Norðurland


Norðurland - 21.06.1902, Blaðsíða 4

Norðurland - 21.06.1902, Blaðsíða 4
156 >Hríseyjan* (Carl Höepfner) 153; >Kjerstine« (Gránufél.) 101; »Minerva« (Friðrik Jónsson) 187; »Víkingur« (Gud- manns Efterfl.) 151; »Vonin« (Gránufél. og fl.) 211; »Æskan« (Gránufél.) 135. Auk hákarlaskipanna kom þ. 17. þ. m. fiskiskipið »Prinsessen« eig. Jakob Björnsson kaupmaður á Svalbarðseyri, með 9000 af fiski. Siglingar hafa verið miklar hingað þessa viku. »Vesta« komloks á sunnudaginn vest- an af Skagafirði. ís þar mikill. Fór aft- ur á mánudag, austur, áleiðis til útlanda. »Jæderen«, gufuskip frá Wathnes Erf- ingjum kom á sunnud. frá útlöndum. »Skandía« gufuskip með trjávið til Snorra Jónssonar, kom á þriðjud. »Egill gufuskip Wathnes Erfingja, kom á miðvikud. frá útlöndum og Aust- fjörðum. >Hólar« komu á fimtud. sunnan að. »Nordlyset«, gufuskip frá Wathnes Erfingjum, kom á fimtud. með tunnur og salt. »Urd«, gufuskip með trjávið til Sigtr. Jónssonar snikkara, kom á fimtud. »Ceres« kom í morgun frá útlönd- um og Austfjörðum. JCáttoirtir augtýsendur á Oddeyri geta komið aug- lýsingum þeim, sem í„Norður- land“ eiga að fara, til hr. Bjarna Lyngholts, ef þeir vilja það heldur en gera sér ferð með þœr inn á Akureyri. Undirritaður hefir í hyggju að selja gagnfræðanem- endum á Akureyri næst- komandi vetur matreiðslu og þjónustu með líkum kjörum og áður hefir verið á Möðruvöll- um, ef nógu margir fást. Þeir, sem vilja sinna þessu til- boði, geri svo vel og semji sem fyrst við undirr. eða kennara Stef- án Stefánsson á Möðruvöllum. Margir piltar geta einnig fengið leigð herbergi í húsinu. Oddeyri 18. júní 1902. Jón J. Dalmann. eir, sem „Norðurland“ hefir verið sent til út- sölu og, enn hafa ekki gert ritstjóra viðvart um, hve mikið þeir selja eða hvort þeir selja nokkuð, eru vinsamlegast beðnir að gera það sem allra fyrst ________________ Kvennaskólinn á Blönduósi. Þær stúlkur, sem ætla sér að sækja um skólavist á kvennaskól- anum á Blönduósi næsta vetur, eru beðnar að senda umsóknar- bréf sín til undirritaðs formanns skólanefndarinnar við fyrstu hent- ugleika. Hver stúlka borgar með sér 135 kr. fyrir kenslu, fæði, húsnæði, ljós og hita; helming fyrir fram og helming við burtför. Skólaárið er frá 1. okt.—14. maí. Stúlkur lengra frá mega koma, þó þær ekki verði búnar að fá svar; einnig mega þær koma fyr eða seinna eftir því sem stendur á skipaferðum. Blönduósi 12. júní 1902. J. Q. Möller. óð jörð fæst keypt á Vatns- leysuströnd, sem gefur af sér 200 hesta af töðu; hef- ir ágætis fjöru, beiti- og afréttarland. Hún gefur af sér 60 — 80 tnr. af garðávöxtum ár- lega. Timbur og steinhús með mörgum fl. húsum fylgja jörðinni. Til dæmis timburhlaða fyrir töð- una alla. Sveitarþyngsli engin á hreppnutn nú orðin. Hrokkelsa- veiði fyrirtaksgóð, og útræði, ef fiskiföng lifnuðu við í Faxaflóan- um aftur, mjóg gott. Jörðin er fyrirtak fyrir fámenna, af því hún er svo hæg til sjós og lands. Semja má við Jakob Gísla- son kaupmann á Akureyri og Odd Gíslason málsfærslumann í Reykjavík. jW JÓLKURSKI LVINDAjsí „PERFECT“ smíðuð hjá Burmeister & Wain fekK hæsfai verðlaun á sýningunni í Lodi (í Ítalíu). „Perfect“ er einbrotnust. „Perfect“ er auðveldast að hreinsa. „Perfect“ skilur rjómann bezt úr mjólkinni. „Perfect“ er léttast að snúa. „Perfect“ þarf sjaldnast aðgerðir og er endingarbezt af öllum skilvindum nútímans. „Perfect“ er skilvinda framtíðarinnar. Hin mikla verksmiðja hjá Burmeister & Wain, sem nú er loks fullgerð, þar sem eingöngu eru smíðaðar ^Perfect44 skiivindur, er hin fullKomnasta mjólkurskilvindu-verK- smiðja, sem nú er til í heiminum. Einkaumboðsmaður fyrir ísland og Færeyjar Jakob Gunn/ögsson, Kjöbenhavn K. 4 On t "n •ÍS -53 4 | i! o ^ $ Perfect-skilvindan fæst hjá Sigv. Þor- steinssyni á Akureyri. 0KT Crjávid seljum oið undirritaðir með beztu kförum. A/Iar tegundir af trjávið eru tií Akureyri 21. júní 1902. J. Gunnarsson. S. Jóhannesson. Nýkomið í verzlun Gudmanns Efterfl. Matvara, allskonar. Nýlenduvörur, svo sem kaffi, sykur, export, ýmisl. krydd o. m. fl. Tóbak, af öllum tegundum. Pakkalitir frá Buch. Sápa, margskonar. Leirvörur og glervörur, mjög fjölbreyttar og fallegar. Hattar, húfur og fatnaður. Skór og stígvél handa börnum og fullorðnum. Járnvörur allskonar, þar á meðal „Svea“ strokkar, sem eru einkar hentugir og góðir, kosta að eins 5 kr. Smíðatól, svo sem hefilstokkar, tannir, sporjárn, þjalir, sagir o. fl. Vefnaðarvörur, mjög vandaðar og fjölbreyttar. Steinolíuofnarnir „Aladin", saumavélar, steinolíuvélar 4 tegundir, þráðarrokkar, ullarkambar, hárklippur, byssur, klukkur, vasaúr, úr- festar, loftvogir, hitamælar, albúm og ótal margt fleira. Akureyri 12. júní 1902. Jóh. Vigfússon. Hérmeð áminnast allir þeir, sem skulda við Qudmanns Efterfl. verzlun á Akureyri, að semja við mig um skuldir sínar eða borga þær fyrir 15. júlí næstkomandi. — Akureyri, 12. júní 1902. Jóh. Vigfússon. Vindla & reyktóbaksverksmiðjan á Akureyri selur vindla og seinna reyktóbak í smærri og stærri kaupum. Umboðsmenn fyrir verksmiðjuna óskum við að fá í hverju kauptúni á landinu. Menn snúi sér til Ó. Q. Eyjólfssonar á Akureyri, munnlega eða bréflega. Þeir kaupmenn, sem gera kost á að selja kvennaskólanum á Blöndu- ósi vörur gegn peningaborgun, kotnnar í land á Blönduósi um miðjan september n. k. svo sem: Rúgmjöl, Hrísgrjón, Baunir, Flórmjöl, Bankabygg, Hveiti, Export, Melis, Kaffi, Kandis, Púðursykur og fl., sem til kosthalds með þarf, geri svo vel að senda undirrituðum sín lægstu framboð fyrir 31. júlí n. k. Eftir áskorun sýslunefndarinnar í Húnavatnssýslu. í umboði forstöðunefndar kvennaskólans. Blönduósi 12. júní 1902. J. Q. Möller. ú er gufuskipið „Skandía" komið með miklar birgðir af allskonar trjávið, sem eg sel mjög ódýrt eittk- um mót peningaborgun strax. Sn. Jónsson. Jakob Qíslason lætur smíða aliskonar skófatnað, og ann- ast allar aðgerðir sem að undanförnu. Verkfæri og vinna er engu lakari en áður. fsláttarþesta kaupir und- irritaður á næstkomandi hausti. 13/6 1902. Jóh. Ghristensen. Steingrár reiðhestur, vakur, 7 vetra, mark blaðstýft fr. h., tapaðist frá Bændagerði 19. þ. m. Finnandi skili til Magnúss B. Blöndals, Ak- ureyri, eða til Björns Sigfússonar, Kornsá í Hútiavatnssýslu. Frímerkja-safn (fult 1000) er til sölu, ef viðunanlegt boð fæst; ritstjórinn vísar á seljanda. ,.Norðurland“ kemur út á hvegum laugar- degi. 52 blðð um árið. Verð árg. 3 kr. á fslandi, 4 kr. í öðrum Norðurálfulöndum, IV2 dollar í Vestur- heimi. Gjalddagi fyrir miðjan júlí að minsta kosti (erlendis fyrir fram). Uppsögn sé skriflegog bundin við árgangamót; ógild nema komin sé til ritstjóra fyrir 1. julí. Auglýsingar teknar f blaðið eftir samningi við ritstjora. Afsláttur mikill fyrir þá, er auglýsa mikið. Prentsmiðja Norðurlands.

x

Norðurland

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Norðurland
https://timarit.is/publication/203

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.