Norðurland - 05.09.1903, Síða 4
Nl.
200
nokkura daga og listakonan íslenzka, frk.
Nielsen frá Khöfn, sem saumar út myndir
af mestri snild. Ögmundur Sigurðsson kenn-
ari kom hingað í fyrradag með danskan
kaupmann, hr. Rasmussen, frá Leith, sunn-
an úr Rvík. Cand. Jón Jóhannessen kom líka
þann dag með enska frú sunnan að, hafði
fylgt henni yfif Sprengisand.
140 veiðiskip
voru talin frá Látrum í fjarðarmynninu, á
svæðinu frá Gjögrum og vestur að Siglunesi
á miðvikudaginn var.
Aflabrögð.
Þorskafli allgóður fyrir utan Hrísey, en
þó fremur mishittur. Innan til á firðinum
aflareytingur, þegar beita fæst. Síldarafli
enginn, fyr en kemur út úr firðinum.
Þessa viku hafa komið inn „Fremad" með
6000 fiskjar og „Geysir" með 6000. Mörg
reknetaskip hafa komið, bæði innlend og
útlend, öll með góðan afla.
Spæjarinn.
Skáldsaga eftir Max Pemberton.
[Framhald.]
Hún bar lítið skynbragð á skip, en samt
skildist henni það, að hreyfingurinn, titr-
ingurinn á glösunum og niðurinn í öldunum
stafaði af því, að skipið væri á hraðri ferð
og nú væri tekið að hvessa. Hún hélt, að
þeir mundu ætla til vitans mikla vestan
við Krónstað, og svo muudi skipið tafar-
laust snúa við og halda fram með norður-
ströndinni til þessa nýja fangelsis, sem hún
átti í vændum. Þá væri frelsistíminn indæli
um garð genginn, og dyrnar á einhverjum
klefanum mundu þá Iokast á eftir henni
miskunnarlaust. En gufuskipinu var ekki
snúið við, heldur hélt það áfram stefnunni
í áttina til Eystrasalts, og hún gat ekki
skilið, hvernig á því stóð, og kvaldi sjálfa
sig með hugsunum, þar til er Páll kom alt
í einu inn í káetuna með skínandi saltkryst-
alla á olíukápunni og dögg hafsins á kinn-
um sér. Hún Ieit þegjandi á hann spurnar-
augum, og hann svaraði, en ekki á þann
hátt, sem hún vildi.
»Þú hefir hvorki eld né Ijós,« sagði hann
glaðlega; »svona er þér fagnað á »Esmer-
öldu«. Jæja, það verður nú bráðum betra.«
Hún tók um votar hendurnar á honum
og þrýsti þeim að vörum sér.
»PáII,« sagði hún, »í guðs bænum, segðu
mér hvað þetta á að þýða. Hvar er eg, og
hvert ertu að fara með mig?«
Hann kysti hana blíðlega á ennið.
»Eg er að fara með þig til Lundúna, til
vina þinna,« sagði hann.
»Það er ekki satt,« svaraði hún óþolin-
móðlega, »það er ekki satt, elsku-vinur, þú
ert að fara með mig til Katrínarvígisins;
eg heyrði þá segja það.<
»Ef þú heldur, að eg segi það ekki satt,
Marian, þá komdu með mér upp á þilfarið
og sjáðu vitann, þér er best að koma strax,
því að við fáum aldrei framar að sjá Krón-
stað.«
Hann beið þess ekki, að hún svaraði
neinu, en fór á undan henni upp á þilfarið.
Þegar hún stóð þarna hjá honum, var golan
svo stinn, að særokið fór í augun á henni;
hún varð að halda sér við hann dálitla
stund og gat ekkert séð; en rétt á eftir náði
hún fótfestu við meginsigluna. Þaðan leit
hún út yfir vatnið og sá stórt, hvítt ljós,
sem hékk eins og eldhnöttur í loftinu nyrzt
yfir eynni. Hún mintist þess, að hún hafði
séð þetta Ijós í fyrsta sinn, þegar hún kom
til Rússlands; en nú átti hún ekki að sjá
það framar. Gufubátnum var ekki snúið
við, eins og hún hafði haldið að verða
mundi; hann hélt stefnunni beint til hafs;
hún þorði ekki að spyrja, hvernig á þess-
ari stefnu stæði.
»Jæja,« sagði Páll, »trúir þú mér þá?
Þarna er vitinn. Þú sér hann aldrei framar.<
Hún fór að titra við orð hans.
»AIdrei framar — og þú?«
Skugga brá yfir andlitið á honum.
»Mér stendur alveg á sama. Eg er orð-
inn leiður á Krónstað og vinum mínum
þar; eg verð að Ieita mér að nýjum vin-
um á Englandi. Svo geri eg líka ættjörð
minni greiða með því að taka að mér mann-
eskju, sem hefir verið óvinur hennar. Heyrðu,
Marian litla, þú ætlar vonandi ekki að vera
óvinur Rússlands lengur?«
Hann tók hana inn undir olfukápuna og
kysti á varirnar, sem nú var snúið upp á
móti honuna; en hún sagði ekkert; hún
gat ekki í svipinn gert sér fulla grein
fyrir því, sem hann lagði í sölurnar fyrir
hana af svo fúsum vilja. Af öllum þeim
hugsunum, sem flyktust saman í sál hennar,
bar mest á þeirri, að hann hafði bjargað
henni frá kviksetning.
»Eg skil þig ekki,« sagði hún loksins.
»Eg veit ekki hvað það er, sem þú ert
að segja við mig. Þetta er ekki satt, Páll,
það getur ekki verið satt!«
>Þú segir mér á morgun, hvort það er
satt eða ekki,« svaraði hann glaðlega; >en
nú verðum við að hugsa um kvöldmatinn,
og eftir kvöldmatinn verðum við að hugsa
um að hvíla okkur. Það er kominn tími
til þess að við kveikjum í salnum. Þú ert
orðin þreytt, Marian.<
Hún ætlaði að fara að segja honum, að
það væri gleðiþreyta, sem að henni gengi.
Þá brá fyrir Ijósglampa frá eyjunum langt
í burt, og drunur stórrar fallbyssu bárust
út yfir dökt vatnið, líkt og þrumur í fjarska.
»Heyrðu,« sagði hún og hrökk við. »Þeir
eru að skjóta úr fallbyssu frá vitanum.«
Páll sneri sér við óþolinmóðlega.
>Það er kveðjuskot, góða mín.«
»Eg er aftur farin að hugsa um skugg-
ana,« sagði hún og fór hrollur um hana.
Svo spurði hún: »Páll, hver á þetta skip?«
»Það á eg, Marian.«
»Og þú hafðir Ieyfi kastalastjórans til
þess að fara með mig burt úr Alexanders-
víginu?«
»Já, hvernig ættir þú annars að vera
hingað komin?«
»Hann hefir þá Iátið mig lausa?«
Páll hló.
»Þú kemur með of margar spurningar,
Marian, og kvöldmaturinn bíður.«
Nú var skotið öðru skoti frá vitamúr-
unum. Þá fór brosið af andlitinu á Páli.
Hann gat ekki lengur dulið þann mikla
ótta, sem hann hafði búið yfir, síðan er
skipið fór frá Alexandersvíginu.
Þ. 27. ágúst síðastl. andaðist
faðir minn, Jakob Jónsson.
Jarðarför hans fer fram frá heim-
ili mínu þriðjudaginn þ. 8. þ. m.
og byrjar kl. 11 '/2 f. h.
Oddeyri 2. sept. 1903.
Frímann Jakobsson.
Prjónavélar
beztar og ódýrastar hjá
Otto Tulinius.
Loft-Rosetfer
fást hjá
Otto Tulinius.
Ljár og strigatreyja tapaðist nýlega frá Akureyri
fram að Gili. Finnandi skili á skrifst. Nls.
Ef þeir, sem eg hefi lánað:
Kvæðabók Or. Thomsens,
— B. Gröndals,
— P. Ólafss. og
Ólafs sögu Haraldssonar,
vildu skila mér þeim aftur, skyldi
eg vera þeim mjög þakklátur þar
fyrir.
J Sf. Scheuing.
Yandaður og sterkur
danskur — ekki þýzkur — skófatnaður, af ýmsum tegundum og öllum
stærðum, handa konum, körlum og börnum, úr chewreux, boxcalf og
fleiri ágætum skinnum.
Innlendur skófatnaður er saumaður eftir máli úr sömu efnum og fljótt
afgreiddur.
Stígvélaáburður og sverta á fínni skó og stígvél, sem hvorki eyðir leðr-
inu né feygir saumgarnið, heldur heldur því við. — Sjálfblankandi sverta.
Alt ódýrt mót borgun út í hönd, þeningum eða vörum.
Akureyri 21. ág. 1903.
Jakob JSíslason.
TIL SÖLU:
4 bátar með seglum og öllum út-
búnaði til síldar eða fiskiveiða.
Sömuleiðis net, kútar og dregg.
Alt nýtt og vel vandað.
Akureyri 25. júlí 1903.
Jóhann Vigfússon.
erject skilvindan ENDUR-
BÆTTA fæst að jafnaði við
Gudm. Efterfl.s verzlun.
SMJÖR og EGG
kaupir
Sudm. dfterfl. s oerzlun.
^fsláttarhesta
kaupir undirritaður á komandi hausti.
Joh. Christensen.
Kost og húsnæði
geta nokkurar kvennaskólastúlkur
fengið nálægt skólanum.
Ritst. ávísar.
Sonduliij
er bezta blanksverta sem hægt er að
fá. Noti maður hana, sparast tími og
peningar, og skófatnaðurinn er ekki
brendur, eins og gert er tneð vana-
legri svertu.
Jakob Gíslason.
Skilvinduolíu
selur enginn ódýrari en
Jakob Gíslason.
^minr keypt í carl höepf-
OIIIJUI NERS verzlun.
Joh. Christensen.
ÍÖT GÓÐ KÝR,
sex vetra, jólbær, er til kaups í
haust. — Ritstjórinn ávísar.
Sauðárkrók er til sölu nýtt
og vandað ÍBÚÐARHÚS,
stærð 10x12 ál. með mjög
góðri herbergjaskipun og
ágætum kjallara. Verð lágt
og borgunarskilmálar góðir. Lysthaf-
endur snúi sér til Eggerts Kristjáns-
sonar söðlasmiðs á Sauðárkrók, sem
SKANDINAVISK
EXPORTKAFFE SURROGAT
Kjöbenhavn.
J. ffjorth & Co.
fjúpna- og huítfuglafiðuf
kaupir
Joh. Christensen.
Vindlauerksmiðja
OTTO TULINIUS hefir nú mik-
ið af vindlum ódýrum eftir gæðum.
Fást hjá flestum kaupmönnum.
rjáuiður í gmsum teg-
undum er til sölu hjá
Sigtr, Jónssyni &
3)auið Sigurðssyni.
pot,rQ í tt Hinn eini útsölu-
UI lUd. maður á Akureyri
fyrir skilvindur frá Burmeister &
Wain selur hina ágætu endurbættu
„Perfect" skilvindu með betri kjör-
um en nokkur annar.
Sigvaldi Pórsteinsson.
WHISKY
Wm. Ford & Son
stofnsett 1815.
Einkaumboðsmenn fyrir ísland og
Færeyjar
F. Hjorth & Co.,
Kjöbenhavn, K-
Crawfords
Ijúffenga
BISCUITS (smákökur)
tilbúið af CRAWFORD & SONS
Edinburgh og London
stofnað 1813.
Einkasali fyrir Island og Færeyjar
F. Hjorth & Co.,
Kjöbenhavn, K.
THE EDINBURGH ROPERIE &
SAILCLOTH Co. Ltd. Glasgow stofn-
sett 1750 býr til fiskilínur,hákarlalínur,
kaðla, netjagarn, seglgarn, segldúka,
vatnsheldar presenningar o. fl.
Einkaumboðsmenn fyrir ísland og
Færeyjar
F. Hjorth & Co.,
Kjöbenhavn, K.
fálka neftóbakið
er
bezta neftóbakið.
t.Norðurland** kemur út á hverjum laugardegi.
52 blöð um árið. Verð árg. 3 kr. á íslandi, 4 kr. í
öðrum Norðurálfulöndum, IV2 dollar í Vesturheimi.
Gjalddagi fyrir miðjan júlí að minsta kosti (erlendis
fyrir fram).
Uppsögn sé skrifleg og bundin við árgangamót
ógild nema komin sé til ritstjóra fyrir 1. júlí.
Auglýsingar teknar í blaðið eftir samningi við rit-
stjóra. Afsláttur mikill fyrir þá, er auglýsa mikið.
Prentsmiðja Norðurlands