Norðurland


Norðurland - 02.11.1907, Síða 3

Norðurland - 02.11.1907, Síða 3
45 Nl. Sjómaður i Reykjavik druknaði 28. f. m. af bát frá Engey. 5 menn fórust af bát við ísafjarð- ardjúp 14. okt. Sunnanátt, 9 stiga hiti. % Etazráðin. »Lögrétta« kemst svo að orði 23. f. m.: »ísfirzki stórkaupmaðurinn, Ás- geir Ásgeirsson, lét ríkmannlega í sum- ar, að kaupa (konungsmóttökuskálana á Þingvöllum), landinu að skaðlitlu og í notum þess meðal annars mun hafa getað nuddast fram etazráðs-dubbunin, en höfðinginn gekk frá öllu, tilboðið bara munnlegt, og hann bætti gráu á svart með hlægilegu smánarboði, er hann var intur efndanna.« Hvað ætli blaðið hefði sagt um et- azráðið okkar hérna á Akureyri, of- sóknirnar fyr og síðar, leynt og ljóst við konungsmóttökunefndina hér, og það eftir að því hafði verið komið svo laglega fyrir, að dönsku gestirnir þökkuðu honum sérstaklega viðtök- urnar hér á Akureyri, þó enginn vildi nýta hann til neinnar forstöðu; svo ófyrirleitin er þessi ofsókn nú orðin, að smalað er undirskriftum til bæjar- stjórnar undir skjal, þar sem ætlast er til að bæjarstjórnin eða móttöku- nefndin borgi úr sínum vasa allan kostnað bæjarins við móttökuna og neitað að borga nokkurn eyri, af því þeir hafi ekki verið sérstaklega spurð- ir leyfis til fjárframlaga. Það eru fleiri bæir en ísafjörður, sem eiga sér göfugan höfðingjann. í því efni þarf Akureyri ekki neitt að láta í minni pokann fyrir höfuðstað Vestfjarða. Mynd af FrlObirni Steinssyni. Templarar hæjarins hafa gefið Templ- arahúsinu hér í bænum stóra brjóst- mynd af Friðbirni Steinssyni bóksala, stofnara Goodtemplarreglunnar hér á Iandi. Er svo fyrir mælt að myndin skuli fylgja húsinu. Var hún afhent fyrir skömmu á hátíðlegen hátt. Bæjar- fógeti flutti ræðu, en Páll Jónsson hafði ort kvæði. Hneyxlisgrelnln á dönsku. Hneyxlisgrein Jóns Ólafssonar um dvöl konungsins á Þingvöllum hefir verið þýdd á dönsku og prentuð í «Extrabladet« og sjálfsagt í fleiri blöð- um f Danmörku. Blaðið furðar sig stórlega á að stjórnarflokkurinn skyldi þrátt fyrir greinina veita Jóni ríflegan landsjóðs- styrk, telur það móðgun við Dani og konunginn. Þá furðar blaðið sig heldur ekki minna á hinu, að Jón skyldi hafa átt kost á, að hneyxlinu nýafstöðnu, að sitja veizlu með. stjórnarflokki þings- ins og ráðgjafa konungsins, en þó einna mest á því, að einn af helztu mönnum stjórnarflokksins skyldi standa upp í veizlunni og mæla fyrir minni Jóns Ólafssonar. Með því þykir stjórn- arflokkurinn hafa bætt gráu ofan á svart. Tímar hafa ekki verið í gagnfræðaskólan- um nokkura daga sökum mislinga. Hávaði nemenda sýktist um sama leyti, og hafa sumir þeirra orðið all- slæmir. Tfmar byrjuðu aftur í skólanum á fimtudaginn var. Gísli Sveinsson sagði fréttir frá alþingi 12. þ. m. í Stúdentafélaginu íslenzka í K.höfn. Stjórnarmenn voru þar engir, enda eru þeir nú sárfáir hér aðrir en Bogi, Finnur og Sigfús Blöndal. [Úr bréfi.] Prófessor Finnur Jónsson hefir legið í taugaveiki að sögn, en er nú sagður á batavegi sem betur fer. Jón Hjaltalín skólameistari er heldur hresaari nú upp á síð- kastið, en batinn fer því miður hægt. Fream sem flaug hér um bæinn um veik- indi hjá Guðmundi Hannessyni og margir hafa spurt oss um hvort sönn væri — er tilhæfulaus ósannindi. Mun það gleðja marga af vinum hans hér. Gaarnfrœðaskólinn. Nemendur gagnfræðaskólans á Akureyri verða í vetur 52. Páil Halidórsson verzlunarstjóri Ásgeirs kaupm. Péturs- sonar verður verzlunarstjóri Gránufélags- ins á Siglufirði. Tekur við á nýári. Motorvazn Magnúsar Sigurðssonar á Grund kom hingað um síðustu helgi. Samkoma „Framfiðarinnar" á sunnudaginn var, var mjög myndar- leg, enda vel sótt. Ágóðann af henni fær stúlkan með berklaveikina í andlitinu. Steingrímur Matthíasson flutti góðan fyr- irlestur um bakteríur, síra Matthías Jochums- son las upp kvæði það, er prentað er hér í blaðinu og hann hefir ort nýlega, en þau ungfrú Karólína Guðtaugsdóttm og Guðmundur Guðlaugsson léku dálítinn leik. Verzíun SN. (ÓNSSONAR kaupir heil- og hálfsokka með óvanalega háu verði. Sigluneshákarl WAVA'fAVAfAVAfXfl fæst í Kjötbúðinni. Munið eftir að Margarine er bezt og ódýrast í Edinborg. Ajs Vestenfj. Bjergnings- og Dykkerselskab Bergeij. Telef.: 1907. - Telegr.-Adr.: Dykkerselskabet. Udförer alleslags Bjergnings- arbeider. Overtager længere Slæbninger. Kínversk postulíns kaffistell mjög sjaldgæf og falleg og fleira því um líkt nýkomið í verzlun Sn., fónssonar. MJÚar — Múffur -Margskonar húfur fyrir karia og konur. — Vetrarjakkar Kvenslifsi, úrval mikið - Vasa- og Háls klÚtar, verð frá 0.80 fyrir tylftina upp í 4.80 fyrir stykkið — Karlmannahálstau — Líf siykki — Axlabönd — Jakkar — Vetrarfrakkatau — Silkivefnaður — Karlmannafatatau ásamt margskonar annari álnavöru a , og ótal margt fleira er NYKOMIÐ í verzlun ^ Sn. Jónssonar. . Svörf °9 mislif SILKITAU hafa adrei komið jafnfögur og fjölbreytt eins og nú í Edinborg. r Ateiknaðir og ábyrjaðir DUKAR, og margskonar brodergarn silki nýkomið í Edinborg-. Sandows- böndin heimsfrægu komin aftur í Edinborg. Svört regnkápa hefir tapast nýlega á götunni frá Lands- bankaútbúinu niður að húsi Jóns Borg- fjörðs. Finnandi er beðinn að skila henni til kaupfélagstjóra Hallgr. Kristinssonar gegn fundarlaunum. Hjá Einari Gunnarssyni er ágætt herbergi 5x5'/2 al., með góðum ofni, og fæði til leigu strax fyrir einhleipan karl eða konu. Stœrst og fjölbreyttast úrval af vindlum 15 tegundir, hefir verzlun SN. JÓNSSONAR. Rúmirj, sem allir spyrja eftir, eru nú komin. Margbreytilegt úrval. * Ógrynnirj öll af stólum sem seldir verða ódýrar en nokk- urntíma áður. * Linoleum margar tegundir og fáséðar, sem allir purfa að fá á gólfin sín. * Tröpputeinar úr messing, ómissandi í hverju húsi, og ótal margt fleira ný- komið í Guðbjörns Björnssonar. Margar sortir af vönduðum vetrar- húfum nýkomið til MATTHÍASAR HALLGRÍMSSONAR.

x

Norðurland

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Norðurland
https://timarit.is/publication/203

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.