Norðurland


Norðurland - 21.02.1903, Blaðsíða 1

Norðurland - 21.02.1903, Blaðsíða 1
NORÐURLAND. Ritstjóri: Einar Hjörleifsson. 22. blað. Akureyri, 21. febrúar 1903. II. ár. 3únaðurinn á Jforðurlandi. Eftir Sigurð Sigurðsson. Síðastliðið sumar ferðaðist eg, eins og kunnugt er, um Norðurland, samkvæmt ályktun Búnaðarfélags Is- lands. í þessari ferð fór eg um allar norðursýslurnar, og hélt alla leið til Vopnafjarðar. Viðstaðan varð reynd- ar víða stutt, jafnvel miklu styttri en eg hefði oft óskað. Eg hefi nú hugsað mér að minn- ast hér með nokkurum orðum á þessa ferð, og í sambandi við hana á ýmislegt viðvíkjandi búskap og búnaði norðanlands. Mér virðist einnig eiga vel við að birta þessar athugasemdir í blaðinu „Norðurlandi'1, sem eg geri ráð fyrir, að sé lesið alment nyrðra. Eg ætla nú fyrst að minnast á hverja sýslu fyrir sig, og gera því næst nokkurar almennar athugasemdir, að því er norðlenzka búnaðinn snertir. I. H únav atnssýsla. Það var 4. júní, sem eg fór norð- ur yfir Holtavörðuheiði. Veðráttan var þá ærið köld, og gróður lítill eða því nær enginn. Horfurnar voru því alt annað en góðar um það leyti, enda varð viðstaðan stutt í þeirri sýslunni. f>á voru einnig þingkosn- ingarnar í nánd, og virtist undirbún- ingur þeirra auka á áhyggjurnar, enda voru þá nokkrar viðsjár með mönnum í héraðinu. Höfðu þá ýtnsir nóg að hugsa þá dagana, og virtust ekki hafa tíma til að sinna öðrum málum. Marga hinna beztu og merkustu bænda í sýslunni heimsótti eg, og var mér jafnan vel tekið, enda er Húnvetningum við brugðið fyrir rausn og skörungsskap. Meðal ann- arra heimsótti eg þá Árna Porkels- son á Geitaskarði og Magnús Steiu- dórsson í Hnausum. Eigi nefni eg þó þessa tvo bændur fyrir þá sök, að þeir eru taldir tneð efnuðustu bændum sýslunnar. En búskapur þeirra er mjög myndarlegur, og í mörgum greinum fyrirmynd. Tún þeirra eru prýðisvel hirt, en að öðru leyti næsta ólík. Hnausatúnið er það einkennilegasta tún, sem eg man eftir. Það er mestalt í hólum og öldum, með djúpum dældum og skorningum á milli. Erfitt mundi reynast að slétta það eða jafna, enda hlyti það að kosta miklum mun meira en hagnaðinunr næmi, er ynnist við það. Túnið á Geitaskarði liggur fallega, og er Árni þegar búinn að slétta meginhluta þess, og eru þær sléttur mjög vandaðar að allri gerð. Á Æsustöðum í Langadal athug- aði eg, eftir beiðni Pálma Sigurðs- sonar, hvernig unt væri að stemma stigu fyrir skemdum á túni og engi af völdum Blöndu. En það verður gert með því að gera garð niður með túninu og út fyrir það, og sé hann hlaðinn að utan úr grjóti. Hann þarf að vera að minsta kosti 200 faðma á lengd, og kostar verkið með öllu um 800 kr. — Pálmi kvaðst mundi ráðast í að framkvæma verk- ið, svo erfitt sem það er og kostn- aðarsamt, enda lætur hann sér mjög ant utn jörðina og hefir bætt hana mikið. Á ferð minni um sýsluna kom eg að Þverárdal og Refstöðum í Laxárdal. Þverárdalur liggur í dal- skoru fyrir ofan Bólstaðarhlíð. Þar býr Brynjólfur Bjarnason búfræðing- ur. Bæjarstæðið er all-einkennilegt og útsjónin frá bænum mjög tak- mörkuð. Þrátt fyrir þetta er við- kunnanlegt heima við, og stafar það óefað með fram af því, hvað húsbóndinn tekur vel á móti gest- um, og svo hinu, hvað vel er hýst og umgengnin utan húss og innan er góð. Á Refstööum býr Stefán Ei- ríksson, ungur bóndi og ötull. Eg gæti nefnt marga bændur í Húnavatnssýslu, sem gert hafa mikl- ar jarðabætur bæði fyr og síðar. Meðal þeirra eru 6, sem fengið hafa verðlaun úr styrktarsjóði Krist- jáns konungs 9., en auk þess eru margir aðrir, sem gert hafa að því annað eins eða svipað. En eg sleppi að nefna þá, ekki af því, að það væri ekki þess vert — því nöfnum framúrskarandi jarðabótamanna ber að halda á lofti — heldur er það rúmsins vegna. II. S kagafj arð arsýsla. í Skagafirðinum framkvætndi eg mælingar á nokkurum stöðum; þar á meðal í Staðar- og Víkurmýrum. Þar mældi eg fyrir affærsluskurði úr Miklavatni í Holtstjörn. Skurður sá þarf að vera um 5000 faðmar á lengd, 8 — 14 fet á breidd að ofan og um 2 fet á dýpt. Kostnaðurinn við skurðargerðina nemur um 6000 kr. að meðtöldum brúm á skurðinn. Enn fremur mældi eg halla til á- veitu á nokkurum bæjum, meðal annars á Víðimýri hjá Þorvaldi Ara- sen, Mælifelli hjá síra Sigfúsi Jóns- syni, Ytra-Vallholti, Hjaltastöðum, Frostastöðum og víðar. — Gísli Þor- láksson hreppstjóri á Frostastöðunr hefir með höndum all-miklar engja- bætur, og eru þær aðallega í því fólgnar, að afstýra með garði og skurði ágangi vatns á engjarnar. Kostnaðurinn við það nemur yfir 500 kr. Svipaðar bætur þyrfti einnig að gera á Hjaltastað, sem er um- boðsjörð, og mundu þær kosta um 400 kr. Engjar eru víða góðar í Skaga- firði; þó brugðust þær all-mikið sumstaðar síðastliðið sumar. Ein af beztu engjajörðum þar er Reyni- staður, og að sama skapi hæg, enda hefir þar oft verið laglega búið og svo er enn. — Þegar Einar heitinn umboðsmaður bjó þar, var mér sagt, að hann á blómaárum sínum hefði haft 15 kýr, 90 hross og 600 fjár. Hann hafði heyjað að jafnaði 1500 — 1800 hesta. Sumstaðar eru í Skagafirðinum stór mýrarflæmi, sem lítið eða ekk- ert eru notuð til slægna. Með fram- ræslu og vatnsveitingum gætu þessi svæði orðið frægustu engi. Sem dæmi má nefna Staðar- og Víkurmýrarnar, Vallhólminn að utanverðu, Glaum- bæjareylendið o. s. frv. Oft er að því vikið, að Skaga- fjörður sé fallegur, og skal því sízt neitað. Það er naumast ofmælt, þótt sagt væri, að hann sé eitthvert fríðasta hérað landsins. En hann hefir fleira til síns ágætis en fegurð- ina. Þar eru gagnleg og grösug lönd, túnin víða góð og engjar tniklar. Væri varið svo sem segjum 100 þús. krónum til að bæta tún og engjar í Skagafirði, þá gætu lif- að þar góðu lífi margfalt fleiri menn en nú gera. Á Felli í Sléttuhlíð býr Sveinn Árnason, dugnaðarbóndi og jarða- bótamaður. Hann er langt kominn að þurka upp vatn, sem er 50 — 60 dagsláttur. Kostnaðurinn orðinn yfir 1000 kr. Á þessu verki byrjaði fyrstur síra Ei’tar Jónsson í Kirkju- bæ, þegar hann var prestur að Felli. Eftir svo sem 12 — 15 ár verð- ur vatnsbotninn gróinn upp og orð- inn allur að engi. Á Höfðaströnd og í Sléttuhlíð er búskapurinn alment lakari en inni í firðinum og jarðabætur minni. Menn stunda þar sjó haust og vor, og jafnvel stundum að sumrinu líka. Jarðabæturnar sitja á hakanum, enda er þeim þar lítið sint nerna af ein- stöku manni. Efnabændur eru þar fáir, að undanteknum Konráði á Bæ, sem er búhöldur góður og í röð fremstu bænda — og nokk- urum öðrum. — Á Höfðaströnd er nýstofnað búnaðarfélag fyrir for- göngu síra Pálma Þóroddssonar á Höfða. Fljðtin eru afskekt sveit, en eigi að sama skapi ill eða ófrjó. Þau voru áður eitt sveitarfélag, en nú er þeim skift í 2 hreppa. Búskap og jarðrækt er þar alment ábóta- vant, enda er efnahagur margra þar all-þröngur. Kunnugir menn kenna það aflaleysi nú um nokkur ár, og mun það rétt vera. En Fljótamenn hafa eigi gætt þess, þegar aflinn brást, að leggja þá alvarlega stund á jarðrækt og jarðabætur, hirða bet- ur túnin, til þess að draga úr af- leiðingum aflaleysisins. Um aldamótin 1800 og eftir það stóðu Fljótamenn sig vel, eftir því sem þá gerðist. Fljótasveit eðajlolts- hreppur var þá talinn einna bezt stæður í allri sýslunni og lagði þá eitthvað af mörkum til annara hreppa, er lakar voru staddir. Afli var þá oftast góður, sum árin ágætur. Fljóta- menn eru taldir sjómenn góðir, og hafa jafnan verið það. Sá eini maður í Fljótum, er gerir verulegar jarðabætur, er Guðmund- ur Davíðsson á Hraunum, tengdason Einars B. Guðmundssonar. Eggvarp er þar á nokkurum jörðum, og mætti eflaust auka það. Mest er það á Hraunum, um 60 pd. af dún um árið, þar næst í Haganesi og s. frv. — Beztar jarðir eru þar: Hraun, sem telja má eina með gagnlegustu jörðum, þegar á alt er litið, — Haga- nes og Stórholt. Þar eru engjar fall- egar og miklar, sléttar og gras- gefnar; í þeirn slær maðurinn sum- staðar 20 hesta á dag. Fremst í Fljótum er Stíflan; þar eru 15 bæir. Þar er einkennilegt og þykir fall- egt. Engjar eru þar greiðfærar og sléttar, en túnin þýfð. Áður en eg skilst við þessa sýslu, vil eg minnast lítið eitt á hesta- rækt Skagfirðinga. Skagafjörður hefir lengi haft orð á sér fyrir hrossa- fjölda og misjafna meðferð á þeitn. Hrossin eru mörg, því verður ekki neitað, og meðferðin upp og niður. Flest eru þau í Akrahreppi. Skiftar eru skoðanir manna um það, hve hollur þessi hrossafjöldi er jörðun- um og búskapnum yfir höfuð. Því er heldur ekki að leyna, að tilhög- unin tneð hrossin er miður góð og þau jafnvel fleiri en góðu hófi gegn- ir. Hrossin ganga fyrirstöðulítið ,inn- an um engjar og haga búsmala og spilla þeim. Afréttarlöndin eru ónóg, og hey og hús af skornum skamti, ef illa viðrar. I lögum bún- aðarfélags Akrahrepps er reyndar svo fyrir mælt, að hver búandi skuli eiga nægileg hús fyrir hross sín; en erfitt mun að fullnægja þessu ákvæði, jafnmörg og hrossin eru nú. Ef vel ætti að fara, þyrfti fyrir- komulagið að vera það, að öll hross, sem ekki eru í brúkun, væru rekin á afrétt snemma að vorinu. Ef af- réttin reynist lítil, þyrfti að auka við hana, annaðhvort með því að kaupa land í viðbót eða leggja framdala- jarðirnar í eyði, t. d. Kotin og enda fleiri jarðir. Því, sem á að selja á mörkuðum að sutnrinu, þarf að halda aðgreindu, helzt í afgirt- um högum. Með þessu móti eru heima-búfjárlöndin friðuð að mikl- um mun fyrir stóði, og búsmalinn nýtur betur sumargróðursins og ger- ir meira gagn. Hrossin hafa þá einn- ig betri haga, þegar þau korna heim að haustinu og þola útiganginn betur. Hverju hrossi verður að ætla bæði hey og hús. Kunnugir menn sögðu mér, að ef aldrei væri ætlað minria en 5 hestar handa hrossinu, mundi það nægja, ef því heyi er ekki eytt í aðrar skepnur. Hluturinn er sá, að suma vetur þarf sania sem ekkert að gefa; með þessu móti koinast menn í hey-fyrningar, er geymast til hörðu áranna, og hross-

x

Norðurland

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Norðurland
https://timarit.is/publication/203

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.