Norðurland - 02.10.1909, Side 2
Nl.
154
hátt sem að framan er vikið að, þá
er eftir að greiða úr því hvernig hægt
sé að koma því við, þar sem hús eru
ekki til. Því að aðgreina síldina úti,
ef sólskin er, er naumast gjörandi og
þarf því að hafa eitthvert skýli til að
varna sólargeislunum að leika um
sfldina.
A Hjalteyri hafa Þjóðverjar, í sum-
ar, notað sólsegl til að þenja yfir þau
svæði, sem síldin hefir verið söltuð á,
til þess að verja hana skemdum af
sól og regni.
Væri ekki hægt að hafa hér ein-
hvern útbúnað líkan því? Eða er það
til of mikils ætlast, að bygð séu hús
við bryggjur bæjarins, til að geyma í
síld, fyrir þá, sem notuðu bryggjurnar
til þess að salta á þeim síld? Væru
þau bygð ætti að sjálfsögðu að að-
greina síldina í þeim.
Það er varla hætt við að vöru-
geymslu hús við bryggjurnar yrðu ekki
notuð, og að þau geti ekki orðið arð-
berandi.
Auk þess er vonandi að ekki líði á
löngu, þar til farið verður að flytja
upp frá Noregi, stafi og annað efni í
síldartunnur og setja þær upp hér.
Væri þá án efa þörf fyrir húsrúm til
þess að geyma tunnurnar í, þegar bú-
ið væri að setja þær upp, og mundu
þá hús sem standa nálægt bryggjun-
um vera vel til þess fallin.
Óbugsandi sýnist að það gæti ekki
borgað sig vel að flytja hingað efni
í síldartunnur og setja þær upp hér
og jafnvíst er það, að með því mætti
veita mörgum mönnum atvinnu, sem
hafa hennar mikla þörf. En út í það
skal ekki farið nánar að þessu sinni.
Það er nóg efni í aðra blaðagrein.
Jón Bergsveinsson.
x
Gagnfrœðaskólini)
settur.
Eins og til stóð, var hann settur í
gær f hátíðasal skólans, sem var troð-
fullur af fólki. Voru þar saman komn-
ir, auk kennara og nemenda skólans,
margir bæjarbúar, sem fýst hafði að
vera viðstaddir skólasetninguna.
Var hún líka hin ánægjulegasta, sung-
ið gullfallegt kvæði eftir síra Matthías;
Jochumsson og á eftir flutti skólameist-
ari ágæta ræðu. En hér flytur Norður-
land hvorttveggja lesendum sínum:
Ræða skólameistara.
Háttvirlu gestir!
Kœru nemendur!
Verið öll hjartanlega velkomin.
Það er nýlunda að sjá utanskófafólk
við skólasetningu hér. Tek eg það sem
vott þess, að menn láti sér nú annara
en hingað til um skólann, og er mér
það hið mesta gleðiefni.
Oft og tíðum hefir litið svo út, sernt
menn létu hag og þrif skóia þessa lítið
til sín taka.
Það var eins og mönnum væri ekki
fyllilega ljóst, að skóla þessum var
ætlað að vera mentunarmiðstöð Norð-
ur- og Austurlands, var ætlað að vera
sú aringlóð, er sendi birtu og yl út
yfir þessa landsfjórðunga, var ætlað að
fylla það skarð hið mikla, sem högg-
við var í menningarforvígi Norðurlands,
þegar það var svift stól og skóla.
Nú hygg eg að mönnum sé farið
að skiljast þetta betur en áður var.
Nú munu þeir vera færri en áður,
ef þeir annars eru nokkrir, sem gleð-
jast yfir því, ef eitthvað gengur mið-
ur en skyldi hér við skólann.
Sú var tíðin, að almenningur leit
hornauga til þessarar stofnunar og
óskaði einskis fremur en hún ylti um
koll.
Fyrstu árin, sem eg var við skólann,
skrifaði eg hverja varnargreinina fyrir
hann á fætur annari, því þá var það
sótt svo fast, að koma honum á kné,
að skólar voru stofnaðir með ærnum
kostnaði við hliðina á honum, til þess
að draga frá honum nemendur, enda
var svo komið haustið 1887, þegar eg
kom að Möðruvöllum, að aðeins einn
einasti nýsveinn kom í skólann, er
settist í annan bekk og um vorið eft-
ir tæmdist skólinn alveg. Þá um sum-
arið var líka samþykt á Þingvallafundi,
að skora á þingið, að leggja skólann
niður, og kom sú tillaga frá Norðlend-
ingi.
Ef þingið hefði orðið við þeirri á-
skorun, þá værum vér nú ekki staddir
á þessum stað.
Þá stæði ekki hér í höfuðstað Norð-
urlands jafnmyndarleg mentastofnun og
þessi skóli er, og vafalaust hefði orð-
ið bið á því, og hún löng, að vér feng-
jum reista slíka stofnun hér norðan-
lands.
»Þið felduð skólann, sem ykkur var
fenginn, nú getið þið verið skólalausir
fyrst um sinn.<
A þá leið mundi stjórn og þing
hafa svarað kröfum vor Norðlendinga
um skólastofnun.
Ekkert var heldur eðlilegra.
En tímarnir breytast.
Hvaða Norðlendingi mundi nú til
hugar koma að skora á alþingi, að af-
nema þennan skóla? Nei, nú mun flest-
um mætum mönnum vera orðið það
hið mesta áhugamál, að skólinn eflist
og blómgist og það jafnvel þeim, sem
greiddu atkvæði með afnámi hans 1888.
— Nú streyma menn að skólanum, ekki
aðeins hvaðanæfa af Norður-og Aust-
urlandi, heldur og úr öðrum lands-
fjórðungum.
Komi allir þeir í haust, er sótt hafa
um skólann, verða nemendur um ellefu-
tfu, eða rúmum 100 fleiri en haustið
1887.
En eigi skólinn að taka verulegum
framförum og ná því marki sem hon-
um er sett, verður fyrst og fremst
þing og stjórn að láta sér ant um
hann. — Síðasta þing á miklar þakkir
skilið fyrir það, hve vel og drengilega
það varð við öllum tillögum mínum og
stjórnarinnar um aukinn fjárstyrk til
skólans, þar sem það ekki einungis
bætti við einum föstum kennara og
veitti nokkurt fé til ýmsra umbóta,
heldur tvöfaldaði námsstyrkinn, veitti
800 kr. á ári í stað 400 kr., svo nú
ætti fátækum nemendum að veita létt-
ara en áður að kosta sig hér.
En þeir, sem næstir standa skólan-
um og fremur öllum öðrum ættu að
láta sér ant um hann og vilja veg
hans og sæmd, eru Akureyrarbúar.
Þeir hafa hans mest bein not. Engir
eiga eins greiðan aðgang að mentun
þeirri, er hann hefir að bjóða, þó bæ-
jarbúar hafi enn ekki fært sér það í
nyt, sem skyldi. En þetta er líka að
breytast.
Akureyri er það vegsauki mikill, að
hafa skólann, og því meiri sem hann
er fullkomnari og betri.
En aðalskilyrðið fyrir því, að skól-
inn nái sem mestri fullkomnun og vin-
sældir hans fari fremur vaxandi en
þverrandi er það öllu öðru framar, að
skólastjóri og kennarar séu starfi sínu
vaxnir og ræki það með alúð og sam-
vizkusemi.
Þeim verður að vera það Ijóst, að
tilgangur skólans er ekki eingöngu sá,
að fræða nemendurna, heldur að bæta
og göfga allan hugsunarhátt þeirra, út-
rýma öllu því sem ljótt er og lágt
í fari þeirra, en hlúa að öllu sem gott
er þar og fagurt, svo það nái að
þroskast svo og dafna, að ekkert ill-
gresi megi þar rætur festa.
Þeir verða að rækja þannig störf
sín, að nemendurnir hljóti að finna til
þess, að þeir láti sér inniiega ant
um þá og beri umlram alt velferð þeirra
fyrir brjósti, en hugsi minna um sinn
eigin hag og þægindi. Þetta kunna
allir góðir nemendur að meta. Þeim
verður vel við kennarana sína og sú
velvild er eitt helzta skilyrðið fyrir
því, að störf kennaranna blessist og
skólinn nái tilgangi sínum.
Vér, sem nú erum skólakennarar,
finnum sárt til þess hve oss er að
ýmsu leyti ábótavant, en einlægan vilja
höfum vér á því að starf vort komi
að sem mestum og beztum notum og
sigursæll er jafnan góður vilji.
En það er ekki hvað minnst undir
ykkur komið, kæru nemendur, hver
árangurinn verður af starfi voru í vetur.
Eg geng því vísu, að þið séuð
öll hingað komin með þeim einlæga
og alvarlega ásetningi að menta ykk->
ur, búa ykkur undir lífið, svo þið
verðið færari um að taka hverju sem
að höndum ber.
Tíminn er stuttur sem þið eigið
kost á að dvelja hér og því er áríð-
andi að nota hann vel.
Vandamenn ykkar og vinir sem styðja
ykkur til náms, vænta þess af ykkur
að þið farið vel með tímann og hag-
nýtið ykkur sem bezt alt, sern skól-
inn hefir að bjóða ykkur til menn-
ingar og frama.
Og ykkur félitlu einstæðingunum,
sem eruð að reyna að klífa þrítugan
hamarinn til þess að geta verið hér
á skólanum, ætti að vera hver stund-
in hér því dýrmætari, sem rneira er
í sölurnar lagt.
Eri um það get eg fullvissað ykkur
öll, að hvern þann eyri, sem þið verj-
ið ykkur til sannrar mentunar, fáið
þið endurgoldinn með rentum og rentu-
rentum, svo framarlega að þið villist
ekki af réttri leið, en hafið það jafn-
an hugfast að haga ykkur sem góðu
og göfugu fólki sæmir.
Eg vona að ekkert ykkar sé hing-
að komið til þess eins að skemta
sér, eða til þess að geta státað af
því að vera skólagengið, og sé svo
að einhver hafi hugsað á þá leið, verður
hann nú þegar að varpa þeirri hugs-
un fyrir borð.
Ekki má taka það svo að ykkur
verði meinaðar hér allar skemtanir.
Glaðværð og skemtanir er æskunni
lífsnauðsyn og því mun ykkur gefin
kostur á að skemta ykkur svo, að
þið getið gengið hress og glöð að
hinum daglegu störfum ykkar.
Að endingu vil eg alvarlega leggja
ykkur það á hjarta, kæru vinir mínir,
að umgangast hvert annað eins og
góð systkini, styðja og glæða alt
fagurt og gott í fari hvers annars,
en hnekkja öllu, sem miður má fara
og t)æla það niður. Kurteysi og hvers-
konar háttprýði verðið þið að temja
ykkur, hvar sem þið eruð og hver
sem í hlut á.
Hinar fáu reglur sem skólinn setur
ykkur, verðið þið stranglega að halda.
Umgengni ykkar um hús og muni
skólans verður að vera óaðfinnanleg
og að öllu leyti eins og siðprúðum
unglingum sæmir.
Vænti eg þess eindregið að eg hafi
oftar ástæðu til að hæla ykkur fyrir
siðprýði og hverskonar reglusemi, en
að ávíta ykkur fyrir ósiði og óreglu,
því það er mér næsta óljúft. Vildi
eg óska að aldrei þyrfti til þess að
koma.
Yður, háttvirtu gestir, þakka eg
fyrir þá sæmd, sem þér hafið sýnt
skólanum með nærveru yðar.
Að svo mæltu lýsi eg yfir því, að
skólinn er settur, og bið guð að blessa
störf okkar á skólaári því, sem í hönd
fer, svo þau megi verða ykkur nem-
endum til verulegs gagns, okkur kenn-
uruuum til gleði og ættjörðinni til
sannra heilla og hagsbóta.
Skólasetningarljóð
Matth. Jochumssonar.
Nú kallar þjóðin ykkur, landsins arfa,
að yrkja og vakta helgan jöðurgarð;
og enginn tími stefndi þjóð til starfa
með stœrri von um hundraðfaldan arð.
Um láð og lög og loftsins fimbulvegi
er leiðin frjáls, og sigruð tið og rúm,
ný sköpun byrjuð, bjart af nýjum degi,
og bezta fortið orðin rökkurhúm!
Því lofið Guð, þið yngismenn og meyjar,
að megið lifa þessa furðu-tíð,
sem vefur saman álfur, höf og eyjar
og allar þjóðir gerir banda-lýð!
En munið, börn, því meira sem er unnið,
er meira eftir — hœrri, stcerri þraut,
og litlu munar, langt þó sýnist runnið,
á lifsins stóru guðdómlegu braut.
Kom heill til náms, þú ungi lcerdóms lýður,
sem lyfta skalt til manndóms veikri þjóð!
I minni festu fyrst hvað skyldan býður,
svo för þín verði heillarík og góð.
Sjá, markið er, að mentist vorar bygðir,
svo mœttum aftur verða sœmdarþjóð,
þvi skólinn á að skapa dáð og dygðir
og drengskap leiða í ykkar merg og blóð.
Það var sú tíð, að vorar norðursveitir
sín verja kunnu gömlu fjórðungs mót
og gceta alls, er afl og menning veitir,
að ekki týndi fornri he'raðsbót.
Og meðan kröftúm fjöll á Fróni skifta,
sem fyrrum, þarf að jafna héraðsvöld.
Og skuti aftur lýða kjörum lyfta,
skal lijna alt sem bezt var fyr á öld.
Sem gullnir tindar hefja sát til hœða,
og hafsins töfrar vekja manndóms þrá,
eins kennir sagan, fóstra vorra frœða,
þann fremdarhug, sem lyftir andans brá.
Og henni ásamt: óður vor og tunga
er æðsta ment, er styrkir, göfgar oss.
Þvi gleym þú aldrei, lands vors öldin unga,
að elska þessi fólks vors dýrstu hnoss!
Margt er að lœra, tjúfu mentavinir,
en listin œðst er þó að verða menn,
sem reynast sinnar þjóðar heilla-hlynir,
því harðar skúrir biða Snœlands enn!
Gott er að fljúga, — vinna veröld hálfa.
og verða mikill, hver t sinni bygð,
en mest er vert, að sigra vel sig sjálfa
með sannri vizku, fétagsskap og trygð!