Norðurland


Norðurland - 12.03.1910, Side 3

Norðurland - 12.03.1910, Side 3
39 Nl. utn vélamdlið megí lengi jagast, það máske verði tiu dra forði. — Þeir voru sex, er skyldu vélar skrúfa i skárra horf, en áður til var stofnað. Til mergjar áttu málið þeir að kljúfa, en neinið er — þeir sjálfir hafa klofnað. Það eru fáir véla-menn við málið, °S mikið þarf að tala enn og gera. Og það er langt frá svo sem sopið kálið, sem þeir »klofnu« fram l ausum bera. Vélunum þeim finnst ei gott að farga, °ð fella þœr, er talinn þjóðarskaði. — Nú, ýmsir halda, að Einar muni bjarga, þó allra neðstur standi hann á blaði. — * * * Vér biðjum öll, að allar vorar götur að ending verði hamingjunnar götur, að vélarnar oss vinni utl í plötur, en varist það, að slá oss stœrri plötur. X Veðursímskeyti til JNls- frá 6. til 12. marz 1910. Ak. Gr. | Sf. Bl. | ís. | Rv. | Þh s. - 1.2 - 4.0 4.6 - 3-8 - 4-7 2-5 o-5 M. - 2-5 - 3-0 1.2 - 1-4 - 3-0 3-5 6.6 Þ. - 1.8 - 2.5 3-6 - 1.8 - 6.7 2.6 6.2 M. - 3-5 - 5-8 - 0.6 - 5° - 6.6 - 0-3 5° F. - 5-5 - 9.0 - 4.6 - 6.2 - 6.7 - 4-5 - 4.2 F. - 2.5 -12.5 - 54 - 4-4 - 0.5 - 0.7 1.2 L. 2.0 - i-5 2.5 1.2 o-S i-5 1-4 Kl. ( •h.) 7 — 7 — 6 — 7 — 7 — 7 — 6 X FriOrik Kristiánsson bankastjóri kom ekki í bankann í dag og eru menn alvarlega hugsjúkir um að eitthvað hafi orðið að honum. X Frá glímuköppunum erlendis. 1. Bréfkaflar um glímusveit Jóhannesar. Berlin, l6k ’io. Nú höfum við félagar sýnt íslenzka glímu ásamt sjálfsvörn Jóhannesar í Palast Theater í 9 kvöld. Á þessum tíma hefir enginn treyst sér að mæta Jóhannesi, jafnvel þótt hann hafi á hverju kvöldi boðið þeim manni þús- und mörk, er staðist gæti brögð sín í S mínútur. Mun mönnum eigi þykja árennilegt að etja kapp við hann, því að mikið finst þeim til um hin marg- víslegu brögð sjálfsvarnarinnar. Enda hafa nú að minsta kosti 6 Berlinar- blöð skrifað hól eigi alllítið um glímu- sveit hans. Blaðið Deutsche Varte segir meðal annars 12. febr. ’io-------Glfmu- sveit Jóh. Jósefssonar, sem áður er fræg orðin hér í Berlín, sýnir hin ýmislegu brögð glímunnar, beittum til varnar gegn áhlaupi manna, vopnuð- um með hníf, skambyssu o. fl. Þó vildum vér mega benda hinum hug- djörfu köppum á það, að gæta meiri varúðar, því að kvöld það er vér sá- um þá á leiksviðinu, særðist einn glfmu- manna á hálsi af byssuskoti, og einn- ig á vanga af hnífstungu. Síðar kast- aðist morðkuti allgífurlegur ofan til hljóðfæraflokksins og tók með sér einn lampann. Til allrar hamingju meiddist þó enginn. En lán var það að ekki varð meira að. Mun mönnum, sem sjá gb'mumenn þessa, lengi minnisstæð fimi þeirra, dirfska og snarræði.« Marzmán. allan vinnum við f leik- húsi í Miinchen, er nefnist Colosseum. Má vera að einhverir þar hafi hug til að fást við Jóhannes. Mun hann þá og eigi letja, því óhræddur er hann enn að fást við tröllin. Landsíminn. Stúlka, sem er vel að sér í tungumálum, verður tekin til kenslu hér við landsímastöðina. Umsóknir séu komnar til mín fyrir 16. p. m. Nánari upplýsingar hjá undir- rituðum. Gísli Ólafssoij. io hina fyrstu daga aprílmán. er- um við ráðnir nú þegar í leikhúsi f Regensburg er nefnist »Velodrom«; þykir mér eigi ólíklegt að einhverir þar syðra gefi sig fram til þess að þreyta við okkur fsl. glímu, því að heyrt hefi eg það haft fyrir satt, að þar væru íþróttamenn miklir. II. Bréf til Jóhannesar Jósefssonar Budapest 5. febr. 1910. Við gömlu félagar þínir, nær því eitt ár samfleytt, höfum frétt að þú berir okkur alt annað en gott orð heim til íslands (bæði opinberlega og til einstakra manna) og við höfum séð kafla úr bréfi frá þér í blaðinu ísafoid, sem er alt annað en samkvæmur sann- leikanum og viljum við því athuga hann lítið eitt. Brigslyrði þfn um Paul Neve mun- um við leiða hjá okkur að mestu, því hann getur sjálfur »bitið bein« fyrir sig; þó munum 'við bera það af hon- um, sem við vitum með vissu að þú segir ósatt. Þú segist hafa orðið hissa þegar við fórum frá þér. Þó veiztu það ofur- vel, að við vorum ekkert ráðnir hjá þér. Eða ertu búinn að gleyma því þegar Neve tók þig og okkur að sér í byrjun júnímánaðar, til þess að út- vega okkur atvinnu eitthvað framvegis, einmitt þegar þú varst vonlaus um að geta fengið nokkuð að starfa við glímu í bráðina. Það var þá sem þú varst að hugsa um að stökkva til Ameríku af gremju yfir því, að ekki var meiri eftirspurn gjörð að jafnmiklum manni. Auðvitað ætluðum við hinir að fara heim og það verðum við að segja, að á því tímabili hélztu okkur ekki við »sæmileg kjör«. Að minsta kosti urðu tveir af okkur að hjálpa sér sjálfir, en einum útvegaðir þú atvinnu til þess að þræla sér út fyrir sama sem enga borgun. Auðvitað tókstu kaupið, þótt þú hefðir miklu léttari vinnu. Við vorum því farnir að tapa trúnni á þig, að þú mundir yfirstíga alla örð- ugleika, en ekki skorti þig samt hreysti- yrðin, þá sem endranær; þau hafðir þú altaf á reiðum höndum. Mun víst engan furða það þótt trúin veiklaðist hjá okkur, því frá því við komum til Skotlands í janúarmánuði til maímán- aðarloka höfðum við ekki haft vinnu nema í 5 vikur og eina vikuna sveikstu okkur um kaupgreiðslu. Það er sann- leikur. Það hefðu þvf mátt vera meira en meðalflón, sem á þig hefðu treyst, eftir annan eins atvinnurekstur. Svo þegar Neve kom tii sögunnar, réðum við okkur allir hjá honum, al- veg óþektum manni. Við treystum hon- um betur en þér. Það kom líka brátt í ljós, að annar og betri maður var tekinn við stjórninni. Við fengum nú nóga og alveg óslitna atvinnu, þótt Neve fyrst f stað tapaði heldur á okk- ur en hitt, þar sem hann lagði okkur til, öllum 4, vönduð sýningarföt, ásamt auglýsingum o. fl. Þrátt fyrir þetta fengum við þó oftast kaup okkar skil- víslega borgað, tvisvar á mánuði. Og þótt svo væri ekki ætíð, vorum við óhræddir að eiga hjá honum, enda hefir traust okkar á honum aldrei orðið sér til skammar, eða hann á nokkurn hátt brugðist vonum okkar. En eftir því sem okkur gekk betur, þá versnaðir þú að sama skapi í öll- um viðskiftum og svo gott kaup hafðir þú, að flestir hefðu látið sér það nægja, með þó ekki þyngri vinnu en þú hafðir; þú áleist þig nú orðinn svo mikinn mann, að litlu tauti varð við þig kom- ið, nema þú værir gerður »kendur«. Löngu áður en við fórum frá Pét- ursborg, varstu tekinn upp á því að baktala Neve í okkar eyru og lézt til þín heyra megna óánægju yfir honum og störfum hans. Vildir þú nú byrja á ný að sjá okkur fyrir atvinnu. Gengd- um við oftast engu þeim ræðum þín- um. Þú máttir fyrir okkur hafa það álit á Neve og öðrum, sem þér sjálf- um sýndist, en þú hefir illa miskilið okkur og tekið þögn okkar fyrir sam- þykki. Má óhætt segja að þar hafi þér farist einfeldnislega, ekki vitlausari manni. En þetta var það, sem að síðustu kom þér á kaldan klaka. Auð- vitað gerði Neve þá ekki jafnmikið fyrir okkur sem áður, eða einsog hann hefði getað, en allir almennilegir menn munu letjast að vinna fyrir aðra, þeg- ar þeir fá ekki annað en skammir og vanþakklæti fyrir vel afleyst verk. Svo komum við til Pétursborgar. Þar segist þú hafa rekið Neve frá þér, en þar hefir þú hausavíxl á hlutunum. Það var alveg á sinn hátt einsog þeg- ar húsbóndi vísar frá sér ótrúum vinnu- manni og þú áttir sannarlega ekki betra skilið. Þú kant ekki að meta það gott sem að þér er rétt; svo hafð- irðu sjálfur bara skapraun og leiðindi af öllu saman. Þú varst nú atvinnu- laus að mestu, en til allrar hamingju varstu búinn að fá inn svo mikla pen- inga, að þú hefðir vel getað þolað að vera atvinnulaus síðan. Kom það sér vel að Neve borgaði þér kaup þitt skilvíslega; ella værir þú nú máske kominn á vonarvöl. Þú getur þess rétt til, að þaðan fórum við til Odessa, en við sýndum þar ekkert, sem þú áttir persónulega. Þessi sjálfsvörn, sem þú ert svo stolt- ur af, er tínd saman úr ýmsu sporti, svo sem japönsku (Yiu Yitsu), ensku (Catch-as Catch-can) og fleiru ósam- kynja hefir þú hrúgað þar saman. Verð- ur $jálfsvörn þín á engan hátt sýnd, nema sá, sem henni er beitt við, láti góðfúslega taka á sér tökum. Við lögð- um því enga áherzlu á þetta »humbug«. Aftur á móti sýndum við íslenzka glímu þar syðra og unnum okkur á þann hátt vinsæld og virðingu. En máske þú segist líka hafa fundið það »sport« upp, og merkilegt er að þú segist eiga þá sjálfsvörn, sem við brúk- um og sem við tileinkum íslandi, t. d. vörn móti skambyssu. Þó hefir þú aldrei séð þá vörn brúkaða og hefir þarafleiðandi ekki hugmynd um hvern- ig hún er. Strax eftir að við skildum lét Neve prenta nýjar auglýsingar og getum við huggað þig með því, en þótt nafn þitt stæði hvergi á þeim, þá var þó hvergi spurt eftir þér, hvorki í Odessa né annarstaðar, þar sem við höfum verið. Svo kemur það versta, en það er viðureign þín við hann Pilakow, kvöld- ið áður en við fórum frá Pétursborg. Sú glíma við hann er sú vesældarleg- asta sem þú hefir háð um þína daga, þó hann sé ekki meiri garpur en það, að hafa einhverntíma unnið 3. verð- laun í grísk-rómverskri glímu, austur í Síberíu, en þar eru ekki sagðir nein- ir framúrskarandi afreksmenn að afli eða atgjörfi. Þó velti hann þér þar í moldinni á leiksviðinu, einsog þegar brauðkefli er velt harðast í flatköku og peningarnir, sem þér voru fengnir eftir glfmuna, voru teknir af þér aftur fyrir lélega frammistöðu í glímunni. En hitt ákveðið fyrirfram að afhenda þér peningana, hvernig sem glíman gengi, til þess að vekja á þér eftir- tekt fólksins. Og bæði þú og aðrir vissu, að þú áttir ekki að fá pening- ana til eignar, ekki sízt fyrst þú varðst svona augsýnilega undir. Það lítur ann- ars út fyrir að þú hafir átt von á að fréttir af þessu mundu berast heim og svo hefir þú tekið þetta til brags, að snúa sannleikanum í ósannindi. Að síðustu er að minnast á óreglu þá, sem þú segir að við lifum í. Ætl- um við ekki að fara um það mörgum orðum, en láta þá, sem þekkja okkur alla persónulega, dæma um það, hvort þú segir satt, eða við lifum illum lifn- aði og til þess að sýna hið gagnstæða skorum við á þig að mæta okkur í Lundúnum í marzmánuði og þreyta þar við okkur hverskorar íþróttir. Munu leikslok sýna það hverir eru og hafa verið óreglumenn og hverir ekki. Máttu með réttu minni maður kallast ef þú ekki mætir. Svo biðjum við þig allir, að þú, af hlífð við sjálfan þig, látir okkur í friði, því annars getui svo farið, að þú fáir eitthvað það til minja, sem meira mun- ar um en rúblurnar, sem þú fekst fyrir að fella hann Pilakow. A'ristján Þorgilsson. fón Helgason. Jón Pálsson. Norðurland leit svo á, að það væri rangt gert, bæði gagnvart þeim þrem mönnum, sem hér standa undir og eins ættmennum þeirra og kunningjum hér heima fyrir, að neita um rúm fyrir grein þessa og leyfa ekki mönnum þessum að bera hönd fyrir höfuð sér. Að öðru leyti eru ekki nóg gögn fram komin, til þess að dæma um hvor réttara hafi fyrir sér og sýnist ekki ósennilegt að sökin sé nokkur á báðar hliðar, eins og oft vill verða, þegar tveir deila. Glfmuköppunum væri langsæmilegast að láta þær deilur falla niður. Þeim hefir líklega verið mál á að skilja og sýnist þá mega við það sitja, þó ekki sendi þeir hver öðrum hnútur um svo langan veg, sem þó er á milli þeirra. Þar átti Jóhann- es upptökin og verður því tæplega bót mælt. Hinsvegar verður það ekki talið sannað, að Jóhannes megi ekki teljast höfundur að sjálfsvörninni. Það sannar ekkert í því efni að hann hafi sett hana saman úr ýmsu »sporti«, sem áður var kunnugt, Einmitt það að hún er sett saman úr ýmsu »ósam- kynja« bendir til þess, að Jóhannes geti með æðimiklum rétti talið sig höfund hennar. Og að því er snertir vörnina gegn skambyssu, sýnir bréf- kaflinn hér f blaðinu, að Jóhannesi er ekki ókunnugt um hana. Þá sýnist áskorunin til Jóhannesar um að koma til Lundúna í marzmán- uði nokkuð seint fram borið og þó hann komi þar ekki, munu kunnugir tæplega bregða honum um hræðslu fyrir það. Að endingu vill Nl. benda glímu- köppunum á það, að heimurinn mun vera svo stór, að þeir ættu allir fjórir að komast fyrir í honum, án þess að þurfa að gefa hver öðrum alt of mikil olbogaskot. X jlukaþingsmeirihluti Skagfirðinga. Hljóð í poka. Herra rifsfjóri Sigurður Hjörleifsson. í grein, með fyrirsögninni „Aukaþings- nieirihluti f Skagafirði"! í 4. t. bl. Norður- lands þ. á. hefir yður þóknast að minnast okkar, og álítum við að yður þess vegna verði ljúft að birta í blaði yðar eftirfylgj- andi leiðréttingu. Fregnin sú, að við höfum verið kosnir fulltrúar fyrir Haganeshrepp í því skyni, að mótmæla aukaþingshaldi er ðsöun og ósann- anleg. Fundinum var kunnug okkar skoðun áð- ur en hann kaus okkur; þetta má staðfesta með vottum. - Að aðrir viti þetta betur en fundarmenn og við, — í hvaða skyni var mögulegt að kjósa okkur — á það leggjum við engan trúnað, enda þó þér gætuð bor- ið skilorðan anda fyrir fregninni,

x

Norðurland

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Norðurland
https://timarit.is/publication/203

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.