Norðurland


Norðurland - 06.12.1902, Page 1

Norðurland - 06.12.1902, Page 1
NORÐURLAND. Ritstjóri: Einar Hjörleifsson. 11. blað. Akureyri, 6. desember 1902. II. ár. sem hafa eitthvað að athuga við reikninga sína við verzlun Gudm. Efterfl. hér á staðnum, pegar lierra Eggert Laxdal fór frá, verða að gefa sig fram fyrir 1. janúar 1903. Akureyri, 26. nóv. 1902. Jóli. Yigfússon. Engin góð mentun fáanleg. Mikil gleðitíðindi eru það fyrir oss íslendinga, sem „Norðurland" flutti nýlega, að von væri á tnikil- vægri breyting á lærðu skólunum í Dönmörk. Áður eu Iangt líður ætti, fyrir bragðið, að verða bundinn endir á þau ókjör, sem vér eigum við að búa hér á landi, að því er kemur til hinnar æðri mentunar þjóðarinnar. í mörgum efnum hefir stjórn vor verið afturhaldssöm. En hvergi höf- um vér goldið þess grimmilegar en í mentamálunum. Á síðustu áratug- um hefir mjög verið að því unnið hvarvetna að gera mentun þá, sem æskumenn eiga kost á að afla sér, sem notadrýgsta, nema lijá oss. Ný reglugjörð fyrir latínuskólann kemur 1877. Þá er hert á kröfunum í forn- tungunum suðrænu. Þá er jafnframt kveðið svo á, að gagnfræðakenslu skuli komið á við latínuskólann svo fljótt, sem unt verði. Efndirnar hafa orðið þær, að 1883 var dregið úr náttúrusögunáminu. Nú er svo ástatt fyrir oss, að í engri stofnun landsins er unt að fá viðunanlega mentun fyrir lífið. Gagn- fræðaskólarnir eiga að mjög litlu öðru en nafninu sammerkt við gagnfræða- skóla í öðrum löndurn. Og í latínu- skólanum gengur svo mi'kill tími til forntungnanna, að menn eiga þar ekki kost á að læra til hlítar neitt, sem að verulegu haldi kemur í lífinu. Ein auðsæ afleiðing af þessu ástandi er sú, að menn sækjast eftir embætt- um tniklu meira en góðu hófi gegnir og holt er fyrir þjóðina. Ungir menn geta ekki fengið þá mentun, er flytur þá áfram í neina aðra átt en til em- bættanna. Svo heltist alt af nokkuð úr þeirri lest, er þangað keppir, fyr- ir ýmsra hluta sakir. Og því er við brugðið, hve illa þeir menn standa að vígi. Þeim er örðugt um strit- vinnu eftir að liafa vanist af henni um langan tíma. Og þeir hafa ekk- ert lært, sem kemur þeim að veru- legu haldi. Séu þessir menn ekki búnir sérstökum hæfileikum og þreki, má búast við, að lítið verði úr þeim og lífið verði þeim óvenju-örðugt. Svo mikið eru menn farnir að finna til þessara vandkvæða, að þjóð- ræknum mönnum hefir jafnvel Img- kvæmst að gera ráðstafanir til þess að embættisvegurinn verði mönnum örðugri en að undanförnu, latínu- skólavegurinn ógreiðfærari. Svo rík er meðvitundin að verða um það, hve hættulegt það sé, að hugir gáf- uðustu æskumannanna stefni ein- dregið að embættunum, í stað þess að stefna að því að framleiða auð- æfin. En jafn-réttmætar og viturlegar sem hvatirnar eru hjá þessum mönnum, þá er ráð þeirra mjög óaðgengilegt. Það er neyðarúrræði og í sjálfu sér óeðli- legt að landssjóður haldi opnum nokkuruin mentabrunni, er menn amist við að sótt sé að. Eðlilegasta ráðið til umbóta virð- ist vera það, að koma bæði latínu- skólanum og öðrum skólum, sem ofar standa en barnaskólar, í það horf, að þar sé verulega notadrjúga mentun að fá. Þá opnast sjálfkrafa aðrar brautir en embættisvegurinn. Lærdómsríkt er í þessu efni að líta til Svíþjóðar. Þar er sú hug- mynd, að skólar þeir, er stúdenta- efni fá mentun sína á, eigi að veita mönnum almenna mentun, svo rík, að hún hefir ráðið nafninu á stofn- ununum; þær heita ekki „latínuskól- ar“ né „lærðir skólar", heldur blátt áfram „alniánna lároverk" — almenn- ar kenslustofnanir. Að þessir skólar beri nafn með rentu, má sjá af því, að af 8 900 stúdentum, sem árlega útskrifast úr þeim, fer ekki nærri helmingurinn til háskóla. Meiri hluti þessara manna leitar sér ýmsrar ann- arrar atvinnu. Það geta menn þar, af því að sú mentun, sem skólarnir veita, er snið- in eftir kröfum tímans, þörfum lífs- ins. Það geta menn ekki hér á landi, af því að mentunin er ekki sniðin eftir lífinu; stúdentaefnin hafa svo undur lítið fengið að læra, sem geri þá að færurn mönnum í hinu marg- breytta stríði lífsins. Og vitanlega er svona aðdáanlega ástatt í Sví- þjóð meðfram fyrir það, að forn- tungurnar gleypa þar ekki óhæfi- legan tíma fyrir öllum nemendun- um. Fyrir 20 — 30 árum lærði allur fjöldinn þar latínu og grísku. En nú er sú breyting á orðin, að fæstir stúdentar hafa lært þessi mál bæði. Talsverður hluti þeiira hefir lært lat- ínu, en langflestir hvoruga þá forn- tunguna. Þegar svo er komið, eru skólarnir í sannleika „almánna láro- verk". Þá geta þeir veitt þá mentun, sem gildir fyrir hverja síöðu í lífinu. Að þessu eigum vér að keppa — að skóli sá, er stúdentaefni vor fá mentun sína í, verði með því fyrir- komulagi, að hugir stúdenta hneig- ist ekki fremur að embættunum en öðrum störfum lífsins. Þá er sjálf- krafa girt fyrir hættuna af of mikilli embætta-aðsókn og þá fá aðrar stéttir þjóðfélagsins mikið af vel mentuðum mönnum. En gagnfræðaskólunum má ekki gleyma í þessu sambandi. Komist góð skipun á Reykjavíkur-skólann, virðist ekki óeðlilegt að Flensborgar- skólinn hverfi inn í hann. En norð- lenzka gagnfræðaskólann verður að efla, og honum verður að koma í fult samband við Reykjavfkurskói- ann, svo að kensla í honum jafn- gildi kenslunni í neðri bekkjunum syðra. Ávalt verður mikið af æsku- mönnum, sem vill fá veigatnikla mentun, en hirðir ekki um að verða stúdentar. Og þrjú eða fjögur ár í skóla hér eða í Reykjavík geta líka sannarlega veitt mönnum notadrjúga mentun, ef tilhögunin erhagkvæmleg. Ett þetta ástand, sem vér eigum nú við að búa, er með öllu óþol- andi. Eins og nærri má geta, stend- ur það stórlega þjóð vorri fyrir þrif- um á margan hátt, að námfúsir og framgjarnir æskumenn skuli hvergi á landinu eiga þess kost að fá ment- un, er samsvarar kröfum tímans. Og, eins og áður er sagt, ættum vér nú að fara að geta séð fram úr því myrkri, fyrst stjórn Dana hefir tekið málið að sér heima hjá sér. íslenzkar fóðurjurtir. Eftir Ólaf Davíssson. II. Um ritgjörðina í Búnaðarritinu er það að segja, að hún skiftist í tvo kafla. Fyrri kaflinn er um fóðurjurta- rannsóknir yfirleitt og nauðsyn þá, sem er á, að íslenzkar fóðurjurtir séu rannsakaðar vísindalega. í seinna kafl- anum eru taldar þær helztu fóðurjurt- ir og beitijurtir, sem vaxa á íslandi. í báðum köflunum er farið mjög fljótt yfir sögu, enda á ritgjörðin að eins að vera örstutt yfirlit, en hún nægir þó til þess að sanna öllum óvilhöllum mönnum, að rannsóknir á fóðurjurtum hljóta að hafa stórgagn í för með sér, ef vel er á haldið. Eg sé ekki ástæðu til þess að fjölyrða um fyrra kaflauu, því að bæði berst Búnaðarritið í hendur flestum eða öllum Islendingum, sem nokkuð hugsa um skynsamlegan bú- skap, og svo veitti ekki af að prenta hann upp því sem næst orðréttan, ef ætti að koma mönnum í fullan skilning um það, sem um er að ræða, en á því færi illa. Að því, er snertir seinna kaflann, get eg aftur ekki stilt mig um að geta þess, að mér virðist höf. hafa oröið „jurtkendur" í óheppilegri merkingu, þar sem um skófir og þara er að ræða, og ekki kemur sú merking saman við þýðingu þá, sem höf. leggur í orð þetta í Flóru íslands bls. 223. Þessi aðfinning er þó fretn- ur smávægileg, og rýrir að engu leyti gildi það, setn ritgjörðin liefir yfirleitt. Sænsku ritgjörðinni er líka skift í tvo kafla, og er fyrri kaflinn eftir Stefán, en sá seinni bæði eftir Svíann og Stefán. Fyrra hlutanum svipar til íslenzku ritgjörðarinnar, því að ltann er alment yfirlit yfir landslag, jarðveg, loftslag og jurtagróður á íslandi, og sé eg ekki betur, en að höf. ltafi tekizt vel að lýsa öllu þessu í jafnstuttu ntáli. Að vísu er fátt í þessum kafla, sem fróðir íslendingar hafa ekki borið skynbragð á áður, en þess verður að gæta, að hann er saminn fyrir útlendinga, og skiftir þá meiru, að sem réttast og ljósast sé sagt frá, en að hrúgað sé saman spánnýjum at- hugunum. Seinni kaflinn er aftur tnjög ítar- legur, það, sem hann nær, og í hon- um er skýrt frá efnafræðisrannsókn- unum. Alls voru rannsakaðar 18 norðlenzkar jurtir: grös, hálfgrös, sef, sauðlaukur, víðir og elftingar, en af 6 jurtum voru rannsökuð 2 sýnishorn og auk þess sýnis- horn af heyi, svo að rannsókn - irnar eru 25 að tölu. Rannsóknin hefir auðsjáanlega verið mjög ná- kvænt, og er þess getið meðal ann- ars, hve tnikið ltafi verið af vatni, ösku, köfnunarefni og eggjahvítuefn- urn í hverri jurt. Köfnunarefnið og eggjahvítuefniti eru svo aftur liðuð í sundur. Þess er t. d. getið, ltvað af köfnunarefninu hafi verið meltan- legt og hvað ómeltanlegt. Sumar af þessum jurtum hafa aldrei verið rann- sakaðar áður, svo að menn viti, svo sem gulstör, þursaskegg, blásveifgras, loðvíðir o. fl. jurtategundir, og er gaman að því, að við íslendingar skulum hafa orðið fyrstir til þess að láta rannsaka þessar jurtir. Það er ekki svo oft, sem við höfum stuðlað að náttúrufræðislegum rannsóknum, sem geta haft þýðingu fyrir aðrar þjóðir, sízt að því, er búnaðarvísindi snertir. Jurtirnar, sem rannsakaðar voru, eru svo fáar, að ekki verður sagt með fullri vissu, hver munur er á fóðurgildi íslenzkra og útlendra jurta yfirleitt, því að til þess þarf tniklu fleiri og víðtækari rannsóknir, en entt þá hafa verið gerðar. Það er þó að ráða af þeim fáu jurtum, sem Svíinn hefir haft handa á milli, að munurinn sé mikill, og bendir hann lil þess, að meiri og betri fóðurefni séu í íslenzkutn jurtum en útlend- um jurtum sötnu tegundar. Meiri að því leyti, að meira köfnunarefni er í íslenzku jurtunum en þeim útlendu, en eftir því fer fóður- gildi jurtarinnar tnestmegnis, hvort í

x

Norðurland

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Norðurland
https://timarit.is/publication/203

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.