Norðurland - 31.10.1903, Síða 4
Nl.
24
þér neitt mein, en nú — nú verður dans-
að, eins og Reuben segir.*
Hún fór að hiæja til þess að leyna æs-
ingunni.
»Hver ætti að geta gert mér mein, þeg-
ar þú ert hjá mér?« mælti hún. Og svo
hélt hún áfram, og þá var ekki jafn-hetju-
legur hreimur í röddinni: »Sagðirðu ekki,
að »Esmeralda< væri fljótastur bátur á
Eystrasalti ?«
Páll tók höndunum um kinnar hennar
og kysti hana.
»EIskan mín Iitla,« sagði hann, »eg vildi
óska, að eg hefði þitt hugrekki I Eg verð
æfinlega hugrakkari hjá þér. Já, hamingjan
er með okkur, Marian; við erum að kom-
ast undan þeim«.
Nú var ein míla af glampandi sjó milli
skipanna, en »Pétur Veliky« hafði ekki
við bátnum, sem Yarrow hafði smíðað.
»Esmeralda« þaut áfram. Hún hélt áfram
stefnunni, jafnvel þótt fallbyssurnar sendu
aftur loga út yfir vatnið og holkúla félli
hvæsandi niður í öldurnar fyrir aftan hana.
Hún öslaði áfram í myrkrinu og reyndi
að hrista af sér ljósið, eins og villidýr
reynir að hrista veiðihund af sér.
»Fjandinn hafi allar bækur!« öskraði
Jón gamli Hook í æsingunni. »Það skip
er ekki til á Rússlandi, sem nær þessari
skútu í nótt. Fyrirgefið þér, fröken!«
»Ó, það er satt, það er satt!« sagði
Marian fjörlega og klappaði saman hönd-
unum. »Á morgun verðum við komin til
Stokkhólms I Hvað það verður gaman að
segja Dick litla frá þessuU
Augun í henni glömpuðu. Töfrar bar-
áttunnar höfðu snortið hana, þessi óskilj-
anlega blóðólga, sem hefir í för með sér
fyrirlitning fyrir dauðanum. Hún var eins
og heilluð, þar sem hún stóð, þessi litla,
beinvaxna kona, og hvítir geislarnir léku
um hana, svo að mjög var fagurt á að
Iíta. Þegar Páll Ieit á hana, gleymdi hann
öllu öðru en ókomna tímanum, sem átti
að koma henni í faðm hans og veita hon-
um ást hennar æfilangt.
YFIRLÝSING.
Undirritaður hættir formensku
Kaupfélags Svalbarðseyrar um næstu
áramót. í sambandi við þetta vil
eg leyfa mér að skora alvarlega á
alla deildarstjóra félagsins, að inn-
kalla sem allra mest skuldir, hver í
sinni deild, svo félagið geti staðið
sem bezt í skilum við umboðsmann
sinn.
Qrýtubakka 28. okt. 1903.
Friðbjörn Bjarnarson.
Smjör 03 egg
kaupir Carl Höepfners verzíun.
Duglegur og reglusamur
maður óskar eftir atvinnu
við pakkhússtörf eða innan-
búðar eftir 14. maí 1904 eða
máske fyr. Ritst. vísar á.
í bókaverzlun Fb. Steins-
sonar:
Sálmasöngsbók með 4 röddum, verð kr.
5.00 óbundin, 6.50 í bandi.
Svartfjallasynir sögur með myndum kr. 2.00
Ferðin á heimsenda — — — 1.50
Litli Barnavinurinn — — — 0.50
Æfintýri handa unglingum ...........0.80
Týndi faðirinn......................1.00
Harpa. Ljóðmæli eftir B. B.........2.00
Höfuðbækur og aðrar viðskiftabækur, marg-
ar og góðar tegundir.
Kort af Reykjavík og Eyjafirði og fieiri
kort.
Spil, sem hvergi hér fást ódýrari né betri.
Með s/s „Egil" fekk eg marg-
ar sortir af reyktóbaki,
munntóbaki, rnargar sort-
ir af handsápu, stanga-
sápu, sóda, alveg nýtt
efni til að bleija með léreft, marg-
ar sortir af norskum tauum og
margt fl.
Akureyri 29/io 1903.
Jakob G/s/ason.
Samskota/oforð
til barnaskólasjóðs Höfðhverfinga (í kr.).
Friðbjörn Bjarnarson, Grýtubakka,
100.00; Þórður Gunnarsson, Höfða,
50.00; síra Arni Jóhannsson, Grenivík,
50.00; SteingrímurHallgrímsson, Skeri,
5.00; Þórsteinn Sveinsson, Lundi, 10.00;
Bjarni Arason, Svalbarði, 5.00; Oddur
Þorsteinsson, Hringsdal, 10.00; Sigur-
björn Sigurðsson, Kljáströnd, 2.00;
Vilhjálmur Þórsteinsson, Nesi, 50.00;
Stefán Stefánsson, Dálkstöðum, 5.00;
Guðmundur Sæmundsson, Hlöðum, 5.00;
Þórsteinn Gíslason, Svínárnesi, 25.00;
Jón Sveinsson, Hóli, 5.00: Jóna Magn-
úsdóttir, Görðum, 0.25; Engilráð Jó-
hannsdóttir, Þengilb., 0.50; Guðlaug-
ur Jóakimsson, Höfða, 20.00; Þórsteinn
Jónasson, Grýtubakka, 5.00; Jónas
Einarsson, Akurbakka, 0.50; Gunnar
Gunnarsson, Görðum, 1.00; Jón Odds-
son, Hlöðum, 2.00; Kjartan Jóhannes-
son, Kljáströnd, 2.00; Tryggvi Ind-
riðason, Grenivík, 5.00; Baldvin Þór-
leifsson, Árbakka, 2.00; Björn Jóhanns-
son, Koti, 1.00; Þórhallur Árnason,
Grenivík, 1.00; Ingimundur Árnason,
smst., 1.00; Jón Halldórsson, Kol-
gerði, 5.00; Jón Halldórsson, Gríms-
nesi, 5.00; Petrína Björnsdóttir, Lauf-
ási, 2.00; síra Björn Björnsson, smst.,
20.00; Mad. Ingibjörg Magnúsdóttir,
smst., 10.00; Sigurður Kristjánsson,
Grýtubakka, 0.10; Þórsteinn Oddsson,
Réttarholti, 0.10; Björn Gunnarsson,
Kljáströnd, 10.00; María Gunnarsdótt-
ir, Grenivík, 2.00; Emilía Halldórs-
dóttir, Kolgerði, 0.25; Guðjón Jóns-
son, Grýtubakka, 3.00; Bergþóra Jóns-
dóttir, Grenivík, 0.50; Sigríður Jó-
hannsdóttir, Hóli, 0.25; Kristjana
Albertsdóttir, Svæði, 0.50; Einar
Jónasson, Kolgerði, o. 10; Sigurveig
Þórarinsdóttir, Kljáströnd, 4.00; Guð-
jón Ágústsson, Gröf, 1.00; Þórhallur
Gunnlaugsson, Finnastöðum, 1.00;
Sveinn Þórðarson, Höfða, 0.50; Gunn-
ar Þórðarson, smst., 0.50; Jósavin
Guðmundsson, Hóli, 0.50; Þorbjörg
Jóhannesdóttir, Grenivík, 2.00; Þór-
steinn Pétursson, Nesi, 2.00; Einar
Jóhannsson, Nesi, 2.00; Kristín Jó-
hannesdóttir, Sundi, 2.00; Kristín Bald-
vinsdóttir, Grímsnesi, i.oo;Björn ÓI-
afsson, Grímsnesi, 2.00; Kristjana
Geirfinnsdóttir, smst., 0.25 ; Gunnlaug
Pálsdóttir, Hlöðum, 0.25; Valdemar
Friðriksson, Höfða, 2.00; Kristján
Jónasson, smst., 0.25; Ólína Krist-
jánsdóttir, Hléskógum, 0.25; Björn
Helgason, Grund, 2.00; Baldur Helga-
son, Grímsnesi, 2.00; Bergvin Jóhanns-
son, Garðsvík, 3.00; Grímur Laxdal,
Tungu, 5.00; Guðni Þórsteinsson,
Lundi, 2.00; Halldór Jóhannesson,
Þórsteinsstöðum, 1.00; Vigfús Vigfús-
son, Grenivík, 2.00; Olafur Gunnars-
son, Höfða, 3-°°j Baldvin Gunnarsson,
Höfða, 3.00; Gunnlaugur Gunnlaugs-
son, Finnastöðum, 3.00; Jóhann Björcs-
son, Nesi, 3.00; Jens Kristjánsson,
Höfða, 2.00; Aðalsteinn Indriðason,
Miðvík, 1.00; Jóhann Jónasson, frá
Látrum, 5.00; Guðrún Guðmundsdóttir,
Grenivík 0.40; Sesselja Gunnlaugs-
dóttir, Kolgerði, 1; Málmfríður Bald-
vinsdóttir, Grýtubakka, 1.00; Jóhanna
Magnúsdóttir, Grýtubakka, 1.00; Hólm-
fríður Magnúsdóttir, smst., 1.00; Sig-
urður Hjörleifsson Iæknir, Grenivfk,
50.00; Steingrímur sýslum. Jónsson,
10.00; Valdemar Valvesson, Meðal-
heimi, 2.00.
Samtals: 546.95.
Grýtubakka í okt. 1903.
Friðbjörn Bjarnarson.
AUGLYSING.
Hér með tilkynnist öllum
þeim, sem skulda við
verzlun mína, að þeir
veröa að borga mér
eða semja við mig um
greiðslu þeirra fyrir lok n. k. mán.
ella neyðist eg tafarlaust að beita
lögsókn. Hér er ekkert undanfæri.
Hjalteyri þ. 25/io 1903.
0. JVIöller.
Seldar óskilakindur
í Grýtubakkahreppi haustið 1903.
1. Hvít lambgimbur, mark: Hvatt og
gagnfjaðrað h. Stúfrifað, gagnbitað v.
2. Hvítur lambhrútur, mark: Sneiðrif-
að fr., gagnfj. h. Gagnfjaðrað vinstra.
3. Hvítur lambhrútur, mark: Sneitt og
fj. a. h. Sýlt vinstra.
Höfða 21. okt. 1903.
Þóröur Gunnarsson.
eir, sem skulda mér, verða
að borga fyrir síðasta nóv
n. k. eða semja við mig.
Enginn ætti að ímynda sér,
sem gefið hefir skuldabréf
eða skrifleg loforð, að eg hlífist við
að láta þá efna heit sín.
Akureyri 28/io 1903.
mark á báðum: heilrifað biti fr. h.,
tvístýft fr. v. Andvirðisins má vitja á
skrifstofuna.
Bæjarfógetinn á Akureyri 29. okt. 1903.
Kl. Jónsson.
eir, sem þurfa að kaupa
ýmislegt til heimilisþarfa
pr. contant svo sem kaffi,
sykur, export, hveiti og
tóbak, kaupa það hvergi
billegra en við Gudmanns Efterfl.s
verzlun. Engir dagprísar, engin verð-
hækkun.
Akureyri 28. okt. 1903.
Jóhann Vigfússon.
Rjúpur og Haustull
tekin hæsta verði við Gudm. Efterfl.
verzlun.
ýVfsláttarhestar
verða keyptir háu verði í verzl-
un Ouðmann5 Efterfl* á Akureyri.
Jóhann Vigfússon.
erfect skilvindan ENDUR-
BÆTTA fæst að jafnaði við
Gudm. Efterfl.s verzlun.
SMJÖR og EGG
kaupir
Sudm. Sfterfl. s oerzlun.
„NorOurland" kemur út á hvcrjum laugardegi.
52 blöð um árið. Verð árg. 3 kr. á fslandi, 4 kr. í
öðrum Norðurálfulðndum, l‘/a dollar f Vesturheimi.
Ojalddagi fyrir miðjan júlf a* mlnsta kosti (erlendis
fyrir fram).
Uppsögn sé skrifleg og bundin við árgangamót;
ógild nema komin sé til ritstjóra fyrir 1. júlf.
A»glf«ingar teknar f blaðið eftir samningi vlð rit-
stjóra. Afsláttur mikill fyrir þá, er auglýsa mlkið.
Prentsmiðja Norðurlands
Jahob Gíslason.
Til sölu er skonnert „ Gylfe“,
sem er 42 tons að stærð, bygð úr eik, öll koparföst, með 2 klæðningum
af seglum, vatnskössum og ískössum, akkerum, keðjum, alt saman í bezta
standi. — Skipið er mjög Iwntugt til síldarveiða. — BORGUNARSKIL-
MÁLAR AÐGENGILEGIR. Upplýsingar viðvíkjandi verði og borg-
unarskilmálum fást hjá undirrituðum. Lysthafendur sendi tilboð sín fyrir
1. Desember til
Th. Thorsteinsson
Reykjavík.
Vottorð.
Viö undirritaðir, sem höfum verið skipstjórar á skonnert „Gylfe", eiþn Th. Thorsteins-
sons í Rvík, undanfarin ár, vottum hér með, að skipið, sem áður hefir verið notað með-
fram til hákarlaveiða, er mjög hentugt og happasælt til fiskiveiða, liggur vel á fiski,
fyrirtaks sjóskip, sterkt og í alla staði vel útbúið, eyrseymt upp í sjómál. Skipinu hefir
alt af verið vel viðhaldið.
Rvík 3/1 -02.
Björn Otslason Jafet Sigurðsson K P- Bjarnason
(skipstjóri). (skipstjóri). (skipstjóri).
Til útgjörðarmanna.
Eg undirritaður tek að mér í vetur að útvega bæði þilskipa- og báta-
útgjörðarmönnum, sem þess óska víðsvegar af landinu, alt sem að útveg
þeirra lýtur, hvort heldur er segldúk, tóverk, fi-skilínur, öngla (smíðaða
hér), síldarnet, skipskost og alt annað, sem vanhagar um, bæði vandaðast
og ódýrast sem það fæst hér á staðnum og sendi meö fyrstu ferð til
móttökustaðar.
Þar að auki sjófræðisverkfæri og almanök fyrir skipstj. og stýrimenn.
Enn fremur annast eg um kaup og sölu á þilskipum og í samráði við
góðan lögfræðing sé um peningalán til eflingar og aukningar sjávarútvegi.
Sjómenn ræð eg í skiprúm eins og að undanförnu.
Alt fljótt og vel afgreitt. Skrifið sem fyrst og sendiö beiðni yðar; lítil
ómakslaun.
Reykjavík 10. okt. 1903.
Matth. fiórðarson
f. skipstjóri.
Seldar óskilakindur
á Akureyri haustið 1903.
Hvít dilkær, ásamt hvítum dilki,