Norðurland


Norðurland - 21.06.1902, Side 3

Norðurland - 21.06.1902, Side 3
IS5 Seinna komu nokkurir, sem kváðust mist hafa meir eða minna, og gerði eg fáeinúm þeirra úrlausn á eigin ábyrgð, en meira kvað að því, sem eg vék 2—3 sannbágstöddum persónum. Enda bætt- ist enn við 20 punda ávísun. Hún kom frá enskum höfðingja, Mr. Gifford, sem líka ferðaðist hér í fyrra, og var ásamt frú sinni í fylgi Howells sál., þeim er týndist í Héraðsvötnunum. Þau hjón heimsóttu mig nokkurum sinnum með- an þau biðu hér skips; samdi eg fyrir þau, ásamt amtmanninum, skýrsluvott- orð um slysið, og samdi líka fréttabréf til 7ri>nesblaðsins. Því sama blaði ritaði þessi herra Gifford og mæltist til að yfirritstjórinn vildi leita samskota hjá túristum, einkum til að styrkja að endur- reisa »gott hótel hér á hjara veraldar*. En heimsblaðið vísaði því máli á bug. Sendi hann mér svo svar forstjórans og þar með hina nefndu 20 pda ávís- un, sem hann bað mig gera við hvað eg vildi«, (»as you think best.«) Fyrir meðferð minni á þeirri upphæð geri eg enga grein að sinni, og ekki heldur á eftirstöðvum hinnar upphæðarinnar. Henni ráðstöfum við, sem skiftum. Eg vona svo að þeir, að m. k. sem hluthafar orðið hafa í þessum óvæntu mannelskugjöfum, kunni Guði og mönn- um þakkir fyrir. En sjálfur þori eg ekki að ætlast til mikilla þakka, því eg hefi ekkert gert um fram skyldu fyrir bæ- inn, enda engra þakka orðið var, þótt eg hafi, beinlínis eða óbeinlínis, rétt gust- ukamönnum hans hjálparhönd. Vegna konu minnar skal eg þó leyfa mér að geta þess — það er alveg frjálst fram- borið — að af því fé, sem inn kom fyrir leik minn »Aldamót«, höfum við hjón með samþykki þeirra, sem léku, gefið gustukamönnum hér 300 krónur. Og , lítillar velvildar varð eg var hjá meiri hluta bæjarfulltrúanna, þegar sýslumað- urinn hér í vor mælti hvern fund eftir annan fram með því, að bærinn stæði í ábyrgð fyrir mig á meðan eg væri að brjótast í að koma upp lífvænlegri hús- kofa yfir konu mína og börn, en sú tillaga var feld með 4 atkv. móti 2. Auðvitað var það, að »formið« mun hafa þótt eitthvað nýtt eða veilt, enda skal eg játa, að sjálfs mín vegna var mér sú ívilnun lítið kappsmál á gamals aldri, þar sem eg á bráðum víst það húsnæði, sem eg er viss um að bæjarmenn muni veita ínér með öllum samhljóða atkvæð- um — einnig meiri hluta bæjarfulltrúa. 15/6 1902. Matth. fochumsson. 5» Óvanalega kvillasamt er hér í héraðinu og einkum í bænum. Nokkurn tíma undanfarinn hefir gengið þungt, illkynjað kvef, og upp úr því hafa margir lagst í lungnabólgu. Nokk- urir, bæði fullorðnir og börn, hafa dáið. Aðsókn er nú mikil að spítalanum og mjög tilfinnanlegt fyrir lækni og hér- aðsbúa, að enginn aðstoðarlæknir er kominn. En /væntanlegur er hann í sumar, Steingr. Matthíasson, sem lýk- ur háskólaprófi í læknisfræði á þessu vori. Skurðir eru nú daglega gerðir í sjúkrahúsinu, einn eða fleiri, og margir þeirra hættulegir. Spítalinn er fullur. Þessa síðustu daga hefir Sigurður Hjör- leifsson, héraðslæknir í Grenivík, verið við þær óperatíónir, sem gerðar hafa verið Um 100 vesturfarar lögðu á stað héðan með »Vestu«. og búist við að allmargt bættist við á aust- urhöfnunum. Meðal þeirra, sem að aust- an ætluðu til Vesturheims, var síra Einar Vigfússon á Desjarmýri með fjölskyldu sína. Mannalát. Þ. 10. þ. m. andaðist hér í spítalan- um úr brjóstveiki Helga fónsdóttir, Antonssonar í Arnarnesi, iS ára stúlka einkar efnileg. fakobína Pétursdóttir, kona Jóseps járn- smiðs Jóhannessonar lézt hér í bænum 15. þ. m., rúmlega fimtug. Frá prestskap hefir verið vikið um stundarsakir síra Filuppusi Magnússyni á Stað á Reykja- vík. Hann er sakaður um legorðsafbrot. Flensborg skógfræðingur kom hingað með »Vestu< 25. maí og hefir verið hér nyrðra síðan, þar til er hann lagði á stað með »Vestu« austur nú í vikunni. Fyrst fór hann til Grund- ar, til þess að líta eftir gróðrarstöðinni þar. Hann lét fremur vel yfir horfunum, sagði, að gróðrartiiraunirpar virtust ætla yfirleitt að takast betur hér en sunnan- lands. Fjallafuru hefir tekist ágætlega að verja í vetur á Grund, með því að þekja hana með moði, áður en snjór kom; á annan hátt hefir hún ekki lifað. Önnur furutegund er þar, sem stóð vel. Reyniplönturnar hafa staðið sig vel og nú hefir verið plantað 1800 af þeim nýjum, pg alls 400 furuplöntum nýjum (tvær teg.). Af víðitegundunum er rauðpíll eina tegundin, sem hefir þolað loftslagið. Fræplöntur af ýmsum tegund- um hafa verið þaktar með moði og hafa staðið sig vel. Ymsu trjáfræ hefir verið sáð nú, útlendu og líka reynifræi frá Arna landfógeta Thorsteinsson. Eftir er hr. F'lensborg hafði lokið starfi sínu á Grund, hélt hann norður i Fnjóskadal, að Hálsi. Gróðrarstöðinni þar er líkt háttað og hér á Grund og hér um bil sama plantað. Þar girti hann 16 dagsláttur í skóginum og á þar að fara fram regluleg skógrækt. Hann hafði þar 15 manns í vinnu nokkura daga fyrír 22 áura um tímann. Girðingarnar eru frá Englandi, járnstöplar og annar- hvor þráður úr gaddavír, hinn úr slétt- um vír, og eru alveg tilbúnar að setj- ast upp. Alinin á girðingunni kostar 47 aura. Gróðrarstöðina hér á Akureyri skoðaði hann og lætur mikið af því, hve dbrm. J. Chr. Stephánsson sjái um hann með mikilli vandvirkni og nákvæmni. 100 fjallafurur voru fluttar héðan í Hálsskóg. Með »Vestu« fór hr. Flensborg áleiðis til Hallormsstaðar. ^>ar eiga 16 dagsl. að girðast í skóginum. Gróðrarstöð á og að koma upp þar. Fjórða hluta af gróðrarstöðinni áÞing- völlum hefir Öxará gjörspilt í vetur. Kynlegar kosningar. Á kosningarnar í heild sinni mun síð- ar verða minst i „Norðurlandi", þegar frézt hefir um þær allar. En ekki getum vér bundist þess til bráðabirgða að taka það fram, að kynleg hafa kosningarúrslit- in orðið í Norðurmúlasýslu. Pöntunar- liðið gerir þar bandalag við kaupmanna- ríkið á Vopnafirði - ekki meiri samleið en þau tvö öfl annars virðast eiga. Og til hvers? Til þess að fá kosinn ákveðnasta afturhaldsmanninn á landinu, ef nokkuð er að marka það, sem Ólafur verzlunarstjóri Davíðsson ritar i blðð. Og til þess, jafnframt, að bægja frá kosningu tveimur af einlægustu framfaramönnum þjóðarinnar, Jóhannesi sýslumanni Jó- hannessyni og síra Einari Þórðarsyni. Og í hverju skyni er svo þetta gert? Að því, er næst verður komist, í því skyni, í orði kveðnu, að tryggja vald, sjálfstjórnarrétt, frelsi þjóðarinnar. Ólafur Davíðsson, eini maðurinn, sem gegn þjóð- ræði hefir ritað, er kosinn til að vernda vald þjóðarinnar gegn Jóhannesi Jó- hannessyni, sem manna mest hefir að því unnið að koma þjóðræðistryggingunni inn í stjórnarlög vor! Það er ekki til neins að tala um þetta né annað með stóryrðum. En óhætt er að minsta kosti að segja það, að kynlegt er það, að meiri hluti Norðmýlinga skuli láta þetta verða sitt fyrsta stjórn- málaverk, þegar þeir hafa fengið vissu fyrir að þjóðin eigi að fara að fá að ráða sér sjálf. Höfundur gtímukvæðisins, sem prentað er hér í blaðinu og er svo prýðisvel ort, er sonur Jóns skálds Hinrikssonar á Helluvaði og hálfbróðir Jóns í Múla. Hans er minst í síðasta hefti »Eimreiðarinnar« (»Alþýðuskáld Þingeyinga« eftir Guðm. Friðjónsson) og þar eru prentuð tvö kvæði eftir hann. »NorðurIand« er ekki vonlaust um að geta sýnt mönnum fleiri af ljóðmæl- um hans. K. F. U. M. Svo er skammstafað alþjóðafélagið „Kristilegt félag ungra manna", sem síra Friðrik Friðriksson hefir stofnað grein af í Reykjavík. í henni eru nú hátt á 3. hundrað manna í höfuðstaðnum. Charlés Fermaud, sem áður hefir verið minst á hér í blaðinu, hefir komið fastara skipu- lagi á þennan félagsskap í Reykjavík, en áður hafði verið, fengið skipaða stjórn- arnefnd, og eru í henni: síia Jón Helga- son (íormaður), verkfræðingur cand. poiyt Knud Zimsen (varaformaður), cand. theol. Haraldur Níelsson (ritari), bókbindari Quðm. Qamalíelsson (féhirðir), konsúll Ditlev Thomsen og tréskeri Stefán Eiríks- son — auk hins sjálfkjörna framkvæmdar- stjóra félagsins síra Fr. Friðrikssonar. En yfir þessari nefnd segir „Verði ljós!" að standi tilsjónarráð og eru í því: biskup Hallgr. Sveinsson (verndari félagsins), lector Þórhallur Bjarnarson og dómkirkju- prestur Jóh. Þorkelsson, og hefir ráð þetta meðal annars vald til að upphefja félag- ið, ef svo skyldi fara, að það víki frá þeim grundvelli og meginreglum, sem alþjóðasambandið hefir sett. Herskipið „Díana" (yfirmaður Grove) kom hingað 16. þ. m. Það verður í sumar við mælingar fyrir Norðurlandi og ætlar að hafa aðalstöð sína á Eyjafirði. Rannsóknir á sjávarbotni, jurta og dýralífi þar, eiga að fara fram. Þær rannsóknir eru stórlega mikilsverðar fyrir siglingar og fiskiveiðar hér við land, og er það afar- áríðandi að yfirmanninum verði veitt alt það liðsinni af íslendingum, sem hann kann að æskja. Mafsala fyrir gagnfræðaskólann, sem hér á að verða í vetur í bænum, er auglýst hér í blaðinu. Það er vitanlega einkar áríðandi, að það fyrirkomulag geti kom- ist á, sem var á Möðruvöllum, og hlut- aðeigendur ættu því að sinna tilboði hr. Jóns Dalmanns sem fyrst. AllabrösO. Töluvert hefir aflast af þorski hér á Pollinum þessa viku. En af síld ekki til muna. Mikill afli sagður í Ólafsfirði, um 14 kr. hlutir á dag þar fyrir síðustu helgi. Bankamáiið. Sannfrétt er, að hlutafélagsbankafrum- varp síðasta þings verður staðfest af stjórninni fyrir næsta þing. Fyrir ráða- neytinu hefir að sögn legið síðan í febrúar frumvarp frá landshöfðingja og bankastjórninni um að auka Lands- bankann með láni, láta hann gefa út 1 milj. og 600 þús. í seðlum o. s. frv. En ráðaneytið hefir hafnað þeirri til- lögu, einhverra hluta vegna ekki þótt hún aðgengileg. Þar á móti hefir hún ekki séð neina hættu við stofnun hluta- félagsbankans. VarðskipiO ,.Hekla“ (yfirmaður Hammer) kom í morgun sunnan úr Reykjavík, er að líta eftir út- lendum fiskiskipum hér norðanlands. Sildln erlendis. Með „Ceres" komu þær fréttir, að lítil eftirspurn væri eftir síld um það leyti, sem skipið lagði á stað frá Khöfn, og fremur er búist við lágu verði um stund. Hákarlaveiöin hefir verið mikil hér í vor. Síðan 30. maí hafa þau hákarlaskip, sem nefnd verða hér á eftir, komið hingað úr sinni fyrstu ferð. Eiganda nöfnin eru innan sviga og aflinn þar aftan við tal- inn í tunnum lifrar. »Aage«(Carl Höepfner) 207; »Anna« (Carl Höepfner) 174; »Brúni« (Chr. Havsteen) 130; »Christian< (Gránufél. og ft.) 163; »Erik« (Gudmanns Efterfl.) 155; »Henning« (J. V. Havsteen) 186;

x

Norðurland

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Norðurland
https://timarit.is/publication/203

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.