Norðurland


Norðurland - 25.11.1905, Page 1

Norðurland - 25.11.1905, Page 1
NORÐURLAND. Ritstjóri: Sigurður Hjörleifsson, læknir. 11. blað. Akureyri, 25. qóvember 1905. V. ár. Ollum þeim hinum mörgu, fjær og nær, er heiðr- uðu jarðarför vors elsku- lega sonar, eiginmanns, tengdasonar og bróður Jóhanns Vigfússonar með nærveru sinni og á annan hátt syndu oss alúðlega hluttekningu í sorg vorri, vottum vér vort innilegasta þakklæti. Akureyri 22. nóvember 1905. Anna Vigfússon (fædd Schiöth). M. H. Porvaldsdóttir. V. Sigfásson. A. Schiöth. H. Schiöth. Marin Vigfúsdóttir. Valgerður Vigfús- dóttir. Hallclóra Vigfúsdóttir. Cil skólasfjóra Jóns Jl. Jíjð/fs/fn. Pér eruð að senda mér tóninn í 39. blaði Gjallarhorns og þykir mér rétt að hafa það meira við yður, en aðra samverkamenn yðar, í þeim vín- garði, að svara yður nokkurum orð- um, enda megið þér eiga það, að þér eruð einurðarbetri en þeir menn, sem eru að skrifa í það blað, um þessar mundir, þorið að láta nafns yðar getið, jafnvel svo einurðar- góður, að ekki er alveg hættulaust fyrir virðingu yðar. Þér eruð að reyna til að verja ranghermi sjálfs yðar um undir- skriftirnar til ráðherrans. Þér hefðuð ekki átt að vera að því. Nl. hefði af sinni vanalegu góðsemi Iátið þetta falla niður, eins og svo margt annað, sem bæði þér og aðrir sam- verkamenn yðar hafa oftalað. Því eruð þér þá að ala á þessu? Ó- sannindum verður ekki breytt í sannleika þó þau séu endurtekin. Mundi yður þykja það málsbætur, ef einhver lærisveina yðar segði ó- satt, að hann stæði fast á ósannind- unum og bætti nýjum við? Eða haldið þér að aðrar reglur gildi fyrir yður í þessu efni, af því þér eruð orðinn gamall og gráhærður og veitið forstöðu einni af helztu mentastofnunum landsins? Eg verð að prenta upp fyrir yður áskorunina til ráðherrans, svo þér hafið hana, svart á hvítu, fyrir framan yður og svo þér eigið hægra með að átta yður þegar þér berið hana saman við utnmæli sjálfs yðar. Á- skorunin hefir áður verið þrentuð í íslenzkum blöðum, svo yður var vorkunnarlaust að vita innihald henn- ar nákvæmlega. Sérstaklega var til þess ætlandi af yður, mentuðum manninum, sem eruð búnir að skrifa tvær greinar um áskorunina, með yðar nafni, í blöðin og hefðuð það ekki verið þér, þá er eg alveg viss um að sá maður hefði verið kall- aður glópur, sem hefði, með rit- smíðum sínum, lýst eins mikilli vanþekkingu á undirskriftunum og þér hafið gert; en ef til vill á annað orð betur við yður í þessu sam- bandi. Undirskriftaskjölin hljóða á þessa leið: Undirskrifaðir kjósendur í . . . hreppi . . . sýslu skora he'rmeð alvarlega á ráð- herra fslands, að hann ráði hans hátign JnunJmunJiJþesjaðJrestajtaðfesting á lögum um ritsíma, talsíma o. fL þar til ejJrjóðinJiefirJttJostáaðlátajipJJlja Jinjjiraðskeytamálinunuðkosrnngumtil alþingis. Komi þessi áskorun ekki til ráðherrans fyr eti staðfesting nefndra laga er um garð gengin, eða verði henni ekki sint, þá skora undirskrifaðir kjósendur hér með alvarlega á stjðrn landsins að rjttfaJnngjsemJgtJjrgjjtJtuJilnýrra kosninga, til þess að þjððin eigi kost á að girða fyrir það nú þegar, að hiin sœti annari eins meðferð af fulltráum sínum eftirleiðis. Má eg nú ekki snöggvast biðja yður að athuga yðar eigin orð. Þau standa í greininni yðar makalausu, í 32. bl. Gjallarhorns, þar sem yður tókst að unga út smekklegu samlík- ingunni um þessar undirskriftir og svo undirskriftir kaupmanna forðum. Yðar orð eru á þessa leið: »Það eru frelsis og föðurlandsvin- irnir, sem nú eru að biðja um laga- synjanir *. Blöð þeirra sem áður voru harðorðust móti lagasynjunum, eggja °g æsa alþýðu manna til að biðja um lagasynjanir *.« . . . Nú vildi eg biðja yður, herra skólastjóri, að benda mér og allri þjóðinni á það, hvar farið er fram á lagasynjanir í áskoruninni til ráð- herrans. Þér eruð tninni maður ef þér getið það ekki. Eða réttara sagt, þér ættuð að vera svo mikill maður, að kannast hreinskilnislega við á- virðing yðar, því lagasynjun er hvergi nefnd á nafn í áskoruninni. Með því munduð þér ekki að eins bæta fyrir ávirðing sjálfs yðar, held- ur gerðuð þér með því það þarfa- verk að stinga sjálfur upp í alla þá lygalaupa, sem hafa verið að breiða út þau sömu ósannindi, sem þér hafið tekið að yður með þessum ummælum yðar. Eg skal svo í þetta sinn sleppa yður við nánari rannsókn á þessari fyrri grein yðar. En fyrir það megið þér ekki halda að yður verði slept orðalaust með seinni greinina. Fyrst er þá það að þér eruð þar að halda hlífiskyldi yfir annari af höfuðlygum ** stjórnarblaðanna í þessu undirskriftamáli, þeirri, að á- skoranirnar hafi átt að senda til *Leturbreytingin gerð af ritstjóra NIs. **Lygi þýðir ósannyndi móti betri vitund og allir hljóta að geta séð að ósannindi stjórnarblaðanna eru ósannindi móti bttri vrtund, þar sem undirskriftarskjölin fóru milli jafnmargra manna og efni þeirra hefir auk þess verið prentað í blöðunum. En þessum ósannindum þeirra mætti svo skifta i flokka, í höfuð-lygar og undir- lygar. konungs. Þér skrifið sjálfur á þessa leið: »En að því er áskoranirnar snertir, þá er það víst að flestir töluðu svo um þær fyrst, er farið var að hefja máls á þeim hér um slóðir, sem senda ætti þær konungi og það veit ritstjóri Nls. eins vel eins og eg.« Munnflapur álíkt þessu heyrist stunduin hjá hálfkjökrandi krökkum, sem staðin eru að ósannindum. Hverir voru þessir „flestir" er „töl- uðu svo um þær fyrst?" Hverir ætli svo sem það hafi verið nema þér sjálfur og samverkamenn yðar. Þið hafið víst tönlast á þessu þang- að til þið fóruð að trúa því sjálfir, en fyrir það getur ykkur orðið hált á því að bera það fram í blöðunum. Ekki er hægt að eltast við það, þó þið stingið svona sögum að ein- hverjum fáráðlingi, sem hvorki veit uþp né niður í málinu, en þegar þið farið líka með þær í blöðin, er þó vinnandi verk að tína þær sam- an og benda öllum á þær, og það þó tína þurfi þær upp úr eins ó- geðslegu lygahylki eins og Gjallar- horni. En fyrir aðra eins frammi- stöðu og þessa, þessa konga-lygi, veit maður varla hvort maður á að aumkva ykkur eða þá hlæja að ykkur. En þar sem þér segið að mér hafi verið eins vel kunnugt um það eins og yður að áskoranirnar ætti að senda konungi, þá getur sú setn- ing ekki færst til sanns vegar nema á einn hátt. Mér er alveg ókunnugt um að það hafi átt að senda þess- ar áskoranir konunginum og veit að það kom aldrei til orða nema hjá þeim mönnum, sem rangfærðu undirskriftirnar og sögðu ósatt um þær. Ef þér viljið kannast við það sama, þarf okkur ekki að bera á milli um þetta atriði. En ef þér ekki getið sætt yður við þessa skýringu á þessum ummælum yðar í minn garð, neyðist eg til að Iýsa þau ó- sannindi. Mér er alveg sama hvort þér kjósið heldur. Þá takið þér að yður að reyna til að hrekja þau ummæli mín í Nl., að aðalkjarninn í áskorununum sé í því fólginn að óskað sé eftir nýjum kosningum. Þér gerið það á yðar vanalega, prúðmannlega hátt, þegar þér eigið í ritdeilum, með þeim um- mælum, að ekki hafi „ritstjórinn er hann reit þetta haft í huga grein þá er stendur í lærdómskveri Balles gamla og svo hljóðar": ,Afleggið lygar og talið sannindi hver við sinn náunga’". Þetta eru nú yðar röksemd- ir og get eg verið yður sammála um það, að þér ættuð heldur að rita röksemdalaust. Því ekki skuluð þér láta yður detta í hug að nokk- ur skynbær maður taki undir það með yður, að hægt sé sanna nokk- uð viðvíkjandi undirskriftunum, með því að vitnaí Alþingistíðindin. Undir- skriftirnar og undirskriftarskjölin eru alveg sérstæð. Þau verða að dæmast eftir innihaldi þeirra sjálfra og engu öðru. Þessi uppfundning yðar með Alþingistíðindin er svo gamalkarla- leg, bendir á svo mikinn sljóleik í hugsuninni, að eg vil hreint og beint ráða yður frá að halda henni á lofti. En nú skulum við athuga undir- skriftarskjalið dálítið betur. Áskorun- in til ráðherrans er í tveiin liðum. í fyrri liðnuni er ekki farið fram á lagasynjun eins og þér og félagar yðar eru að bulla með, heldur er farið fram á frestun á staðfestingu laga. Þessi frestun bendir, eftir öll- um atvikum, til þess, að eitthvað þurfi að gerast meðan á frestuninni stendur og það er skýrt tekið fram í orðum áskorunarinnar hvað þetta sé sem eigi að gerast, nefnilega nýj- ar kosningar til Alþingis. Aðalkjarni þessa fyrri liðs er því óbein áskor- un um nýjar kosningar; það eru þær sem áttu að skera úr deilumál- inu, þær sem áttu að skera úr hvort það sé stjórnin eða þjóðin, sem eigi að vera húsbóndinn á heimilinu. En þó verður þetta ennþá ljósara þegar síðari kaflinn er lesinn með; þar er farið fram á þingrof sem fyrst, ef áskoruninni verði ekki sint; en allra skýrast sézt þetta þó af upp- hafinu á síðara lið, því þar er gert ráð fyrir því að vel geti farið svo að áskoranirnar verði ekki komnar til ráðherrans fyr en búið sé að samþykkja lögin; kjarni áskorananna getur ekki verið frestunin, af því þsér gera ráð fyrir að svo geti farið að engu sé að fresta og þá getur hann heldur ekki verið annar en krafan um nýjar kosningar. Herra skólastjóri. Hvort finst yður nú að það sé eg eða þér sjálfur sem þurfi liér að festa sér í minni orðin „Afleggið lygar" o. s. frv.? Svo yð- ur veiti hægra að skera réttilega úr því, ættuð þér að lesa dálítið meira í barnalærdómi yðar; yður er engin skömm að því, en þér ættuð ekki að lesa hann til þess að leita í hon- um að setningum, sem þér svo kast- ið fram sem staðlausum brigzlyrðum til náungans, heldur til þess að leita í honum að yðar barnslega hugar- fari. Eg vona að það hafi verið svo gott, að þér lærið aftur að roðna, þegar þér náið í það. Eg er ekki enn þá búinn að benda yður á helminginn af rang- færslum yðar í síðari greininni; þær eru svo margar, að rúmið leyfir ekki að hrekja þær allar í einni grein, enda má taka til þeirra síðar. En eg má þó ekki algjörlega sleppa því ranghertni, sem felst í orðum yðar um rétt „Mikla norræna rit- símafélagsins" til þess að fá einka- leyfi sitt endurnýjað eftir 20 ár. Þér látið prestinn segja, að því hafi verið logið í hann, „að ritsímafélagið gæti fengið framlenging einkaleyfis síns eftir 20 ár, hvað svo sem þing eða stjórn segði". En þetta er alveg satt

x

Norðurland

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Norðurland
https://timarit.is/publication/203

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.