Norðurland - 17.04.1909, Page 4
Nl.
6o
vel sé nema með föstum söngflokk, sem
hafi dálítil laun. Á síðastliðnu vori skrifaði
eg bæjarstjórninni og fór þess á leit, hvort
hún sæi sér fært að veita kr. 200.00 til að
launa með söngflokk, og þóttist eg þess
fullviss, að prófastur okkar mundi þá t. d.
syngja í eitt skifti og á þann hátt styðja
mig í því að fá inn segjum kr. 200.00 með
söng; bæjarstjórnin mun hafa viðurkent að
þetta væri nauðsynlegt, en vísaði því máli
eðlilega til safnaðarnefndar, hvar það kom
ti! umræðu á safnaðarfundi, og leit meiri
hluti nefndarinnar svo á, að kirkjan gæti
ekki lagt neitt fé til þessa, sízt það sem
nokkuð drægi, og féll þetta mál við það.
Nú hefi eg hugsað þetta mál síðan og finst
mér að fleiri en einn vegur væri til þess að
fá upp nokkurt fé. Það er þá fyrst, að
sóknarnefnd mun samkvæmt lögum, hafa
heimild til að jafna niður sönggjaldi (nef-
skatt). Önnur leið að kirkja og bær byrjuðu
með dálitlu tillagi, þó það væri að eins lít-
ið, svo mundi eg taka að mér að útvega
nokkuð í viðbót, og álít eg ekkert á móti
því að segja frá því hér, á hvern hátt að
eg ætla mér að koma því fram. Eg hef
áður talið það víst að prófastur okkar mundi
fús á að syngja fyrir kirkjusönginn eins
vel eins og hann hefir sungið fyrir ýms
félög hér í bænum með góðum árangri;
svo eru tveir aðrir söngsnillingar hér í bæ,
þeir læknarnir Steingrímur Matthíasson og
Valdemar Steffensen. Það kann að þykja
nokkuð frekt að eg skuli án þess að hafa
talað við hina 2 síðarnefndu búast við því,
að þeir fari að offra sínum söng fyrir þetta
málefni, en eg þykist eins viss um að þeir
gerðu það með glöðu geði eins og eg veit
að eg er sjálfur að skrifa þessar línur.
Auðvitað er það fé, sem kæmi inn fyrir
slíkan söng — úr vösum bæjarbúa, en það
bætir úr, að eftir því fé mun enginn sjá,
sem heyrir þá syngja, því fólkið finnur það
glögt að það fær það vel borgað. Hitt mundi
eg taka upp á mig að sjá um það, að kirkju-
söngurinnn tæki stórum stakkaskiftum, ef
fastur flokkur fengist eins og hér að framan
er bent á, því hér í bæ eru góðir söng-
kraftar bæði hjá konum og körlum, og
inundi fólki bregða mjög við að heyra góð-
an fjórraddaðan söng, sem að eins hefir áð-
ur heyrst á hátíðum, og ekki síður ef hinu
yndislega tóni prófastsins okkar væri svarað
vel með fjórum röddum.
Akureyri 13- apríl 1909.
Magnús Einarsson.
\
Grundtvig — æfi hans
og starf.
IX.
En hvers vegna varð Grundtvig það,
sem hann varð? Hvaðan hafði hann
sinn aðalstyrk? þess hefi eg áður get-
ið, að Steffens vakti hann með róman-
tísku skáldskaparstefnunni. En af því
leiddi að hann fór að sökkva sér nið-
ur í fornnorrænar bókmentir og til
þess að geta það nokkuð að marki,
varð hann að læra íslenzku, þessa lif-
andi norrænu, sem íslendingar höfðu
varðveitt öld fram af öld; og Grundtvig
lærði íslenzku, og að hann gerði það
meira en að nafninu má ráða af þvi',
að hann þýddi Heimskringlu Snorra
á Dönsku. Og hann sökkti sér niður
í eddurnar. Með öðrum orðum: Hin
fornnorræna þjóðmenning og sérstæði
hins norræna þjóðaranda birtist honum
í allri sinni dýrð í bókmentum Islend-
inga ; það voru þær, er heilluðu svo
huga hans og gáfu honum slikt and-
legt víðsýni, að hann hóf baráttu með-
al þjóðar sinnar fyrir endurfæðingu
hinnar norrænu þjóðmenningar. Úr
fornbókmentum íslendinga hafði hann
sinn aðalstyrk, uppúr þeim voru sprottn-
ai hugsjónir hans, er fæddu af sér
KAPPGLÍMA um „Akur-
eyrar-skjöldinn“ verður
þreytt í Goodtemplarahúsinu
þriðjudaginn 20. þ. m., kl. 7 siðd.
Almenn sæti 50 aura, barnasæti 25 a.
alþýðuháskólana, sem aftur hafa umbylt
og endurfætt þjóðlíf Dana. Grundtvig
var ekki danskur nema í þrengri merk-
ingu, hann var í rýmri skilningi norrcenn
andi; í honum var ósvikinn fornnorrænn
mergur, í æðum hans rann hánorrænt
blóð, er inní hann hafði streymt út úr
hjarta íslenzkra bókmenta.
Atvinnuvegir Dana standa nú með
miklum blóma einkúm landbúnaðurinn.
A einu ári fá þeir yfir 40 milliónir
króna meira fyrir smjör, flesk og egg,
heldur en þeir hefðu fengið, ef borgunin
hefði verið álíka og meðalverð annara
landa. Fyrir smjörið eitt fá þeir hærra
verð en allar aðrar þjóðir. Að danska
smjörið er svo gott kemur til af því,
að það er blandað skýrleik og vitsmun-
um segir Englendingur einn. En þessi
skýrleikur og þessir vitsmunir eiga að
miklu leyti rót sína að rekja til lýð-
háskólanna. Lýðháskólarnir hafa aftur
skapast fyrir hugsjónir Grundtvigs, en
Grundtvig hefði aldrei orðið það sem
hann varð, ef hann ekki hetði bergt
á brunni forníslenzkra bókmenta. Margt
einkennilegt kemur í Ijós þegar farið
er að rekja sundur orsaka samband
sögunnar. Mörgum mun t. d. virðast
óskiljanlegt og með öllu fráleitt, að
þessi makalausa smjörframleiðsla Dana
geti staðið í nokkru sambandi við, eða
átt að nokkru leyti rót sína að rekja
til ritsnilli Snorra Sturlusonar, Eg veit,
að flestum mun þykja sú hugsun blátt
áfram hlægileg og heimskuleg. Og þó
er auðvelt að færa rök fyrir þessu.
Og við nánari athugun er þetta heldur
ekkert óskiljanlegt, því þetta byggist
á þeirri staðreynd, að þjóðarauður er
ætíð ávöxtur eður afleiðing andlegrar
menningar. I’að eru því engar ýkjur
þó sagt sé, að þjóðarauður Dana nú
á tímum eigi að nokkru leyti rót sína
að rekja til andlegs lífs hér á Islandi
fyr á timum. Og þetta finna og skilja
líka Danir sjálfir. Ludvig heitinn Schrö-
der lýðháskólastjóri í Askov sagði eitt
sinn svo eg heyrði, að engu landi í
heiminum ætti Danmörk eins mikið að
þakka einsog íslandi. Það þarf naum-
ast að taka það fram, hvernig Grundtvig
sjálfur leit á ísland; í hans augum var
það blátt áfram helgidómur. Danir
eiga virkilega heiður skilinn fyrir það,
hve vel þeir hafa kunnað að notfæra
sér forníslenzkar bókmentir; því miður
stöndum við íslendingar sjálfir þeim
langt að baki í þessu efni. Land vort
er að mörgu kostaland; alment er það
viðurkent að í hafinu kringum landið
séu gullnámur; við eigum aragrúa af
fögrum fossum; í þeim býr afl, nægi-
legt til að reka stóriðnað. En að miklu
leyti látum við alt þetta ónotað. Okkur
skortir samhug, okkur skortir þekkingu
til að nota okkur auðsuppsprettur okkar
eigin lands. Eftir öllu þessu hafa aðrar
þjóðir tekið og við erum orðnir hræddir
við, að þær fari að ásælast Iand okkar
og erum farnir að gera ráðstafanir til
að hindra það. Sumum hefir dottið í
hug að leigja útlendum auðmönnum
fossana okkar um ákveðið tímabil á
meðan okkur er að vaxa fiskur um
hrygg, þar til við sjálfir verðum fær-
ir um að láta þá vinna fyrir okkur;
sú hugmynd liggur hér á bak við, að
við eigum að láta útlendingana kenna
okkur að nota auðsuppsprettur lands
vors. Hræðslan við ásælnina er á góðum
rökum bygð. Hvað er líklegra en að
þjóð, sem hefir haft vit á að færa sér
í nyt andlegar auðsuppsprettur okkar,
sem við ekki enn höfum vit á að nota
sjálfir, líti ágirndaraugum ónotaðar auðs-
uppsprettur lands vors? þess hafa líka
sézt skýr merki.
JarOarför
Guðlaugar sál. Guðlaugsdóttur fór
fram 13. þ. m. að miklu fjölmenni
viðstöddu. Hornaflokkur Magnúsar Ein-
arssonar spilaði sorgarsöngva við þetta
tækifæri.
Veðrátta
frá 4.—17. apríl 1909.
Ak. Gr. Sf. Bl. ís. Rv. Þh.
s. 6.0 4.0 4.0 5-6 4-5 4-5 8.1
M. 6.0 4.0 5-4 4.0 30 4.0 7.2
Þ. 3-7 2.0 2.8 2.6 1-4 1.6 7.0
M. 1.4 •■5 4.1 - 0.1 1.0 0.2 8.1
F. - 0.7 - 2.5 0.8 - 1.2 - 1.0 36 8-3
F. 2-5 3-5 0.6 I.I 1-3 7.0 8.0
L. 5-7 - 0.8 41 6.5 3-o 6.6 6.9
s. 1.0 3-o 2.0 1.2 3-4 4-5 6.2
M. 2.5 2.0 2.7 0.3 0.7 9.0 6.1
Þ. 3-6 °-5 1.0 35 3-4 4.0 6-5
M. 4-5 0.0 2-5 4.6 3-4 4.5 5-8
F. 3-5 - 0.2 0.0 i-5 - 0.9 4.0 1.0
F. 2.6 1.0 6.4 i-5 i-5 2.6 4-7
L. 56 1-3 J-3 3-o 0.4 4.0 5-6
Hitastigið á Sf. og Þh. er tekið kl. 6
árd. en á hinum stöðvunum kl. 7.
„Snorri“
lítill, snotur hundur, með því heiti, svart-
strútóttur að lit, með uppstæð eyru og
hringað skott, hefir tapast á Akureyri fyrir
3 vikum: — Ef einhverjir kyruu að vita
um hund þenan, eru þeir vinsamlega beðn-
ir að gera undirrituðum aðvart, gegn sann-
gjarnri þóknun.
Vöglum í Fnjóskadal.
Einar E. Sœmundsen,
(skógarvörður).
-2° Atvinna. c^-
Þeir sem vilja taka að sér að berja
c- 3 0 dagsl. af þúfnasléttu semji
strax við St. Sigurðsson kaupm.
I bókaverzlun -m
Frb. Steinssonar
eru nýkomnar nokkurar útlendar
bækur, svo sem:
kenslubækur í Esperanto.
Mit System. Svöm. Hind-
hedes Kogebog:. Dekameron
mjög ódýr. Einnig fást í verzlun-
inni Almanak 1909. Kvenna-
blaðið fæst einnig í verzluninni og
ætti kvenfólkið að styðja að útbreiðslu
þess og kaupa það, árgangurinn
kostar kr. 1.50
Mjólk
frá Hvammi fæst keypt á Akureyri þrisvar
eða fjórum sinnum í viku hverri framvegis.
Menn snúi sér í því efni til Aðalsteins Hall-
dórssonar vélastjóra eða Odds prentara Björns-
sonar.
Beizlisstengur,
Keðjur og ístöð
bezt og ódýrast í verzlun
Sig. Sigurðssonar.
DE FORENEDE
BRYGGERIERS
MALT-
I
ÆGTE KB
MALTEXTRAKT
REF0RM
:trakt
er framúrskarandi hvað snertir
mjúkat) og þægilegan smekK-
Hefir hæfilega mikið af „extrakt"
fyrir meltinguna.
Heftr fengiö meðmæli frá mörg-
um mikilsmetnum læknum.
Oanmark Expedltlonen meddeler den i. Sepibr. 1908:
Med Fornojelse kan jeg give det Danmark Ex-
peditionen medgivne „Ægte Kongens Bryghus Malt-
extrakt" min bedste Anbefaling.
011et holdtíig fortræffeligt under hele vort 2aarige
Ophold i Polaregnene mm mgm Agi«Hf
Alf. Trolle.
Bezta meðal við hósta,
hœsi
og öðrum
kœlingarsjúkdómum.
ThorE. Tulinius & Co.
2-zzz^sm Umboðsverzlun.
Símnefni: „ Verzlun“.
Cori Adelersgade 9.
Köbenhavn K.
/Vnnast sölu á íslenzkum afurðum, og innHaup á útlendum
vörum.
Beztu skilmálar! Fljót afgreiðsla!
Prentsmiðja Odds Bjömssonar,
i