Norðurland - 06.07.1907, Page 2
Nl.
184
Sigurður Björnsson búfr. á Veðramóti.
Arni Jónsson búfr. á Hafsteinsstöðum.
Ingimar Sigurðsson búfr. á Akureyri.
Hallgrímur Þorbergsson fjárræktarfr.
á Einarsstöðum.
Auk fulltrúa þessara mættu og á
fundinum tveir ráðunautar »Búnaðar-
félags íslands*, Guðjón Guðmundsson
og Sigurður Sigurðsson, og þar að auki
fjöldi Húnvetninga. Búfjársýningardag-
inn voru þar flestir; um 300 manns.
Fundarstjóri var kjörinn formaður
félagsins, til vara Gísli sýslumaður,
en skrifarar Sigurður Sigurðsson kenn-
ari og Sigurður Pálmason.
Auk reikninga og ýmsra smámála
var allmikið rætt um pöntunarstarfsemi
félagsins og skal henni haldið áfram
og sérstakur starfsmaður látinn annast
hana framvegis og fái hann sér til að-
stoðar, helzt einn mann í sýslu hverri
til að taka á móti pöntunum; skal
reikningum þeim, er þessu við koma,
haldið fráskildum öðrum reikningum
félagsins
Samþykt var, að félagið skyldi láta
einn eða fleiri af starfsmönnum sínum
ferðast um á þeim tíma, er deildirnar
halda fundi sína.
Á fundinum bættust við 16 lífstíðar-
félagar; 8 höfðu áður gerst meðlimir
félagsins á þann hátt.
Formaður átti samkvæmt lögunum
að ganga úr stjórninni, ep var endur-
kosinn í einu hljóði.
Aðalsteinn Halldórsson tóvélastjóri
beiddist lausnar úr stjórninni sökum
ýmsra anna, er að honum kölluðu. í
stað hans var kosinn Jón Norðmann
kaupmaður á Akureyri.
Endurskoðendur reikninga félagsins
voru kosnir Friðrik Kristjánsson út-
bússtjóri og Hallgrimur Kristinsson
kaupfélagsstjóri á Akureyri.
í sambandi við fundinn og sýning-
una voru haldnir nokkrir fyrirlestrar.
Ingimar Sigurðsson hélt fyrirlestur »um
búnað og jarðrækt í Norðurbotnum í
Svfþjóð*, annan um »tilraunastarfsemi
Ræktunarfélagsins* og þriðja fyrirlest-
urinn um »kjötsölu og horfur hennar«.
Sigurður ráðunautur hélt fyrirlestur
um »samvinnufélagsskap«. Guðjón Guð-
mundsson um »búpeningsrækt« og Hall-
grímur Þorbergsson um »sauðfjárrækt«.
Auk þess voru margar styttri ræð-
ur haldnar af ýmsum af fulltrúunum, ráða-
nautunum og ýmsum mönnum úr Húna-
vatnssýslu, svo sem: Birni Sigfússyni,
Árna á Geitaskarði, Eggert Leví, Árna
á Höfðahólum, sr. Stefáni á Auðkúlu,
Hálfdáni próf. Guðjónssyni, Guðmundi
á Torfalæk og ennfremur af Sigurði
í Yztafelli, er ekki kom á fundinn fyr
en í lok hans.
Yfirleitt hafði fundurinn farið mjög
vel fram, lýst fjöri og áhuga og ræð-
ur manna hinar fróðlegustu.
Ráðherraveizlan.
Úr Reykjavík hefir Nl. verið skýrt
frá því, að í veizlu þeirri, er ráðherrann
hélt þingmönnum, hafi Magnús Steph-
ensen fyrverandi landshöfðingi haldið
svo hranalega ræðu í garð stjórnar-
andstæðinga, að tveir úr Jæim flokki,
Jóhannes sýslumaður og Stefán kennari,
hafi staðið upp frá borðum og gengið
burt og allir aðrir stjórnarandstæð-
ingar skömmu síðar. Fallega byrjar
nú samkomulagið! Og fáum mun finn-
ast það samboðið Magnúsi Stephensen
að efna til slíkra veizluspjalla.
Uppspuni.
Sú saga hefir gengið hér um bæinn
undanfarna daga, að Einar Hjörleifs-
son væri lagður á stað til Ameríku
með alt sitt skyldulið og ætlaði að
setjast þar að fyrir fult og alt. Fyrir
þessu er engin hæfa sem betur fer.
Hann hefir að eins fengið tilboð um
að ferðast vestur og halda þar fyrir-
lestra og mun það vera undirrót þess-
arar sögu.
Þingvallafundurlnn
hafði gengið vel. Nálægt 100 full-
trúar höfðu mætt þar. í sambands-
málinu var samþykt tillaga, er var svip-
uð þeim, er áður hafa verið samþyktar
af þingmálafundunum og ákveðnast
hafa verið orðaðar.
Vart er treystandi orðum þeirra manna
um fundinn, er frá fyrstu hafa fjand-
skapast gegn honum.
Guðm Hannesson náði ekki á fund-
inn sökum tafa, er hann varð fyrir í
Húnavatnssýslu.
Hannesarstyrkurinn
veittur Guðmundi Finnbogasyni til
heimspekisnáms í 4 ár; 1000 kr. á
ári.
Mannalát
Sveinn Eirfksson, prestur á Ásum í
Skaptártungum, druknaði f Kúðafljóti 19. f.
m.; hafði verið á leið til Reykavíkur.
I. M. Hansen konsúll á Seyðisfirði sagður
nýlátinn.
Bráðkvaddur varð hér í bænum fyrir
nokkurum dögum, Jón Helgason frá Vík á
Flateyjardal.
Skip.
iHólart komu hingað á sunnudaginn var.
Fóru aftur á þriðjudaginn.
»Mjölnir♦ kom á mánudaginn og fór
áftur sama dag.
’fslands Falk« og franska varðskipið komu
hingað inn í fyrradag og dvefja hér enn.—
»Prospero« kom í gærkvöldi.
Mikill flskur
sagður hér utarlega í firðinum, en aflast
þó Iftið sökum beituskorts. All tilfinnanlegt
er það, að ekkert íshús er hér við fjörðinn,
þar sem hægt væri að fá beitu, þegar fisk-
ur er nógur.
Tíðin
lengstum köld síðastl. 2 vikur. Gróðri fer
hægt fram og horfur til sveita ekki glæsi-
legar. Dágott veður þessa dagana.
Mýra-læknishérað
veitt frá 1. ágúst þ. á. Þórði Pálssyni lækni
í Öxarfjarðarhéraði.
Misprentast
hefir í fánaræðu Karls Finnbogasonar í
síðasta bl. Fálason fyrir Fólason.
íslenzkt
um við hana, án þess að hafa samið þar um, eða hafa brotið gerða samn-
inga, aðvarast hérmeð um að hafa lokið skuldum sínum að mestu eður öllu
fyrir þ. 20. þ. m., og þá jafnframt samið um það sem þá verður ógreitt. Þeir
sem ekki sinna aðvörun þessari mega búast við því, að skuldirnar verði að
þeim tíma liðnum innheimtaðar með tilstyrk laganna.
Virðingarfylst
Akureyri O., þ. 7. júlí 1907.
Jóhannes Stefánssor).
Kaupfélagsverzlun
+ + + Eyfirðinga
fekk með s/s Fridtjof miklar birgðir af allskonar nauðsynjavörum:
Flórmjöl, bankabygg, hrísgrjón, hafragrjón, kaffi, sykur o. ft.
Ennfremur margar tegundir af kexi, grœnsápu, stangasápu, hand-
sápu, álnavöru o. fl. o. fl.
Enginn hygginn kaupandi gengur fram hjá pessari verzlun eftir
að hann hefir kynt sér gæði og verð varanna.
Talsimi nr. 28 a.
Hraðskeytaárítun: Leon.
O. NILSSEN& SÖN
BERGEN.
SÍIdarnet uppsett eða slöngur, börkuð eða tjörguð með koltjöru eða hrá-
tjöru. Tilbúnar nætur og pokanætur úr hamp og bómuii.
REKNETATRÁSSUR úr cocus og manilla.
Fiskilínur. — Porskanet. Glerdufl. — Ijörutrássur.
Tekið móti Síld og Fiski til sölu.
Offo Monsfed8
danska smjörlfki
er bezt.
smjör
Og
kaupir
Olgeir Júlíusson bakari
fyrir peninga.
Talsími nr. 7.
PrentsmiSja Odds Björnssonar
Smá-úrklippur
úr viðurkenningum.
Eg hefi um io ár þjáðst af maga-
og nýrnasjúkdómum og leitað margra
lækna, án þess að fá bata. Mér hefir
batnað af því að neyta Kína-Lífs-
Elixírs, og liðið einstaklega vel að
staðaldri, og fyrir því ætla eg að neyta
hans stöðugt.
Stenmangle 7. júlí 1903.
Ekkja J. Petersens timburmanns.
Undirritaður, sem í mörg ár hefir
þjáðst af lystarleysi og magakvefi, er
nú orðinn albata við stöðuga brúkun
á Kína-Lífs-Elixír herra Valdemars
Petersen.
Hlíðarhúsum 20. ágúst 1906.
Halldór Jónsson.
Eg hefi nálægt missiri iátið sjúk-
linga mína endur og sinnum taka inn
Kína-Lffs-Elixfr hr. Valdemars
Petersens, þegar eg hefi álitið það
við eiga. Eg hefi komist að raun um,
að elixírinn er ágætt meltingarlyf og
séð áhrif hans á ýmsa kvilla, t. d.
meltingarleysi eða meltingarveiklun,
samfara velgju og uppköstum, þrautum
og þyngslum fyrir brjósti, taugaveiklun
og brjóstveiki. Lyfið er gott og eg
mæli óhikað með því.
Kristjaníu.
Dr. T. Rodian.
Heimtið stranglega ekta IÚna-Lífs-
Elixír frá Valdemar Petersen. Hann
fæst hvaivetna á 2 kr. flaskan.
Varið yður á eftirlíkingum.
Tannlæknir
Steinbach.
Heima kl. ii —12 f. m. og 4—5 e.
m. áreiðanlega. Hús Jóns ritstjóra Ste-
fánssonar. Inngangur um vesturdyrnar.