Norðurland - 28.06.1902, Page 2
Nl.
i58
kunnugt er, á hvora sveifina þeir
2 muni hallast, sem þá eru ótaldir.
Flokkaskiftingin er því nokkuð
óljós enn, og verður það sennilega,
þangað til um það leyti, er þingið
í sumar verður á enda kljáð.
Ofurkapp var á það lagt fyrir
þessar kosningar að ófrægja Fram-
faraflokkinn. Svo mjög voru gjörðir
hans affluttar og færðar á verri veg,
að jafnvel þótt hann tjáði konungi á
síðasta þingi, að þjóðin hefði aldrei
verið ánægð með þann samninga-
grundvöll, er frumvarp alþingis 1901
var bygt á, og lýsti yfir því, að hún
vildi fá æðsta stjórnandann inn í
landið, var því haldið fram ósleiti-
lega, að flokkurinn ætlaði ekki að
ganga að neinu öðru en frumvarpi
síðasta þings. Og tilhæfulaus, gífur-
leg ósannindi voru spunnin upp,
eins og t. d. þau, að flokkurinn
hefði fengið nokkurra þúsunda kosn-
ingasjóð frá öðrum löndum, og þar
fram eftir götunum.
Sýnilega hafa þessar ófrægingar
borið nokkurn ávöxt í svipinn. En
til langframa getur hann ekki orðið.
Ófrægingar, sem ekki eru á neinu
bygðar, verða aldrei endingargóðar
• hjá skynsömum og samvizkusömum
mönnum. Þær geta blekt þá í svip. En
svo eru þær von bráðar úr sögunni.
Um hitt er meira vert, að kosn-
ingarnar gefa nokkura ástæðu til
að ætla, að afturhaldsandi sé all-
ríkur með þjóðinni. Páll Briem nær
ekki kosningu í Húnavatnssýslu;
þann manninn, sem ef til vill hefir
ákveðnastan hug í framfaraáttina af
öllum íslendingum, vantar 36 at-
kvæði til þess að hafa jafn-mikið
fylgi eins og Jósafat á Holtastöðum.
Ólafur Davíðsson, sá maðurinn, sem
ótvíræðlegast hefir látið uppi aftur-
haldsskoðanir af öllum íslendingum,
er sendur á þing í stað Jóhannesar
Jóhannessonar, sem komið hefir þjóð-
ræðinu inn í hin væntanlegu stjórn-
arlög vor. Sighvatur Arnason kemur
í stað Magnúss Torfasonar. Og
fleiri dæmi má til færa, sem áhuga-
miklum framfaramönnum hlýtur að
standa stuggur af.
Jafnframt er og ástæða til í þessu
sambandi að benda á þá forystu, sem
»Heimastjómarflokkurinn« á nú að
fagna, og hve vænleg hún er fyrir
framfaramál þjóðarinnar. Eftir er
Hannes Hafstein er fallinn —- ekki
með 5 atkvæða mun, eins og dr.
Valtýr Guðmundsson og Jens Páls-
son, ekki með 6 atkvæða mun, eins
°g Jóh. Jóhannesson, ekki með 34
atkv. mun, eins og Páll Briem, held-
ur með 97 atkv. mun — er forystan
ómótmælanlega sem stendur í hönd-
um Lárusar Bjarnasonar. Og þeir
eru víst fáir, sem gera sér í hug-
arlund, að hann muni sérstaklega til
þess failinn að auka frelsið eða ment-
unina eða réttlætið með þjóðinni.
En að hinu leytinu er vert að
hafa það hugfast, að utan Fram-
faraflokksins hafa nú verið kosnir
á þing menn, sem áreiðanlega hafa
alt annan hug á framfóram þjóðar-
innar en Lárus Bjarnason og þeir,
sem nú kunna að vera ráðnir í að
skipa sér utan um hann. Svo fram-
arlega sem kosningarnar að sumri
fara líkt og kosningarnar fóru nú,
verður það að stórmiklu leyti kom-
ið undir þessum mönnum, ötulleik
þeirra, sjálfstæði og hæfileikum,
hvort vér eigum nú í vændum tíma-
bil, er hrindi framförum þjóðar vorrar
áfram langar leiðir, eða kyrstöðu- og
kyrkings-tímabil, sem gerir djúpið
milli vor og framfara- og menningar-
þjóðanna enn breiðara og enn dýpra
en það nú er.
\
Sýslufundur Skagfirðinga.
Haldinn á Sauðárkrók 24.-28. febr. 1902.
Ágrip.
Sundkensla.
Samþykt, að verja alt að 100 kr. til
sundkenslu í sýslunni næsta árog sækja
um jafnmikinn styrk úr landsjóði.
Drangey.
Veiðst höfðu við eyna 91725 fuglar
síðastliðið vor.
Samþykt, að endurveita 50 kr. til sand-
græðslu-tilrauna í eynni. Jósep skóla-
stjóra Björnssyni falin framkvæmd.
U msj ónarmaður eyjarinnar kosinn Þor-
steinn Jónsson.
Samþykt, að kaupmenn, er taka fisk
við Drangey, borgi 6 kr. fyrir að fá
að hafa fisktökubyrgi á fjörunni.
Páli Þorkelssyni leigð Drangey næsta
ár fyrir 25 kr.
Markaskrá.
Samþykt að prenta vibæti við marka-
töflu sýslunnar.
Sjúkrasjóðsmál.
í sjóði sjúkrahússins á Sauðárkróki
voru kr. 2236.19. V. Claessen kaupmað-
ur endurkosinn gjaldkeri.
Samþykt að veita Teóbald Árnasyni
á Sauðárkrók 100 kr. styrk til sjúkra-
halds næsta ár og Magnúsi héraðslækni
Jóhannssyni 100 kr. til spítalahalds í sínu
héraði
Hreppstjóraefni.
Tilnefnd hreppstjóraefni í Skefils-
staðahreppi: Jóhann Sigurðsson, Sævar-
landi, Pétur Björnsson, Gaukstöðum og
Jón Sveinsson, Þangskála.
Eftirlitsmenn.
Oddvita falið að gera tillögu um
skipun eftirlitsmanns eða eftirlitsmanna
um kláða á sauðfé, ef skipun þeirra
þarf að fara fram áður en sýslufundur
verður haldinn að ári.
Refaveiðar.
Oddvita falið að brýna fyrir hrepps-
nefndum að gæta sem bezt allra ákvæða
refaeyðingar-reglugjörðarinnar og sér-
stakiega að láta eitrun fyrir refi fara
fram undantekningarlaust í öllum hrepp-
um sýslunnar fyrri part vetrar.
Breyting á aðalpóstleið.
Samþykt að skora á landstjórnina
að veita styrk af fé því, sem ætlað er
til fjallvega, til vegabóta á Kolugafjalli.
Samþykt ósk um, að póstleiðin verði
lögð frá Blönduósi um Kolugafjall til
Sauðárkróks, og áskorun til landstjórn-
arinnar um að láta verkfræðing Iands-
ins skoða fjallveg þennan hið fyrsta.
Samþykt áskorun til landstjórnarinnar
um, að þangað til póstleiðin sé lögð
um Kolugafjall milli Blöndóss og Sauð-
árkróks, sé aðalpóstur látinn ganga frá
Víðimýri til Sauðárkróks, um Héraðs-
vatnaósa fram Blönduhlíð og sömu leið
á suðurleið til Víðimýrar.
Ljósker.
Samþykt að verja alt að 30 kr. til
að kaupa olíu á Ijósker á Sauðárkróki,
og skal kveikja á kerinu frá 1. ág. til
30. nóv. og frá 1. marz. til 30. apríl.
Ábyrgð fyrir hreppsfélög.
Samþykt að sýslan taki að sér ábyrgð
fyrir Viðvíkur og Hólahreppa á óborg-
uðum hluta láns úr Söfnunarsjóði til
afréttarkaupa, að upphæð kr. 3400.
Vegabœtur.
Veittar alt að 100 kr. til vegabóta
á Laxárdalsheiði, alt að 500 kr. til
vegagjörðar milli Framness og Brekkna
°g 465 kr. til annara vegabóta í sýsl-
unni, þar sem brýnust þörf krefur.
Kvennaskólamál.
Þessar samþyktir gerðar:
Neitað að greiða mætti kvennaskól-
anum á Blönduósi þær 150 kr., er sýslu-
nefndin hafði í fyrra veitt kvennaskól-
anum á Ytriey.
Feld með öllum atkvæðum beiðni
stjórnamefndar kvennaskólans áBlöndu-
ósi um 300 kr. styrk til skóla þessa.
Lýst yfir því, að sýslunefndin sé því
hlynt, að einn kvennaskóli fyrir alt
norðurland komist á, og fús til að leggja
fram tiltölulegan styrk til slíks skóla,
jafnvel þótt hann standi á Blönduósi.
Samþykt að kjósa þriggja manna
nefnd til þess, ef útlit væri til að sýslu-
nefndirnar í norðuramtinu gætu samein-
að sig um einn kvennaskóla, þá ásamt
fulltrúum annarra sýslna að mæta á
fundi, sem væntanlega yrði haldinn í
þeim tilgangi að ráða slíku kvennaskóla-
sameiningarmáli til fykta. Kosnir: E.
Briem sýslumaður, Olafur Briem og
Jósef Björnsson.
Feld tillaga um að mæla með styrk-
veitingu til kvennaskólans á Blönduósi
úr jafnaðarsjóði Norðuramtsins.
Afréttarkaup.
Samþykt að veita hreppsnefnd Sauðár-
hrepps heimild til að kaupa Selhólaland
til afréttarnota og að taka 500 kr. lán
upp á hreppinn til þess.
Kynbœtur hrossa.
Hreppsnefnd Staðarhrepps veitt heim-
ild til að verja fé úr hreppssjóði til kyn-
bóta hrossa.
Oddvita falið að skora á sýslunéfnd-
ina í Húnavatnssýslu að koma á reglu-
gjörð um kynbætur hesta í hreppum
sýslunnar austan Blöndu, og sömuleiðis
að skora á sýslunefnd Eyjafjarðarsýslu
að koma á sams konar reglugjörð í
þeim hreppum sýslunnar, er næst liggja
Skagafjarðarsýslu.
Ferjumál.
Samþykt að verja 300 kr., sem veitt-
ar eru í fjárlögum, til að borga ferju-
manni við Héraðsvatnaós, en ferjutoll-
ur færður niður.
Bráarmál.
Samþykt að leggja 20 aura brúarsjóðs-
gjald á hvert lausafjárhundrað og hvern
verkfæran mann næsta ár, og oddvita
falið að fá leyfi til þess.
' Samþykt að veita alt að 1500 kr. til
brúargjörðar á Gönguskarðsá, sem borg-
ist út eftir 3 ár, en Sauðár og Skefils-
staðahreppar borgi alt grjótverk.
Flutningabraut.
Skorað á landstjórnina að láta verk-
fræðing landsins gera áætlun um kostn-
að við lagningu á flutningabraut, frá
Sauðárkróki fram Skagafjörð vestan
Héraðsvatna, svo bráðlega, að sú áætlun
verði lögð fyrir alþingi 1903.
Þinghús.
Hreppsnefndum Holts og Haganess-
hreppa veitt heimild til að reisa sam-
eiginlegt þinghús fyrir báða hreppana
og taka alt að 800 kr. lán upp á hrepp-
ana í því skyni. Sýslunefnd tekur að
sér ábyrgðina, ef hrepparnir fá ekki
lánið á eigin ábyrgð.
Verkstjóri.
Hallgr. Þorsteinsson ráðinn verkstjóri
við sýsluvegavinnu á næsta vori.
Jarðabðta-verðlaun.
Mælt með Árna Ásgrímssyni bónda
á Kálfsstöðum til verðlauna úr Rækt-
unarsjóði fyrir jarðabætur.
Lán úr sjúkrasjóði.
Mælt með Magnúsi héraðslækni Jó-
hannssyni, að hann fái 800 kr. lán úr
sjúkrasjóði, og sama veittur 50 kr. styrk-
ur til að kaupa áhöld til sjúkrahalds í
húsi sínu næsta ár.
\
í ísafjarðarsýslu
hefir kjósendum sýnilega verið meira
en lítið áhuga- og alvörumál að senda á
þing sína gömlu fulltrúa, Skúla Thor-
oddsen og síra Sigurð Stefánsson. Út í
frá niunu fæstir hafa við því búist, að
Hannes Hafstein yrði látinn sitja heima.
Þó að forystan væri á síðasta þingi miklu
freniur í höndum Lárusar Bjarnasonar
en hans, var hann samt talinn aðalfor-
ingi „Heimastjórnarrnanna". Sérstakt kapp
hefir verið á það lagt í blöðum þess
flokks að halda honum fram, enda var
honum ætlað að verða forseti neðri deild-
ar í sumar, hvað sem síðar yrði. Hann
er tnaður prýðilega tnáli farinn og að
öllu hinn álitlegasti. Kosning sína virð-
ist hann hafa sótt fastar en önnur þing-
mannsefni. Svo var og við því búist, að
verzlanir Ásgeirs Ásgeirssonar, Tangs og
Grams mundu veita honum öflugt fylgi,
enda varð og sú raunin á, mönnum ógn-
að með skuldum og þar fram eftir göt-
unum, eftir því, sem „Norðurlandi" er
ritað úr ísafjarðarsýslu. Og þrátt fyrir
þetta alt, vantar sýsltunann 97 atkv. til
þess að ná sama atkvæðafjölda eins og
sá þingmaðurinn, sem færri atkvæði hlaut.
Sjálfsagt hefir kosningin verið sótt
mjög fast af hálfu liðsmanna Framfara-
flokksins í kjördæminu. Skúli Thoroddsen
flutti með sér prentsmiðju vestur og gaf
út blað á ísafirði, meðan á kosningahríð-
inni stóð, og bendir það, sem er eins
dætni, á, að ekkert hafi verið látið ógert.
En hvað sem því líður, hefir vilji kjósenda
sýnilega verið óvenjulega einbeittur og
ákveðinn.
Kynlegt er það, að sýslumaður virðist
hafa talið sér sigurinn vísan. Til þess
að fagna þeim sigri, var veizla fyrirbúin