Norðurland - 28.06.1902, Page 3
í barnaskólanum, að kosningunni afstað-
inni, og Tr. Ounnarsson bankastjóri fór
vestur til að sitja hana.
Grasvöxfur
hefir verlð mjög óvænlegur fram að
þessu vegna kulda og sífeldra þurka.
Síðustu daga hefir komið nokkur væta
og jörð því heldur að lifna.
Sýslufundur
(aukafundur) var haldinn hér á mánu-
dag og þriðjitdag. Ýms mál voru afgreidd,
sem getið verður um í næsta blaði. Sam-
þykt var nteð öllum atkvæðum gegn 1
(Björns Jónssonar ritst.) að selja tóvél-
arnar með þeim skilyrðum, sem rædd
voru á aðalfundinum í vor, að því við-
bættu, að kattpendur fái töluverða lóð.
Sala tóvélanna hafði verið samþykt í
öllum hreppum sýslunnar, þar sem hún
hafði verið borin upp. Sýslumaður Kl.
Jónson var á Siglufirði dagana á undan
fundi að þinga, ætlaði að koma með
„Skálholti", en varð að fá hvalaveiða-
skip til að flytja sig heim.
Siglingar.
„Ceres" fór á þriðjudaginn suður með
fjölda farþegja, þar á nteðal Sighv. Bjarna-
son bankastjóra, Quðjón Ouðmundsson
búfræðiskandídat, ekkju sira Magnúss í
Laufási o. nt. fl.
Seglskipið „Ansgar" kont á þriðjttd.
með ko! til konsúls Havsteens.
Oufuskipið „Frithiof" kom á þriðjttd.
með vörur til pöntunarfélaganna.
„Skálholt" kom á miðvikudag, 2-3
dögum eftir áætlun. Hafði tafist af
stormum. Komst á allar hafnir, nenta
Bitrufjörð og Borðeyri; þar bannaði ís-
hröngl viðkontu. Annarstaðar enginn ís.
Fiskiskip
hafa komið inn síðan er síðasta blað
»Norðurlands< kom út, þau er nú skal
greina (eigendur aftan við skipsnöfnin,^
innan sviga): »Jón< (Jón Norðmann),
»Geysir< (Jón Norðmann), »Helga< (Tuli-
nius), »Tjörfi< (Þorv. Davtðsson), »Gest-
ur< (Jón Antonsson). Aflinn er yfirleitt
fremur rýr, eftir þeim tíma, er skipin
hafa verið úti, 7000—11,000 á skip.
Síldin.
Um 1V2 viku hefir nú ekki verið
kastað neinum vörpum. Stldin virðist
alveg hafa lagst frá nú í bráð. Allir eru
búnir að taka upp úr vörpum sínum
nema þeir félagar F. & M. Kristjánsson
og Tulinius. Þeir eiga nót, sem búið
er að taka upp úr yfir 100 tunnur og
talsvert eftir í henni enn.
Nýja veiðiaðferð
á að fara að reyna hér. Nokkurir
danskir menn hafa komið með veiði-
áhöld, sem ekki hafa fyr verið notuð
hér. Staurar eru reknir niður töluvert
frá landi og nætur strengdar á þá. Alls
konar fiski eV ætlað að fara þar inn
eins og í kvíar, en svo um búið, að
hann kemst ekki út aftur. Þessa dag-
ana er verið að koma veiðarfærum þess-
um fyrir, en engin reynd komin á þau.
159
Nl.
Ferð
Guðjóns Guðmundssonar.
Hann ferðaðist um Eyjafjarðar og Þing-
eyjarsýslur frá því, er hann kom með
„Vestu" og þar til er hann fór nú aftur
með „Ceres".
í Hörgárdal sagði hann áhuga mikinn
á búnaðarmálum. Þar er verið að koma
á nautgripa-kynbótafélagi fyrir alian dal-
inn, og mikið unnið að jarðabótum, sér-
staklega í búnaðarfélagi Arnarneshrepps.
Frammi í firðinum er einnig talsverður
áhugi á jarðabótum, enda hefir Magnús
kaupmaður Sigurðsson á Qrund gefið
þar gott dæmi til eftirbreytni.
Frá Akureyri fór hr. Q. Q. út í Höfða-
hverfi og þaðan að Stóruvöllum í Bárðar-
dal. í Höfðahverfi sagði hann marga
áhugamenn í búnaði og góða bændur,
þar á meðal Höfðabræður, sem hann
telur að meira liafi að líkindum gert til
að bæta jörð sína á síðari árum en nokk-
urir aðrir á Norðurlandi.
í Bárðardal mun hafa verið meira hugs-
að um kynbætur á síðari árum en annar-
staðar á landinu, að því, er hr. O. O.
segir. Þar er kynbótafélag 20 ára gam-
alt. Því miður hefir það aðallega feng-
ist við sauðfjár-kynbætur, en minna skeytt
um nautpening. T. d. gat hann þess, að
á Stóruvöllum hefði að líkindum verið
bezta kýrin, sem til hefði verið á land-
inu; hún mjóikaði árlega alt að 4000
pottum og eitt ár 5000 potta; át þó
fremur lítið og mjólkin var feit og góð.
En undan henni er ekki til nema ein kýr.
Baldursheims-fjárkynið í Bárðardal (nú
að eins talið óblandað á 3 bæjum) mun
vera feitlægnast og þroskabráðast fjárkyn
á landinu. Hefir þó þá galla, að það er
of ullarfínt og alt of mörmikið, og auk
þess er því kvillahætt.
Þann 18 þ. m. var hann á aðalfundi
Fjárræktarfélags Þingeyinga á kynbóta-
búinu Halldórsstöðum í Reykjadai, en
gat ekkert séð af fénu, með því að það
var ekki heima við. Hann telur Þingey-
inga eiga miklar þakkir skilið fyrir að
hafa fyrstir komið upp kynbótabúi, en
telur miður vel til fallið að búið skuli vera
eign hlutatélags; miklu betra að það væri
einstaks manns eign, en styrkt af almanna-
fé. Ærnar þykja honum og of fáar um
40 þar sein félagið nýtur svo mikils
styrks (350 kr.).
Á hreppaskilum á Einarsstöðum dag-
inn eftir kom hann á fundi til að ræða
um nautgripa-kynbótafélag. Árangurinn
varð sá, að kynbótafélag var stofnað fyrir
allan hreppinn í þrem deildum. Hug-
myndin áður komin þar upp og málið
því vel undirbúið.
Sauðfjárrækt yfirleitt í bezta lagi í
Suður-Þingeyjarsýslu og áhugi rnikill á
henni. Þó eru menn þar yfirleitt að reyna
að sameina gott mjólkurkyn og gott ullar-
og sláturfé; en því ekki unt að fá fram-
gengt.
Kýr eru tiltölulega fáar í Suður-Þing-
eyjarsýslu, 2 —3 á bæ. Á Grenjaðarstað
eru þó 9 mjólkandi kýr, enda langflest-
ar þar. Eðlileg afleiðing af kúafæðinni
er sú, að tún eru yfirleitt lítil. En hr.
Q. Q. vonar, að breyting fari að verða
á því hjá öðrum eins búmönnum og
Þingeyingar eru - þeir fari að athuga
betur, hve afarinikla þýðingu túnræktin
hefir fyrir landbúnaðinn.
Veðurathusranir
á Möðruvöllum í Hörgárdal eftir St. St.
1902. Júní. Um miðjan dag (kl. 2). Minsturhiti (C.)á sólar- hringnum.;
Loftvog (þml'). Hiti (C.). 3 V* 3 "8 > 5 rt </) Úrkoma. |
Sd. 8. 76.6 8.5 N 2 0 0.9
Md. 9. 76.5 11.0 N 1 10 4.0
Þd. 10. 76.3 4.5 N 3 6 2.5
Md.ll. 76.i 6.5 N 1 5 0.5
Fd. 12. 76,i 11.0 N 2 8 - 2.t
Fd. 13. 76.3 lO.o 0 5 2.0
Ld. 14. 76.7 14.o N 1 5 1.5
Sd. 15. 76.9 13.8 0 10 7.8
Md. 16. 76.8 15.0 0 1 6.8
Þd. 17. 76.6 I6.0 Sv 1 2 5.8
Md. 18. 76.9 5.4 N 2 3 3.0
Fd. 19. 76.9 8.0 N 1 2 - 2.5
Fd. 20. 76.8 10.5 N 1 2 - 1.5
Ld. 21. 76.8 11.5 0 7 1.0
Sd. 22. 76.61 8.e E 1 8 1.0
Md.23. 76.6 8.4 0 10 5.o
Þd. 24. 76.2 14.0 0 10 6.1
Md.25. 76.i 17.o 0 8 5.0
X
Siglufirði 20. júní 1002.
Hákarlaskipin héðan hafa verið að
koma inn þessa dagana með bezta afla.
Um daginn (úr einni ferð) kom »Sigl-
nesingur-j með 205 tnr. lifrar, og »Vík-
ingur« með 196 tnr. Nú kom »Siglnes-
ingur« með 195 tnr., »Christíane< 180
tnr., »Víkingur« 188 tnr., »Njáll 185 tnr.,
»Stormur litli< 82 tnr., og er nú hættur;
»Latibrúnn« 47 tnr.
Tíðin heldur köld annað veifið, svo
gróður er lítill. Skepnuhöld urðu hér
góð, flestallir birgir fram úr með hey.
Hvalveiðamönnunúm gengur fremur
stirt að ná hvalnum; bæði segja þeir
lítið orðið um hval, og það, sem sjáist,
sé svo stygt, að illmögulegt sé að kom-
ast í skotfæri við hann; og er það eng-
in furða, þar sem um 30 skotbátar þeys-
ast um hafið hver í kapp við annan til
að ná í hval. —
Heilbrigði manna milli góð. —
G. S. Th. G.
X
Fyrsti sjúklingurinij mini).
Ensk saga.
VIII.
I sama bili, sem eg lauk við að lesa
þetta raunalega bréf, korii dr. Roper
þjótandi inn í stofuna og augu hans
glömpuðu af geðshræringu.
»f guðs bænum komið þér undir
eins, Halifax,« sagði hann og ætlaði
varla að ná andanum. »Kvenvargurinn
hefir komist inn i herbergið, þar sem
líkið er. Þegar hún sá það, vissi hún
ekki, hvað hún átti af sér að gera. Hún
hefir játað það, að öll þessi andstygð-
ar-saga hennar sé lygi — að dóttir
hennar, fyrri kona Ogilvies heitins, sé
í raun og veru dáin fyrir mörgum ár-
um, og að hún hafi búið þessi voða-
ósannindi til í því skyni að hafa pen-
inga út úr honum.<
Eg gat ekki ráðið mér fyrir fögnuði.
»Þá — þá reynum við það,« hrópaði eg.
»Reynum við hvað? Eruð þér orðinn
vitlaus?<
»Hvað er þetta, Roper? Sjáið þér
það ekki? Skiljið þér ekki það, að fyrst
konan hefir farið með lygi, þá er engin
ástæða fyrir Ogilvie til þess að ráða
sér bana? Lyfið er lengi að verka. Það
getur verið, að hann sé bara meðvit-
undarlaus. Við björguðum konunni hans
— við reynum að bjarga honum líka.<
Eg þaut út úr herberginu, og Roper
kom á eftír mér; en það var eins og
hann vissi hvorki f þennan heim né
annan. Við rákum alla út úr borðstof-
unni og lokuðum hurðinni. Eg reif dúk-
inn ofan af andlitinu, þreif spegil og
hélt honum að vitunum á líkinu.
»Guði sé lof!< sagði eg svo, sneri
mér að gamla lækninum og benti hon-
um á ofurlitla móðu á slípuðu spegil-
glerinu.
Sagan er á enda; því að auðvitað
björguðum við Ogilvie. Baráttan var
enn örðugri en nóttina á undan, en
að lokum hopaði konungur skelfing-
anna á hæli, og við, sem orðið höfðum
verkfæri í höndum forsjónarinnar til
þess að lífga þá, er voru næstum því
dauðir, féllum á kné til að þakka
drotni. Og kona Ogilvies fekk aldrei
að vita, hvað það var, sem gerst hafði
þessa nótt.
Endir.
Samskotaloforð
til sjúkraskýiis í Höfðahverfishér-
aði (f krónum).
Sig. Hjörleifsson, Grenivík, 100;
frú Þuríður Jakobsdóttir, Grenivík,
30; sfra Björn Björnsson, Laufási,
30; Friðbj. Bjarnarson, Grýtubakka,
40; Dagbjartur Þorsteinsson, Tungu,
1; Kristfn Guðjónsdóttir, Tungu, i ;
Oddný Þorsteinsdóttir, Tungu, 1;
Jón Hatlgrímsson, Tungu, 5; Fil-
ippía Pétursdóttir, Tungu, 1 ; Hall-
grímur Schiöth, Tungu, 1; Stefán
Hallgrfmsson, Tungu, 2; Þórður og
Baldvin Gunnarssynir, Höfða, 60;
Jón Antonsson, Arnarnesi, 10; Ein-
ar Jóhannsson, Syðri Haga, 10; Geir-
finnur Tr. Friðfinnsson, Garði, 10;
Þorsteinn Gíslason, Svínárnesi, 8;
Karl Sigurðsson, Draflastöðum, 10;
Vilhjálmur Þorsteinsson, Nesi (2
hlutabr. Gránufél.) 100. Jón Sveins-
son, Hóli, 3; Friðrik Antonsson,
Hjalteyri, 10; Sveinn Jóakimsson,
Hóli, 2; Steingr. Hallgrímsson,
Skeri, 2; Jón Halldórsson, Grfms-
nesi, 2 ; Björn Ólafsson, Grímsnesi,
1; Friðrik Jónsson, Hjalteyri, 10;
Björn Gunnarsson, Kljáströnd, 10;
Jóhann Jóakimsson, Grímsnesi, 5 >
Sigurvin Edílonsson, Litla Arskógs-
sandi, 4; Gunnl. Jóhannesson, Litia
Mrskógssandi, 2; Guðm. Sæmunds-
son, Hlöðum, 3; Guðlaug Svein-
bjarnardóttir, Grenivík, 1. Héraðs-
læknir Guðm. Hannesson, 20; Sig-
ruður Jóhannsson, Selá, 5; Jóhann
Sigurðsson, Selá, 1; Sveinbjörn
Björnsson, Hillum, 1. Þorsteinn
Vigfússon, Rauðuvík, 5. Jón Guð-
mundsson, Kálfskinni, 1. Níels Jóns-
son, Kálfskinni, 1. Sæmundur Sæ-
mundsson, Stærra-Árskógi, 4. Björn
Jörundsson, Hrísey 10. Óli Jón
Björnsson, Hrísey, 1. Stefán Stef-
ánsson, Hrísey 1. Jón Benedikts-
son, Hrísey, I. Sigmundur Sigurðs-
son, Hrísey, 1. Margrét Jónasdótt-
ir, Hrísey, 1. Jóhannes Davíðsson,
Hrísey, 40. Indriði Sigurðsson, Hrís-
ey, 2. Jónatan Magnússon, Hrísey,
1. Vilhjálmur Benediktsson, Hrísey,
2,10 Björn Helgason, Hrísey, 2.
Kristján Kristjánsson, Hrísey, 5.
Þorsteinn Jörundsson, Hrísey, 20.
Friðrika Friðriksdóttir, Hrísey, 1.
Ólafur Guðmundsson, Hrísey, 4.
Jóhann Kristinnsson, Hrísey, 3-
Jón Einarsson, Hrísey^ 4. Trausti
Jóhannesson, Stærra-Árskógi, 1.
Tryggvi Indriðason, Grenivík, 5.
Ólafur Gunnarson, Höfða, 2.
Samtals kr. 620.10.