Norðurland


Norðurland - 11.04.1906, Blaðsíða 2

Norðurland - 11.04.1906, Blaðsíða 2
124 Nt. Á Marokkófundinum er alt í sama farinu. Þjóðverjar eru þar einir sér og ekkert ríki styður þá. Englend- ingar fylgja Frökkum fastlega að máli. * * * Kviknað hefir í kolanámum í Frakk- landi. Um 11 hundruð manns biðu bana. Er námueigendum borið á brýn, að þetta sé að nokkuru leyti skeyt- ingarleysi þeirra að kenna. Þeir hafi látið verkamenn fara niður í námu- göngin, þótt þeir vissu, að eldur væri í námunum — ekki viljað bíða þess, að hann væri að fullu slöktur. * * * Enskar konur sækja það fast að ná kosningarrétti. 30 konur fóru á fund Campbell Bannermans. Voru þær fulltrúar fjölda kvenfélaga á Englandii er stofnuð eru í því skyni að vinna að kosningarrétti kvenna. Þær báðu áheyrnar en var neitað, af því að þær höfðu ekki sótt um það áður. Þá urðu þær svo reiðar, að þær stein- gleymdu að gæta kvenlegrar kurteysi og háttprýði. Létu þær öllum illum látum, grenjuðu og görguðu og hróp- uðu: »Niður með Campbell Banner- man.« Varð lögregluliðið að fara með þeim á lögreglustöðina. Samkvæmt ósk C. B. hefir samt ekki verið gerð nein rekistefna út af þessu. Annars ætla brezkar konur nú að snúa sér til Alexöndru Englandsdrottningar og biðja hana að styðja að því, að máli þeirra verði framgengt. * * * Eugen Richter, frægur þýzkur stjórn- málamaður, er dáinn. * * * Dáinn er og danski fiskfræðingur- inn Arthur Feddersen, er margir ís- lendingar munu kannast við. VOR. Unga vouö komið, komið! Klappar á dyr, vekur lifsins vonir allar — vakti þœr fyr. Blakar Ijóssins björtu vœngjurn — bjarmi’ er á kinn — hoppar kringum hreysin lágu, hleypum því inn! Öllum vill það gleði gefa gleðinnar barn. Klökkvar yndi unga vorsins allskonar hjarn. — Ferðu ei hafa fataskiffi, fóstra mín væn? Ferðu ekki að fara í sumar- fötin þín grœn? Manstu ekki að Ægi geðjast algrœnt og nýtt, þó að heiði himinbláminn haldi' upp á hvítt? Þó þú réttir himni höfuð hjúpað í mjöll, láttu geisla-gulltð hrynja' á glitklœðin öll. Fínt þð sé í serk þinn ofið silfurglit vœnt, fegra en í flúri rðsa flauelið grœnt. Blakti hœgt í hlýja blœnum hásumar-skrúð, sittu’ á mjúkum Ægis armi ungleg og prúð! — Ó. - *Mjölnir« kom hingað á mánudaginn og fór aftur til útlanda að kvöldi. Kvennaskóli Eyfirðinga. 1. Fyrir skömum tíma birtust í einu og sama blaði Norðra, 2 ritgerðir um kvenna- skólamálið. f ritgerðum þessum koma fram svo ólíkar skoðanir, að eg undrast mikil- lega yfir því, að ritstjórinn skyldi taka þær báðar, án þess að gera nokkura athuga- semd við aðra hvora þeirra. Karl Finnboga- son vill fyrir hvern mun láta kvennaskóla Eyfirðinga halda áfram og hann vill ekki einungis halda honum áfram, hann vill líka breyta honum og endurbæta frá því sem ver- ið hefir til þessa tíma. Ritgerð þessi hefir margar góðar bendingar að geyma og eg er sannfærður um, að undir hana geta skrif- að flestir þeir, er nokkura rækt hafa til kvennaskóla Eyfirðinga. Hvað ritgerð Guð- mundar Guðmundssonar, áhrærir, þá fer hún allmikið f aðra átt. Reyndar verður þó ekki annað séð en að höf. sé hlynntur kvennaskólanum, en kostnaðarins vegna þykir honum naumast gjörlegt að Eyfirð- ingar ráðist í að halda honum áfram, án nokkurrar vissu um styrk úr landssjóði og leggur hann því til, að Eyfirðingar og Hún- vetningar sameini sig um einn kvennaskóla; með því móti geta Eyfirðingar »skilist við þetta kvennaskólamál með fullri sæmd.« Þeim sem ekki eru kunnugir sögu kvenna- skólamálsins í • þessum 2 sýslum og ekki eru því kunnugir hvílíkt kapp Húnvetn- ingar hafa lagt á að koma upp hjá sér kvennaskóla og hvað fráleitt það muni vera hugsunarhætti þeirra að leggja skól- ann niður eða sameina har.n kvennaskóla í öðru héraði, þeir munu líta svo á, sem það geti alt eins verið meining hins heiðr- aða höf. að Blönduósskólinn sé lagður niður og hér bygður sameiginlegur kvenna- skóti fyrir Húnvetninga og Eyfirðinga. En Eyfirðingar vita það ofur vel og höf. einnig, að í því að leggja það til, að skólarnir séu sameinaðir, felst sú tillaga að kvennaskóli Eyfirðinga sé lagður niður og sameinaður kvennaskólaHúnvetninga. Og vegna hvers? Einmitt vegna þess að engar minstu líkur eru til að Húnvetningar gangi inn á það, í næstu framtíð, að leggja sinn skóla nið- ur, eða flytja hann í burtu; verður þeim og alls ekki með nokkurri sanngirni láð það, þó þeir ekki vilji afsala sér eða láta svifta sig þeirri einu mentastofnun, sem þeir hafa komið upp með súrum sveita og sem kallast má hold af þeirra holdi og blóð af þeirra blóði. En Eyfirðingar! hvað segja þeir? Þeir sem kunnugir eru því hvernig kvennaskóli Eyfirðinga er orðinn til, þeir sem muna eða vita þann áhuga, er þá lýsti sér í því að stofna skólann, þeir munu bezt geta því nærri hvernig öllum þeim mörgu, bæði körlum og konum, er mest og bezt börðust fyrir stofnun skól- ans, væri innanbrjósts, ef þeir nú væru á lífi og heyrðu raddir um að svifta Eyfirð- inga kvennaskólanum eða flytja hann í burtu, eftir það að hafa stutt hann drengi- lega, héraðinu til gagns og sóma í nær- felt 30 ár. En sem betur fór gein ekki sýslunefnd Eyfirðinga við flugu þeirri er vinur minn Guðm. Guðmundsson vildi koma í munn henni. Að dómi allra þeirra sem unna kvennaskóla Eyfirðinga og kvenna- mentuninni yfirleitt, skildist sýslunefnd Eyfirðinga, á síðasta fundi sínum, við mál þetta »með fullri sæmd«. Fyrst eg annars fór að minnast á kvenna- skólamálið, finst mér ekki eiga illa við að rifja upp fyrir mér og þeim sem uú eru komnir á efri árin hver voru hin fyrstu tildrög kvennaskólans, hvern byr málið hafði og hvenær hann fyrst tók til starfa. En til þess þó að skýra tildrögin sem bezt, verður að geta um fleira en það sem einungis snertir kvennaskólamálið. D. K. Hólamannafélagið. Síðla vetrar 1904, stofnuðu nemendur Hólaskóla félag, sem þeir nefndu Hóla- mannafélag. Félagsmenn geta þeir orðið, sem gengið hafa á Hólaskóla og aðrir bú- fræðingar á Norðurlandi. Árstillág er 2 kr. fyrir hvern félagsmann. Þessi félagsstofnun er runnin af þeim rótum, að nemendur skólans fundu til þess, að þeir hötðu skyldum að gegna í þjóð- félaginu, þegar þeir hafa lokið búnaðarnámi sínu. Skólaveran hefir þroskað hjá þeim þá skoðun, að þeim beri sérstök skylda, til að verða sem atlra nýtastir menn, bæði fyrir sjálfa sig og þjóðfélagið. Margir þeirra hverfa líka frá skólabekkjunum, heim til sveitanna sinna, með einlægum ásetningi og brennandi löngun, til að breyta ýmsu, og hrinda í lag, er þeir nú hafa fengið opið auga fyrir, að mætti á annan veg betur fara. Einnig hefir þeim orðið Ijóst að almenningur gerir til þeirra þær kröfur, að þeir borgi landinu með sýnilegum á- vexti, orða og verka, fé það, sem varið er til mentunar þeirra. En hvað er það þá, sem einkum hefir hindrað framkvæmdir þeirra í þessu efni? Fyrst og fremst sundurdreifing kraftanna. í öðru lagi það, að einangrunin hefir deyft áhugann og þarmeð dregið úr framkvæmd- kvæmdinni. Og í þriðja lagi krefst búskap- urinn, ef hann er skynsamlega rekinn, og búnaðarmálefnin yfir höfuð, víðtækari og meiri þekkingar, heldur en flestum mönn- um er hægt að afla sér á búnaðarskólun- um, svo undirbúningslitlir, sem nemendur eru oft og tíðum, þegar þeir koma þangað. Hólamannafélagið vill reyna að bæta úr þessu, jafnframt því, sem það vill rétta landbúnaðinum beinlínis hjálparhönd. Það vill glæða áhuga félaga sinna pg allra, sem það nær til á einhvern hátt, glæða þekk- inguna og efla atorkuna og kraftana. Starfsemi félagsins hefir verið fremur lítil hingað til; en nú hélt það aðalfund sinn á Hólum í Hjaltadal dagana 12—18 marz. Voru þar rúml. 40 félagsmenn auk nokk- urra utanfélagsmanna, er fengu leyfi, til að vera á fundinum. 15 fyrirlestrar voru haldnir. Á fundinum voru gerðar þessar ákvarð- anir: Samþyktur reikningur félagsins frá fyrra ári og samþ. fjárhagsáætlun fyrir næsta ár. Gerð var ákvörðun um að reyna að koma á fót undirbúningskenslu handa þeim mönnum, sem ganga vilja á Hólaskól- ann, á tveim stöðum; skyldi önnur vera fyrir Húnavatns- og Skagafjarðarsýslu, en hin fyrir Eyjafj.- og Þingeyjarsýslu. — Námskeiðið sé 4—6 vikur. Tilsögn fari fram í íslenzku, dönsku, landafræði og reikningi, og að nokkur atriði í sögu og náttúrufræði séu gerð að umræðuefni i fyrirlestrum. Allir voru sammála um, að námsskeið þessi mættu ekki styttri vera. En þetta var talið til bóta, einkum ef námsskeiðin væru haldin fyrri hluta vetr- ar, svo að nemendum væri í lófa lagið að bæta við sig seinni hluta vetrarins. Samþykt var að veita 60 kr. verðlaun fyrir beztu ritgerð um túnrækt, eftir félags- mann, enda væri hún ekki stærri en á tvær arkir. Skyldi hún vera komin til félags- stjórnar fyrir 25. des. þ. á.; verður hún eign félagsins eftir að verðlaunin eru veitt. Félagsmönnum var falið á hendur að kynna sér eiginleika búfjár, hver í sinni sveit, og senda skýrslur sínar um þá rannsókn félagsstjórninni. Á þann hátt ætlar hún sér að fá yfirlit yfir kynstofn- ana og er ætlast til, að á þann hátt fáist grundvöllur, sem væntanlegar kynbætur gætu orðið bygðar á síðar. Samið var á fundinum um form, og því útbýtt meðal félagsmanna, sem þeir skyldu hafa fyrir skýrslur sínar, en í þær eiga þeir að færa störf sín og framkvæmdir málefn- anna. — Félagið ætlar að veita viðurkenn- ingu með verðlaunum, þeim mönnum sem fram úr skara, þegar reynsla er fengin fyrir framkvæmdum þeirra og dug. Fundurinn beindi þeirri ósk til félags- manna sinna, að þeir legðu eindregna á- herslu á, að kynna sér verzlunarmálefni landsins, einkum kaupfélagsskap, í því horfi, sem hann er í meðal Dana, þar sem sameignarkaupskapurinn er með því mark- miði að fækka milliliðum og efla vöruvöndun og afnema skuldaverzlunina. Yfirleitt var fundurinn fjörugur ogskemti- legur og lýsti hann áhuga og framfaravonum ungu mannanna á Hólum. Fundarmaður. . \ Önnur bændagjlíma var háð hér í leikhúsinu s. 1. sunnudags- kvöld. uUngmennafélag Akureyrar" og „Val- urinn" gengust þar að, 16 menn hvoru megin. Aðgangurinn var seldur 75 au. og var húsið troðfult af áhorfendum. Glímu- bóndi Ungmennafélagsins var Ólafur Davíðs- son, en Guðlaugur Pálsson fyrir hinum. Norðurland 26. bl., flutti frásögn um fyrri bændaglímuna og þarf ekki að taka það upp, sem þar var sagt um flokkana, því að enn þá gilda þau ummæli, sem þá voru sögð, um búning, kurteisi o. fl. Þessir glímdu bezt í Ungmennafélaginu: Þórhallur Bjarnason prentari, Páll Gutt- ormsson skólapiltur frá Geitagerði og Þór- hallur Gunnlaugsson verzlunarmaður. Hann hefi eg séð fimastan mann að koma fyrir sig fóturn og höndum, þegar honum var brugðið til falls, og féll hann þó að lokum til fulls fyrir Karli Mývetningi. Þessir Valir glítndu bezt: .Sigurður Bald- vinsson frá Stakkahlíð í Loðmundarfirði, Guðlaugur „bóndi" og Karl Sigurjónsson Mývetningur. Hann glímir fegurst allra þessara manna og var mikil nautn að horfa á hann á glímuvellinum. Hreifingar hans allar og brögð voru svo hnitmiðuð eins og hann hefði mannsvit í fótunum. — Fleiri glímdu vel, en þessir sem nafngreindir eru og er ekki rúin til að fjölyrða um þá. Áður en heitið gæti, að til stáls syrfi með flokkunum, vildi það óhapp til, að þrír beztu glímumenn Valsins meiddust fyrir einum og sama manni Ungmennafé- lagsins og liggja þeir nú, tveir a. m. k. í sárum. En áður en þau slis urðu, horfði betur fyrir Völunum en hinum, enda glímdu Valirnir betur yfirleitt. Félög þessi eiga þökk og heiður skilið fyrir að hafa sýnt þessa þjóðlegu íþrótt vora á leiksviði, og ef vel yrði á haldið. þá gæti þessi list orðið landinu til frægðar. Hugsum oss að úrvalsmenn þjóðarinn í þessu efni færu utan og sýndu í leikhúsunt listfengar glímnr. Það mundi vekja mikla athygli. Fyrst er þó að auglýsa sig innan- lands og það ættu glímumenn vorir að gera. Þingeyingar ættu að hugsa um þetta, þvi að þar munu vera beztir glímumenn í landinu. Ef þeir vildu koma hingað, æfðir saman og undirbúnir, og glíma hér á leik- sviðinu, þá mundi ekki skorta aðsókn og athygli. Þegar fengin væri góð reynsla fyrir góðum glímum innanlands, væri á hitt að líta, að fara utan til aukinnar frægðar.

x

Norðurland

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Norðurland
https://timarit.is/publication/203

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.