Norðurland - 02.10.1909, Page 3
155
Nl.
Símfréttir úr Reykjavík.
Bankastjórastöðurnar við Lands-
bankanr)-
/ þær eru skipaðir kaupmennirnir
Björn Kristjánsson i Reykjavik og
Björn Sigurðsson í Kaupmannahöfn.
Síra Haraldur JNíelsson
hefir fengið lausn frá prestsembœtti
sinu, af heilbrigðis-ástœðum, samkvœmt
ráði tandlœknis. Síra Friðrik Friðriks-
son er settur i dómkirkjuprests em-
bœtti síra Haralds til nœsta vors, en
sira Bjarni Hjaltested i prestsembœttið
við holdsveikraspitalann.
Goodtemplarar þakkaráðgjafanum.
Öll framkvœmdarnefnd Stórstúku
Goodtemplara gekk á fund ráðgjafa
23. þ. m. og færði honum skrautrit-
að ávarp, veglega útbúið, með þakk-
læti fyrir siarf hans i bannmálinu.
Stórtemplar Þörður Thóroddsen flutti
ræðu, en ráðgjafi þakkaði.
Uppbót prestakalla.
Meðal þeirra prestakalla er uppbót
hafa fengið nú eru Vellir í Svarfað-
ardal með 200 kr., Presthólar og Sval-
barð í Þistilfirði hvort með 250 kr.
*
Utlendar símfréttir.
Skat Bördam Sjálandsbiskup er ný-
látinn.
Lávarðarnir ensku gerðu mikið á-
hlaup á fjárlaga frumvarp stjórnar-
innar. Eru þó nú farnir að linast.
Hervarnarfrumvarpið samþykt i Dan-
mörku. Christensen hefir lýst því yfir
að hann fari frá i þ m. (Hefir ekki
orðið vœrt eftir gauraganginn, sem
móti honum var gerður.)
Peary hefir samið skjal i 14 lið-
um, þar sem hann ber lygar og svik
á CooK- Neitar að taka móti heið-
ursviðurkenningum fyr en yfir Ijúki
með þeim í þessari deilu. Cook kom-
inn til Vesturheims.
%
Nýtt lyf við holdsveiki.
Læknir einn Dr. Deycke, sem enska
stjórnin hefir kostað til þess að rann-
saka holdsveikina í Guyana í Suður-
ameríku, kom aftur til Norðurálfunnar
í sumar. Hefir hann fundið upp nýtt
lyf við veikinni, er hann nefnir Nas-
tin, og lætur mikið yfir lækningakrafti
þess. Stjórnin í Guyana ætlar að sögn
að láta nota lyf þetta við holdsveika
menn þar í landi og fengið hefir lækn-
irinn miklar þakkir hjá stjórninni ensku.
Væntanlega hefir lyfsins verið get-
ið á fundi holdsveikislæknanna í Björg-
vin í sumar; þangað fór sem kunnugt
er holdsveikislæknir okkar, Sæmundur
Bjarnhéðinsson.
%
Latraskólinn.
Cand. júr. Jón Kristjánsson (háyfir-
dómara) er ráðinn aukakennari við laga-
skólann samkvæmt fjárveitingu síðasta
þings.
pjártaka
verður með allra mesta móti, alstað-
ar þar sem til fréttist hér norðanlands.
— í kvöld mun verða búið að slátra í
sláturhúsi Kaupfélags Eyfirðinga full-
um 4000 fjár.
Fágætt afmæli.
Hreppstjóri í 50 ár.
Jöhann P. Pélursson dannebrogs-
maður á Brúnastöðum í Tungusveit í
Skagafirði hafði verið hreppstjóri í
Lýtingsstaðahreppi í 50 ár á sfðast-
liðnu vori. — Sveitarbúar hans mint-
ust þess með samsæti, er þeir héldu
honum, og gáfu honum dýrindis klukku
í þakklætisskyni fyrir starf hans.
Jóhann er 74 ára gamall á þessu
hausti, fæddur 11. oktober 1835.
Hefir hann þá orðið hreppstjóri í ein-
um af stærstu hreppum landsins á
24. árinu. Sýnir það hvert traust hef-
ir verið borið til hans, þegar á ung-
um aldri.
Kona Jóhanns er Elin Guðmunds-
dóttir Arnljótssonar frá Guðlaugsstöð-
um í Húnavatssýslu.
Ráðziafinn vel frískur.
Út af ósannindum, sem verið er að
breiða út hér um heilsuleysi ráðgjaf-
ans, skal þess getið að hann er vel
frískur um þessar mundir.
Ritsímafalsanirnar.
Fullyrt er að símastjórnin sé ráð-
in í því að hleypa ekki Eggerti Stef-
ánssyni aftur að símanum.
Jónasi Guðlaugssyni er nú að sögn
vikið trá ritstjórn >Reykjavfkurinnar«,
en við tekur til nýárs Jón Olafsson,
fyrverandi ritstjóri blaðsins.
Heimastjórnarforingjarnir hafa þá sætt
færinu til þess að hrysta Jónas af sér,
eftir að hafa notað hann til þess að
>bera ábyrgðt á öllum þeim ógrynn-
um af ósannindum, sem þeir hafa lát-
ið í Reykjavíkina.
Líklega hefir verið komið svo mikið
f pokann að Jónas var ekki fær um
að bera hann lengur.
En nú tekur Jón Ólafsson við honum.
Hann hefir breiðara bakið.
Fair play.
Norðri er að rugla í síðasta blaði
sínu um heiðarlega bardaga aðferð
og notar jafnframt tækifærið til að
fara með rakalausar . svívirðingar í
garð andstæðinga sinna, og ráðgjaf-
ans fyrst og fremst.
Eftir því sem það blað hefir hagað
sér og eftir því hvernig ritstjórn
þess er nú og hefir verið frá upp-
hafi, gerir blaðið víst réttast í að
vera sem allra fátalaðast um heiðar-
lega bardaga aðferð eða >heiðvirða
blaðamensku*.
Fyrirspurn.
Síra Matthías tilfærir í síðasta
Norðra nokkur ummæli eftir speking-
inn dr. Eliot um væntanleg framtfð-
ar trúarbrögð, er kenna muni, meðal
annars, sameining sálarinnar við guð
og anda hinna framliðnu* Það sam-
band við framliðna anda verður vænt-
anlega í þessu lífi. Annars væru þetta
engin ný trúarbrögð. — Að lokum
beinir hann maklegum ávítum til >Fræ-
korna* og >Bjarma« fyrir þröngsýni
þeirra.
En þvf snýr hann ekki jafnframt
máli sfnu til Norðra sjálfs og annara
sorpblaða landsins, sem ekki eru lengra
á veg komin en það, að þau gera
rannsóknir á sambandinu við anda
hinna framliðnu að ofsóknar og svf-
virðingarefni ?
* Auðkent af höf.
Áfenzi oz tærinz-
Blaðið Lögberg flytur útdrátt úr
grein eftir franskan vísindamann í
Revue Scientifique, um sambandið milli
tæringar og áfengisnautnar á Frakk-
landi. — Greinin sýnir og sannar, að
þar sem mest er drukkið af áfenginu,
þar er líka mest um tæringuna. Tær-
ingarhéruðin og drykkjuskaparhéruðin
eru hin sömu. Lungnatæring er tíðari
á veitingamönnum, en nokkrum öðr-
um verzlunarmönnum'. Af 100,000
manns í þeirri stétt, deyja árlega 579
úr lungnatæringu, en 245 af hverjum
100,000 af fólki af öðrum stéttum.
í Parísarborg er lungnatæring helm-
ingi tíðari á karlmönnum en kvenfólki
og er áfenginu um kent.
Heyafli landsins.
Enginn vafi er á því að hann hefir
orðið með allra mesta móti, og mun
svo vera um land alt, þó mismunur
sé eðlilega nokkur. Þvf miður hrökt-
ust hey nokkuð í sumar, en mjög
var það misjafnt. Víða munu óhröktu
heyin svara vel til meðalheyafla og
er þá hrakta heyið umfram hann.
Heybirgðir hér á landi eru víst nú
með mesta móti, því fyrningar hljóta
að hafa verið óvenjulega miklar á síð-
asta vori eftir góðan heyskap og létt-
an vetur.
Úr sióði Christjáns IX.
hafa í þetta sinn fengið heiðurs-
gjafir Magnús Gíslason bóndi á Frosta-
stöðum í Skagafirði og Böðvar Sig-
urðsson bóndi í Vogatungu í Borgar-
firði.
Mannalát.
Hannes Eyjólfsson, verzlunarmaður
hjá P. Sæmundsen á Blönduós and-
aðist 25. þ. m. Hafði haft taugaveiki,
og var í afturbata, en fekk upp úr
því lungnabólgu, sem varð honum að
bana. Mikiil efnispiltur; varð aðeins
tæplega tvítugur.
Nýzift.
eru þau ungfrú Guðrún Jóhannsdótt-
ir, Einarssonar frá Víðivöllum, er dval-
ið hefir undantarin ár á Borg á Mýrum og
Sigurjón Suma/Iiðason póstur á As-
láksstöðum.
%
Veðursímskeyti til J^ls
frá 26. septbr. til 2. okbr. 1909.
Ak. Gr. Sf. Bl. ís. Rv. Þh.
s. 10.0 6.6 10.9 9.2 9.7 8.7 7.2
M. 5'9 4.0 9-3 5-6 8.2 8.0 6.2
Þ. 34 1.0 8.0 11.7 2.6 9.2 2.0
M. 3 4 0.2 7.2 2.0 3-5 9.8 8.2
F. 1.2 -2.5 2.2 2.3 3-0 4.8 4.6
F. o-3 -i-5 .18 1.5 2.9 2-5 1.2
L. 1.0 -i-5 i-7 2.1 1.0 3-6 91
KI. (f.h.) 7 - 7
Gjalddagi
Norðurlands
var 1. JÚNÍ síðastliðið.
Þeir háttvirtir kaupendur bláðsins,
sem ekki hafa þegar gert skil, eru
alvarlega ámintir um að borga blaðið
sem fyrst.
Hafi greiðsla farist fyrir í sumar-
kauptíðinni, eru menn beðnir að muna
eftir blaðinu í HAUSTKAUPTÍÐINNI.
NB. Borgun fyrir blaðið er veitt
móttaka á AKUREYRI af ritstjóran-
um og í Kaupfélagsverzluninni, á
HÚSAVÍK af verzlun Örum & Wulffs
og Bjarna Benediktssonar, á SAUÐ-
ÁRKRÓK af verzlunum Kristjáns Gísla-
sonar, Kaupfélagsins og Gránuíélags-
ins, á BLÖNDUÓSI við verzlun C.
Höepfners og í REYKJAVÍK af ísa-
foldarprentsmiðju.
Kaup-
staðai -
búaiy
sem skulda verzlun Sn.
Jónssonar á Oddeyri,
eru hérmeð aðvaraðir
um að borga skuldir
sínar, eða semja um
þær fyrir 10. þ. m. —
Eftir þann tíma verða
þær fengnar málafærslu-
manni til innheimtu.
Valdemar Steffensen
læknir
er fluttur í Brekkugötu 11
(hús Frímanns Jakobssonar).
Qærur
hertar og óhertar, kaupir undir-
ritaður fyrir peninga út í hönd.
Akureyri 1. okt. 1909.
OTTO TULINIUS.
Undirritaður veitir stunda-
kenslu í islenzkri málfrœði,
Ensku, Dönsku, og stærðfrœði.
Adam Þorgrlmsscn.
— 7 — 7 — 7 — 6
Sé lítið um peninga, þá þarf að fara sparlega
með þá. Allir sem kaupa í
Brauns verzlun „HAMBURG"
Hafnarstræti 96
spara margan skildinginn við hvert kaup. Að eins með því að kaupá
alt fyrir peninga út í hönd og án þess að hafa umboðsmenn, beina leið
frá stærstu verksmiðjum erlendis, getum vér boðið viðskiftamönnum vor-
um slík kjarakaup.
Sé keypt fyrir minst 10 kr. gefum vér, svo sem kunnugt er, að auki,
101 afslátt.
A
meðan kauptíðin stendur yfir verður daglega til sölu kjöt og mör
í
Sláturhúsi Kaupfélagsins.
Vasaúr
tapaðist í gærkvöldi á leiðinni frá J. V. Havsteens verzlun og inn til Boga Daníelssonar. Finnandi skili til Eggerts Einars-
sonar gegn fundarlaunum,