Norðurland - 01.10.1904, Page 3
3
N!.
að austanverðu alt að því 300 álna langur
vegur, hlaðinn úr sniddu mestmegnis og
grjóti raðað utan á kantana. Hæð brúar-
innar frá gólfi til vatns, eins og það get-
ur orðið allra lægst, er um 6 álnir; en frá
hæstu vatnsstöðu, sem menn þekkja dæmi
til, og uppundir járnbitana, er um hálft
annað fet.
Botninn er mjög linur og blautur —
mestmegnis jökulleðja, hefir sumstaðar
orðið að reka staurana 40—50 fet nið-
ur í botninn til þess að þeir yrðu nægi-
lega fastir.
28 ísbrjótar úr tré eiga að vera uppaf
tréstöplunum öllum, nema þeim austasta.
Það. er nú verið að hlaða steinstöplana
og leggja vegakaflana, gólfið er ekki lagt
enn í fullri breidd og handrið að eins
komið öðru megin, en búizt er við að
fullgera það sem eftir er svo — fyrir lok
septembermánaðar — að hægt verði að
nota brúna til umferðar í vetur. — ísbrjót-
arnir verða að bíða næsta sumars flestir,
það er nú verið að koma hinum fyrstu
fyrir, en það verða varla fleiri búnir í
sumar en 4—5 af 28.
Brúin á að geta borið 80 pd. á hverju
ferhyrningsfeti af flatarmáli gólfsins. Þar
sem nú breidd brúarinnar er 8 fet og
lengd ca. 960 fet, getur öll brúin borið
614,400 punda þunga eða rúm 307 ton.«
X
Húsavík 22. sept. 1905.
Gufuskipið »Fix« tók sauði Kaup-
félags Þingeyinga hér þann 20. þ. m.
eins og til stóð. Skipið var vel út
búið með sterkum og smáum fjár-
réttum, sem ætíð mun reynast af-
farabezt. I því var nóg af vatni og
haframjöli, og hentug brynninga áhöld.
Fénu öllu, 1967 kindum, var skipað
fram í bátum, sem gekk greiðlega
eftir ástæðum, því sunnan stormur
tafði oftast fyrir. Er þetta í annað
skifti, sem hér hefir verið flutt út
lifandi fé af höfninni.
X
Norðurlandi
hafa bæzt' í sumar allmargir kaup-
endur, en auk þess verður það nú
sent ýmsum, er ekki hafa áður verið
kaupendur þess. Þeir menn, sem blaðið
verður nú sent í fyrsta sinn, eru beðn-
ir að skýra ritstjóranum sem fyrst frá
því, hvort þeir ekki vilja gerast kaup-
endur og hafa gert það í síðasta lagi
fyrir næstu áramót.
Mannalát.
Frú Hólmfríður Porsteinsdóttir á
Sauðanesi, kona síra Arnljóts Ólafs-
sonar, andaðist fyrir skömmu í Kaup-
mannahöfn. Hafði hún siglt þangað í
sumar til lækninga.
Frú Hólmfríður var merkiskona, vel
mentuð, ágæt eiginkona, ástrík móðir
og veitti heimili sínu höfðinglega for-
stöðu.
Kvennaskólinn á Blönduósi.
Forstöðukona hans er orðin ungfrú
Ouðríður Sigurðardóttir frá Lækjamóti
í Húnavatnssýslu.
Skilnaðarveizla.
Eins og getið er um í síðasta blaði,
héldu Akureyrarbúar amtmanni Páli
Briem, skilnaðarveizlu á »Hótel Akur-
eyri« 24. f. m. Veizluna sátu 60—70
manna. Friðrik kaupmaður Kristjáns-
son flutti aðalræðuna fyrir amtmanni
og afhenti honum að gjöf frá Norðlend-
ingum vandað gullúr með gullkeðju.
Amtmaður Páll Briem fór héðan með
»Ceres« 27. f. m. alfarinn til Reykja-
víkur.
Skaffafellssýsla.
Umsóknarfrestur um hana er til 7.
nóv. Launin eru 3000 kr.
Nýir presíar.
2 prestaskólakandidatar voru prest-
vígðir 11. f. m., Böðvar Eyjólfsson að-
stoðarprestur að Arnesi og Jón Brands-
son sóknarprestur að Felli f Stranda-
sýslu.
Sigfús Blöndal.
Kennaraembætti við Oustavus Ad-
olphus College bauð kirkjuþing íslend-
inga í Vesturheimi Sigfúsi Blöndal í
sumar, en þvf tilboði hefir hann ekki
tekið.
»Þess skal getið að nefndin er
þegar farin að litast um eftir öðrum
manni og mun gera alt, sem í henn-
ar valdi stendur, til þess að af fram-
kvæmdum verði eins fljótt og unt er,«
segir nú í Vínlandi.
Guðmundur Finnbogason
magister fór héðan í gær landveg
áleiðis til Seyðisfjarðar. Hann ferðast
til undirbúnings skólamálunum.
Halldór Briem
kennari kom frá Reykjavík, landveg
í fyrradag.
Sfeingrímur Maffhíasson
læknir er nú orðinn aðstoðarlæknir
á Friðriksbergssjúkrahúsinu í Kaup-
mannahöfn.
Hafskipabryggju
hafa þeir Vaughan & Dymond í
Newcastle (hinir sömu og smíðuðu Ölf-
usárbrúna) boðið bæjarstjórn Reykja-
víkur að smíða fyrir bæinn. Ráðgera
þeir að hún sé á sama stað og bæjar-
bryggjan nú er á, sé 800 fet á lengd
og kosti 180,000 kr.
Nýja yfirsefukonan
f Akureyrarumdæmi frk. María Haf-
liðadóttir er nýkomin heim frá Kaup-
mannahöfn. Hún hefir lært þar yfir-
setukvennafræði og tók próf með á-
gætisvitnisburði. Auk þess fekk hún
að verðlaunum vandaða verkfæratösku,
en þau verðlaun eru að eins gefin
einni námsmey, þeirri er færust þykir,
að afloknu prófi. Er fátt ánægjulegra
en að sjá íslendinga skara fram úr
öðrum, hvort sem er f stóru eða smáu.
Rifsfjóraskiffi
við »Peykjavíkina«. Bráðlega (1. okt. ?)
á ritstjóri Jón Ólafsson að hætta ritstjórn
við Reykjavíkina, er Porsteinn Oíslason
ráðinn ritstjóri hennar. — Fleygt var
því í Reykjavík að enn ætti að fitja
upp á nýju blaði, er Jón Ólafsson yrði
ritstjóri að.
„Friðþjófur“
fór héðan í gærmorgun til útlanda.
Hafði tekið um 1000 fjár á Sauðár-
króki og hér 6—700 fjár. Skipið rúm-
aði töluvert fleira fé og er því hætt
við að flutningsgjaldið verði nokkuð
hátt.
Trúin á fólkið.
Þessa grein, eftir Guðm. Hannes-
son, sem Norðurl. flutti nýlega, hefir
síra Matthías Jochumsson þýtt á dönsku,
sem gott sýnishorn af íslenzkum háttum
og þjóðmenningu.
»Ceres«
kom hingað að kvöldi hins 25. f. mán.,
tveim dögum eftir áætlun. Aðaltöfin hafði
stafað af því, að skipsskrúfan festist í kaðli
frá öðru skipi, er það Iagði af stað frá
bryggjunni á Seyðisfirði og þurfti þrjú
dægur til þess að losa hann burtu. Með
skipinu voru hingað: Frá Vesturheimi, Bjarni
Loftsson, bróðir frú Lovísu, konu Snorra
kaupmanns Jónssonar. Frá Kfiuprnanna-
höfn, ungfrúrnar María Hafliðadóttir og
Snjólaug Sigurðardóttir. Frá Austfjörðum,
héraðslæknir Stefán Gfslason á Ieið til
læknishéraðs síns, Mýrdalshéraðs og ung-
frú Anna Jónsdóttir. Frá Húsavík, frú A.
Stephensen, ungfrú M. Stephensen, Baldur
Sveinsson skólapiltur, ungfrú Fjóla Stef-
ánsdóttir o. fl. »Ceres« fór héðan aftur
27. f. m.
Jforðurland.
Komi fyrir nokkur vanskil á blaðinu eru
hlutaðeigendur vinsamlega beðnir að segja
til þeirra sem fyrst.
Þeir, sem flytja búferlum, eru beðnir
að segja til þess, ef auðið er, svo snemma
að ekki þurfiaf því að leiðavanskil á blaðinu.
Með ,Ceres‘
er nýkomið til Carl Höepfners verzl-
unar mikið af vörum, par á meðal
ágætt fínt kex og ýmislegt annað
sælgæti.
Joh. Christensen.
unið eftir allir,
sem skuldið Carl Höepfn-
er’s verzlun, að borgunar-
fresturinn er ekki lengur
en til 10. október í haust.
Joh. Christensen.
Frá l.október verður brauð-
búð Carl Höepfner’s ekki
opin á sunnudögum nema
frá kl. 3 — 6 e. m.
Joh. Christensen.
Skóverzlut)
GUÐL. SIGURÐSSONAR
&
V. GUNNLAUGSSONAR
Norðurgötu 1, Oddeyri
er ætíð birg aí öllum algengum skó-
fatnaði. Pantanir og aðgerðir afgreidd-
ar fljótt og vel.
Undirskrifaðar taka að sér kenslu
f klæðasaum og útsaum.
Strandgötu 1.
Anna Jónsdóttir. Margrét Jónsdóttir.
Hjá undirrituðum fá ferðamenn
ekki mat og hey framvegis
endurgjaldslaust.
Moldhaugum 29. sept. 1904.
Benedikt Guðjónsson.
fæst daglega keypt í HÖEPFNER’S
verzlun.
Joh. Christensen.
Nýtt
sauðaHjöí
og SLÁTUR selur næstu daga
Otto Tulinius.
Björri Jakobsson
gullsmiður
— 3 Glerárgata 3 —
smíðar trúlofunarhringa, og alt, sem
að gullsmíði lýtur.
Alt leyst vel af hendi og ódýrt.
Kpmið til hans!
Auglýsing,
Sýslanin sem yfirsetukona í
Skriðuhreppi verður laus frá 1.
janúar n. á. Pær, sem sækja
vildu um stöðu pessa, sendi
sem fyrst umsóknir til sýslu-
mannsins í Eyjafjarðarsýslu.
Tapast hefir.
Vandað og dýrt kvennúr með festi
úr gullpletti, hefir tapast á veginum
frá Möðruvöllum að Þríhirningi í Hörg-
árdal, — vestan Hörgár. — Finnandi er
beðinn að skila úrinu á skrifstofu Nl.
— eða til Stefáns eldra Stefánssonar
að Möðruvöllum gegn fundarlaunum.
Sérstaklega er fólkið á bæjunum Stóra-
Dunhaga og Litla-Dunhaga beðið að
leita að úrinu, — því þar fyrir neðan
á eyrunum mun það hafa tapast.
eð því Búnaðarfélag íslands
hefir veitt styrk til þess að
gerðar verði tilraunir með
umgangskenslu í hússtjórn
í Eyjafjarðar- og Þingeyjarsýslum,
tilkynnist hérmeð, að undirrituð veit-
ir upplýsingar um kenslu þessa og
fyrirkomulag á henni.
Þeir sem vilja nota kensluna snúi
sér sem fyrst til
Jónínu Sigurðardóttur,
Aðalstræti nr. 2.
MjaltaKensla
fer fram í vetur að tilhlutun BÚNAÐARFÉLAQS ÍSLANDS
á JVIöðruvöllum í Hörgárdal.
Kenslan fer fram 8 daga í senn:
5.—12. nóvember, 1. —8. desember,
L —8. marz og 11.—18. marz.
Hvert námskeið geta 4 nemendur notið kenslunnar og borgar hver
þeirra 5 kr. fyrir fæði, þjónustu og húsnæði um námskeiðið. — Þeir, sem
ætla að taka þessu, tilkynni það sem fyrst kennaranum, Sigtryggi Þor-
steinssyni á Möðruvöllum.
Möðruvöllum 25. sept. 1904.
Fyrir hönd Búnaðarfélagsstjórnarinnar
Stefán Sfefánsson.