Norðurland

Ataaseq assigiiaat ilaat

Norðurland - 03.11.1906, Qupperneq 3

Norðurland - 03.11.1906, Qupperneq 3
37 NI. Nýr eldsvoði. 1 nótt komst alt í fum og fát felmtur barst að eyra; fjárhúskofa eldurinn át og œtlaði að gleypa meira. Menn ei furða mundi á þvi meir þótt hefði étið, fjórtán daga föstu i fanturinn hafði setið. Reyna œtti ráðið það, rétt hans þarfir meta, en ekkí láta hann óskamtað upp frá þessu éta. Akureyri 1. nðv. 1906. j X Biörn Jónsson, ritstjóri ísafoldar varð sextugur 8. þ. m. Þann dag sendu nokkrir bændur í Árness- og Rangárvallasýslu honum dýrindis litmynd eftir Ásgrím Jónsson málara. Er myndin af Heklu og fjöll- unum þar í kring en f násýn nokkur hluti af Eystrahrepp í Árnessýslu. Myndin er 2 álnir á lengd og x alin á hæð innan umgjörðar, en á henni er silfurskjöldur og á hann letrað: BJÖRN JÓNSSON. Með þakklœti Jyrir alúðarstarf í þarfir þióðarinnar. Frá nokkurum bœndum. Kvæði var honum og flutt og er það prentað f Fjallkonunni io. þ. m. Qröndals-afmæliO. Sama daginn sem G. varð áttræð- ur, gaf Sigurður Kristjánsson bók- sali út minningarrit um skáldið. Höf- undar þess eru: Sig. Kristjánsson (kveðja í ljóðum), Jón Jónsson sagn- fræðingur, Guðm. Finnbogason, Finnur Jónsson, Helgi Jónsson og Þorsteinn Erlingsson. 5 myndir af Gröndal eru í bókinni. Qairnfræðaskólarnir. í skólanum hér á Akureyri ern 6i nemandi og tveir að auki, sem að eins njóta kenslu í einstökum námsgreinum. Kennarar eru, auk hinna föstu kenn- ara, sra Jónas Jónasson, Stefán Björns- son kennari í dráttlist og handavinnu, Magnús Einarsson kennari f söng og Lárus Rist kennari í leikfimi. — Heima- vist hafa 36. Af þeim hafa 30 sam- eiginlegt mötuneyti. Nemendur Flensborgarskólans eru 76; af þeim eru 13 í kennaradeild. Skólinn hefir fengið nýtt hús 30x15 álnir. Hefir það verið smíðað í Noregi. Nýia -farlO. Lftið er talað um tfðarfarið, því það er frábærlega gott og heldur ekki um heilsufarið, því það er að kalla við- unandi. Helzt tala menn því um nýja -farið eða símafarið, því það er ein- lægt f ólægi. Varla kemur svo fyrir nokkur dagur að síminn ekki slitni og suma dag- ana eru mjög mikil brögð að því. Þó hafa báðir þræðirnir sjaldan verið slitnir í einu, en fyrir hefir það komið samt. Haldi þessu áfram verður auðsjáan- lega afarmikill kostnaðarauki að því, að þurfa í sífellu að senda út menn til þess að bæta símann og hefði víst verið ráðlegra að kaupa heldur vand- aðri þráð, þó það vitanlega hefði orðið til þess að kostnaðurinn hefði farið enn þá meira fram úr áætlun stjórn- arinnar og meirihluta ritsímanefndar- innar. Einn bruninn enn. Aðfaranótt 1. þ. m., brann fjárhús- kofi á Eyrarlandi, hér f landareign kaupstaðarins; voru þar inni 8 kindur, sem allar brunnu inni. Eldurinn læsti sig í hey, (nál. 5® hesta) sem stóð áfast við kofann og ónýttist nálega helmingur þess. Helmsókn konunsrs. Von er á honum að sögn til Reykja- víkur um lok júlímánaðar næsta sumar. Lióta lýsinsru Flytur Fjallkonan 10 þ. m. eftir dönsku blaði á meðferð á íslenzkum hestum, sem komið var með til Ála- borgar þá fyrir skömmu á norska skipinu »Echo«. Á leiðinni hafði 31 hestur skolast útbyrðis. Og hinir sem komu lifandi voru hræðilega útleiknir, sumir fótbrotnir, aðrir særðir illum sárum á höfði og fótum og víðar, skinnið flegið af fótleggjum sumra svo að skein í beinin o. s. frv. Fáeinir voru drepnir þegar þeir komu á land. Þlnarmannaförln kostaði ríkissjóð Dana 85,000 kr. Tvð skip ný hefir Sameinaða gufuskipafélagið í smíðum, til íslandsferðanna, bæði með kæliklefum. Ódýrt rafmagrnsliós. »Lögrétta« segir frá tilraunum er gerðar hafi verið í 'Kaupmannahöfn með nýjan rafmagnslampa og hafi það á- unnist, að nú megi framleiða rafmagns- ljós 2/3 ódýrara en áður. Er sagt að sparnaðurinn sé í því fólginn að tekist hafi að gera lýsiþráðinn í lömpunum úr því efni, er að eins þarf '/3 straums á móts við þann er áður þurfti til þess að gera þráðinn glóandi. Lampinn er væntanlegur á markaðinn um miðjan vetur og á rafmagnsljósið þá að verða ódýrasta ljósið er menn þekkja. Skyldi þá ekki verða hugsandi til þess fyrir Akureyringa að fara að raf- Iýsa? Elfs Jónsson verzlunarmaður á Vopnafirði verður verzl- unarstjóri þar fyrir Zöllners verzlun í stað Sig. Johansens, sem verður umboðsmaður Z. í Kaupmannahöfn. Ásarelr Blöndal héraðslæknir, sem dvelur á heilsuhælinu í Silkiborg, er sagður á góðum batavegi. fslenzkar glímur í Höfn. Komið hefir til orða að flokkur glímu- manna úr Ungmennafélaginu hér sýni í vetur glímur f Circus í Höfn. Skipaferölr. >Gambetta< eimskip til Edinborgarverzl- unar kom 28. f. m. Flutti vörur til verzl- unarinnar og tekur aftur fisk. >Ceres< kom og 28. þ. m.; með henni voru meðal annara farþega Jón Sigurðs- son frá Hellulandi í Skagafirði á leið til útlanda til þess að kynna sér nýjustu getð mótorbáta einkum á Þýzkalandí og Brynjólfur Bjarnarson í Þverárdal. — Skip- ið fór aftur 29. þ. m. Til Vopnafjarðar fór með því héraðslæknir Ingólfur Gísla- son, með frú sinni og börnum, til þess að taka þar við læknisembættinu. Til Askov- háskóla fóru þeir Jónas Jónsson í Hriflu og Konráð Erlendsson frá Þóroddsstað °g Björn Jónasson frá Narfastöðum til þess að kynna sér verzlunarstörf ytra. »Vesta* kom 29. f. m. Með henni var Jón Jónsson héraðslæknir frá Vopnafirði á leið til embættis síns á Blönduós. Enn- fremur Baldur Sveinsson verzlunarmaður frá Húsavík til Reykjavíkur. Ari Jochums- son á Húsavík, Sigurjón Jóhannesson frá Laxamýri, Sigtryggur Jóhannesson kaup- maður, Halldór Friðjónsson o. fl. Héðan tók sér far til útlanda verzlunar- maður Ólafur Davíðsson. >Prospero< kom aðfaranótt 1. þ. m. Með skipinu var hingað Hálfdán Jakobsson á Héðinshöfða Missögn er það sem stóð í Nl. fyrir nokk- uru, að skarlatssótt væri á Hallgilsstöðum í Möðruvallasókn. Átti að vera Þrastarhóli í sömu sveit. X Veöurathusanir Möðruvöllum í Hörgárdal. Eftir Sigtr. Þorsteinsson. 1906. Sept. Okt. Um miðjan dag (kl. 2). Minstur h.j (C) á sólar-] hringnum.j Loftvog (þuml.) Hiti (C.)| «*< 1 £ « > & n B 'Þ C/) cð i 0 L O Fd. 26. 72.8 3.2 vsv 2 10 R -2.7 Ld. 27. 73.8 2.4 0 10 —4.5 Sd. 28. 73.2 2.6 0 10 —4.s Md 29. 74.i 3.0 NAU 1 8 —5.1 Þd. 30. 75.9 5.0 NAU 1 10 —5.o Md.31. 75.4 2.6 0 10 —3.0 Fd. 1. 73.3 3.3 0 7 —1*2 JCnsmæðurnar á Akureyri ættu að reyna hin ágætu T APIOCAQR JÓN þau fást á 25 aura pundið, í verzl. Edinborg. Verzlun okkar hefir talsíma nr. 39. Ágætar, aftanhlaðnar rúpnabyssur hvergi ódýrari. Verzlun okkar hefir talsíma nr. 39 3 u V V Q a CA 4 g 4 e -2/ 5 CO |J-I U 5 a O =3 d. '=3 hc Verzlun undirritaðra hefur nú með síðustu skip- um s/s Vestu og s/s Prosperó fengið talsverða viðbót af vörum s. s. Grænsápu, Handsápu og Þvottasápu af' mörgum tegundum, þvottaduft sem húsmæður eru beðnar að muna eftir og reyna. Mikið úrval af ilmvötnum.— Yfirfrakkar og vetrar- treyjur karlmanna, margar tegundir og stærðir af karlmannapeysum, barnakjóla, rúmteppi 0. m. fl. Chocolade og Cacao af mörgum tegundum. Allar vörur seljast með afar lágu verði. — Hvergi fæst betra Margarine eða ódýrara eftir gæðum. Komið og skoðið nýja leirtauið —= Álnavara =— og fleira er selt með niðursettu verði. Lítið á vörurnar og verðið. Sf. Sigurðsson & 6. Sunnarsson. g D5 & ZLl 3 “ co 3 3 1 p> o> s. • Verzlun okkar hefir talsíma nr. 39. Með næstu skipum er von á miklum vörubirgðum til viðbótar Verzlun okkar hefir talsíma nr. 39. Góð feiknibesfiK selur Sigtr. Jónsson. Teiknikensla. Frá 15. nóv. n. k. geta menn fengið tilsögn i fríhendisteikning. Nánari upplýsingu gefur undirrit- aður í húsi Jóns aiþm. Jónssonar frá kl. 4—5 e. m. daglega. Akureyri 26. okt. 1906. Sf. Björnsson teiknikennari. í 9 ‘ Haganesvík í Fljótum geta I fengist keypt verzlunarhús ásamt verzlunargögnum. — ▼ A Semja má við ▼ i E. B. Guðmundsson. ▼ •◄◄◄◄◄◄◄◄◄◄◄◄◄◄◄◄◄◄◄◄◄◄◄◄• Standard er ódýrasta og frjáls- lyndasta lífsábyrgðarfélag sem starfar hér á landi, þá á alt er litið. Það tekur allskonar tryggingar, almenna lífsábyrgð, ellistyrk, fjárá- byrgð, barnatryggingar o. fl. Aðalumboðsmaður H. Einársson á Akureyri. Sigtryggur Jónsson selur meðal annars: Eldiviðarbrenni á kr. 35.00 faðminn. — Gott smíða- brenni í IV2 al. lengdum. — Girð- ingarstólpa og annan trjávið með góðu verði. Nýjar bœKur íbókaverzlun Frb- Steinssonar. Ljóðmæli Matthíasar 5. bindi . . . 3.00 Jón Jónsson: Gullöld íslands . . . 4.00 Topelius: Herlæknirinn III...........3.00 Alfred Dreifus II....................2.50 Freytag: Ingvi konungur..............2.50 E. Benediktsson: Hafblik, kvæði . . 2.50 WiIIiam James: Ódauðleiki mannsins 1.25 V. Briem: Barnafræði í ljóðum. . . 0.50 Minningarrit, Gröndal áttræður . . 1.00 A. Utne: Heilsufræði.................1.25 Gröndal: Smásögur....................1.00 Svb. Egilsson: Sjómenska .... 0.60 Sigurður Jónsson: Reikningsbólc . . 0.60 Tækifæri og tíningur.................1.50 Fanney...............................0.60 100 tímar í ensku og þýzku. Ymisleg fleiri smárit Hljóðfæri: Giutarar og Violin. Afvinna. Maður, vanur skriftum óskar eftir atvinnu við það starf á Akureyri frá miðjum jan. til 15. marz n. k. Þeir sem vilja sinna þessu, gefi sig sem fyrst fram við ritstjóra þessa blaðs.

x

Norðurland

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Norðurland
https://timarit.is/publication/203

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.