Norðurland

Issue

Norðurland - 24.11.1906, Page 2

Norðurland - 24.11.1906, Page 2
Nl. 50 úr saltinu er mjög syo áríðandi að þvo hann úr hreinum sjó og skifta *m sjó í ílátunum undir eins og ó- hreint fer að verða í þeim. Það þarf naumast að taka það fram, að eitt aðalatriðið við fiskiverkunina er að þvo fiskinn vel úr saltinu, eins og í það; jafnt roðið sem fiskinn og undir öllum uggum. Ef að beingarður eða blóð hefir orðið eftir, þegar fiskurinn var flattur, skal skera það úr um leið og fiskurinn er þveginn. 8. Fisk þann, sem menn eiga í salti að haustinu og ætla sér að geyma til vors, er nauðsynlegt að þvo út að haustinu vel og vandlega, og umsalta hann svo úr hreinu og góðu salti. Með því móti geymist fiskurinn betur og er lítil fyrirhöfn að þvo hann aftur að vorinu til verkunar. 9. Þegar búið er að þvo fiskinn er bezt að hann standi í stafla einn dag áður en hann er breiddur. Þegar fiskur- inn er fyrst breiddur (blautur) er vara- samt að snúa honum ef heitt er. Þegar hann er tekinn saman undan fyrstu breiðslu skal setja hann í stakk, en ekki láta hann f smáhrúgur. Áríð- andi er að pressa fiskinn vel, og pressa hann strax eftir aðra breiðslu, en þrá- breiða hann ekki; bezt er að hafa stakkana stóra, helzt ekki minni en 15—20 skippund, en gæta verður þess að leggja þann fisk neðst í stakkinn, sem efstur var við síðustu breiðslu, og mjög áríðandi er að hafa vatnsheld segl utan um stakkana. Jafnvel þó að erfitt sé að gefa reglur um fiskverkun í fám orðum, vona eg að mér hafi tekist að gefa mönnum nokkurnveginn ljósa hugmynd um hana með þessum línum, og vona að menn taki orð mín til athugunar; það verð- ur þeim sjálfum til hagsmuna. p. t. Akureyri 2I/n 1906. Guðmundur Porbjörnsson. X Ójöfnuður. 11. En ójöfnuður í viðskiftum og rétt- ur þess sterkara finst einnig fyrir vorum eigin dyrum. Það er bæði til lögfestur ójöfnuður, félagskendur ójöfn- uður, vanans ójöfnuður og ójöfnuður milli einstakra manna; heitir sá síðast- nefndi, þegar hann kemur fram 1' orði og verki, eigingirni, ásælni, ofstopi, hlutdrægni o. fl. Skal honum slept hér. Hinum lögfasta ójafriaði verður hér líka að sleppa, enda snertir hann þegnréttindi þjóðar og stétta, sem er allsherjar málefni, t. d. kvenfrelsið. En flestir skilja hvað með því orði er meint, að það er jafnrétti kvenna móti körlum, sem nú er að vísu kom- ið á dagskrá, en er fjarri fullum sigri. En í félagsviðskiftum ríkir og ræður sá ójöfnuður, sem oss stendur næst og hér skal helzt bent á. Leiðir sá ó- jöfnuður bæði af vana og gerræði, en brýtur bæði reglur skynsemi og rétt- lætis. Fæstir eru þeir, sem gjalda konum jöfn verkalaun og körlum, þótt jafnmiklu aíkasti samtímis og stund- um kemur hinn sami ójöfnuður fram við vistráðið kvenfólk; er oftlega minni munur gerður milli duglegra og ódug- legra kvenhjúa, en karla. Hvað veldur því? Vani og rangsleitni. Sé konu trúað fyrir sýslan eða starfa, sem karlmönnum er annað hvort síður hent að annast, eða þeim þykir auvirðilegt að vinna, er venjulega borgað minna fyrir það starf og stundum miklu minna, en gildir karlmenn gerðu sig ánægða með. Reglan er oftlega öfug við hið rétta; erfiðustu verkin, eink- um þau sem auvirðileg þykja, svo karlmenn neita að gera þau, eru lak- ast borguð og látin falla í skaut kven- þjóðinni. Þar á ofan eru þau sett til undirboðs, alveg eins og á sama stand- hvernig verkið sé unnið, vinnist ein- hver nauðleitarkona til að þiggja það fyrir lægsta kaup. En þetta er því rangari og heimskulegri aðferð sem meira ríður á að störfin séu unnin með dugnaði og trúmensku, t. d. hjúkrunarstörf, hirðing húsa og her- bergja fyrir börn og sjúka, svo og öll þjónustubrögð. Og þetta kemur þeim sem þetta ritar, til að benda á hin lélegu laun, sem umsjónar- og þjónustufólk spítalans hér hefir hingað til orðið að sætta sig við. Spítali vor hér er svo vel sóttur og í sjálfu sér þýðingarmikill, að slíkt má með engu móti valda umtali og óánægju, þó að um starfið sé sótt af körlum og kon- um, sem þörfin þrýstir til að leita sér að framfæri. Allir heilvita menn sjá þó að þar má ekki spyrja fyrst og fremst um hvað þjónustan kosti, held- ur fyrst og fremst um hverir verkið takist á hendur. — Líf og líðan manna er þar í veði. Konu sem ætlað er að ræsta einn skólann hér í bænum og halda þrem stofum hollum og hlýjum fær fyrir það, að sögn, einar 40 kr. allan skólatímann, og annan skóla með fjölda herbergja annast um, þvær og hitar ung ekkja með tveimur börnum. Það starf er bæði óholt og erfitt, og þótt hún fái lélega íbúð ókeypis í kjall- ara hússins og 10 kr. mánaðarlega meðan húsið er notað, finnst oss það lítið kaup og mætti vel vera töluvert ríflegra. Þegar ungar konur með börn- um missa skyndilega menn sína í sjó- inn, kemst og margur við og er því fús til að líkna þeim eftir mætti. En sú líkn og hjálpsemi gleymist heldur á stundum þegar frá líður. Efnilegar skipstjóraekkjur hefi eg horft á liggja daglega flatar við gólfþvott fyrir svip- lík mánaðarlaun og eg áðan nefndi. Mundi mönnum þeirra þykja þær grátt leiknar, ef þeir sviplega »risu upp af bárum« og sæi ekkjur sínar og mæð- ur barna sinna, við þann þvott og þau kjör. Að bæta kjör ekkna — sérstaklega druknaðra manna, verður enn lengi torvelt verk, úr því allar tilraunir til að efla ekknasjóðinn hér bera svo sár- iítinn ávöxt. Það mál, sem þó var allrösklega hafið máls á þegar Kle- mens Jónsson var hér sýslumaður, sýn- ist síðan liggja í salti. Einasta leiðin til verulegrar hjálpar er og verður lífrentueignir kvongaðra manna. Ætti sem fyrst að ákveða með lögum, að enginn megi skipi ráða sá er hefir ekki keypt sér og sínum við- unandi iífstrygging að sér látnum. Um margan annan ójöfnuð mætti tala, en það bíður næsta tækifæris. M.f. Ut af þessari grein hins mikilsvirta höfundar viljum vér leyfa oss að benda á, að það hlýtur ætíð að vera nokkurt álitamál, hver starfi sé vel borgaður og hver illa. Eins og nú háttar í heiminum skapar vinnuþörfin verðlag vinnunnar. Kaupið er miðað við það, hvað hægt er að fá verkið unnið fyrir Svo að sæmilega sé af hendi leyst. Þegar um störf í þarfir þjóðfélagsins er að ræða, eða önnur störf til al- mennings heilla, geta verið nokkurir annmarkar á að borga vinnuna hærra verði, en hægt er að íá hana unna fyrir, svo vel sé. Þau störf, sem bet- ur eru launuð en því svari, verða alt of oft að bitlingum í höndum vald- hafanna handa vinum þeirra og vensla- liði. Fyrir þessu er svo mikil reynsla í heiminum, að óþarfi er að færa til dæmi upp á það. Með þessu er þó alls ekki sagt, að ýms störf í þarfir almennings séu ekki í raun og veru of lágt Iaunuð, og of þröngur kostur einstaklinganna verður þjóðfélaginu ætíð til óhamingju, en það hefir að þessu sýnt sig, að það er mjög hæpið að vinnuveit- andinn einn ákveði kaupið svo rétt sé, og hætt við, að svo verði og framvegis. Eina ráðið við því er félagsskapur þeirra er vinnuna leggja til, hvort heldur eru karlar eða konur. Ritstj. X Hraðskeyti til Norðurlands. Reykjavik 23. nóv. Frá Danmörku. Simskeyti i dag frá Kaupmanna- höfn segir að Scavenius hafi á full- trúafundi hœgrimanna verið andvigur stöðulagabreytingu (sic), en Birck með henni. Sá kvittur hefir borist út frá kaup- höllinni i Höfn, að miljónafélag nokk- urt hafi keypt verzlanir Örum & Wulffs, Gránufélagsins og fl. verzlanir á ís- landi. Stúdentar hefja einokunarmótmœli á morgun. Innlendar fréttir. Jóhanna Oddgeirsdöttir kona Nlagn- úsar Jónssonar sýslumanns í Vest- mannaeyjum, er nýdáin (úr lungna- bölgu). X JWeðferð á póstflutningi. Jafnmikill skrælingjabragur og hér tíðkast við meðférð á póstflutningi er líklega ekki víða kunnar í heiminum. — Þegar sunnanpóstur kom í fyrradag, sáum vér blaðasendingar þær, er tekn- ar voru upp úr einu kofforti. Fátt af blaðabögglunum var óskemt, sumir strangarnir voru alveg stálfrosnir, aðriri meira og minna blautir. Sumir böggl- arnir voru hálftánir upp af bleytu og núningi, eins og hvolpar hefðu nagað þá, á sumum var alveg ómögulegt að lesa nokkurt mannsnafn, svo var papp- írinn núinn og blautar umbúðirnar duttu utan af þeim. Blöðin í þessu kofforti voru að sögn engin undan- tekning, meira og minna skemt í þeim flestum eða öllum. En það lakast er að þetta er eng- in undantekning. Blöðin stórskemmast í koffortunum á hverjum vetri, án þess póststjórnin sýnist skeyta því að gera við þessu. Blaðaútgefendur borga þó á vetrum hátt gjald fyrir flutninginn, en þessari meðferð mega þeir sæta ár eftir ár. Póststjórnin verður að sjá um að koffortin séu vatnsheld. Hjá því verð- ur ekki komist að gera þá kröfu, og henni verður að fullnægja. Það er líka sannast að segja ekki mikill gróða- vegur fyrir landssjóðinn að flytja svo og svo mikið af vatni og klaka í kof- fortunum. Þegar póstunum er borgað eftir þyngdinni á flutningnum, hækkar kostnaðurinn að því skapi sem meira er flutt í þeim af vatninu. X Skarlatssóttin. Síðan vér gátum um hana hér í blaðinu 15. þ. m. hefir hún útbreiðst til muna hér í bænum. Nýju tilfellin voru um miðjan dag í gær ekki færri en 17, en auk þess 11 hálsbólgutil- felli án nokkurs útþots og má víst fullyrða að eitthvað af þeim sé skar- latssótt. Sem stendur er vissa fyrir sýkinni í 11 húsum, að sóttvarnar- húsinu meðtölu, en þar eru nú 8 sjúkl- ingar. Uppslög hafa verið fest á útidyr manna, þar sem sýkin er, að tilhlut- un landsstjórnarinnar og mönnum bann- að að koma þar inn. Gagnfræðaskólanum, kvennaskólan- um og baknaskólanum hefir öllum ver- ið lokað til bráðabyrgða. Ekki eru neinar horfur á því enn, að veikin sé að stöðvast hér í bæn- um, miklu fremur því gagnstæða. Og verst er *hve afarörðugt er að halda uppi sóttvörnum. Börn og fullorðnir fá hálsbólgu, liggja 1 eða 2 daga og ef til vill alls ekki og eftir nokkurn tíma kemur upp að veikin hefir þó verið skarlatssótt. Það eru þessi vægu tilfelli, sem gera það svo atarörðugt að stöðva sýkina. Úr læknishéraðinu hefir ekkert nýtt tilfelli verið tilkynt í þessum mánuði; aftur er vissa fyrir veikinni í Svarf- aðardal á einum bæ og grunur um fleiri. X Tíminn er peningar. Herra ritstjóri! Viljið þér gera svo vel og lofa Norðurlandi að flytja þessi fáu orð. / litlum bœ eins og Akureyri, eru flestir þeir, sem nokkuð geta og vilja vinna fyrir bæinn sinn, meira og minna önnum kafnir við margvísleg opinber störf, auk skyldustarfa sinna og at- vinnu. — Þetta ættu allir að hafa hugfast. — En því er ekki að heilsa. Ekkert er tíðara, en að menn sem lítið erindi eiga, standi og sitji hjá mönn- um þegar þeir hafa lokið erindum sín- um og eyði alveg að ástæðulausu hin- um dýrmæta tíma fyrir þeim og sjálf- um sér. Þetta ætti ekki að eiga sér stað. Menn sem vinna fyrir bæinn borg- unarlaust, eiga heimtingu á því að vinnutími þeirra sé ekki skertur að ó- þörfu og engum til gagns. Menn ættu að venja sig á að ljúka fljótt erindum sínum og fara að því búnu, svo framar- lega að húsráðandi hvetji þá ekki til dvalar, því »tíminn er peningar.< Timasár bœjarbúi. Útflutninesskýrslur. Mjög er það meinlegt, svo ekki sé harðara að kveðið, hve allar skýrslur um útflutning fólks héðan af landi eru ó- fulikomnar, nálega fullkomið skýrslu- leysi og sýnist bráð nauðsyn til að úr því sé bætt. Útflutningurinn hefir þó sannarlega verið svo þýðingarmikill fyrir landið, að engin mynd er á því að vita ekki nákvæmlega um hann. Framvegis ætti að bæta úr þessu. Engum þeim manni, er starfar að útflutningi, ætti að vera heimilt, hér eftir, að flytja nokk- urn mann út, nema hann gfefl land- stjórninni nákvæmar skýrslur um út- flutninginn, eftir reglum, sem land- stjórnin setti, að viðlögðum háum sekt- um, ef út af er brugðið. Bœkur sendar NorOurlandi. JÓNAS JÖNASSON. Reikningsbók. Ak. Bókaverzlun Odds Björnssonar 1906. GUNNAR GUNNARSSON: Vorljóð. Ak. Prenlsm. O. B. 1906. SAMI: Móðurminning Nokkur kvæði. Ak. Prentsm. O. B. 1906. ZACHARÍAS TOPELIUS: Sögur her- Iceknisins III. bd. Frá dögum Karls XII. Matth. Jochumsson þýddi. Kostnaðarm. Sigurður Jónsson o. fl. ísafj. Prentsm. Vestra 1906. JÓN TRAUSTI: Halla. Söguþáttur úr sveitalífinu. Arnbj. Sveinbjarnars. og Þor- steinn Gíslason gáfu út 1906.

x

Norðurland

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Norðurland
https://timarit.is/publication/203

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.