og framfara- vin í Liverpool (þeim sama er heim- sótti land vort í fyrra, og bar á oss mikið lof). Skoraði hann á lesendur blaðsins að skjótaþegar fé saman, minst 100 pundum, og senda af stað með fyrstu ferð, o: 4. marsmán. Ritstjórinn dr. V. D. Davis tók skörulega í strenginn og safnaði á skömmum tíma 123 pd. st. En tilkynningin kom þó ekki fyr til mín en með Hólum í apríl, ásamt >/s af upphæðinni í póstávísun. Hitt af fénu, sem var víxill til landsbankans, kom ekki fyr en í maí, og varð að senda hann suður tU útlausnar, svo þeir peningar eru nýkomnir. Skyldi þeim vera »skift meðal þeirra, sem í bráðina væri mest bágstaddir*. Oðara en tilkynningin kom, bað eg sýslumann og nokkura aðra helztu bæjar- menn að úthluta peningunum, sem komnir voru eða von var á. Var þá síldaratvinnan að byrja hér, og kom oss ásamt um, að skifta ekki nema rúml. ■900 kr. en geyma hitt, um 300 kr. þar til síðar, enda skyldu þeir einir fá styrk, sem minst eða alls ekki hefði trygt hjá sér. Hlutu svo 7 húsráðendur til sam- ans 1350 kr., 4 fengu 200 (50 hver) og 12 vinnuhjú 265 kr. til samans. Sjálfur fekk eg 100 kr. (fyrir »disconto«, þakk- arávarp til gef. og fl.)

x

Norðurland

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Norðurland
https://timarit.is/publication/203

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.