Norðurland

Tölublað

Norðurland - 09.03.1907, Blaðsíða 4

Norðurland - 09.03.1907, Blaðsíða 4
Nl. 11 2 Ungrmennafélasr stofnuðu þeir Jóhannes Jósefsson og Erlingur Friðjónsson fyrra sunnudag á Árskógsströnd hér í sýslu, með 20 fé- lögum. Félagið heitir Reynir. Réttlndi kvenna. Stjórn hins íslenzka kvenfélags í Reykjavík hefir sent út áskorun til ýmsra kvenna hér á landi, með ósk um að þær útvegi undirskriftir kvenna undir hana. Áskorun þessi hljóðar svo: »Vér undirritaðar konur í. . . hreppi í . . . sýslu ieyfum oss hér með virð- ingarfylst að skora á hið háttvirta alþingi íslendinga að hlutast til um, að konum, jafnt giftum sem ógiftum, verði veittur kosningarréttur og kjör- gengi til alþingis, ef þær fullnægja sömu skilyrðum, sem sett eru, að því er karlmenn snertir. Ennfremur leyfum fér oss að skora á þingið, að sjá um að kvenmenn njóti sama styrks sem karlmenn á mentastofnunum lands- ins, hafi sama rétt til embætta og opinberra sýslana og njóti að öðru leyti fylsta jafnréttis við karlmenn.« Mjög fróðlegt verður að heyra hverj- ar undirtektir áskorun þessi fær hjá kvenþjóðinni. Thorvaldsensfélagiö. Vér leyfum oss að benda lesendum blaðsins á auglýsingu frá félaginu hér í blaðinu. Félagið hefir haft mesta nytsemdarstarf með höndum, er það hefir leitast við að efla heimilisiðnað- inn, með því að útvega markað fyrir hann. Það starf hefir áreiðanlega bless- ast einkarvel og orðið félaginu til sæmdar. Vér höfum áður drepið á það hér í blaðinu, hve æskilegt væri að konur hér norðanlands — og þá einkum konur þessa bæjar — sæju sér fært að halda uppi hér á Akureyri líkri útsölu. Enn þá mun ekki vera útgert um það mál, en færi svo fyrst um sinn, að ekki yrði af útsölu á íslenzkum iðnaði hér, sýndist æskilegt að gengist væri fyrir þvf að koma góðum munum héðan að norðan á útsölu Thorvaldsensfélagsins. % Ræktunárfélagið. I danska tímaritinu »Atlanten« hef- ir landbúnaðarkandidat L. Frederiksen, sem ferðaðist hér um land 1905, skrif- aði mjög hlýlega grein um Ræktunar- félagið. Skýrir hann greinilega frá stofnun þess og starfsemi og lýkur miklu lofsorði á framkvæmdir þess. Kemst hann svo að orði: »Félagið hefir verið svo bráðþroska og starfs- svið þess er þegar orðið svo umfangs- mikið, að þeir af stofnendum þess, sem stórhugaðastir voru, munu tæplega hafa gert sér vonir um, að það yrði eins stórstígt og raun er á orðin. Hin stutta saga félagsins líkist fremur æfin- týri en sannri sögu«. Lýkur hann grein sinni með þeirri ósk, að framtíð fé- lagsins verði eins glæsileg og hin stutta fortíð þess. Það er á valdi Norðlendingar hvort það verður eða ekki. Félagsstofnun þessi er þegar orðin þeim til stórsóma, bæði inn- anlands og utan og verður þeim þá fyrst til varanlegs sóma og ómetan- legs gagns, ef framhaldið verður líkt byrjuninni. — Vér munum síðar minn- ast á félagið og framtíðarhorfur þess, sem nú mega teljast hinar vænlegustu. * Ur ýmsum áttum. ætlar konsúll Thorbjörn Botnvörpufisk yaage j stavanger að flytja héðan frá landi f vor. Hefir hann gert sanming við öll niðursuðufélög þar í bæn- um og lofað þeim 2000 smálestum af fiski á tímabilinu frá 2. apríl til maíloka. Þann tíma eiga 5 gufuskip að ganga héðan til Stavanger á hverri viku. [„Verdens Oang"] eða húsviltrahæli standa enn í 300 Alasundi, lík þeim sem hing- að voru gefin. Bærinn er nú að mestu risinn úr rústum, eftir brunann mikla og er að miklu leyti af steini ger. Þó eru timburhús allmörg. Virðingarverð húseigna hefir aukist stórkostlega. Norska blaðið Morgendæm- Ný leikrit oe .. kvœði efiir nngen Seg'r Þ SOgU’ efllr Henrik Ibsen danska blaðinu Nationaltid- ende, að kona ein í Álaborg á Jótlandi, sem gædd sé miðilsgáfum, hafi nýlega rltað upp ósjálfrátt tvö ný leikrit og auk þess mjög mikið í bundnu máli. En sá sem á að hafa samið alt þetta er skáldið Henrik Ibsen og á hann að hafa gert það alt eftir að hann andaðist. Eitt af kvæðun- um er að sögn keimlíkt kvæðinu Þorgeir í Vík, sem menn kannast við af þýðingu síra Matthíasar Jochumssonar. Það er tekið frain um konu þessa að hún sé kona verkamanns eins, hafi ekki fengið meiri mentun en aðrar stallsystur hennar og aldrei fyr sett saman nokkura bögu, hvað þá fengist við að semja leikrit. ^ ^ ^ ý> ^> ý> ^^> ý> Gvistur alls konar í Gudm. Efterfl. verzluti. Mustads Export Margarine, í eins punds stykkjum, w er á við gott smjör- tw co c ‘55 CD -2 & co c <D co 12 co > o £— co M 03 CQ > (S) C xcT n o xo 55 ^ 1 E £ crS ö/) ' <U Æ £ 3 'C '53 c: 3 £ C iö" .2 c3 (S> C ,-C 10 3 C ctf t>S lO -ií C E S S2 5/5 «-H ’cn 03 C O >» cs C c 3 cS C c 3 3T XO KO o ,0 >0 OJO l—« 0 > c 1- c b Z* XO (S) u > xO 3 'cd '"3 13 cr £ 3 3 3 .£ T3 C 03 ÖjO UJ 3: oj > 3 i -3 cS) C c o 00 . tr- ts § 3 o 03 to t() f-S § ^5, •Sií? c isc >5 » c E c 3 10 3 .3 . <2 c su 13 Co -K. t; CO 2 '5 (S) 3 3 '<D (!) ö .£ ^ ■—• 03 ■s | 0 -s > c S) (D c — <V *-3 MUSTADS ELDAVÉLAR eru beztar. Fást hjá Qtto Tulinius. Prentsmiðja Odds Björnssonar. „Dan“”moforinn. Það hefir nú verið hlé á auglýsingum um þennan heimsfræga mótor, og stafar það af því, að aðsóknin alt til þessa hefir verið svo mikil, að verksmiðjan hefir tæplega haft undan, þrátt fyrir það að hún er sú stærsta og hefir mest vinnuafl af slíkum verksmiðj- um á Norðurlöndum, og þrátt fyrir meiri yfirvinnu nú en nokkuru sinni áður. Það mætti ætla, að allur sá aragrúi af mótorverksmiðj- um, sem síðustu árin hafa þotið upp eins og gorkúlur, hefðu dregið frá þeim, sem fyrir voru, en það er ekki tilfellið. Aðsóknin að „Dan“ hefir aldrei verið meiri en nú. Þetta virðist hin áþreifanlegasta sönnun fyrir því, hvað »Dan«- motorinn um allan heim þykir bera af öðrum steinolíu mótorum. Englendingar, sem sjálfir eru með hagsýnustu og verkhygnustu þjóð- um heimsins, og eru viðurkendir fyrir að grípa ekki til útlends Fabrik- ats nema knýjandi nauðsyn beri til, þeir hafa þrátt fyrir fjölda mót- orverksmiðja í landinu sjálfu, eftir nákvæma rannsókn, sem sjálf stjórnin hefir hafið, ekki kynokað sér við að kveða upp þann dóm að „Dan“ vœri yfirburðamesti mótorinn. Japanar, sem í öllum verklegum greinum er mesta uppgangsþjóð, hafa einnig fengið sér »Dan«-mótor til fyrirmyndar. Og í öllum löndum heimsins ryður hann sér áfram með slíkum hraða, sem engin dæmi eru til. Það sézt varla útlent tímarit, verkfræðislegs efnis, sem nokkuð kveður að, að ekki minnist það á »Dan«-motorinn. Og gerir hann því Dönum mikinn heiður. Þeir sem ætla að fá sér »Dan«-motor í vetur eða næsta vor, eru vinsamlega beðnir, sem allra fyrst að snúa sér til næsta agents »Dan«-mótorsins, svo mótorarnir geti orðið tilbúnir í tæka tíð. Sérstaklega er nauðsynlegt að senda pöntun sem fyrst, ef bátar eiga að fylgja með. Til þess að grynna á því sem senda þarf af bátum frá Danmörku, verða í vetur smiðaöir bátar eftir pöntun, á bátasmiðaverkstœði er undirritaður setur á stofn á Patreksfirði, og verða mótorarnir líka innsettir þar. Til þessara báta verður að eins notað gott efni, og úrvals smiðir. í Reykjavík, á Seyðisfirði og ef til vill á Eyjafirði, geta menn einnig tengið smíðaða mótorbáta, með því að snúa sér til »Dan«-mótora agenta á þessum stöðum. Patreksfirði í ágúst 1906, Pétur A. Olafsson A Húsavík er til sölu eða leigu frá 14. maí næstkomandi, hús á bezta stað með góðu túni. Húsinu fylgir gott fjós, sem stendur á túninu. Menn snúi sér til undirritaðs, sem gefur nánari upp- Iýsingar og semur um sölu eða leigu. Húsavík 14. febr. 1907. St. Guðjohnsen. Góða sokka °g vetJinga kaupir verzlun SN. JÓNSSONAR með HÁU verði í mót vörum og peningum eftir samkomulagi. „Noröurland" kemur út á hverjum laugar- degi og oftar þegar sérstök ástæða þykir til, að minsta kosti 52 arkir um árið. Verð árg. 3 kr. á Islandi, 4 kr. 1 öðrum Norðurálfulöndum, M/i dollar í Vestur- heimi. Qjaiddagi fyrir miðjan júni að minsta kosti (erlendis fyrir fram). - Uppsögn sé skrifleg og bund- in við árgangamót; ógild nema komin sé til rit- stjóra fyrir 1. júní og kaupandi sé skuldlaus við blað- ið - Auglýsingar teknar i blaðið eftir samningi við ritstjóra. Arsláttur mikill fyrir þá er auglýsi mikið. Fiskimenn! Munið að Mustads önglar númer jy Extra Long*, eru veiðnastir. Svfnslæri reykt, annáluð að gæðum, fást ennþá í EDINBORG. GUW úseign Guðmundar Péturssonar, á Svalbarðseyri, ásamt vöruleyfum, skuldum og verzlunar- áhöldum, er til sölu á næstkomandi vori. Einnig verður húseignin seld sérstaklega, ef viðunanlegt boð fæst. Mjög aðgengilegir borgunarskilmálar. Lysthafendur snúi sér til undirritaðs. Akureyri, 21h '07. r Asgeir Pétursson.

x

Norðurland

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Norðurland
https://timarit.is/publication/203

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.