Norðurland


Norðurland - 11.04.1906, Side 1

Norðurland - 11.04.1906, Side 1
NORÐURLAND. Ritstjóri: Sigurður Hjörleifsson, læknir. 31. blað. Akureyri, 11. apríl 1906. V. ár. Stjórnin og æskan. Eftir Ouðmund Friðjónsson. ii. Síðari kafli. Sá maður sem efstur er í stiga stjómarinnar hér í landi, — hann er meira en maður. Fyrst og fremst er hann mikill hæfileikamaður bæði í sjón og að málfæri og allri framkomu, og auk þess er hann andans maður. Hann er skáld. Ráðherrann er tvígild- ur og til hans er því rétt að gera tvöfaldar eða tvígildar kröfur. Einu sinni var Hannes Hafstein œsk- an sjálf iklædd holdi og blóði. Hann ruddi sér til Braga-rúms með anda og krafti æskunnar. Og hann bar hátt og hermannlega merkið, merki trúarbragða- frelsis, mannréttinda, einstaklingsréttar og einurðar. Þegar hann sló á strengi hörpu sinnar, hreif hann æskuna í landinu og nam óðul hennar. Þegar hann verpur sér inn á vígvöll stjórn- málabaráttunnar, þá nýtur hann þeirr- ar birtu, sem skáldfrægðin hafði varp- að á hann og þess byrjar, sem hún hafði blásið honum undir báða vængi. Hann stendur í því ljósi fyrir hug- sjónum þjóðarinnar og þessi bylgja lyftir honum og bar hann fram til sigurs í æðsta og efsta sætið, sem þjóðin á til í eigu sinni. Þegar þessi óskmögur þjóðarinnar tekur stjórnartaumana í hendur sínar, verður að gera til hans miklar kröfur — þær kröfur a. m. k., að standa við orð sín trá tyrri dögum — reyna það. Þess er alls ekki að vænta, og það er ranglátt að heimta, að hann geti komið hugsjónunum öllum í framkvæmd og á jarðneskar Iaggir; því að þar er við ramman reip að draga, þegar um það er að gera, að koma andanum í efnið og blóðrás í steinana og lifi í moldina. En hitt verður að heimta miskunar- laust, að ráðherrann sýni lit á því og eindregna viðleitnl og vilja, að gera hugsjónum œsku siunar hátt undir höfði og sýna þeim hlýtt viðmót. Og verkefnið var mikið og margs- konar. Tökum til dæmis fyrst og fremst kirkjumálin og trúmálin. Ráðherrann vissi það vel, að »rotnir trúartaumar* eru vont beisli á frelsisandann. Kirkjumál þjóðar vorrar hafa verið dauðans vandræðamál og í hörmulegu horfi. Þar var, tvent að gera: koma ytra borði kirkjunnar í hagkvæmt horf, og að hlúa að sálum manna og sam- vizkum og verma trúarþörfina og tryggja einstaklingsréttinn. Svo skipar stjórnin nefnd manna, til að fjalla um alt þetta vandræðamál, völundarhússins, og niðurstaða þeirrar nefndar á að vísu að verða sú undir- staða, sem sjálft musteri þjóðkirkjunn- ar á að standa á framvegis, musterið sjálft og kapellur einstaklingsréttind- anna í trúmálum. Mikill vandi hvílir á höndum og herðum, höfði og hjarta þessarar nefndar og er það mála sann- ast, að í hana mundi þurfa að velja menn með vitsmunum og þekkingu, sem kunnir eru að dáð og drengskap og frjálslyndi og þori og þreki, til að reka úr túni kirkjunnar hafurinn »gamla« og vonda — óvin mannkynsins. Hvernig velur stjórnin í nefndina? Þann veg, að í henni sitja einþykkir menn og aftu'rhaldssamir, fégjarnir og stærilátir, og ekki eru þeir allir guðs- menn að innræti. Guðfræðingar eru þar í meiri hluta og eru þeir ekki mjög líklegir til þess að endurnýja kirkjuna. Sú stétt hefir sjaldan eða aldrei gengist fyrir endurbótum trúar- greinanna heldur hefir hún oft og löngum skarað eldinn að kökunni sinni og bregður því venju, ef út af ber þeirri reglu í þetta sinn. Tveir rót- grónir veraldarmenn sitja og í nefnd- inni og er öll sú sveit ólíkleg til þess að reka hafurinn úr túninu. Eitt er bersýnilegt hverjum manni: að nefndin er skipuð mestöll stjórnar- liðum. Kosningin í nefndina er virð- ingarstaða og vegtylla, náðarbrauð. — Þegar svo er högum háttað, að guðs- málin í landinu eru dregin niður í flokksskarn, þá eru hugsjónirnar deydd- ar og grafnar. Þá eru kenslumálin. Þau eru, sam- kvæmt eðli sfnu, málefni œskunnar og hugsjónanna, náskyld þeim og nátengd og verða ekki við þær skilin. Þegar þau eru dregin undir pólitískan flokks- ríg og pólitíska hefnigirni, þá er eng- um blöðum um það að fletta, að sú stjórn, sem það gerir, hún vinnur skóggangssök á hendur sér, hvar sem tveir ungir menn eru saman komnir, eða fleiri. Hvernig hefir stjórnin okkar komið fram í þeim málum? Þannig, að hún hefir syndgað — ekki einungis móti hugsjón kristninnar, heldur og gegn kenningu Múhameðs; því að í Kóran- inum stendur: Hver sem veitir em- bætti þeim manni, sem er miður hæf- ur til þess, en annar, sem settur er hjá, þá drýgir sá maður synd. — Og syndin er lands og lýða tjón, segir ritningin. Merkisberi mentamála vorra er svert- ur og svívirtur. Guðm. Finnbogason er sviftur því starfi, og atvinnu, sem hann var kjörinn til, að allsherjarmáli réttu og alþjóðarlögum, kjörinn til að vinna og njóta ávaxta vinnunnar. Vegna hvers var hann settur í skuggann ? Vegna þess eins og einkis annars, að hann er móthverfur stjórninni í pólitík. Þó er mótstaða hans hrein og flekklaus og laus við alla áreitni. Eg get ekki orða bundist, og þó kenni eg til innarlega, þegar eg rifja upp þetta mál. Mér þykir svo fyrir því, að sá maður, sem eg ann hug- ásium fyrir skáldskap sinn og hæfi- leika, skuli misbeita valdinu á þennan hátt. Mikil sæla væri það, að geta verið ánægður með aðgerðir atburðamanns- ins frá náttúrunnar hendi. Hart er það að. sækja skógangssök á hendur þeim, sem hugann laðar voðfeldum viðkynn- ingaraugum. En þegar hann bregst vonum og trausti, þá verður að reiða exina að rótum trésins, þótt vænt sé og fagurt á að líta — verður að gera. — Fyrst eg er að lýsa löglýsing í heyranda hljóði að lögbergi þjóðarinnar, þá verður að sækja sakborning til fullrar sektar að alþingismáli réttu og allsherjarlögum. Nú eru tvö mál talin, sem eru mik- illar þýðingar og eru þau bæði mál- efni æskunnar, þegar þau eru í réttri mynd, mál, sem stjórnin hefir sýnt í afturhald, einþykni og — hlutdrægni. Hér verður naumast þeim lögprett- um við komið, að eg falli á málunum, því að eg hefi þau lög að mæla, sem ekki verða vefengd. Þó að Jón Þorláksson beri fram þá vörn í »lögréttu«, að stjórnin hafi haft æskuna í huga, þegar hún vildi veita ioooo kr. til að halda lyrirlestra fyrir alþýðu manna í landinu, þá bergur það ekki sökinni. Reyndar er hugmyndin góð, og ef ve| væri á slíku efni haldið, þá gæti það að gagni orðið. En þegar gætt er að öllum veðramerkjum á pólitíska himninum okkar, þá dregur upp svartan hnoðra við sjóndeildarhring þessarar fyrirlestrahugmyndar. Þegar þess er gætt, hvernig farið var með græna tréð, Guðm. Finnbogason, þá er hægt að geta sér til, hvernig úthlutun fyrir- lestrafjárins mundi hafa orðið. Fylgis- menn stjórnarinnar mundu setið hafa að krásinni, og um leið var það í lófa lagið að gera alla sendisveitina að smalamönnum hennar. Mér er sem eg sjái þá fúlgu, sem við Guðmundur Finnbogason hefðum fengið úr þeim sjóði, eða aðrir þeir, sem þann veg væru innrættir sem við erum. III. Hvað finst þér nú, Grímur, »lög- réttumaður« ? Skortir nokkuð á, að eg standi við orð mín? Jón Þorláksson! Sýnist yður eg hafa tekið ofan fyrir yður hár mitt eða höfuð? Eruð þér nú á þeirri skoðun, að eg kunni að afrækja minni hlutann? Ymsir menn hafa mælt við mig á þessa leið: Nú kemst minni hlutinn á sínum tíma til valda. Et sú stjórn, sem þá verður í landinu, bregzt þeim hug- sjónum, sem bera hana fram til sigurs, hvað segirðu þá? Svar mitt er þetta: Ef hún bregzt hugsjónum sínum verulega, í verulegum greinum, þá á að gjalda henni rauðan belg fyrir gráan. Ef eg svíkst þá undan merkinu, er það skylda ceskunnar að hlaða grjóti að höfði mínu. Hvert það tré, sem er ávaxtalaust, eða ber illa ávexti, skal höggva upp og kasta í eldinn. Eg bið mér engrar vægðar. Eg gæt> ftert miklu fleiri rök að því, að stjórnin okkar er móthverf æskunni og hugsjónunum og að hún er ekki valkvendi í háttum sínum, — miklu fleiri rök en þau sem nú eru talin. Og hvers er að vænta? — Ráðgjafar hennar, eða ráðunautar, eru sumir —endemismenn, þó að sumir þeirra, sem stjórninni fylgja, séu mætir menn og merkir. — Eg veit það vel, að eg hleð ekki undir sjálfan mig með þessum orðum, né tryggi framtíð barna minna, eða stytti á þetm ómagahálsinn, þegar eg rís móti ofureflinu í landinu og þeim, sem völdin hafa í höndum, og afl þeirra hluta, sem gera skal. En eg hirði ekki um það. Sannfæringu mína segi eg, hvað sem það kostar og hvernig sem alt veltur. Þá væri eg minni maður en lítill, ef eg félli til fóta þeim, sem ræður yfir höfðatölunni. — Birkibeinar hirtu ekki um liðsmun. Eg hefi engan konung hylt; því að eg er herra sjálfs mín og einvaldur í litla ríkinu mínu — klakalandinu, urð- inni, heimahögunum, útigangshnjótun- um. Hvern hefi eg að hylla eða hræðast ? Annars er vert að geta þess, að mér þykja minni hluta mennirnir sumir hafa verið of harðhentir stundum á stjórn- inni okkar. En þar sem stjórnin hefir vegtylluna, og það sem henni fylgir, þá verður hún og að hafa vandann og ábyrgðina. * * * Enn er ótalin framkoma stjórnar- innar í stórmálunum — ritsímamálinu og landsréttindamálinu. í báðum þeim málum hefir hún brugðist sjálfri sér — sínum eigin orðum og ákvæðum — og æskunni, — æskunni og hugsjónunum, og er engum blöðum um það að fietta. Annars er vert að taka það fram, að til eru tvenns konar hugsjónir: morgunroða hugsjónir og náttmála hug- sjónir. Morgunroða hugsjónirnar eru málefni æskunnar, en hinar eru »ær og kýr« stjórnarinnar og landstjórnanna yfir leitt. — Spor stjórnar vorrar liggja rakleiðis norður á við til náttmála- landsins. Hákon jarl horfði norður, þegar hann blótaði syni sínum þ. e. œskunni, til þess að geta sjáifur haldið völdun- um um stundar sakir. Saga þessi er æfagömul og þó altaf ný. Og altaf er hún sama tóbakið — illt og andstyggi- legt afturhalds-tóbak. Þetta er nú orðið langt mál og vil eg því nema staðar. Eg þykist nú hafa borið fram . þær ástæður fyrir máli mínu, sem nokkurs eru verðar. Enn þá hefi eg skjöldinn fyrir mig að bera, ef á liggur. Og verið nú sælir, góðir hálsar, fyrst um sinn. \ jFrá útlöndum. Khöfn 24. marz. 1906. Merkasti heimsviðburður í þessum mánuði er það, að franska ráðanéytið Rouvier er oltið úr sessi. Menn minn- ast víst kirkjuóspektanna, er gerðar voru, þegar semja skyldi skýrslur um kirknamuni og eignir. Þess var getið I síðustu fréttum, að lögregluliðið hefði orðið að skerast í leikinn er kristnir spillvirkjar vildu varna embættismönn- um ríkisins að gera skyldu sína. Sum- staðar hefir tekist svo óheppilega til, að menn hafa mist lífið, er þeir þótt- ust vera að verja trú sína. Andstæð- ingar stjórnarinnar gerðu fyrirspurn til hennar um málið á þingi. Amæltu þeir henni og héldu því fram, að skjóta hefði átt á frest að skrásetja gripi og eignir kirknanna, unz hugir manna hefðu sefast svo, að þeir væru teknir að fella sig við lögin um að- skilnað ríkis og kirkju. En stjórnin var ófáanleg til þess. En er greiða skyldi atkvæði um rökstudda dagskrá, þar sem þingið lýsti yfir trausti sínu á stjórninni, þá var hún feld með 267 atkvæðum gegn 234. Ráðaneytisfor- setinn, Rouvier, fór óðara út úr þing- salnum og stjórnin öll fylgdi honum. Og þegar í stað lagði ráðaneytið nið- ur völdin. Nýtt ráðaneyti hefir nú verið myndað. Forseti þesss heitir Sarrien, gamall maður og öruggur frelsisvinur. Ýmsir frægustu og frjálslyndustu stjórnmála- menn Frakka eiga þar sæti. Helztir þeirra eru utanríkismálaráðherrann Leon Bourgois og innanríkismálaráðgjafinn George Clemencau. Kirkju- og kenslu- málaráðgjafinn er jafnaðarmaður. Það var og sök í falli Rouvier’s, að hann þótti um of hneigjast til hægri hliðar og greiddu því nokkurir frjáls- lyndir vinstri menn og jafnaðarmenn atkvæði mót honum. Hyggja menn gott til þess, að hið nýja ráðaneyti fari þvert frá því er hitt fór. Rouvier hafði ekki setið nema eitt ár að völdum.

x

Norðurland

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Norðurland
https://timarit.is/publication/203

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.