Norðurland - 20.10.1908, Blaðsíða 2
Nl.
42
ingu á Laugarnesspítala. Til hennar
munu hafa gengið 2000 kr. í fyrstu,
og nú í sumar var að sjá sem ómái-
að væri.<
Vaxandi hugur er á því að koma
upp steinkirkjum, og mun Rögnvaldur
húsameistari Ólafsson styðja að því.
Og ýmsar varnir, áður ókunnar eða
ónotaðar, hefir hann gegn rakanum
neðan frá, og utan að. Aðalvörnin
nokkuð dýr, hitunin, en óhjákvæmileg
með siðmenningunni. Það er skiljan-
legt að margir hafa ótrú á stein-
kirkjum. Þær eru flestar illa leiknar
af slaganum, en við því er að gera.
X
JVlentabúriö.
Svo kallar >Nýtt kirkjub!að« hús
það hið mikla, er reist hefir verið fyr-
ir söfnin í Reykjavík.
Blaðið lýsir því á þessa leið:
»Tveir eru þar salir mestir, í miðju
húsi, náttúrugripasafnið á heima undir,
en lestrarsalur bókhlöðunnar er yfir.
Hvor salurinn er fullar 300 ferálnir.
Skuggsýnt verður á náttúrugripasafn-
inu, gluggaop vart tíundi hluti gólf-
flatar, og þykkir kampar að, sem næst
sniðlausir. Mest er borið í lestrarsal-
inn, geta þar 60 átt sæti. Vegghæð-
in 10 álnir. Fimtíu eru þar vindaug-
un uppi í loftinu og fylgir sú sagan
er sýnt ei, að sá Vindsvalur hafi leik-
ið um konunglegu bókhlöðuna nýju í
Höfn, að ailir bókaverðir hafi sýkzt
fyrstu vikurnar. Lessalurinn verður
stórfagur og bjartur, súlur eru og
skot fyrir göflum. Veggir tréklæddir
neðanvert.
Landsskjalavörður ræður ríkjum í
vesturenda hússins. Lestrarsalur hans
tekur 16 í sæti. Alt er húsið úr steini
og járni, og innanbúnaður af tré lítill,
fyr en kemur á efsta iofti. Þó eru til
varúðar eldtraust byrgi hér og hvar
fyrir dýrustu skjöl og bækur. Stórmik-
ið geymslurúm er enn til viðbótar í
kjallara neðanjarðar.
Forngripasafnið á alt háaloftið. Er
það ákaflega mikið rými, með skotum
og skápum, sem eigi verður tölu á
komið. Reykháfar og loft ganga upp
um mitt húsið, eykst við það stórum
veggrýmið, en gæzlan verður alimann-
frek, svo örugg sé. Utsýni er þar hið
fegursta úr þakgluggum. Birta kemur
þar og að ofan. Neðan á hásúð eru
festar hitunarpípurnar.
Auk geymslu-herbergjanna eru inni
allmörg fyrir starfsmennina í menta-
búrinu.
Hleinar ganga fram hvoru megin
höfuðdyra, og eiga þeir að standa á
þeim Jónas Hallgrímsson og Jón Sig-
urðsson. Yfir dyrum verður fálka-
skjaldarmerkið og kóróna. Þá verða
steypt nafnspjöld, með áratöium: er
fæddust og létust, og fest utan á
húsið. Á framhliðinni mót suðri eru
þessi nöfn; Ari fróði og Snorri Sturlu-
son og Guðbrandur Þorláksson og Hall-
grímur Pétursson. Á norðurhlið eru þeir
Eggert Ólafsson og Jón Espólín. Á aust-
urstafni verður nafnspjald Jóns Hall-
dórssonar prófasts í Hítárdal, en á
vesturstafni Sveinbjarnar Egilssonar.
Nöfnin virðast vera vel valin, en marg-
ir munu sakna Sturlu lögmanns Þórð-
arsonar. Snorri frændi hans varð heims-
frægur, en engu óþarfari var Sturla
vorri sögu, og þetta snildarskáld.
Tvö hundruð þúsund krónur ganga
til húss og búnaðar, og betur þó að
líkindum. Enginn ætti að sjá eftir því.
Mentabúrið verður oss til gagns og
gamans.<
X
Innbrotsbiófnaður
var hér framinn 1' nótt, brotist inn
í búð Sigurðar kaupmanns Sigurðs-
sonar og stolið þar töluverðu af pen-
ingum.
Einlægt batnar það.
Hjónaband.
Landritari Klemens Jónsson og frú
Anna Vigfússon, f. Schiöth, voru gefin
saman í hjónaband á föstudaginn var,
í Reykjavík.
Ný lyfsöluskrá
er nú komin út að tilhlutun land-
læknis og gildir frá 1. oktober 1908.
Ánægjulegt er að sjá að hún er á
íslenzku, nú í fyrsta sinn og meira
að segja á góðri íslenzku.
Sá sem gæti sagt mér hvar
lent muni hafa 4 síðustu
deildir Árbóka Espó-
líns, sem mér hafa horf-
ið úr láni, skyldi fá góða
þóknun hjá mér.
Matthías Jochumsson.
Rjúpur
fást mjög' ódýrar í verzlun
Sn. Jónssonar.
I^augardagskvöldið 10. oktber. n.
1. tapaðist frá Hótel Akureyri góð
hnakktaska með hakkavél í, ásamt
fleiru dóti. Finnandi er beðinn að
skila fyrgreindri tösku til veitinga-
manns Vigfúsar Sigfussonar á Ak-
ureyri.
Á Hannesson.
Sandowsböndin
|\^ heimsfrægu
komin aftur í
Edinborg.
Epli
h vítkal
laukur
og sömuleiðis
niðursoðnir ávextir
nýkomið í verzlun
Sn. Jónssonar.
Goodtemplara-reglan
á /Vkureyri
heldur
TOMBÓLU
tii ágóða fyrir Tempiarahúsið, laugardaginn og sunnudaginn hinn
hinn 7. og 8. nóvember næstk.
Vonast eftir góðum stuðningi bæjarbúa.
Edinborg
Ákureyri.
SSi fJýKomnar vörur:
Kornvörur allskonar.
J^ýlenduvörur: svo sem kaffi, sykur, rúsínur,
fíkjur, chocolade, cacao o. fl.
Brauð, fleiri tegundir en nokkuru sinni áður.
Margarínið ágœta.
Svínafeiti, svínslœri (reykt).
Ostar: Eidamer-, Gouda- og Mysuostar.
Ávexfir: Epli og vínber.
Margskonar niðursoðnir dvextir.
Kálmefi: Kálhöfuð (hvít og rauð), blómkál, og
„Rödbeder“. — Laukur og jarðepli.
Sápur: svo sem þvottasdpa, handsápa (margar
tegundir), skeggsápa, tannsápa og silfursápa.
Ylmvöfn, ótal tegundir.
„Kvillayabörkur“ og „Blegvatn“ nauðsynlegt
til þvotta.
Tóbak;: Munntóbak, reyktóbak og neftóbak.
Álnavörur, nýjar tegundir, ný munstur.
Dömuúrkeðjur. — Flibbanœlur.
Manchett-, flibba- og brjósthnappar.
Leirvörur, smekklegar og ódýrar og ótalmargt
fleira.
Allir vita, að bezt er að verzla í
Edinborg
Til útsölumanna Norðurlands
og bóksala út um land
Hin ágæta skáldsaga
,Eitur‘
eftir Alexander L. Kielland,
sem staðið liefir undan farið neðantnáls í Norðurlandi, er nú út
komin á vandaðan pappír.
Yerð 2 krónur.
Útsölumenn og bóksalar fá 25°/° í sölulaun. Einstakir menn geta
fengið bókina senda, með því að senda ritstjóra Norðurlands 2
kr. í peningum eða frímerkjum.
Þeir útsölumenn og bóksalar, sem vilja sinna pessu, eru beðnir
að senda ritstjóra Norðurlands skeyti um pað sem fyrst, hve
mikið peir vilja láta senda sér, pví upplagið er lítið og hætt við
að bókin verði fljótt uppseld.
Mjög gott
Maísmjöl
til sölu í verzlun
Sig. Sigurðssonar
Prentsmiðja Odds Bjðrnssonar.