Norðurland


Norðurland - 21.02.1903, Side 2

Norðurland - 21.02.1903, Side 2
Nl. 86 in þurfa þá ekki að líða tilfinnan- legt hungur. — Ef þessu, sem hér er bent á, væri fullnægt, þyrfti hesta- eignin alls eigi að skaða búskapinn, eða reynast ótrygg. En það tel eg víst, að meðan Skagfirðingar geta selt sín hross og haft hagnað af — eins og þeir gera nú — þá munu þeir leggja stund á að eiga þau sem flest. Og þótt einhver fari að kenna þeim annað og sýna þeim fram á, að hrossaeignin borgaði sig ekki, þá býst eg eigi við, að þeim fortölum yrði verulega sint. — En hitt ætti hver maður að sjá og breyta eftir því, að það er hættu- legt að eiga svo mörg hross, að þeir með því stofni þeim og öðr- um sínum skepnum í bersýnilegan voða. Fyrir því ríður á að gera hrossaeignina svo trygga, sem auð- ið er, með heyjum og högum, og sjá svo um, að hún eigi skaði eða skerði afnot annars penings. Fjósið á Hólum í Hjaltadal. í Þjóðólfi 23. f. m. hefir fyrver- andi skólastjóri Hermann Jónasson á Þingeyrum mælst til þess, að eg birti í Búnaðarritinu skýrslu um fyrirkomu- lag og verð á fjósinu, er hann bygði á Hólum vorið 1889, og enn fremur útdrátt úr mjólkurskýrslum kúnna þar, frá því búnaðarskólinn var stofnaður og til síðastliðins vors, og leggur hann við drengskap minn. Skýrslur um þetta, segir hann að liggi hér við amtsskjölin, en það sést ekki, að hann eða aðrir hafi sent þær til amtsins, enda finnast þær ekki meðal skjala þessara. Hið eina, sem eg hefi fundið um þetta efni, er skýrsla í fundargerðum skólanefndar 5.—6. nóvember 1889 svo hljóðandi. »6. Bygging peningshúsa. A síðast- liðnu vori var bygt 20 kúa fjós á skólasetrinu, 22 álnir að lengd að innanmáli, 12 álnir á breidd, 5 álnir á hæð undir mæniása og 3 lh alin undir hliðarása, hliðveggir 3 álna þykkir og stafnveggir 4 álnir, grjót- hlaðnir með torfi milli steina upp til miðju, með gangrúmi eftir miðju hús- inu milli jatna og sömuleiðis til beggja hliða með fram veggjum*. í innstæðuskrá vorið 1890 er fjósið metið 700 kr., en hvort þar er miðað við tilkostnað eða hið venjulega mat á húsum við úttektir verður eigi séð. í skýrslu um búnaðarskólann á Hólum 1889 — 90 er lýsingin á fjósinu eins og ( fundargerðum skólanefndarinnar, nema hvað þar er sagt, að fjósið sé 5 lh alin undir mæniása, og að þar er skýrt tekið fram, að fjósið sé 12 álnir á breidd innan veggja. Hermann Jónasson telur það mjög móðgandi fyrir sig, að amtsráð Norður- amtsins hefir getið þess, að fjós þetta hafi reynst afarilla; segir hann, að flestir, sem hafi séð fjós þetta í sinni tíð á Hólum, hafi dáðst að því, og talar um að það sé »handhægt að níða verk sín« og »sverta sig«. Hann bætir því við, að fjósið hafi ekki lekið síðari ár sín á Hólum og þessu til sönnunar nefnir hann nyt- hæð kúnna, og talar um vanrækslu og miður góða hirðingu hjá eftirmanni sínum, Jósep skólastjóra Björnssyni. Það er ekki í fyrsta skifti, sem hann O-. leggur til þess manns. En þegar Jósep tók við af Hermanni, voru viðirnir orðnir svo fúnir, að þakið þoldi eigi sinn eigin þunga. Einn veturinn datt nokkuð af þakinu inn, og var mildi að kýrnar, sem inni voru, biðu eigi beinbrot eða bana. Jósep Björnsson á ekki sök á því, þótt fjósið reyndist illa. Og þótt Her- mann Jónasson segi, að fjósið hafi reynst sér vel, þá hefi eg þó heyrt hið gagn- stæða hjá skilríkum mönnum, sem voru á Hólum einmitt seinni ár hans þar. Samkvæmt þeirri sögusögn lak fjósið mjög mikið, þegar mikil úrfelli voru, og finst mér það lítt hugsanlegt, að H. J. sé búinn að gleyma þvi, ef hann hugsar sig vel um. Það segir sig líka sjálft, að það er alveg ómögulegt að verja hús fyrir leka, sem er með torfþaki 12 álna breitt og jafn rislágt og þetta Hóla- fjós. Eg vil bera það undir hygna bændur, hvort þeir áiíta, að þetta sé mögulegt. Orsökin til þess, að fjósið reyndist illa, liggur í byggingarlaginu, og hér er ( rauninni hvorki spurning um heiður eða vanheiður Hermanns Jónassonar, heldur um eitt af velferðar- málum þjóðarinnar. Það er spurningin um það, hvort þjóðin á að byggja með þekkingu eða ekki. Héraðslæknir Guðmundur Hannesson hefur sýnt fram á, að hér sé ekki að eins um heil- brigði þjóðarinnar að ræða, heldur og um sparnað, sem nemur hundruðum þúsunda króna. Og þetta er alveg rétt. Ef hver vill byggja eftir sínu höfði gagnstætt öllum reglum byggingar- fræðinnar, þá verður miklu fé á glæ kastað. Bygging skólahússins á Möðru- völlum, bygging skólahússins á Hól- um, fjóssins þar og margra annara húsa, ættu að sannfæra íslendinga um, að það dugir ekki að lítilsvirða þekk- inguna og reynslu annara þjóða. íslendingar þurfa að fá heilnæm og góð hús fyrir fólk og fé á sem kostnaðar- minstan hátt. Bændur og reyndar allir, sem byggja hús, þurfa að fá leiðbein- ingu hjá mönnum, sem þekkja reynslu annara landa og hafa gjört verklegar tilraunir með nýbreytni í byggingum. Framfaraþjóðirnar hafa tilraunastöðvar; menn með vísindalegri mentun eru kostaðir til þess að leiðbeina bændum bæði að því, er snertir byggingar og annað, sem að atvinnuveg þeirra lýtur. Þetta kostar auðvitað fé, en það kost- ar meira fé að láta bændur verja stór- fé til tilrauna, sem koma þeim á kaldan klaka og það kostar enn meira fé, ef þjóðin missir trúna á framfar- irnar vegna tilrauna, sem mishepnast. Osönnum ummælum Hermans Jónas- sonar um mig og »Norðurland« svara eg ekki, enda mætti það víst æra ó- stöðugan, að svara öllu því, sem nánustu fylgismenn hans setja saman um mig. Akureyri 20. febr. 1903. PÁLL BrIEM. Sex menn druknuðu á bát frá Hnífsdal við ísafjarðardjúp í fiskiróðri um miðjan f. mán. Formaður hét HaLldór Ágúst Halldórsson, húsmaður af ísafirði og hafði tekið nýlega stýrimanns- próf í Reykjavík, bróðir Páls Halldórssonar skólastjóra þar, kvæntur myndar- og vask- leikamaður. Meðal hásetanna voru mágar hans tveir, — bræður konu hans, ættaðir af Mýrum, ungir menn og efnilegir. Fátækraframfærsla. Eftir B. E. Það er eigi að undra, þótt oss ís- lendingum hafi þótt fátækraskatturinn þyngsta útgjaldabyrðin, sem á oss er lögð, þar sem hann hefir, á öllu land- inu, stigið talsvert yfir 200,000 kr. á ári, seint á 19. öldinni. Um miðja öldina voru sveitarþyngsli mjög lítil, en fóru stöðugt vaxandi frá 1854—1871; á því tímabili stíga fátækraframfærin úr 46,000 kr. upp í 226,000 kr. Eftir það fóru þau annað slagið minkandi og voru árið 1896 148,000 en árið eftir 155,000. Margt hefir verið ritað og rætt um það, hvernig hægt væri að létta þess- um gjöldum að einhverju leyti af þjóð- inni; þingið hefir hvað eftir annað tek- ið mál þetta til umræðu, en lítið orð- ið ágengt fyr en 1901, þegar skipun þingnefndarinnar var samþykt og vænta menn nú góðs árangurs af störfum hennar. Margir munu hafa þá skoðun, að efnalegt ástand þjóðarinnar megi marka af sveitarþyngslunum; en það er alls eigi víst að þetta tvent fari saman, heldur sé það staða, atvinna og menningarástand hinna fátæku, sem ráði mestu um sjálfstæði þeirra. Aður en eg fer lengra út í þetta atriði, ætla eg að bera saman fátækra- framfærslu þess hrepps, sem eg er kunnugastur, árin 1874 og 1901 og lítur sá samanburður þannig út: Ártöl Börnyngri en 16 ára Sjúklingar frá 16—60 ára Gamal- menni Fjöl- skyldu heimili Fátækra- framfæri kr. 18 74-’ 7 5 47 5 14 13 5050 I90I-’02 4 2 5 4 C\ 00 Eigi er sjáanlegt, að efnahagur sveit- arinnar hafi batnað eftir sama hlutfalli og sveitarþyngslin hafa minkað. Um 1874 bjuggu á beztu jörðum sveitar- innar vel efnaðir óðalsbændur, en síð- an hafa nokkurir fasteignamenn flutt úr hreppnum. Þá var lausafjártíund hreppsins 793 hundr., sem eftir nú- gildandi tíundarlögum mun eigi vera meira en 630 hundruð. Nú í haust var tíund hreppsbúa 714 hundruð; ætti hún að hafa hækkað um 83 hundruð í mesta lagi, eða IO—11OOO króna virði, en fullyrða má að verzlunarskuldir hafa vaxið sem því svarar. Eg hafði áður bent á, hvað mundi ráða mestu um sjálfstæði hinna fá- tæku og skal nú reyna að sýna breyt- ingarnar í þá átt einnig með saman- burði. Alt fram að 1880 var flest búlaust fólk í hjúastöðu, því þá þótti eigi svo gróðavænlegt að vera í húsmennsku eða lausamennsku. Bændur höfðu því nægilegt vinnufólk og guldu því lítið kaup : 50—60 kr. karlmanni og 20—24 kr. kvenmanni. Þá kom það oft fyrir, að búlaus hjón fóru að þiggja af sveit skömmu eftir giftinguna; voru þau þá sett í vist með eitt barn, en ættu þau fleiri, varð sveitin að sjá fyrir þeim. Nú er breyting komin á þetta; kaup hjúa hefir hækkað um nær því helm- ing, og þó þykir lausamannastaðan arð- vænlegri, enda sjá menn nú fyrir 2— 3 börnum án þess að þiggja sveitar- styrk. Eins og áður er sagt, var ekki neitt árennilegt að velja sér lausa- mannastöðuna fram á st'ðustu tugi 19. aldarinnar, því atvinnu var ekki að fá nema lítinn tíma af árinu og það ekki fyrir margt lausafólk. En nú er meira fjör að færast í atvinnuvegina: Verzlanir stækka og fjölga, sjávar- útvegurinn vex óðum, einnig húsa- byggingar, vegagerðir og jarðabætur. Eins og kunnugt er, var það venja kaupmanna langt fram eftir síðustu öld, að veita ekki verzlunarlán meiri en svo, að þau yrðu borguð í næstu kauptíð. Þegar frumbýlingar og fá- tækir bændur fengu svo takmörkuð lán í þessum aðalbönkum þjóðarinnar, á meðan þeir voru að auka bústofn sinn, urðu úrræðin þau, að taka lán hjá búlausum gróðamönnum og efn- uðum bændum og fóðra svo fé fyrir þá og selja þeim kindur að vorinu. Af þessu leiddi, að fé þeirra fjölgaði ekkert og hefðu þeir talsverðri fjöl- skyldu fyrir að sjá, Iá leiðin beint til sveitarsjóðsins. Menn munu segja, að verzlunar- skuldirnar hafi engan auðgað, en þær eru þó að því leyti betri en sveitar- skuldir, að menn hafa heldur vilja á að borga þær, því þegar ekkert er borgað, tapast lánstraustið; en við sveitarsjóð þykir óhætt að bæta skuld á skuld ofan og borga aldrei neitt. Eg þykist nú hafa fært nokkur rök fyrir því, að sveitarþyngsli sé eigi bein afleiðing af efnaskorti sveitarinn- ar í heild sinni, heldur oft af atvinnu- skorti, óhagkvæmum viðskiftum o. fl. Færist nú eitthvert fjör í atvinnu- vegi vora, munu sveitarþyngslin fara minkandi. Auðvitað geta harðindi og ýms óhöpp valdið því, að þau stígi nokkuð upp og niður. Hvað munaðarlausu börnin snertir, munu þau vera flest í sjávarsveitun- um, líklega börn sjódruknaðra manna. Virðist því nauðsynlegt að stofna ein- hvers konar sjóði, sem grípa mætti til, þegar slík slys, sem fráfall margra fjölskyldumanna, bera að höndum, eins og stungið var upp á á alþingi 1901. Sjúklingar verða sjálfsagt eins og hingað til að framfærast af sveitar- sjóðum, en að eins skal það tekið fram að vitskertir og geðveikir menn ættu að framfærast af landsjóði. Þá er að minnast á gamalmenni; það er athugavert, að margt af þeim gamalmennum, sem þegið hafa sveitar- styrk, hafa ávalt verið í hjúastöðu, en þó eigi getað safnað sér neinni fúlgu til elliáranna. Nú hefir kaupgjald hækk- að svo, að hjú og lausafólk gætu heldur en áður safnað sér ellistyrk, annaðhvort með því, að leggja fé í ellistyrksdeild söfnunarsjóðsins, eða greiða meira í styrktarsjóð alþýðu- fólks en það hefir gert. Auðvitað verður ekki hjá því kom- ist að einhverjir þurfi styrk af al- manna fé, og má þv( að nokkuru leyti vera sama, hvort hann er tekinn úr landsjóði, sýslusjóði eða sveitarsjóði, því alt verða landsmenn að borga hvort sem er. Aðalatriðið er, að fátækraframfærsl- an komi sem jafnast á landsmenn, því naumast er það sanngjarnt, að fátækir og afskektir hreppar ali upp vinnu- fólk handa þeim sveitum, sem eru í blómlegra ástandi, og það sé svo eftir 8 eða 9 ár rekið heim til sín aftur. Þess vegna hefir verið stungið upp á

x

Norðurland

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Norðurland
https://timarit.is/publication/203

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.